Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTT1R FMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989 55 ÍÞRÚmR FOLK ■ ÞRÓTTUR sigraði Fram með þremur hrinum gegn engri (15:4, 15:9 og 15:9) í 1. deild karla í blaki í Hagaskóla í gærkvöldi. Á eftir léku Þróttur og UBK í 1. deild kvenna og unnu gestimir 3:1. ■ HK vann ÍBK 28:20 í 2. deild karla á íslandsmótinu í handknatt- leik í gærkvöldi og er með góða forystu í deildinni. ■ LUTON tryggði sér í gær- kvöldi sæti í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar, vann Sout- hampton 2:1 á útivelli eftir fram- lengdan leik og vom öll mörkin skomð í framlengingunni. Mick Harford skoraði fyrra mark Lu- ton, en Ricky Hill það síðara. Rod- ney Wallace minnkaði muninn á síðustu mínútu. í undanúrslitum leika Luton og West Ham annars vegar og Nottingham Forest og Bristol Cify hins vegar. ■ NAPÖLÍ varð að sætta sig við 3:1 tap á útvelli gegn Ascoli í síðari leik sínum í undanúrslitum í ítölsku bikarkeppninni í gærkvöldi. Napóli heldur þó áfram í keppninni þar sem liðið vann fyrri leikinn, 3:0. Sampdoria og Fiorentina gerðu jafntefli, 1:1 og er það Samp- doria sem kemst áfram samanlagt, 4:1. Atalanta vann Lazio saman- lagt, 4:3, eftir að hafa tapað síðari leiknum í gærkvöldi, 2:3. ■ PORTÚGAL sigraði Grikk- land með tveimur mörkum gegn einu í vináttulandsleik í knattspymu að viðstöddum 3.000 áhorfendum í Aþenu í gær. Adelino Nunes (6.) og Vitor Paneira (65.) skoruðu fyrir Portúgali, en Stefanos Bor- bokis minnkaði muninn fyrir Grikki á 62. mínútu. ■ PAUL Gascoigne, leikmaður- inn efnilegi hjá Tottenham, hefur gert auglýsingasamning við Bro- oks fyrirtækið sem framleiðir knattspymuskó. Fyrirtækið ætlar að setja á markað skó merkta „GAZZA“ og fær Gascoigne 100 þúsund pund á ári að minnsta kosti. Hann fær ákveðinn hluta af hverju skópari sem selst. Forráða- menn fyrirtækisins segja að Gas- coigne, sem er 21 árs, eigi eftir að verða skærasta stjaman í enskri knattspymu á næstu ámm. Það em aðeins tveir enskir knattspymu- menn sem geta státað af sambæri- legum auglýsingasamningi. Það era þeir Bryan Robson og Gary Line- ker. ■ ÍSLENDINGALIÐIN í sænska handboltanum, Saab og Malmö, töpuðu bæði deildarleikjum sínum í gærkvöldi. Þorbergur Aðalsteinsson og félagar hans í Saab sóttu Lugi heim og töpuðu, 25:20. Malmö með Gunnar Gunn- arsson innanborðs tapaði fyrir efsta liðinu, Rebergslid á útivelli, 29:21. HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I FRAKKLANDI Bogdan Kowalczyk: „Við verðum að ná að halda ferðinni - út keppnina í Frakklandi." Bogdan hræðist úthaldsleysi Landsliðsþjálfarinn erekki ánægður með æfingasókn að undanförnu BOGDAN Kowalczyk, lands- liðsþjálfari í handknattleik, segir að hann sé hrœddastur um að úthald landsliðsmanna bregðist í B-keppninni í Frakkl- andi. „Það er alltaf slœmt þeg- ar íþróttamenn ná ekki að halda sínu striki," sagði Bogd- an, en hann er ekki ánægður með æfingasókn að undanf- örnu. Bogdan hefur ekki getað verið meðfullskipaðan lands- liðshóp undanfarna daga, þar sem nokkrir leikmenn eru meiddir og aðrir hafa verið í prófum. að er gömul saga hjá landslið- inu - að liðið hefur ekki getað leikið marga leiki í röð á fullum krafti. Það hefur oft verið þannig að liðið hefur dottið niður eftir sig- urleiki. „Þetta kom fram í Eyrar- sundskeppninni á dögunum. Við lékum vel í fyrsta leiknum gegn Svíum. í næsta leik okkar, gegn Dönum, komu leikmennimir ágæt- lega frá leiknum, en aftur á móti var þriðji leikurinn, gegn Búlgömm, ekki nægilega góður,“ sagði Bogd- an. Bogdan sagðist ekki vera hrædd- ur við fyrstu tvo leikina í B-keppn- inni í FVakklandi - gegn Búlgaríu og Kuwait. „Það er aftur á móti þriðji, fjórði, fímmti og sjötti leikur- inn sem ég hræðist mest. Við verð- um að ná að halda ferðinni - út keppnina í Frakklandi. Til þess að það takist verður landsliðið að æfa vel og leikmenn verða að leggja hart að sér á næstu vikum," sagði Bogdan. HANDKNATTLEIKUR./ LANDSLIÐIÐ Kristján heiðraður í Hafnarfirði KRISTJÁN Arason, landsliAs- maður í handknattleik, sem lék sinn 200. landsleik gegn Búlgaríu i Eyrarsundakeppn- inni á dögunum, verður heiðr- aður sérstaklega f heimabæ sínum annað kvöld. Kristján mun taka á móti viðurkenn- ingu fyrir landsleik íslands og Tékkóslóvakíu, en þess má geta að Kristján leikur sinn fyrsta leik í Hafnarfirði síðan hann hélttil V-Þýskalands fyrirfimm árum. Lokaundirbúningurinn fyrir B-keppnina í Frakklandi er nú hafínn og leikur landsliðið fjóra leiki áður en farið verður til Frakklands 13. febrúar. Tvo leiki gegn Tékkum og tvó leiki gegn Norðmönnum í byijun febrúar. Bogdan, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, valdi tuttugu og einn leikmann til æfínga á dögunum. Þeir sem em í landsliðshópnum, em: Markverðir: Einar Þorvarðarson, Valur..........211 Guðmundur Hrafnkelsson, UBK.........66 Hrafn Margeirsson, lR...............16 Leifur Dagfinnsson, KR...............3 Aðrir leikmenn: Þorgils Óttar Mathiesen, FH........211 Jakob Sigurðsson, Val..............164 Bjarki Sigurðsson, Vfkingur.........43 Valdimar Grtmsson, Valur............60 SigurðurGunnarsson, Vestm.ey.......164 Alfreð Gislason, KR................160 Páll Ólafsson, KR..................186 Guðmundur Guðmundsson, Vikingur..207 Kristján Arason, Teka......200........ Geir Sveinsson, Valur............ 163 Sigurður Sveinsson, Valur..........163 Héðinn Gilsson, FH..................31 Júlíus Jónasson, Valur.............117 Guðjón Ámason, FH....................3 Birgir Sigurðsson, Fram.............13 Júlíus Gunnarsson, Fram..............3 Konráð Olavsson, KR.................13 Þá er Atli Hilmarsson einnig inni f myndinni. Leikurinn í Hafnarfírði hefst kl. 20.30, en síðan verður leikið í Laugardalshöllinni kl. 17 á laug- ardaginn. Kristj&n Arason, leikur sinn fyrsta landsleik í Haftiarfírði í fimm ár. HANDBOLTI Valssigur FH tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttunni þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Val í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Hlíðarenda og lauk spennandi Katrín viðureign með sigri Fríðríksen Vals 19:17. Staðan skrífar f leikhléi var 10:9. Markahæstar í liði Vals vom Una Steinsdóttir með 6/2 og Katrín Friðriksen 5. Hjá FH skoraði Rut Baldursdóttir 5/2 og Eva Baldursdóttir 4. Haukar — Víkingur 17:17 Haukar og Víkingur deildu með sér stigum í gærkvöldi eftir að Víkingur hafði verið yfír I leikhléi 10:8. Margrét Theódórsdóttir var lan- gatkvæðamest hjá Haukum, skor- aði 10/5 mörk. Hjá Víkingi var Svava Baldvinsdóttir best með 7 mörk. Inga Lára Þórisdóttir skoraði 6/2. KNATTSPYRNA Anderlecht mætir Brúgge Anderlecht mætir FC Briigge í átta liða úrslitum belgísku bik- arkeppninnar, en dregið var í gær- kvöldi. Arnór Guðjohnsen og félag- ar eiga fyrri leikinn heima. HANDKNATTLEIKUR / EYSTRASALTSKEPPNIN Stefán og Ólafurdæmdu úrslitaleikinn: Fengu góða dóma STEFÁN Arnaldsson og Ólaf- ur Haraldsson, handknatt- leiksdómarar frá Akureyri, fengu góða dóma fyrir dóm- gæslu sína á Baltic Cup í V- Þýskalandi. „Það kom okkur óneitalega á óvart þegar við sáum það í þýskum blöðum að við hefðum fengið morð- hótun. Það er ekki rétt, en aftur á mótl fréttum við um sprengjuhótun. Hvort hún hafi komið vegna þátttöku okkar í leiknum, get ég ekkert sagt um,“ sagðl Stefán Arn- aldsson f viðtali við Morgun- blaðiðí gær. Stefán sagði að þeir Ólafur hafí ekki orðið varir við öryggisverði eða lögregluþjóna. „Við vomm í matarboði (íþrótta- höllinni í Dortmund eftir leikinn. Þar komu öll keppnisliðin saman og dómarar. Við ræddum þar við marga kunna menn. Enginn þeirra setti út á dómgæslu okkar ( úrslita- leiknum. Ekki einu sinni Petre Ivanescu, landsliðsþjálfari Vest- ur-Þýskalands, sem hafði stór orð um dómgæslu í blöðum," sagði Stefán. Þess má geta að Svíinn Erik Elíasson, formaður dómaranefnd- ar IHF, var eftirlitsdómari á úr- slitaleiknum. Hann gaf þeim Stefáni og Ólafí góða einkun eftir leikinn. Þeir félagar stóðu sig vel þegar þeir dæmdu leik V-Þýska- lands og Ungveijalands og Pól- lands og V-Þýskalands B. Eftir þá leiki vom þeir valdir til að dæma úrslitaleikinn. Alfreð Gíslason, landsliðsmaður í handknattleik, sem lék mörg ár með Essen í V-Þýskalandi, sagði í stuttu spjalli við Morgunblaöið að það væri ekkert nýtt að Ivanescu kenndi dómumm um, þegar liðs hann tapaði. „Það er hans aðferð til að afsaka tap,“ sagði Alfreð. Páll Ólafsson brákaður á hendi Sigurður Sveinsson tognaður á kviðvöðva og meiddurá öxl PÁLL Ólafsson brákaðist á handarbaki á æfingu með landsliðinu og er vafasamt að hann leiki með landsliðinu á næstunni. Þá hefur Sigurður Sveinsson ekki getað æft með landsliðinu vegna tognunar á kviðarvöðva. „Hann er einnig slæmur í öxlinni," sagði Gunn- ar Jónsson, formaður lands- liðsnef ndarinnar í handknatt- leik. Gunnar sagði að Páll hefði lent í samstuðu við Alfreð Gíslason á æfingu. Við það hafi miðhandar- bein á handarbaki brákast. „Það mun koma í ljós á næstu dögum hvað meiðslin em alvarleg." Bogdan, landsliðsþjálfari, sagði að það væri slæmt að vera án Páls. „Hann hefur lagt geysilega hart að sér á æfíngum og er ákveðinn í að standa sig,“ sagði Bogdan, sem taldi að Páll myndi ekkert kippa sér upp við smávægileg meiðsli. „Páll er mikill baráttumaður." „Við höfum gefíð Sigurði spraut- ur í öxl að undanfömu og vonumst til að hann nái sér fljótt á strik," sagði Gunnar. „Við eram nú komnir með full- mannaðan landsliðshóp og getum byijað að æfa á fulium krafti," sagði Gunnar Jónsson, sem bætti svo við: „Það hefur marg sýnt sig, að þegar mikið er æft, þá verður minna um meiðsli leikmanna."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.