Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 14
u MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDÁGUR 26. JANÚAR 1989 Steftit að stoöifiindí samtaka heimavinnandi fólks í apríl heimilisstarfa en ef við berum ekki sjálfar virðingu fyrir þessum störfum og erum stoltar af þeim þá getum við ekki búist við virðingu annarra," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra. Ekki allir sammála um breytingar Hafa gleymt máleftiunum eftir Krisljönu Ágústsdóttur Ég undirrituð get ekki á mér setið lengur og fæ ekki orða bund- ist yfír pólitísku framferði þing- manna og þá sérstaklega þing- manna Borgaraflokksins. Á ég þar við afstöðu Aðalheiðar Bjamfreðs- dóttur. Þetta er konan sem margar konur töldu vera málsvara hinna vinnandi stétta í landinu en virðist hafa siglt undir fölsku flaggi. Aðal- heiður virðist ekki hafa verið þess trausts verð sem hún hlaut. Hún er eins og aðrir fyrst og fremst að ota sjálfri sér fram eins og manni finnst aðrir flokksmanna hennar hafa í bígerð. Hveiju fékk hún enda áorkað sem formaður Sóknar fyrir sína meðlimi? Sóknarkonur hafa alltaf haft lág laun fyrir erfíða vinnu og ég held að hinn almenni borgari hljóti nú að sjá að hún ber ekki hagsmuni hans fyrir brjósti. Þessir þingmenn sem hafa gleymt þeim málefnum sem þeir fyrst og fremst ætluðu að beita sér fyrir, hafa svikið kjósendur sína og nú ættu þessir sömu menn að sjá sóma sinn í því sjálfs sín vegna að hætta nú þegar vegna þeirrar hneisu sem þeir hafa valdíð sjálfum sér og verkafólki í landinu. Þá fínnst mér þeir hafa móðgað svo formann flokksins, Albert Guðmundsson sem stofnaði þennan flokk og vildi vinna að heill allra landsmanna og þó einkum þeirra sem minna mega sín. Kristjana Ágústsdóttir „Nú ættu þessir sömu menn að sjá sóma sinn í því sjálfs sín vegna að hætta nú þegar.“ Ég er hálfhrædd um að þegar Al- bert hefur sleppt hendinni af foryst- unni þá sé Borgaraflokkurinn búinn að vera. Höfiindurá heima (Búðardal. Á ráðstefnu Bandalags kvenna í Reykjavík sem haldin var á Hót- el Loftleiðum síðastliðinn laugar- dag var fjallað um hagsmunamál heimavinnandi fólks. Ráðstefhan bar yfirskriftina „Hvar stöndum við? - Hvað viljum við?“ Í ráð- stefiiulok var valin nefiid til að undirbúa stofnfund samtaka heimavinnandi fólks. F'undarstjóri var Gunnar Ragnars forsljóri en meðal frummælenda voru Helga Guðmundsdóttir, for- maður Hagsmunanefndar heimá- vinnandi húsmæðra, Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra og Helga Jónsdóttir, formaður Trygg- ingaráðs. Helga Guðmundsdóttir sagði að helsta vandamálið varðandi heima- vinnu væri að þar væri ekki greitt kaup í beinhörðum peningum fyrir unnin störf en flestar bætur al- mannatrygginga væru miðaðar við tekjumissi. Hún sagði að á undan- fömum árum hefðu komið fram þingsályktunartillögur og frumvörp til laga um réttarstöðu heimavinn- andi fólks, til dæmis um mat á heim- ilisstörfum til starfsreynslu og um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks. Einnig hefði komjð tillaga um að Þjóðhagsstofnun gerði úttekt á verð- mætagildi heimilisstarfa með tilliti til þjóðartekna. Erlendis væri talið að verðgildi slíkra starfa gæti legið á milli fíórðungs og helmings þjóðar- framleiðslu. ;,Þetta er gífurlega hátt hlutfall og ekki marktækt fyrir okk- ar þjóðfélag nema að vissu marki. Þetta gefur þó vísbendingu um hvað þessi störf vega þungt þegar farið er að setja peningalegt mat á þau,“ sagði Helga. Morgunblaðið/Bjami háttað að fyrri eiginkonan væri rétt- laus en sú seinni fengi allan lífeyri mannsins. Jóhanna benti þó á að hjá lífeyrissjóði opinberra starfs- manna væri lífeyrinum skipt á milli kvennanna í hlutfalli við það hve lengi þær hefðu verið giftar mannin- um. Jóhanna varpaði fram þeirri spumingu hvort hægt væri að veita heimavinnandi fólki lífeyrisrétt eins og öðrum launþegum, til dæmis með ámóta þátttöku ríkisins og tíðkaðist hjá launþegum. Hún taldi það álita- mál hvort ríkið ætti að taka þátt í lífeyrisgreiðslum heimavinnandi fólks, réttara væri að setja reglur um að lífeyrir fyrirvinnu skiptist á milli hjóna við skilnað. Jóhanna taldi að hagsmunabar- átta kvenna hefði af þvf skaða að heimavinnandi og útivinnandi hús- mæður skiptust í andstæðar fylking- ar. Hún sagði að meiri samvinna þeirra í milli hefði í för með sér ávinning fyrir allar konur. „Er það tilviljun að sambærileg störf við heimilsstörf eru lægst launuð?" spurði Jóhanna og taldi það beinan lið í kjarabaráttu útivinnandi kvenna að heimastörf fengju meiri viður- kenningu. „Það þarf að opna augu ráðamanna fyrir þjóðhagslegu gildi Helga Jónsdóttir formaður Trygg- ingaráðs ræddi í erindi sínu um helstu bótaflokka almannatrygg- inga, sérstaklega þau ákvæði sem gilda um húsmóðurstörf, ekkjur og fólk sem býr eitt. í máli hennar kom fram að í slysatryggingum njóta húsmæður fullra réttinda setji þær fram ósk um það í skattframtali. í sjúkratryggingum njóta þær allra réttinda, en þó aðeins hálfra dag- peninga. í lífeyristryggingum hefur heimavinnandi fólk ekki rétt til fæð- isdagpeninga. Þó hefur verið til þess heimild i lögum frá árinu 1985 að greiða maka elli- og örorkulífeyris- þega makabætur allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu. „Auðvitað er margt sem betur má fara í almannatryggingalöggjöfinni eins og á mörgum öðrum sviðum," sagð i Helga. „Hinu er ekki að leyna, að það sem einum kann að fínnast rétt, fínnst öðrum rangt og víst er að ekki er samstaða um ýmsar hug- myndir sem komið hafa fram til breytinga. Aðrar hugmyndir sem mönnum þykja góðar hafa þótt of dýrar til þess að hægt væri að fram- kvæma þær. í því endurskoðunar- starfi sem nú fer fram á almanna- tryggingalögunum er meðal annars verið að kanna hvort hugsanlega megi spara á einhveijum stöðum til þess að bæta úr á öðrum." í lok ráðstefnunnar var valin sjö manna nefnd til að undirbúa stofn- fund landssamtaka heimavinnandi fólks og leggja drög að lögum og fundarsköpum samtakanna. Nefnd- ina skipa þau Ragnheiður Ólafs- dóttir, Dóra Guðmundsdóttir, Amdís Tómasdóttir, Rúnar Sigurður Birgis- son, Anna Daníelsdóttir, Bergrós Jóhannsdóttir og Margrét Sigurðar- dóttir. Auk þeirra munu Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ og Guðmundur Ágústsson alþingis- maður vinna með nefndinni. Stefnt er að því að stofnfundurinn verði haldinn í aprílmánuði. ELDISKVÍAR Einn frummælendanna, Davíð Þór Björgvinsson, flytur erindi sitt. Hún taldi upp helstu markmið sem stefna bæri að í baráttu heimavinn- andi fólks fyrir bættum kjörum. Þar á meðal 100% persónuafslátt til handa heimavinnandi fólki, lífeyris- réttindi heimavinnandi með þátttöku hins opinbera og sömu sjúkradag- peninga fyrir heimavinnandi og aðr- ar vinnandi stéttir. „Það er mikil þörf á því fyrir þjóðfélagið að búa vel að þeim þjóðfélagsþegnum sem vilja og geta verið heima við uppeldi bama sinna eða umönnun sjúkra og gamalla. Það liggur við að ekkert megi til spara í þeim efnum," sagði Helga Guðmundsdóttir. Neikvætt viðhorf til heimilisstarfa Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagði í ræðu sinni að heimilisstörf væru ekki virt sem skyldi í þjóðfélaginu. Jóhanna vitn- aði í tíu ára gamla ræðu sem flutt var við svipað tækifæri og sagði að í gegnum árin hefðu heimavinnandi húsmæður lítið annað borið úr býtum en ánægjuna að fá_ að sjá böm sín vaxa úr grasi. Áralöng reynsla heimavinnandi kvenna af heimilis- störfum væri ekki metin úti á vinnu- markaðnum og heimavinnandi hús- mæður fengju engan lífeyri líkt og aðrir við lok starfsævinnar. „Þó að þessi ræða hafí verið flutt fyrir tíu ámm á innihald hennar við í dag,“ sagði Jóhanna. „Ég held að rótina að réttindaleysi heimavinnandi fólks sé ef til vill að fínna í neikvæðu við- horfí margra til heimilisstarfa." Jóhanna sagði að þrátt fyrir að þjóðfélagið hefði beinan fjárhagsleg- an spamað af heimilsstörfum hefði heimavinnandi fólk engin félagsleg réttindi. Verst væri ástandið í lífeyr- ismálum því heimavinnandi ættu einungis rétt á lífeyri úr almanna- tryggingum. Jóhanna tók dæmi af heimavinnandi konu sem skildi við mann sinn eftir 30 ára hjónaband. Maðurinn kvæntist aftur en létist eftir stutt hjónaband. í flestum lífeyrissjóðum væri reglum þannig FARMOCEAN eldiskvíar eru framleiddar fyrir hámarks ÁLAG, ÖRYGGI og HAGKVÆMNI í rekstri. Sölumaöur frá FARMOCEANAB veröur til viðtals hjá okkur í fyrstu viku febrúar. VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ ÓSKIÐ EFTIR NÁNARI UPPLÝSINGUM. SINDRA A4STALHF Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.