Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 23
Varaforseti Banda- ríkjanna í Mið-Ameríku MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 23 Quayle stóð sig vel í fyrstu utanförinni - en þykir þó mega vera orðvarari Washington. Reuter. DAN Quayle, varaforseti Banda- ríkjanna, sem var sagður maður lítilla sanda og lítilla sæva í kosn- ingabaráttunni á sl. sumri, þótti standa sig vel i sinum fyrstu við- ræðum við erlenda þjóðarleið- toga þegar hann var viðstaddur embættistöku Carlos Andres Perezar, forseta Venezúela. Skyggði það eitt á, að honum hættir við að vera dálitið fljótfær og hvatvís eins og ummæli hans um þá forsetana fyrrverandi, Jimmy Carter og Ronald Reagan, bera með sér. Quayle átti viðræður við 10 þjóð- arleiðtoga í Caracas í Venezúela og í ferð sinni um Mið-Ameríku og ber öllum saman um að hann hafi komið fram af röggsemi og öryggi. Einn helsti ráðgjafi Oscars Arias, forseta Costa Rica, sagði, að fjöl- miðlar hefðu gefíð þá mynd af Quayle, að hann væri með öllu reynslulaus og ekki síst þess vegna hefði hann komið ánægjulega á óvart. Daniel Ortega, forseti Nic- aragua, gaf Quayle einnig góða ein- kunn þótt þeir ræddust ekki við sjálfir og sagði, að hann hefði góð- an skilning á pólitískum staðreynd- um_ í Rómönsku Ameríku. Á laugardag, þegar Quayle varð 42 ára, kom hann til E1 Salvador og þótti ekki myrkur í máli á fundi með yfirmönnum úr hemum þegar hann sagði þeim, að mannréttinda- brotum yrði að linna. Nefndi hann sérstaklega þann atburð í septem- ber sl. þegar herinn, að því er talið er, myrti 10 óbreytta borgara í þorpinu San Sebastian og sagði, að slík voðaverk stefndu í tvísýnu stuðningi Bandaríkjastjómar við stjómvöld í landinu. Það var á fréttamannafundi í Caracas, sem Quayle veik að forset- unum fyrrverandi, þeim Carter og Reagan. Fyrst skammaði hann Carter, sem var einnig við embætt- istöku Perezar, fyrir að hafa rætt Mönnum ber saman um að Dan Quale varaforseti Bandaríkjanna hafi staðið sig með ágætum í för sinni til Mið-Ameríkuríkja. við Ortega, forseta Nicaragua, og síðan sagði hann brandara á kostn- að Reagans. Var hann þá spurður eftir kvefinu í George Bush Banda- ríkjaforseta og svaraði þá: „Hann er með barkabólgu. Reag- an var vanur að verða sér úti um hana til að sleppa við fréttamanna- fundina en sú afsökun verður ekki brúkuð af þessari ríkisstjóm.“ Aðstoðarmaður Quayles sagði síðar, að varaforsetinn hefði ekki meint neitt með þessum ummælum, hann bæri mikla virðingu fyrir Re- agan, fyrrum forseta. Sagt er líka, að Quayle harmi þessa fljótfæmi. Almennt var það dómur manna, að Quayle hefði staðið sig mjög vel en ætti þó ýmislegt ólært enn, ekki síst að gæta tungu sinnar. Litháen: Fyrsta messan í 40 ár í dómkirkjuimi í Vilnu Vilnu. Reuter. HRINGT var til rómversk-kaþól- skrar messu í dómkirkjunni í Vilnu í Litháen á sunnudag i fyrsta sinn frá því að stjórnvöld lokuðu kirkjunni og breyttu henni í vöruskemmu fyrir 40 árum. Dómkirkjan, sem reist var á 18. öld, var þéttsetin fólki. Fyrir utan kirkjuna hafði hátöl- urum verið komið fyrir og þar hlustuðu mörg þúsund manns á messu Julijonas Steponavicius biskups. „Það var hörmungartími fyrir þjóðina alla þegar dómkirkjunni var lokað fyrir 40 árum,“ sagði Step- onavicius í ávarpi til safnaðarins. „Dómkirkjan verður miðpunktur dýrðar Litháens, fegurðar og sann- leika," sagði hann. Dómkirkjúnni var lokað árið 1949 þegar kommúnistastjómir skáru upp herör gegn skipulegri starfsemi trúarstofnana í baltnesku lýðveldunum Litháen, Lettlandi og Eistlandi, en þau höfðu öll verið innlimuð í sovéska ríkið árið 1940. Ríkið sló eign sinni á allar kirkj- ur lýðveldisins og mörgum þeirra var lokað. Prestar voru teknir hönd- um og söfnuðimir sættu ofsóknum. Stjómvöld samþykktu í október á síðasta ári að skila aftur dómkirkj- unni. Steponavicius, sem var hand- tekinn árið 1961 og dæmdur til útlegðar í litháensku þorpi, var leyft að snúa aftur til dómkirkjunnar í desember síðastliðnum. Batnandi. samskipti kirkjunnar og stjómvalda eru að hluta til ávöxtur umbótastefnu Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga sem virð- ist leggja áherslu á stuðning kirkj- unnar við umbótaáætlun sína. Fjöldahreyfingin Sajudis, sem er áþekk Þjóðfylkingunni í Lettlandi og Eistlandi, á einnig hlut að máli en hreyfingin hefur sett fram kröf- ur um aukið sjálfsforræði Litháens og kynt undir þjóðemisvakningu í landinu. iaiúsi B'tsd ií;^9cj £m nrwri 6/3vX ulbódrfUiH in'lolám mu ^jilumodmsg «*Mi'SíSS?.2i «58 !§?" Qg\oQa' \Uá Leitiö til okkar: SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 SAMTÖK FISKVINNSLUSTÖÐVA ----- BOÐA TIL FUNDAR ----------------------- Á HÓTEL SÖGU, HLIÐARSAL, FÖSTUDAGINN 10. FEBRÚAR KL. 12.15 ER ÞJÓÐNÝTING FISKVINNSLUNNAR YFIRVOFANDI? DAGSKRÁ: Kl. 12.15: Hádegisverður Kl. 13.00: Setningfundarins: Arnar Sigurmundsson, formaður SF. Ávarp: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. Framsöguerindi: Haraldur Sturlaugsson, Akranesi, ÓlafurGunnarsson, Ólafsvík, Pétur Porsteinsson, Tálknafirði, Adolf Guðmundsson, Seyðisfirði, Eðvarð Júlíusson, Grindavík. Ávarp: Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. Umræður. Fundarstjóri: Einar Oddur Kristjánsson, Flateyri. W FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN, ÞÁTTTAKA TILKYNNIST í SÍMA 623155. ÞÁTTTÖKUGJALD ER KR. 1500,- HÁDEGISVERÐUR ER INNIFALINN í VERÐINU. _____ STJÓRN SF. ____ hiefi óív ..MflW-rliiloTAtJIF1™™ .. .iu6á ns munnöm ' ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.