Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 Fjórir togarar fengn á sig brot við Austfirði Gúmmíbj örgnnarbátar losnuðu FJÓRIR togarar, Sjóli, Baldur, Þórhallur Daníelsson og Snæfugl, fengu á sig brot í fárviðri út af Austfjörðum í fyrrinótt. Enginn i áhöfiium skipanna slasaðist en gúmmmíbjörgunarbátar losnuðu á öllum skipun- um og þrír þeirra fóru í hafið. Skipin voru öll komin til haftiar á Austfjörðum um kvöldmatarleytið i gærkvöldi. Snæfúgl var i sinni fyrstu veiðiferð þegar hann fékk á sig brotið. Sjóli frá Hafnarfírði og Baldur frá Dalvík fengu á sig brot út af sunnan- verðum Austfjörðum og fóru inn til Neskaupstaðar. Gúmmíbjörgunar- bátar fóru af báðum skipunum. Á Baldri brotnaði brúargluggi og sjór komst í rafkerfi skipsins. Óvíst er hvenær viðgerð á því lýkur, að sögn Brynjólfs Oddssonar, skipstjóra á Baldri. Þórhallur Daníelsson frá Höfn í Homafirði fékk á sig hnút á miðun- um út af Berufirði. Gúmbátur fór í sjóinn, rekkverk rifnaði upp bak- Sorpflokkunar- stöðin í Árbæ: Undirskrifta- listum dreift UNDIRSKIFTASÖFNUN gegn sorpflokkunarstöð fyrir ofan Árbæjarhverfi er hafin og í gær- kvöldi var lokið við að dreifa undirskriftalistum í allar blokkir í Hraunbæ, Rofabæ og Selás- hverfi. Formenn húsfélaga á hverjum stað hafa listana undir höndum til að tryggja sem besta útkomu. „Við vonumst eftir svona 7.000 til 8.000 undirskriftum og vonum að mark verði tekið á því,“ sagði Jóhann Hólm, stjómarmaður Framfarafé- lags Árbæjar. Jóhann sagði Árbæinga ekki trú- aða á þau orð ráðamanna að engin lykt fylgdi stöð sem þessari og sagðist vita dæmi hins gagnstæða í Lundúnum. „í vissri átt finnum við lykt frá Nesjavöllum og í ann- arri átt finnum við stybbu frá kaffi- brennslunni. Svo segir Ögmundur Einarsson hjá Reykjavíkurborg á borgarafundinum á dögunum, að engin iykt eigi að berast út fyrir lóðarmörk stöðvarinnar. Mér er spum, hvemig eiga lóðarmörk að stöðva lykt? Nei, þetta mál er hið skrýtnasta. Nú er til dæmis ljóst að urðunin á sorpinu verður ekki á Kjalamesi og þá er Krýsuvík líkleg- ust. Er þá eícki þjóðráð að koma upp svona stöð fyrir sunnan Straumsvík, úti í hrauni þar sem ekkert verður byggt og langt er í alla byggð?" sagði Jóhann. borðsmegin, rúður í krana brotnuðu og gluggi bakborðsmegin á brú skipsins brotnaði. Sjór fór niður í íbúðagang en ekki virðast vera mikl- ar skemmdir á rafmagnstækjum í brúnni, að sögn Alberts Kemp, fréttaritara Morgunblaðsins á Fá- skrúðsfirði. Þórhallur Daníelsson kom þangað um hádegisbilið í gær eftir að togarinn Breki frá Vest- mannaeyjum hafði fýlgt skipinu inn í mynni Fáskrúðsijarðar. „Við fengum á okkur brot í fár- viðri og mjög slæmu sjólagi 20 sjómílur austur af Skrúð," sagði Alfreð Steinar Rafnsson, skipstjóri á Snæfugli frá Reyðarfirði. Skipið fór í sína fyrstu veiðiferð aðfaranótt laugardagsins og kom aftur inn til Reyðarfjarðar í gærmorgun. „Brotið kom á skipið bakborðsmegin á mið- síðu. Gúmbátur rifnaði úr festingum en við misstum hann þó ekki í haf- ið,“ sagði Alfreð Steinar. Morgunblaðið/Júlíus Svona var ástandið á Breiðholtsbrautinni þegar verst lét. Myndin er tekin milli hryðja, en yfirleitt sá varla í næsta bíl, hvað þá lengra. Oralangar bílaraðir MIKIÐ óveður æddi yfir landið um miðjan dag í gær með miklu hvassviðri, skafrenningi og of- anbyl. Færðin, sem var viðast þung fyrir, versnaði til muna og um tíma má segja að ófært hafi verið að mestu. Hjá lögreglunni í Reykjavík fengust þær upplýsingar, að verst hefði ástandið verið frá því rétt fyrir klukkan fjögur og fram yfir klukkan fimm. Þá hefði veðrið skollið á eins og hendi væri veif- að, en síðan hefði það gengið nið- ur jafnskjótt og það dundi yfir. Veðurhorfur í gærkvöldi voru ekki árennilegar, jafnvel búist við öðru áhlaupi með morgninum. í þétt- býlinu norðanlands kyngdi einnig niður miklum snjó og færð var þung og erfið. Mikið umferðaröngþveiti var í Reykjavík meðan versta áhlaupið gekk yfír, þannig var óslitin bíla- röð eftir allri Miklubraut. Þá kom- ust menn illa leiðar sinnar í Breið- holt og Árbæ. Þegar veðrið gekk niður losnaði fljótt um hnútana og í gærkvöldi voru allar helstu götur borgarinnar þokkalega fær- ar, en víða er þungfært um fáfam- ari hliðargötur og húsagötur. Til stendur að ryðja af þeim snjó nú árdegis. Hjá vegaeftirlitinu fengust þær upplýsingar að illfært hafi verið á helstu leiðum til og frá höfuð- borgarsvæðinu, um Keflavíkurveg og Suðumes, Hellisheiði, Þrengsli og Vesturlandsveg. Um tíma lá öll umferð niðri vegna dimmviðr- is. í gærkvöldi voru þessar leiðir opnar, en aðeins vel búnum bif- reiðum, enda hálka mikil, og gekk á með skafrenningi og éljagangi. Lögreglan og vegaeftirlitið vom samdóma um að meginorsökin fyrir umferðaröngþveitinu væri fjöldi vanbúinna bifreiða 17 vindstig í Vestmannaeyjum: „Báturinn á hliðina en ég náði að keyra hann upp“ - sagði Ingvar Sigurgeirsson skipstjóri á Drífii VE Vestmannaeyjabáturinn Drífa sem er 100 tonn lagðist á hliðina austur af Heimaey í ofsaveðrinu sem gekk yfir í fyrradag en skip- stjórinn náði að sigla bátnum upp úr kófinu. Margir Vestmannaeyja- bátar bæði stórir og smáir urðu að halda sjó í fárviðrinu þar sem vindhraðinn fór upp í 17 vindstig. Óskar Sigurðsson vitavörður á Stórhöfða sagði í samtali við Morgunblaðið að veðrið síðastliðinn sunnudag hafi verið það harðasta í vetur þótt þau hafi komið óvenju- mörg slík. Bátar sem sigldu inn í Vestmannaeyjahöfti á meðan vind- hraðinn var mestur ráðlögðu öðrum sjómönnum að halda sjó utan hafnar því þeir sögðust hreinlega hafa fokið inn innsiglinguna í blindbyl. Ingvi Sigurgeirsson skipstjóri á Drífu sagði að bátur sinn hefði lagst á hliðina í miklum hnút skammt frá Bjamareyjarhominu. „Við vorum á landleið," sagði Ingvi „og það kom væn skvetta á bátinn bakborðsmeg- in, hann snerist allmikið svo ég ákvað að halda áfram hringinn og ná honum uppí en þá kom annað ólag og lagði bátinn á hliðina það tók mig hálfan hring að keyra bát- inn upp í réttstöðu. Við héldum Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins: „ Aframhaldandi veruleg- ur halli á sjávarútvegi“ „ÞESSI tílkynning fól ekki í sér neitt sem kalla má alvöru eftia- hagsráðstafanir," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins f samtali við Morgunblaðið, þegar forsætisráðherra hafði flutt þingheimi ræðu sina um ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í eftiahagsmálum í gær. Þorsteinn sagði jafnframt: „Það er ekki gerð tilraun til þess að treysta rekstrargrundvöll sjáv- arutvegsins. 2,5% gengisbreyting skiptir þar engum sköpum. Niður- staðan er áframhaldandj veruleg- ur halli á sjávarútvegi. Áform um áframhaldandi eignaupptöku í sjávarútvegi upp á a.m.k. einn milljarð króna. Það er stefnt að því að auka viðskiptahallann úr 11 milljörðum í 14 til 15 millj- arða. Það hefur svo aftur i för með sér verulega frystingu á vöxt- um, þannig að áform um lækkun vaxta á verðtryggðum pappírum eru á algjörum brauðfótum reist.“ Að öðru leyti sagði Þorsteinn efnahagsstefnuna þrýsta á um vaxtahækkun, og hætt væri við því að slíkt kæmi fram í auknum affallaviðskiptum með verðbréf. „Þá virðist stefiia í það að erlend- ar skuldir fari í 50% af lands- framleiðslu," sagði Þorsteinn. Hann nefndi sem dæmi um það sem væri afkáralegt, þegar for- sætisráðherra væri að kynna stefnu þessarar ríkisstjómar, að hann hefði sérstaklega tíundað í ræðu sinni ráðningu fyrrverandi iðnaðarráðherra Friðriks Sophus- sonar á erlendu ráðgjafarfyrir- tæki til þess að skoða skipasmíða- iðnaðinn. síðan sjó með Smáey, Stefni og Klakk en þá var ekki talið viðlit að fara inn í Vestmannaeyjahöfn vegna blindbyls og'öskuroks." Guðmann Magnússon skipstjóri á Ófeigi VE sem er 110 tonna bát- ur sigldi inn í Vestmannaeyjahöfn um þetta leyti ásamt Björgu VE. „Ég tel að vindhraðinn í innsigling- unni hafi verið yfir 20 vindstig, líklega um 150 hnútar af austri því það var svo miklu hvassara en einn daginn fyrir skömmu þegar ég sigldi inn í höfnina í 100 hnúta vindi," sagði Guðmann. „Skyggnið var ekkert í bylnum sem gekk yfir og við hreinlega fukum inn innsigl- inguna, hafði ekki stjóm á bátnum og lunningin var í kafi vegna vind- þrýstings, það sama henti hjá Björgu VE og þessvegna ákváðum við að aðvara félaga okkar utan hafnar." „Þetta var verulega slæmt veð- ur,“ sagði Huginn Guðmundsson skipstjóri á loðnuskipinu Huginn VE í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi þar sem hann var á leið á miðin. „Við vomm vestur af Ing- ólfshöfða á leið til Eyja, það var austan lens síðan fór hann yfir í suðaustan og vindáttin snerist á stuttum tíma hálfhring í vestur. Við urðum því að fara mjög rólega enda vomm við með 500 tonna farm af loðnu og við Hjörleifshöfða slóg- uðum við uppí vindinn. Þetta var með verri sjóveðrum." Sigurgeir Ólafsson hafnarstjóri í Vestmannaeyjum sagði 5 samtali við Morgunblaðið að veðrið hefði verið hreint út sagt kolbrjálað, þó hefði ekkert komið fyrir í höfninni en bátar hefðu orðið að fara mjög varlega í þessu foráttuveðri. „Veðrið þennan sunnudag var með verri veðrum," sagði Óskar J. Sigurðsson vitavörður á Stórhöfða, „vindhraðinn fór upp í 96 hnúta í 10 mínútna meðalvindi en það em um það bil 15 vindstig miðað við gömlu mælinguna. Það var austan- átt með snjó og slæmu skyggni og þetta var harðasta veðrið í vetur þó það hafi komið óvenjumörg slík. Mesta hviðan mældist 114 hnútar sem em um 17 vindstig." Söluskatt- ur endur- greiddur til fískeldis LANDSSAMBAND fiskeldis- og hafbeitarstöðva (LFH) er þessa dagana að greiða fisk- eldisstöðvunum uppsaftiaðan söluskatt af aðföngum þeirra sem ríkisstjómin ákvað að endurgreiða stöðvunum. Jón G. Gunnlaugsson hjá LFH sagði að samtökin hefðu nýlega fengið 35 milljónir upp í sölu- skattinn og áður verið búnir að fá 5 milljónir. Stöðvamar hefðu greitt um 52,5 milljónir í sölu- skatt á ámnum 1986 og 1987 og dygði það sem ríkið nú hefði greitt fyrir söluskatti ársins 1986 og helmingi 1987. Þá væri árið 1988 eftir, en áætlað- ur söluskattur vegna þess árs væri 70—80 milljónir kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.