Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989 4 Niðurstaðan vonbrigði og hefiir víðtæk áhrif — segir Lúðvík Olafsson formaður félags heimilislækna „ÞESSI niðurstaða veldur vissum vonbrígðum/1 sagði Lúðvík Ólafs- son heimilislæknir, formaður fé- lags heimilislækna, aðspurður um viðbrögð við þeim úrskurði Hæsta- réttar að trúnaðarlækni Ríkisend- urskoðunar skuli heimill aðgang- ur að sjúkraskýrslum sjúklinga. „Hins vegar er þetta sú túlkun sem gildir og við munum hlíta henni.“ Lúðvik sagði að læknar mundu opna sínar hirslur fyrir Rikisend- urskoðun þegar þess yrði krafist í framtíðinni. Lúðvík sagði að niðurstaðan leiddi hugann að því áliti umboðsmanns Kammersveit Reykjavíkur: Tónleikar í Operunni KAMMERSVEIT Reykjavíkur heldur tónleika i tslenzku óperunni kl. 20.30 í kvöld, fimmtudag. Þetta eru aðrir tónleikamir af fjórum i tilefni af frönsku tónlistarárí þjá Kammersveitinni. Flutt verða verk eftir Saint-Saöns, Fauré, Ravel og Franck. Á tónleikunum koma fram þau Sarah Buckley lágfiðluleikari, Inga Signý Sæmundsdóttir söngkona, Rós Ingólfsdóttir sellóleikari, Ric- píanóleikaramir Guðríður S. Sig- hard Dom, sem leikur á kontra- urðardóttir og Selma Guðmunds- bassa, Martial Nardeau flautuleik- dóttir, Rut Ingólfsdóttir og Eva ari og Eiríkur Öm Pálsson trompet- Mjöll Ingólfsdóttir fiðluleikarar, leikari. - Alþingis að íslenskri löggjöf um mannréttindamál væri ábótavant. Hann sagði að félagið hefði ekkert ályktað um hvort og þá hvemig bregðast ætti við úrskurðinum en málið yrði rætt á reglulegum stjóm- arfundi sem haldinn var í gærkvöldi. „En ég er þeirrar skoðunar að þetta sé ekki bara mál lækna. Þetta er neytendamál ef við getum sagt sem svo. En málin hafa æxlast svoleiðis að við höfum fyrst og fremst verið í forsvari fyrir þessar skoðanir," sagði hann. Lúðvík sagði að það hefði valdið vissum vonbrigðum hve almenningur hefði sýnt málinu lítinn áhuga. Þótt þessi mál hefðu komið til tals í tengsl- um við umræður um ætluð misferli væri hér um prófmál sem hafa mundi víðtæk áhrif enda hefði úrskurðurinn á engan hátt varðað efnisþætti. Hér hefðu verið settar almennar leikregl- ur í samskiptum Ríkisendurskoðunar og lækna. VEÐURHORFUR í DAG, 26. JANÚAR YFIRUT í GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er nærri kyrrstæð 964 mb lægð. Um 300 km suösuðaustur af Vestmannaeyjum er 982 mb lægð á hraðri leið norðaustur og mun fara yfir austanvert landið í nótt. Veður fer heldur kólnandi í nótt. SPÁ: Á morgun verður sunnan- og suðvestankaldi um mest allt land. Él verða vestantil é landinu, annars þurrt. Léttskýjað lengst af á Norðurlandi. Vægt frost verður norðanlands, hiti rétt ofan við frostmarkið sunnanlands. Undir kvöld mun þykkna upp með vax- andi austan- og suðaustanátt. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUOAG:Suðvestanátt og slydda um sunnan- og vestanvert landiö en sunnan ótt og úrkomuminna austanlands. Hiti um frostmark. HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestanátt með éljum suðvestanlands en víöa lóttskýjað á Norður- og Austurlandi. Vægt frost. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað A •B Hálfskýjað <^fcSlíýÍa4 Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörín sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Siydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■JQ° Hitastig: 10 gráður á Celsius ^ Skúrir — Þoka = Þokumóða ’ , 5 Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyrl Reykjavik hm +4 3 veöur lóttskýjað skýjað Bergen 6 rignlng Helslnkl 3 þokumóða Kaupmannah. 2 þokumóða Narssarssuaq +14 snjókoma Nuuk +14 snjókoma Osló 2 þoka Stokkhólmur 6 léttskýjað Þórshöfn 7 rignlng Algarva 16 skýjað Amstardam 1 þokumóða Barcelona 12 mistur Berfln 12 helðskirt Chlcago 3 þokumóða Feneyjar 6 þokumóða Frankfurt 3 léttskýjað Glasgow 7 reykur Hamborg +2 þokumóða Las Palmas 21 haiðskfrt London 4 skýjað Los Angeles vantar Lúxemborg vantar Madrld vantar Malaga 14 skýjað Mallorca 16 Jéttskýjað Montreal +16 léttskýjað New York 3 léttskýjað OHando 14 léttskýjað Paris 4 heiðskfrt Róm 13 heiðskírt San Dlego 9 helðskírt Vln +0A skýjað Washlngton 7 mlstur Winnipeg *+10 snjókoma Götuvitarn- ir fundnir TVEIR götuvitar, sem stolið var af umferðarljósum i Reykjavík fyrír rúmrí viku komu óskemmdir i leitimar í gær- morgun. Að sögn Inga Ú. Magnússonar gatnamálastjóra hringdi ókunnur maður í útvarpsstöðina Bylgjuna um níuleytið og sagði að götuvit- amir væri við veitustöð Rafmagn- sveitunnar við Barónsstfg. „Þar voru þeir á bflastæði upp við gulan Skoda, innpakkaðir í hvítt plast," sagði gatnamálastjóri. Að sögn hans voru vitamir óskemmdir en þó mátti sjá að einangrun hafði verið tekin af þráðum í öðram þeirra og hann tengdur. Öðram götuvitanum var stolið af staur við gatnamót Eiríksgötu og Barónsstígs aðfaranótt þriðju- dagsins fyrir viku, hinum nóttina eftir af staur við gangbraut á mót- um Suðurgötu og Hjarðarhaga. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Dagbjartur Sigurbrandsson með götuvitana sem visað var á í gær. Útvarpsgjaldið hækk- ar í takt við vísitöluna AFNOTAGJALD Rfldsútvarpsins hækkar $ 1.500 krónur 1. mars, sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu, eða um 28,2%. Gjaldið á að hækka meira á þessu árí og verður miðað við breytingar á framfærsluvisitölunni. Innheimta á gjaldinu hefur aldrei gengið eins vel og nú i janúar. Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins segir að stjóm- endur stofnunarinnar hafi oft óskað eftir því að tekin yrði upp vísitöluvið- miðun við ákvörðun útvarpsgjaldsins og hafi nú verið tekið undir það. Hann vitnaði til þess að Stöð 2 hefði lýst því yfir að afnotagjald þess fyrir- tækis tæki mið af vísitölu. Hörður sagði ekki ljóst hvað útvarpsgjaldið hækkaði ört á þessu ári, fylgst yrði með þróun vísitölunnar, og gerðar tillögur til menntamálaráðherra um hækkanir í samræmi við það hvemig verðlagsþróunin yrði. í upphafi þessa árs sendi Ríkisút- varpið út rakkanir fyrir fyrstu tvo mánuði ársins, samkvæmt gömlu gjaldskránni eða 2.340 krónur sam- tals. Er að þessu sinni innheimt fyr- ir styttra tímabii en áður og sagði Hörður að það hefði gefist vei. Inn- heimtan hefði aldrei gengið eins vel. Sagði hann að happdrætti skilvísra gjaldenda gæti hafa hjálpað eitthvað til. Dregið verður úr nöfnum þeirra sem greiddu fyrir eindaga, í beinni útsendingu í sjónvarpinu eftir fréttir á morgun, föstudag. Sameining hentug fyrir báða aðila - segir framkvæmdastjóri Landakots LOGI Guðbrandsson, framkvæmdasfjóri Landakots, segir að sameining spítalans við Borgarspitala sé hentug fyrír báða aðila. Hann vill þó taka fram að enn sem komið eru séu hugmyndir um sameiningu á frumstigi og eftir á að ræða við marga sem málinu tengjast. Hann og Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans, áttu fund með heilbrigðisráðherra um þetta mál í gærmorgun þar sem þessar hug- myndir voru ræddar. Jóhannes vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu en hins vegar mun áhugi hjá ráðamönnum Borgarspftalans að ræða málið áfram. „Það era margir kostir því fylgj- andi að þessir tveir spítalar samein- ist,“ segir Logi Guðbrandsson. „Þar má til dæmis nefna ýmsa hagræð- ingu í starfsemi þeirra beggja eins og stofnkostnað á ýmsum tækjabún- aði. Báðir spítalamir myndu passa vel saman sem ein rekstrareining og fyrir mitt leyti er ég hlynntur því að ræða málið áfram." Sem fyrr segir á eftir að ræða hugmyndir um sameiningu við marga aðila eins og til dæmis stjóm- ir beggja spítalanna. Þar að auki á eftir að ræða við Jósepsregluna sem á hagsmuna að gæta á Landakoti. Byg-g-ingarvísitalu tafðist: Flýttum okkur ekki - segir Hagstofiistjóri „ÞAÐ hafði vissulega áhrif,“ sagði Hallgrímur Snorrason þegar Morgunblaðið spurði hann hvort fyrirhuguð breyting á lánskjarav- fsitölunni hefði tafið fyrir þvi að ný vísitala byggingarkostnaðar yrði lögð fram fimmtudaginn 19. janúar siðastliðinn. Hann sagði að Hagstofan hefði þó ekki verið beitt þrýstingi í þá veru að tefja vfsitöluna. „Við flýttum okkur hins vegar ekki að leggja fram byggingarvísi- töluna, meðal annars vegna yfirvof- andi breytingar á lánskjaravfsi- tölunni," sagði Hallgrímur. Hann segir að töfín hafi ekki stað- ið í sambandi við vaxtahækkanir, sem vora á döfinni hjá bönkunum og að ekki hafi verið beitt þrýstingi af hálfu stjómvalda til að draga framlagningu vísitölunnar á langinn. Hann segir að ekki hafí verið búið að reikna vísitöluna á fimmtudaginn og tímafrekt hafi verið að sannreyna tölur og útbúa fréttabréf um vísi- töluna. „Það er okkar vinnuregla að vísitalan komi ekki seinna en 20. hvers mánaðar," sagði Hallgrímur og tók fram að í grófum dráttum lægi niðurstaða fyrir talsverðum tima áður en vísitalan er lögð opin- berlega fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.