Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B 21.tbl. 77. árg.___________________________________FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Jarðskjálftinn í Tadzhíkístan: Talið að um 300 manns hafi farist Talið er ólíklegt að fleiri fínnist á lífi Moskvu. Reuter. BJÖRGUNARMENN í Sovét-lýðveldinu Tadzhíkístan telja óhugs- andi að fleiri finnist á lífi i þorpum þeim sem urðu undir gifur- legri aurskriðu sem hljóp af stað á aðfaranótt mánudags er jarð- skjálfti reið yfir lýðveldið. Sovéska fréttastofan TASS skýrði frá þessu í gær en ekki er fyllilega ljóst hversu margir týndu lífi í náttúruhamförunum en yfirvöld segja að 300 manns hafi farist. Reuter Björgunarmenn leita að likum i eðjunni sem hljóp af stað í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir Tadzhí- kístan aðfaranótt mánudags. Sovésk yfirvöld segja að innan við 300 manns hafi týnt lífi i náttúruham- förunum. Stríðandi fylkingar shíta í Líbanon: Atök þrátt fyrir sam- komulag uni vopnahlé Sáttafiindum haldið áfram í Sýrlandi Marj al-Zohour, Beirút, Sídon, Damaskus. Reuter. íbúar lýðveldisins minntust hinna látnu í gær og mátti víða sjá fána dregna í hálfa stöng, matsölustaðir voru lokaðir og ýms- um opinberum viðburðum var fre- stað. 7IASS-fréttastofan skýrði frá því að óhugsandi væri að nokkur héldi lífí undir aurskriðunni og Norsk Data: Tap upp á 2 milljarða ísl. króna Ósló. Frá Rune Timberlid, fróttaritara Morgamblaðsins. NORSK Data, eitt af flaggskip- unum í norsku iðnaðar- og at- vinnulífi, á nú við alvarlega erfiðleika að etja. Var það rek- ið með miklum halla á liðnu ári og hefúr verið ákveðið að segja upp 800 af um 4.000 starfsmönnum. Á síðustu árum hefur vöxtur og viðgangur fyrirtækisins á tölvumarkaðnum í Noregi og víða erlendis verið með mestu ólíkind- um og á árinu 1987 varð hagnað- urinn 243 milljónir nkr., um 1,8 milljarðar ísl. króna. Snemma á síðasta ári var þó augljóst, að erf- iðleikar væru framundan og var þá áætlað, að tapið á öllu árinu yrði 50 millj. nkr., 370 millj. ísl. króna., en samt hagnaður á síðara misseri. Nú hefur hins vegar verið frá því skýrt, að tapið í fyrra hafí numið 271 millj. nkr., rétt rúmum tveimur milljörðum ísl. króna. Tölvusalan í Noregi var alveg eftir vonum en hún brást aftur á móti annars staðar á Norðurlönd- um. Af þessum sökum er nú orð- rómur á kreiki um að einhver stóru keppinautanna ætli að kaupa Norsk Data en Rolf Skár, forstjóri fyrirtækisins og stofnandi, segist fullviss um, að unnt sé að bjarga fyrirtækinu með því að rifa seglin réttilega. Það á meðal annars að felast í því að segja upp 800 manns, þar af 700 í Danmörku og Svíþjóð. Hefur Skár boðist til að segja af sér sem forstjóri, en stjómin vill að hann sitji áfram. Norsk Data vann sig upp á átt- unda og níunda áratugnum og náði smám saman mikilli markaðs- hlutdeild og viðskiptum við prent- iðnaðinn og dagblöðin, við hið op- inbera og sumar greinar iðnaðar- ins að öðru leyti. A síðasta ári var veltan um 22 milljarðar ísl. króna. dagblaðið Sotsíalístítsjeskaja índ- ústría sagði að íbúar í þorpinu Sharora hefðu farið þess á leit við nefnd manna sem stjóma björg- unaraðgerðunum að þess yrði ekki freistað að fínna lík þeirra sem fórust. Sovésk dagblöð skýrðu frá því að allt að 1.000 manns hefðu fa- rist í jarðskjálftanum en embættis- menn í lýðveldinu sögðu í gær að vitað væri að 274 hefðu týnt lífi. 207 þeirra hefðu búið í Sharora en 67 manns, þar af 23 böm, hefðu farist í þorpinu Okúlíbolo. Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði á blaðamannafundi í Moskvu í gær að þessi tala væri ekki rétt en kvað ljóst að innan við 300 manns hefðu týnt lífi í náttúru- hamförunum. Skjáiftinn átti upptök sín um 50 kílómetra frá Dúshanbe, höfuð- borg Tadzhíkístan, og mældist hann sjö stig samkvæmt sérstök- um sovéskum mælikvarða, þremur stigum veikari en landskjálftinn ógurlegi sem reið yfír Armeníu í desember. TIL HARÐRA átaka kom á milli Hizbollah-skæruliða og Amalsh- íta, stríðandi fylkinga shíta-mús- lima í Suður-Líbanon í gær, að- eins þremur klukkustundum eft- ir að vopnahlé var undirritað í Sýrlandi fynr milligöngu Sýr- lendinga og írana. Að sögn sjón- arvotta skiptust fylkingarnar á stórskotahrið í þorpinu Jubah og stóðu bardagarnir yfir í eina klukkustund en Qöruðu siðan út. Mikil spenna ríkir á svæðinu. Haft var eftir talsmanni Hiz- bollah að skæruliðar samtakanna myndu virða vopnahléð en hann lýsti jafnframt efasemdum um að það myndi vara lengi. Taldi hann að deiluaðilar yrðu fyrst að komast að samkomulagi um pólitíska framtíð Libanons. í opinberri yfirlýsingu sýrlenskra stjómvalda í gær var því lýst yfír að stríðandi fylkingar shíta- múslima í Líbanon hefðu gert með sér samkomulag um að binda enda á skærumar í Líbanon. Samkomulag náðist eftir 15 klukkustunda fundarsetu utanríkis- ráðherra Sýrlands, Farouqs al- Shara, og íransks starfsbróður hans, Ali Akbars Velayati, með leið- togum Hizbollah og Amalshíta í Damaskus í Sýrlandi. í yfírlýsingunni sagði að samn- ingafundum yrði haldið áfram í dag í því skyni að ná fram víðtækri pólitískri lausn á ágreiningi Hiz- bollah-samtakanna og Amalshíta sem beijast um yfirráð yfír sam- félagi 1,5 milljón shíta í Líbanon. Þremur stundum eftir að sam- komulagið náðist brutust út bar- dagar í Jubah í Suður-Líbanon sem komu íbúum þorpsins í opna skjöldu. Margir þeirra höfðu snúið aftur til heimila sinna þegar fréttist að vopnahlé hefði komist á. Hinar stríðandi fylkingar sökuðu hvor aðra um að eiga upptök að átökunum. Hemaðarsérfræðingar segja að um 5.000 manna herlið Hizbollah-samtakanna, sem berst undir merkjum írönsku byltingar- innar, sé mun betur þjálfað en her Amalshíta, sem hefur yfir 10.000 mönnum á að skipa. Þrfr leiðtogar Hizbollah-samtakanna tóku þátt í vopnahlésviðræðum sem utanríkisráðherrar Sýrlands og írans boðuðu til og haldnir voru i húsakynnum utanrikisráðuneytisins i Damaskus i gær. Seinna ræddu utanrikisráðherrarnir við Amalshíta en leiðtogar hinna striðandi fylkinga shitamúslima ræddust ekki við. Líbýsk efiiaverksmiðja og vestur-þýsk fyrirtæki: Lögregla leitar í þremur fyrirtækjum Bonn. Reutei\ VESTUR-ÞÝSKA lögreglan gerði i gær skyndileit i þremur vest- ur-þýskum fyrirtækjum sem talið er að hafi tekið þátt í byggingu efiiaverksmiðju Líbýumanna í Rabta, sem Bandarikjamenn stað- hæfa að sé efhavopnaverksmiðja. Einnig fór lögreglan inn á heimili 12 starfsmanna fyrirtækjanna og fannst umtalsvert magn skjala sem benda tO þess að ásakanir Bandaríkjamanna séu á rökum reistar. Wemar Botz, saksóknari í Off- enburg, upplýsti að leitað hefði verið í fyiirtækinu Imhausen- Chemie en hann vildi ekki nafn- greina hin fyrirtækin tvö. Bandarískir stjómarerindrekar hafa sagt að Imhausen-Chemie gegni lykilhlutverki við byggingu efnaverksmiðjunnar í Líbýu. Starfsmaður Imhausen-Chemie greindi rannóknaraðilum frá því í síðustu viku að menn á vegum fyr- irtækisins hefðu farið til Líbýu í þeim erindagjörðum að taka þátt í byggingu efnaverksmiðjunnar f Rabta. Hann sagði jafnframt að Imhausen hefði borist teikningar af efnaverksmiðjunni frá bygg- ingafyrirtækinu Salzgitter Ind- ustriebau, sem er í eign vestur- þýska rikisins. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa viðurkennt að hafa útvegað Imen- hausen teikningar af hluta efna- verksmiðjunnar í Líbýu en segjast hafa gert það í þeirri trú að hún ætti að rísa í Hong Kong. Snemma í þessum mánuði, þegar málið komst í hámæli, neitaði stjómarformaður Imhausen, Jurgen Hippenstiel-Imhausen, því að fyrirtækið væri viðriðið bygg- ingu efnaverksmiðjunnar í Líbýu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.