Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 Kembirannsókn með brjósta- myndatöku lækkar ekki dánar- tíðni hjá konum yngri en 50 ára eftir Skúla Bjarnason Krabbamein í brjósti er, eins og fram kemur í grein Krabbameins- félags íslands Mbl. 13. des. 1988), um fjórðungur krabbameina í kon- um og fer vaxandi. Reikna má með að u.þ.b. 1 af hveijum 12—13 kon- um fái brjóstakrabbamein á lífsleið- inni. Það er því ekki vegna þess að sjúkdómurinn sé ekki alvarlegt heilsuvandamál, að ég bar upp þess- ar spurningar til Krabbameinsfé- lags íslands í Morgunblaðinu 18.11.88. Tilgangur minn með því að heíja máls á þessu var einfaldlega sá, að mér hefur fundist mjög skorta á hlutlæga umræðu um kembileit brjóstakrabbameins og að skrif hafí verið mjög einhliða, hlutdræg og þrungin tilfínningahita. Ymsar kvennahreyfíngar hafa tekið brjóstamyndatökumálið upp sem hluta af jafnréttisbaráttu kvenna og tengt efasemdir um nytsemi kembirannsóknarinnar karlrembu og kvenfyrirlitningu. Því miður stóðst Krabbameinsfélag Islands ekki mátið að slá á strengi tilfínn- inganna, þegar það skrifar í grein sinni: „Einn veglegastur var hlutur borgfírskra kvenna sem lögðu fram 500.000 krónur." Engum stendur það nær en starfsfólki Heilsugæslustöðvarinn- ar í Borgamesi að dást að og þakka takmarkalausan dugnað og rausn borgfírskra kvenna. Hin ýmsu sam- tök þeirra hafa æ ofan í æ gefið Heilsugæslustöðinni ómetanlegar gjafir. Það kemur mér því ekki á óvart að þeirra hlutur hafi verið stór í söfnun til kaupa bijósta- myndatökutækis fyrir Krabba- meinsfélag íslands. Þeim mun stærri er skylda mín og annarra, að gera þeim, sem og öðrum, grein fyrir nýjustu rannsóknum á sem flestum sviðum læknisfræðinnar. Upplýsing og fræðsla er án efa áhrifamesti og heppilegasti þáttur- inn í öllu fyrirbyggjandi starfí, en til þess að þessir þættir nái sem mestum árangri, verður að fjalla um efnið af fullum heiðarleika og láta ekki glepjast af óskhyggju, ímynduðum stundarhagsmunum og metnaði. Rannsóknir sem Krabbameinsfélag íslands tekur upp HIP-rannsóknin: (Health In- surance Plan) hófst í New York 1963. Framkvæmd þessarar rann- sóknar var með allt öðrum hætti en síðari rannsóknir hvað varðar aðferð og tækni. HlP-rannsóknin var ekki framkvæmd á þann hátt að draga megi ályktanir um mis- munandi aldurshópa. Ýmsir, þar á meðal Krabbameinsfélag Islands, hafa fallið fyrir reiknikúnstum, sem beitt hefur verið við þessa úreltu „Tilg-angTir minn með því að heíja máls á þessu var einfaldlega sá, að mér hefiir fund- ist mjögf skorta á hlut- læg-a umræðu um kembileit bijósta- krabbameins og að skrif hafi verið mjög einhliða, hlutdræg og þrungin tilfínninga- hita.“ rannsókn, til þess að fá fram tölur og töflur til „framdráttar" sínum „málstað". Þó það sé vísindalega óleyfílegt af framansögðu. Tafla sem Krabbameinsfélag ís- lands birtir í grein sinni lítur svona út: Aldur víð boðun 40-44 ára 45—49 ára 50-54 ára 55-59 ára 60-64 ára Ailar (40-64 ára) Þó svo þessi framsetning á niður- stöðum sé ekki heimil frá vísinda- legfu sjónarmiði, er rétt að skoða þessa töflu nánar. 51 ár er langur tími, en þegar þessum æviárum er deilt á 1000 konur, lengist ævi hverrar konu um 18 daga, 14 klukkustundir og 42 mínútur. Þetta var „besti árangurinn." 20 við- bótaræviár á 1000 konur lengja ævi hverrar konu um 7 daga, 7 klukkustundir og 12 mínútur. Er ekki verið að misbjóða heilbrigðri skynsemi með slíkum reiknikúnst- um? BCDDP-rannsóknin: í grein Krabbameinsfélags íslands kemur fram, að í þessari rannsókn var enginn samanburðarhópur og er þessi rannsókn því algjörlega mark- laus, sem með- eða mótrök fyrir gildi bijóstamyndatöku sem kembi- rannsókn. Nokkrar rannsóknir í Evrópu: Ekki skilgreinir Krabbameins- félag íslands þessar rannsóknir frekar. Þrem sænskum rannsókn- um, sem eru vel unnar, „ber saman um gagnsemi bijóstamyndatöku með reglulegu millibiii við greiningu Kopparbergsléns-rannsóknin: Aldurshópar 40-49 ára myndaðar viðmiðunarhópar 50-74 ára myndaðar viðmiðunarhópur Austurgautalands-rannsóknin: Aldurshópar 40-49 ára myndaðar viðmiðunarhópar 50-74 ára myndaðar viðmiðunarhópar Á aldrinum 40-49 ára dóu 26% fleiri af bijóstakrabbameini í hópn- um sem fékk reglubundna bijósta- myndatöku en í viðmiðunarhópnum. Þess ber þó að geta, að fjöldi þeirra sem dó er það lítill, að ekki er um marktækan mun að ræða. Aftur á móti er fækkun dauðsfalla í aldurs- hópnum 50—74 ára um 40% og er sá munur marktækur. Málmeyjar-rannsóknin Þessi rannsókn ætti að vera Krabbameinsfélagi íslands vel kunn, þar sem Baldur Sigfússon, iæknir hjá Krabbameinsfélaginu, var einn þeirra sem stóðu að fram- kvæmd þessarar rannsóknar. Þessi rannsókn sýndi að hjá konum yngri en 55 ára dóu 29% fleiri úr bijósta- krabbameini í hópnum sem fékk reglubundna bijóstamyndatöku en í viðmiðunarhópnum. En hjá konum bijóstakrabbameins og lengingu lífs meðal kvenna yfír fímmtugt". Þó kemur þessi munur ekki fram fyrr en eftir 55 ára aldur í Málmeyjar- rannsókninni. En svo kemur fram í grein Krabbameinsfélags íslands sú niðurstaða sem veldur öllum sár- um vonbrigðum. Niðurstaða sem hlýtur að vekja lækna til umhugs- un- ar um að sá „sannleikur" sem við áður töldum okkur hafa höndlað brást og reyndist tálvon ein. Sú þekking sem við töldum okkur hafa um bijóstakrabbamein var röng. Niðurstaða þessara þriggja sænsku Viðb.æviár f. hverjar 1000 konur Á 18 árum Allaævi 17 51 6 20 30 44 23 29 29 35 20 36 rannsókna ber saman við það sem síðar stendur í grein Krabbameins- félags íslands: „Engin þessara rannsókna hefur enn sýnt fram á marktæka lækkun dánartiðni kvenna undir fímmtugu . Þetta er einmitt ástæðan fyrir upp- haflegum spumingum mínum til Krabbameinsfélags íslands. Krabbameinsfélag íslands heldur þó áfram málsgreininni í véfrétta- stíl“ . . .þótt nýlegar tölur úr ítalskri rannsókn og annarri af tveim hollenskum rannsóknum gefí vísbendingu um að árangur kunni að vera að koma í ljós meðal yngri kvennanna". Varla er hægt að vera loðnari í framsetningu og ekki er minnst á þessar rannsóknir í heimildalista þeim er fylgdi grein Krabbameins- félags íslands. Sænsku rannsóknirnar Allar hafa þær það sameiginlegt að miða að því að meta áhrif kembi- rannsókna með bijóstamyndatöku á dauðsföll af völdum bijósta- krabbameins í konum yngri en 50 ára. Dauðsföll Fjöldi 8 9.625 3 5.053 43 29.426 36 13.793 Dauðsföll Fjöldi 8 10.312 7 10.625 28 28.722 40 27.311 55 ára og eldri var dánartíðni 20% lægri í hópnum sem fékk reglu- bundna bijóstamyndatöku. Niðurstaða Samkvæmt því sem hefur verið sagt hér á undan, styðja rannsókn- ir ekki að kembirannsóknin með bijóstamyndatöku hjá konum yngri en 50 ára auki lífslíkur þeirra. Heimildir: 1) NOU, Norges offentlige utredning. Mammografisering i Norge. Masseund- ersökelse for brystkreft. NOU 1987:7. 2) Tabar, L et al.: Reduction in mortality from breastcancer after mass screening with mammography Lancet 8433, 829, 1985. 3) Anderson I. et. al.: Mammographic scre- ening and mortality from breast cancer. The Malmö mammographic screening trial. British Medical Joumal 1988, 297: 943-8. Höiiindur er heiisugæslulæknir í BorgarErði. KENWOOD ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN FYRSXA FLOKKS ELDHÚSTÆKI GOTT VERÐ-GÓÐ KJÖR-GÓÖ ÞJÓNUSTA KENWOOD CHEF KENWOOD GOURMET KENWOOD MINI KENWOOD CHEFETTE KENWOOD MINI (handþeytari) HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD Laugavegi 170-172 Simi 695500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.