Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 48
Átta lægðir á veðurkortinu Togarar í vandræðum í fárviðri EKKERT lát virðist ætla að verða á illviðri og snjókomu næstu daga, samkvæmt upplýs- ingum frá Veðurstofunni og i gær mátti sjá átta lægðir á veður- kortinu. Á sunnudag og aðfaranótt mánu- dagsins gekk djúp lægð yfir landið og var víða fárviðri. Fjórir togarar fengu á sig brotsjó útaf Austfjörð- um og í Vestmannaeyjum gekk yfir eitt mesta fárviðri sem menn muna eftir. Snjór á láglendi er með mesta „móti og vegir víða tepptir. Aðstoða þurfti fólk sem komst ekki leiðar sinnar. T.d. var 40 manna hópur veðurtepptur í tvo daga í Þórsmörk. „Það verður áfram suðvestanátt með éljagangi um allt land eins og verið hefur tvo síðustu daga,“ sagði Gunnar Sigurðsson veðurfræðingur þegar hann var spurður um veður- útlitið. „Heldur dregur þó úr vindi en frost verður áfram um allt land með snjókomu þó svo að hugsan- lega dragi til sunnanáttar. Núna sjást einar átta lægðir á kortinu, þar af ein mikil sem er væntanleg um miðjan dag á fimmtudag, en ekki víst hvort hún hittir á okkur.“ Þijár lægðir eru þegar teknar að nálgast landið. . I gær gekk á með éljum um allt land og spilltist þá færð aftur og samgöngur fóru úr skorðum. Fund- um og sýningum var frestað víða um land. Sjá nánar frétt á bls. 2 og veð- urkort á bls. 4. Albert boðar stofhun *nýs þingflokks ef saman gengur í viðræðunum Viðræðufundur Borgarflokks og stjórnarflokkanna stóð fram yfir miðnætti í nótt. Ákveðið var að aðilarnir hjttust að nýju fyrir hádegi í dag. í gærkvöldi benti margt til þess.að upp úr viðræð- unum væri að slitna en svo fór ekki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins settu Borgara- flokksmenn það skilyrði fyrir inngöngu í ríkisstjórnina að sölu- skattur á matvælum yrði afiium- inn 1. maí í vor. * Albert Guðmundsson sagði í gærkvöldi að ef viðræðunefnd Borgaraflokksins samþykkti að ganga til samstarfs við stjórnar- flokkana með skilmálum sem brytu í bága við samþykkt aðalstjómar Borgaraflokksins frá því um helg- ina myndi hann beita sér fyrir stoftí- un nýs þingflokks Borgaraflokks- ins. Þar ættu þeir þingmenn flokks- ins sæti sem ekki styddu stjómina og það þýddi í raun klofning flokks- ins. Hann sagði að stjómarflokk- amir væru búnir að draga viðræðu- nefnd Borgaraflokksins á asnaeyr- unum í þessu máli, og sér sýndist viðræðunefnd Borgaraflokksins vera búin að gefa allt eftir. Ingi Bjöm Albertsson sagði sig úr viðræðunefnd Borgaraflokksins á sunnudaginn þar sem hann væri þeirrar skoðunar að þingflokkurinn hefði farið á skjön við samþykktir aðalstjómar. Morgunblaðið/Sverrir Fjölmennasta guðsþjónustan Sameiginleg barnaguðsþjónusta allra sókna Reykjavíkurpró- fastsdæmis var haldin í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. Mun það hafa verið Qölmennasta guðsþjónusta, sem haldin hefur verið innandyra á íslandi, en kirkjugestir voru um 1.200. Hvert sæti í kirkjunni var skipað og börnin sátu alls staðar þar sem pláss var að finna. Lifandi humar á erlenda markaði SMÁRI hf. í Þorlákshöfh hefur fengið leyfi sjávarútvegsráðu- neytisins tíl þess að liefja veiðar á humri, sem ætlunin er að flytja lifandi í keijum í land og flylja síðan lifandi á erlenda markaði, í Bandaríkjunum og hugsanlega einnig í Japan. Að sögn Þorvaldar Garðarssonar, forstjóra Smára, mun verðmæti humarsins stóraukast, jafnvel margfaldast við þetta og segist Þorvaldur vera vongóður um að þessi tilraun, sem gerð verður í samvinnu við sjávarútvegsráðu- neytið og Hafrannsóknastofnun, muni takast vel. Þorvaldur sagði í samtali við Morgunblaðið að veiðamar myndu hefjast þann 15. mars næstkom- andi, en hér er um alveg nýja veiði- aðferð að ræða á humri hérlendis. Humarvertíð hefst annars ekki fyrr en í maímánuði. „Við rekum fisk- eldisstöð og við ætlum að tengja þessar veiðar þeim rekstri. Við er- um með kör sem við munum setja humarinn í og við komum honum lifandi í land og höldum honum áfram lifandi í keijunum og pökkum honum síðan jafnóðum. Það verður því óháð veðri og veiðum, hvað við getum sent út,“ sagði Þorvaldur. Þorvaldur sagði að humarinn yrði veiddur í 1.000 til 1.200 gildr- ur sem yrði komið fyrir á Selvogs- banka. Humarinn myndi lifa áfram í gildrunum, og ef lítið kæmi í þær, þá væri bara hægt að vera með fleiri gildrur og vitja sjaldnar um þær. Hann teldi að hægt yrði að ná þokkalegum afla, en það ætti eftir að koma á daginn hvem- ig veiðin í þær gengi. Verðmætið myndi aukast gífurlega, en hann kvaðst á þessu stigi ekki geta sagt til um hversu mikið. 2,5% gengislækkun og 2,25% frávik frá ákveðnu meðalgengi heimilað: Aðgerðirnar eru ekki nægi- legar fyrir sjávarútveginn - segir Halldór Asgrímsson - Vextir af spariskírteinum verði 5% GENGI krónunnar var fellt um 2,5% f gær, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar, og jaftiframt var Seðlabankanum heimilað að skrá daglegt. gengi krónunnar með 2,25% fráviki frá ákveðnu meðal- gengi. Þetta er hluti þeirra efiiahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar, sem Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra kynnti á Alþingi í gær, og taka á ýmsum þáttum efhahagslífsins. Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra segir að þessar aðgerðir nægi ekki sjávarútveginum og Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðvanna segir að gengisfellingin hefði þurft að vera 10-12% svo frystingin kæmist úr samfelldum 15 mánaða taprekstri. | Leitað að fertugnm manni BJÖRGUNARS VEITIR á Suð- urlandi hófú í gærkvöldi leit í Þorlákshöfti að 41 árs göml- um manni frá Stokkseyri, Þorvaldi Elíssyni. Þorvaldur er tæplega 180 sm á hæð, skolhærður og samsvarar sér vel. Hann er í gráyrjóttum jakka, svörtum buxum og svörtum spariskóm. Þorvaldur var í heimsókn í Þorlákshöfn og ætlaði til Stokkseyrar f fyrradag. Hann festi hins vegar bifreið sfna rétt fyrir utan Þorlákshöfn og fékk far með annarri bifreið til baka. Þorvaldur kom hins vegar aldrei fram í húsi því í Þorlákshöfn sem ’ ~hann sagðist ætla í. Þetta er í annað skipti sem geng- ið er fellt á árinu og að auki hefur gengið sigið gagnvart Bandaríkja- dollar. Auk aðgerða í gengismálum kjmnti forsætisráðherra aðgerðir í sjávarútvegi, iðnaði og landbúnaði. Ríkisstjómin hefur sett sér það markmið, að vextir af verðtryggð- um ríkisskuldabréfum verði ekki hærri en 5% og aðrir vextir lagi sig að því. Einnig er stefnt að því að settar verði reglur um lágmarks- tíma verðtryggðra fjárskuldbind- inga, og að vextir verðtryggðra lána verði óbreytanlegir á lánstímanum. Steingrímur lýsti því yfir að við núverandi aðstæður gæti ekki orðið um kaupmáttaraukningu að ræða í komandi kjarasamningum en ríkis- stjómin teldi skynsamlegast að leggja áherslu á atvinnuöryggi, jöfnun kjara og lækkun fjármagns- kostnaðar, launþegum til hagsbóta. Jafnframt sé ríkisstjórnin reiðubúin að stuðla að lækkun á verði mat- væla, til að veija kaupmáttinn og strangt verðlagseftirlit verður tekið upp, þegar verðstöðvun lýkur. Af sérstökum aðgerðum til að- stoðar sjávarútvegi má nefna, að samið hefur verið fmmvarp um úreldingarsjóð fiskiskipa, sem stuðla á að hagkvæmari útgerð með því að kaupa skip og selja þau úr landi eða eyða þeim. 100 milljónum króna verður varið til niðugreiðslna á raforkuverði til fiskvinnslufyrir- tækja, sérstök þróunardeild verður stofnuð við Fiskveiðisjóð íslands, og ríkisstjómin ætlar að beita sér fyrir þvi, að hugmyndir um afla- og upplýsingamiðlun í sjávarútvegi komi til framkvæmda. Þá verður 10-15 milljónum króna varið til sérstaks gæðaátaks í fískvinnslu. í yfirlýsingu ríkisstjómarinnar um efnahagsmál segir einnig að skattlagning fyrirtækja verði tekin til skoðunar, heimildir fyrirtækja til að taka erlend lán verði rýmkaðar, stefnt verði að sem mestu samræmi í skattalegri meðferð mismunandi spamaðarforma og að eytt verði skattalegu óhagræði hlutafjáreign- ar. Sjá einnig bls 2, 18, miðopnu og bls. 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.