Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989 Gríska sljórnin: Neyðarfiindur vegna að- gerða hryðjuverkasamtaka Ríkissaksóknari myrtur af marx- istasamtökum við heimili sitt Aþenu. Reuter. ANDREAS Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, kallaði á þriðjudag sarnan neyðarfund ríkisstjórnarinnar og helstu yfirmanna ötygpsgæslu í landinu eftir að Anastasis Vernardos, saksóknari við hæstarétt, var myrtur fyrir utan heimili sitt. Við lík mannsins fannst sjö síðna plagg fr'á marxískum hermdarverkasamtökum er nefiiast Fyrsti maí. Var hótað fleiri hryðjuverkum en tveir aðrir saksóknar- ar hafa orðið fyrir skotárásum síðustu tvær vikur. í yfírlýsingu hermdarverkasam- takanna sagði að Vemardos og aðrir grískir dómarar væru leiguþý kapítalista og hefðu þeir ofsótt verkalýðinn, aðstoðað spillta stjóm- málamenn og viljað framselja bylt- ingarsinna til annarra ríkja. Vem- ardos hefði m.a. sem saksóknari reynt að fá þvf framgengt að mað- ur, sem grunaður er um aðild að ítalska hryðjuverkahópnum Rauðu herdeildimar, yrði framseldur til Ítalíu. Svo fór að lokum að gríska stjómin lét manninn lausan úr fang- elsi. Fyrsti maí hótaði einnig með óljósu orðalagi að hefna sín á þeim sem vinna að máli er Bandaríkja- stjóm hefur höfðað til að fá fram- seldan Mohammed Rashíd, meintan ' palestínskan skæruliða. Hann er grunaður um aðild að ráni á banda- rískri farþegaþotu 1982 er kostaði einn farþega lífíð. Það vom samtök er nefnast Bylt- ingarsamtökin 17. nóvember sem særðu áðumefnda tvo saksóknara en þau em talin hættulegustu hiyðjuverkasamtök landsins. Telja yfírvöld að þau hafí nú tekið upp samvinnu við Fyrsta maí og sumir telja jafnvel að um sé að ræða tvö nöfn á sömu samtökunum. Reuter Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, sést hér á leið í hjartaskoðun á sjúkrahúsi í Aþenu og er Dmítra Lianí, lagskona hans, með í för. Ráðherrann, sem er 69 ára gamall, var skorinn upp við hjartagalla í London í september en læknar sögðu að lokinni skoðun i gær að honum heilsaðist vel eftir atvikum. Fjármálahneykslið í Japan: Reuter 16 farast er íbúðarhús hrynur ÓTTAST var um líf 20 manna eftir að fimm hæða íbúðarhús hrundi til grunna í Kaíró i Egyptalandi á sunnudagskvöld. Björgunar- menn sögðu i gær að 16 lík hefðu fúndist og að minnsta kosti fjórir til viðbótar væru enn grafnir í rústunum. Staða Takeshita forsætis- ráðherra verður æ erfiðari Vandfiindinn sá fi*ammámaður, sem ekki hefiir þegið fé af Recruit-fyrirtækinu Tókýó. Reuter. NOBORU Takeshita, forsætisráðherra Japans, á nú mjög i vök að veijast vegna mesta fjármálahneykslis í landinu frá stríðslokum. Hafa þrír ráðherrar orðið að segja sér embætti vegna þess á einum mánuði og hafa nú sumir á orði, að Takeshita verði að segja af sér eða skipa nýja stjórn. Málið snýst um það, að eigendur stórfýrirtækis í Japan, móðurfyrir- tækis ýmissa annarra fyrirtækja, buðu ráðherrum og öðrum frammá- mönnum hlutabréf á lágu verði og studdu þá einnig með flárframlög- um. Segja fréttaskýrendur, að þetta hneyksli sé það mesta í japönskum stjómmálum frá stríðslokum og óvíst hvort Takeshita takist að kom- ast yfír það. í síðasta mánuði urðu Kiichi Miyazawa fjármálaráðherra og Takashi Hasegawa dómsmála- ráðherra að segja af sér þegar upp komst, að þeir höfðu þegið fé af fyrirtækinu, og í fyrradag bættist þriðji ráðherrann við, Ken Harada efnahagsáætlanaráðherra. Takashi Inoguchi, prófessor í stjómmálafræðum við Tókýóhá- skóla, segist vera undrandi á klaufaskap Takeshita forsætisráð- herra í þessu máli. „Ég hélt, að hann væri slyngur stjómmálamaður en ég er ekki viss um það lengur,“ sagði hann. Ritari Koichiro Aino, nýja efnahagsáætlanaráðherrans, fullyrti í fyrrakvöld, að Aino hefði aldrei tekið við fé frá fyrirtækinu fyrmefnda, Recruit-hópnum eins og hann heitir, en í gær sögðu fjöl- miðlar, að hann hefði þegið eina milljón jena, tæplega 390.000 ísl. kr., í styrk frá því á síðasta ári. Er það framlag þó innan löglegra marka. „Hugsast getur, að ítök og áhrif Recruit í japönskum stjómmálum séu orðin svo mikil, að Takeshita geti ekki skipað neinn, sem er alveg laus við þau,“ sagði Inoguchi og bætti við, að líklega hefði þetta mál minni áhrif á gengi stjómar- flokksins, Frjálslynda demókrata- flokksins, en ætla mætti og vegna þess, að ýmsir forystumanna stjóm- arandstöðunnar hefðu einnig notið gjafmildi Recruits. „Allir ráðherrar í ríkisstjóm Tak- eshita ættu að segja af sér til að unnt reynist að ráða fram úr þessu,“ sagði aðalritari Sósíalistaflokksins, helsta stjómarandstöðuflokksins, og talsmaður Lýræðislega sósíal- istaflokksins sagði, að Takeshita kæmist ekki hjá að endurskipu- leggja stjómina frá grunni. Hvíta-Rússland: Fallast á að reisa minnisvarða um fórnarlömb Stalíns Noboru Takeshita Moskvu. Reuter. YFIRVÖLD í Hvíta-Rússlandi hafii fallist á að láta reisa minnis- Þurrasti vetur aldarinnar á Ítalíu: Langþráð úrkoma Snjór í Olpunum o g rigning á S-Italíu Tóríno. Frá Brynju Tomer fréttaritara Morgunblaðsins. Skíðafólk hefiir þurft að láta sér nægja snjóleysi, eða í besta falli gervisnjó á flestum skíðasvæðum Ítalíu, og bændur hafa þurft að sá hvað eftir annað, þar sem nánast engin úrkoma hefúr verið á Ítalíu í vetur. Þetta er þurrasti vetur aldarinnar samkvæmt mæling- um italskra veðurstofa. Loksins, um helgina, kom hin langþráða úrkoma. Snjór í fjöllin og rigning á Suður-Ítalíu þar sem hundruð þúsunda ítala byggja af- komu sína á landbúnaði ýmiss kon- ar. Samtök bænda hafa farið fram á stuðning ríkisins þar sem lítil úrkoma í vetur hefur eyðilagt upp- skeru áð miklu leyti. Tjónið vegna vatnsleysisins er talið nema um 40 milljörðum íslenskra króna. Einnig hefur verið talað um að hugsanlegt sé að skortur verði á neysluvatni í sumar. Skíðafólk hefur heldur ekki verið með kátasta móti. Auk ítala sem fara oft í helgarfrí á skíðasvæðin í Ölpunum, kemur árlega fjöldinn allur af erlendum ferðamönnum. Lítill sem enginn snjór hefur verið í vetur í Alpaijöllunum og hafa margir ferðamenn krafíst endur- greiðslu af ferðaskrifstofum sínum. Margir ítalskir skíðakappar hafa leitað á náðir frönsku skíðasvæð- anna, og rennt sér á skíðum í 4.000 metra hæð yfír sjávarmáli, þar sem snjór er allan ársins hring. Fyrr í vetur, nánar tiltekið um jólin, fór hópur skíðafólks frá Sardiníu til Sestriere-skíðasvæðisins í ítölsku Ölpunum, þar sem engan snjó var að sjá. Hópurinn settist að í hús- næði ferðamálaráðs staðarins og neitaði að hreyfa sig fyrr en við- komandi ferðaskrifstofa samþykkti að endurgreiða ferðina. Yfírmenn ferðaskrifstofunnar gengu nauðug- ir að kröfunni, en þetta mun ekki vera einsdæmi. Á sumum skíðasvæðum hefur gervisnjó verið dreift um brekkum- ar, en um helgina byijaði að snjóa og mældist helgarúrkoman að með- altali um 20 sentimetrar, sem er ekki mikið, en menn vonast nú til að Vetur konungur fari að láta sjá sig, því í vetur hefur hitastig verið óvenju hátt á Ítalíu. Vorblóm eru sprungin út á sumum stöðum og fyrir helgina voru skíðabrekkumar líkari skrúðgörðum en skíðasvæð- varða um þúsundir manna, sem öryggissveitir Stalíns skutu til bana í Kúraptíj-skógi nálægt Mínsk á Qórða áratugnum. Fréttastofan TASS skýrði frá því á þriðjudag að haldin yrði opin sam- keppni um hönnun minnismerkis- ins. Yfírvöld hefðu einnig fyrirskip- að útgáfu á sérstakri bók til minn- ingar um þá sem kúgaðir voru í lýðveldinu á ijórða, fimmta og sjötta áratugnum. Fjöldamorðin í Kúraptíj-skógi, sem uppgötvuð voru í fyrra, hafa orðið tákn um þá baráttu sem átt hefur sér stað milli fíjálslyndra rit- höfunda og yfirvalda lýðveldisins. Rithöfundamir hafa sakað yfírvöld um að hafa reynt að leyna fjölda- morðunum og koma í veg fyrir stofnun hreyfíngar and-stalínista, Martírolog, en allt bendir til að hún sé að verða fjöldahreyfing í líkingu við þjóðfylkingamar í Eistrasalts- ríkjunum. Fomleifafræðingurinn Zenon Poznjak, sem rannsakaði fyrstur manna ijöldamorðin, skýrði frá því í tímariti rithöfunda í Mínsk í maí að í það minnsta 125.000 hefðu fundist í skóginum. Dagblaðið Moskvu-fréttir greindi frá því að hópar manna hefðu á degi hveijum verið fluttir á vörubílum í skóginn, þar sem þeir hefðu verið skotnir á stuttu færi. Edmund Hill- ary lávarður: Stöðvið klifi*iðá Everest! Khatmandu. Reuter. Fjallaleiðangrar hafa breytt Everest-tindi, hæsta fjalli jarðar, í ruslahaug og stöðva ætti þá tímabundið á meðan umhverfisspjöll verða lagfærð, sagði Edmund Hill- ary lávarður á ferðamálaráð- stefiiu i Nepal á þriðjudag. Hillary lávarður, sem við annan mann varð fyrstur til að klífa hæsta tind heims, lagði til að klifur á fjallið yrði stöðv- að í fímm ár á meðan náttúran jafnaði sig. „Skógar hafa verið eyddir, troðningar huldir rusli og fjöllin standa upp fyrir axlir í úrgangi," sagði Hillary meðal annars. Hann mæltist eindregið til þess að Nepal-búar fyndu leiðir til að græða á ferðamönn- um án þess að valda óbætanleg- um spjöllum á náttúrunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.