Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 7 FARGO 3+H+2 Stærð: 210x260 cm. Verð kr. 66.520,- Stálvík: Laun ógreidd frá áramótum Reiðhöllin: Fulltrúar tækninefiid- ar IHF líta á aðstæður FULLTRÚAR tækninefiidar Al- þj óðahandknattleikssambands- ins, IHF, eru væntanlegir hing- að til lands í mánuðinum að líta á aðstæður í Reiðhöllinni í Víðidal og öðrum íþróttahúsum, sem til greina kemur að yrði leikið í ef íslendingar héldu heimsmeistarakeppnina í hand- knattleik. Svavar Gestsson menntamálaráðherra segir að könnun hafi leitt í ljós, að hægt sé að stækka Reiðhöllina mjög verulega, þó ekki svo mikið að hún geti hýst 8.000 áhorfendur, en verulega í áttina. Ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar gaf fyrirheit um að reisa 8.000 manna íþróttahöll ef það mætti verða til þess að heimsmeistara- keppnin í handknattleik yrði hald- in hér 1995. Að sögn menntamála- ráðherra er ljóst, að við slíkum skara þyrfti ekki að búast nema á mjög fáa leiki. Þótt íslendingar séu duglegir að horfa á handbolta, eigi annað við hér en í milljóna- borgum erlendis. „Við viljum endilega setja Al- þjóðahandknattleikssambandið inn í málið og allar aðstæður hér,“ sagði Svavar. Hann sagði að erfitt væni að segja fyrir um hversu mikið stækkunin á Reiðhöllinni myndi kosta. „Það yrði að minnsta kosti miklu ódýrara en aðrir kost- ir, sem hafa verið nefndir, en allar kostnaðaráætlanir eru enn út í bláinn," sagði Svavar. Skipaður sakadómari GUÐJÓN St. Marteinsson var í gær skipaður sakadómari við sakadómaraembættið í Reykjavík frá 1. þessa mánaðar. Hann tekur við starfi Haralds Henrýssonar, sem skipaður hef- ur verið hæstaréttardómari. Guðjón er 35 ára gamall og starfaði áður sem deildarlögfræð- ingur hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Hann var einn sex umsækjenda um embættið. STARFSMENN Stálvíkur hf. hafa ekki fengið greidd laun frá ára- mótum, en fyrirtækið á nú í Qárhagserfiðleikum. Valgarður Friðjóns- son, trúnaðarmaður starfsmanna Stálvíkur hf., segir að þolinmæði starfsmannanna sé nú á þrotum vegna þessa máls, en þeim var öllum sagt upp störfúm 1. desember síðastliðinn og taka uppsagnirnar gildi um næstu mánaðamót. Valgarður sagði að framvinda þessa máls stæði og félli með því hvort Stálvík hf. yrði veitt ríkis- ábyrgð vegna smíði 14 skuttogara fyrir Dubai, en fyrirtækið hefur í höndum samninga um það verkefni. „Starfsfólkið hér hefur sent fjár- málaráðherra, iðnaðarráðherra og þingmönnum Reykjaneskjördæmis áskorun um að ríkisábyrgð vegna þessara samninga verði veitt, auk þess sem þeim var gerð grein fyrir uppsögnum starfsfólksins og því að laun hafi ekki verið greidd frá ára- mótum. Uppsagnimar eiga að taka gildi 1. mars, og ef þetta umrædda verkefni fæst ekki er allt sem bend- ir til þess að af þeim verði," segir Valgarður Friðjónsson. Jón Gauti Jónssön, fram- kvæmdastjóri Stálvíkur hf., segir að viðskiptabanki fyrirtækisins hafi boðist til að veita starfsfólkinu víxillán á meðan þetta ástand var- ir, en það væri einkamál hvers og eins hvort hann notfærði sér það boð. „Það myndi gjörbreyta öllu bæði fjárhagslega og verkefnalega ef ríkisábyrgð fengist vegna smíði skuttogaranna fyrir Dubai. Við eig- um allar teikningar af þessum skip- um og gætum þess vegna hafið smíði þeirra strax. Ef ábyrgðin fæst hins vegar ekki fæ ég ekki séð annað en fyrirtækinu verði lokað 1. mars. Þau verkefni sem nú eru í gangi eru ekki þess eðlis að hægt sé að halda hér uppi fullum rekstri, og engin önnur verkefni eru fyrir- liggjandi," segir Jón Gauti Jónsson. FARGO Já, hann heitir FARGO og er danskur að uppruna. Hann er mjúkur, sterkur og fallegur og á hreint íf ábæru verði. HANN FÆST í FJÓRUM ÚTGÁFUM: 3+2+1, 3+1+1, 6 sæta horn og 5 sæta hom. Áklæðið er geysisterkt og fæst í mörgum litum. FARGO 3+2+1 Stærð: 3ja sæta 180 cm, 2ja sæta 130 cm, stóll 90 cm. Verð kr. 82.300,- LANDSINS MESTA ÚRVAL AF SÓFASETTUM OG HORNSÓFUM. Húsgagna-ltdllin REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.