Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 39
c* | pi 'jPFin T Pmífl’JWIfW Cim&jfrM'jnHOM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 39 Minning: Sveinn Magnússon loftskeytamaður h Fæddur 15. nóvember 1919 Dáinn 1. febrúar 1989 y Vinur minn og félagi, Sveinn Magnússon, loftskeytamaður, lést á Vífílstaðaspítala aðfaranótt 1. febr- úar eftir erfið veikindi undanfarin ár, og langar mig til að minnast hans með örfáum orðum. Andlát Svenna, eins og hann var ævinlega kallaður, kom engum sem til þekkti á óvart. Hann hafði þjáðst í mörg ár af lungnasjúkdómi og varð óvinnufær af þeim sökum fyr- ir fimm árum. Síðustu þrjú árin var hann nánast bundinn við íbúð sína og súrefnistæki. Svenni var fæddur í Vestmanna- eyjum 15. nóv. 1919. Foreldrar hans voru Magnús Helgason, fædd- ur 1896 í Grindavík, dáinn 1976. Magnús starfaði í mörg ár sem skrifstofustjóri Aðventistasafnað- arins í Reykjavík. Móðir Svenna var Magnína Jona Sveinsdóttir, fædd í Skutulsfirði, dáin 1982. Hún starf- aði mikið að líknarmálum. Svenni kvæntist föðursystur minni Guðrúnu Siguijónsdóttur, frá Tindum I A-Húnavatnssýslu, árið 1946. Böm þeirra em Magnina, f. 24. október 1946. Maki Sigurður Sigurðsson. Guðrún Ragna, f. 5. nóvember 1947. Maki Eiríkur Sig- fínnsson. Páll Ragnar, f. 6. maí 1952. Maki Sigríður Jakobsdóttir. Sigrún Ragna, f. 14. apríl 1957. Maki Andrés Sigurjónsson, og Þuríður Herdís, f. 18. desember 1963. Maki Sigurður Gunnarsson. Samtals eru bamabömin 15 og eitt bamabamabam. Svenni ólst upp í Vestmannaeyj- um og flutti síðan til lands með foreldmm sínum, sem settust að í Ölfusinu á Þórisstöðum og byggðu síðan nýbýlið Bræðraból. Ég held að með búskapnum hafi Magnús stundað vinnu sína í Reykjavík. Síðan fluttu þau suður í Skerjaíjörð, þar sem Magnús byggði að minnsta kosti þtjú hús og bjó ijölskyldan þar saman fyrst í stað. Magnús og Magnína bjuggu í Skerjafirði til hinstu stundar, en Svenni og Gunna byggðu sér hús í Kópavogi og áttu þar heima þar til að heilsa Svenna leyfði ekki leng- ur að búa í einbýli. Á stríðsáranum vann Svenni ýmis störf, mest við akstur, keyrði leigubíl, vömbíl og strætisvagn. Margar sögur sagði hann mér frá þessum ámm m.a. þegar hann' var látinn keyra fyrsta strætisvagninn með aflbremsum og hann var tæp- lega kominn af stað út í Austur- stræti, þégar kona hljóp fyrir bflinn og hann bremsaði. Allir sem stóðu í vagninum duttu, en engan sakaði. Eftir stríð fór Svenni í loftskeyta- skólann, fyrir tilstilli Jóns Eyþórs- sonar, en með þeim hafði tekist kunningsskapur. Loftskeytaprófí lauk hann 1946 og hóf þá störf á Veðurstofu íslands. Hjá Veðurstof- unni starfaði hann til áramóta aði hún móðurmálið betur en mörg okkar, sem heima sitjum, og í nokk- ur ár kenndi hún dönsku við Ber- litz-skólann í New York og hafði mikla unun af því starfi. Nanna var mjög gestrisin og naut þess að fá ættingja og vini frá íslandi í heimsókn. Hún var föðursystir mannsins míns Halldórs og heimsóttum við hjónin hana oft og fengum ávallt bestu móttökur. Má geta þess að eitt herbergi í húsi hennar var allt- af kallað herbergi Halldórs og Ollu. Þrátt fyrir nokkurn aldursmun urðum við góðar vinkonur og hef ég oft heimsótt hana nú síðustu ár. Settist hún þá stundum við píanóið og spilaði íslensk lög og rifjaði upp gamla daga þegar hún lék undir við þöglu bíómyndimar á Siglufirði. Eg er þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Blessuð sé minning hennar. Að eigin ósk er Nanna jarðsett hér í Reykjavík við hlið systra sinna. Ólöf Klemensdóttir 1983-84 með 4 ára hlé. Þessi 4 ár starfaði hann hjá Kaupfélagi Ámes- inga við akstur. Ég var bam að aldri, þegar ég kynntist Svenna fyrst, síðan þróað- ist þetta þannig að ég varð heima- gangur á heimili þeirra hjóna og foreldra Svenna, þegar ég sem unglingur, var á ferð í Reykjavík. Magnínu, móður Svenna, þótti mjög við mig, þegar ég, unglingurinn, var hættur í skóla og vildi fara að vinna. Mér fannst alveg nóg mark- mið í lífínu að taka bílpróf, þegar þar að kæmi og fara síðan hugsan- lega að keyra mjólkurbíl á Selfossi eins og margir eldri strákar á Sel- fossi stefndu að á þessum tíma. Ekki fannst Magnínu að við svo búið mætti sitja, og taldi mig á að fara í Hlíðardalsskólann og varð úr að ég héldi áfram námi. Eftir að ég hélt svo námi áfram í Reykjavík, var athvarf fyrir mig og mína fjölskyldu gjaman á Víghólastígnum hjá Svenna og Gunnu. Bæði innanhúss, þar sem við áttum alltaf vísa gistingu, og ekki síður í bílskúmum, þar sem margt var gert. Hvenær sem var gat ég komið með bflana mína og fengið að gera við þá, en ekki var síðra að fá frábæra leiðsögn og hjálp, ef á þurfti að halda. Ég held að vægt sé til orða tekið að ansi margir hafi notið velvildar Svenna, þegar um bfla var að ræða. Ég hefí oft sagt, að þrátt fyrir að ég hafí bæði vélvirkja- og vélstjóra- próf, þá lærði ég það sem mér hef- ur mest að gagni komið í bflskúm- um hjá Svenna. Það var virðing fyrir vélum og verkfæmm, snyrti- mennska og samviskusemi, það hugarfar, sem tæpast er kennt í skólum, sem maður kynntist þama. Þetta var í raun minn háskóli hvað viðgerðir og smíði áhrærir. Svenni átti marga góða bíla um dagana. Oft sagði hann, að bfllinn yrði að vera í þannig ástandi, að maður gæti fyrirvaralaust, hvenær sem væri, farið upp í hann og farið norður í land. Síðustu árin átti hann Benz. Benzinn varð að standa fyrir utan blokkina í Hrafnhólunum til- búinn til ferða, þó svo að hann vissi að síðasta ferðin yrði ekki farin á honum. Ég orðaði það einhvem tíma við hann, hvort ekki væri óþarfí að láta bílinn standa og greiða af honum skatta og trygg- ingu. Hann svaraði: „Mér fínnst eitthvað tekið frá mér, ef ég veit ekki af mínum bfl fyrir utan, tilbún- um til brottferðar, hvert á land sem er.“ Þetta með bflinn lýsir því vel að hafa allt í röð og reglu. Það \far nær sama hversu Svenni var veikur síðustu árin og ætti í raun oft erf- itt með að fara um íbúðina flesta daga, reyndi hann að klæða sig upp, setti meira að segja alltaf upp bindi. Þannig urðu hlutimir að vera, annars var eitthvað brostið. Síðustu árin kom ég að minnsta kosti vikulega í heimsókn í Hrafn- hólana, ef færi gafst. Þá bar oft margt á góma, ferðalög, tækni, kosningar í Bandaríkjunum og svo mætti lengi telja. Alls staðar var Svenni vel heima, enda fylgdist hann með ótrúlega mörgu fram á síðasta dag. Hann hlustaði mikið á útvarp og las bækur, bæði innlend- ar og erlendar. Ég minnist þess sjaldan að Svenni ræddi trúmál og held að þau mál hafí hann haft al- veg fyrir sig, en eitt er ég viss um, að hann vissi vel að hveiju stefndi og var því fyllilega viðbúinn. Ég get ekki lokið þessu án þess að minnast örlítið á hlutverk Gunnu. Ég held að hennar hlutur hafí oft verið erfiður. I fyrsta lagi er ömgg- lega mjög erfítt að vera húsmóðir á heimili með mörg böm, þar sem húsbóndinn vinnur vaktavinnu, ég efast um að allir geri sér það ljóst, og í öðm lagi er erfítt að vera í mörg ár með fársjúkan eiginmann á heimilinu. Þetta hefur Gunna borið með mikilli prýði. Við hjónin sendum Gunnu, böm- um, tengdabömum og öðmm að- standendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Gísli Erlendsson t Faöir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR LfNDAL JÓNSSON húsgagnabólstrari, Hátúni 12, verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 8. febrúar kl. 15.00. Fyrir hönd annarra vandamanna, Kristín Björk Gunnarsdóttir, Eyrún Magnúsdóttir. Þóra Elísabet Jónsdóttlr, Guðmundur Ingvi Jónsson. Jón Guðmundsson, t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRIFFITH DAVID SCOBIE, Torfufelli 42, verður jarðsunginn frá Kristskirkju Landakoti, miðvikudaginn 8. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfólagið. Ásta Hansen Scobie Stephanie G. Scobie, Grlffith J. Scobie, Ásta Denise S. Bernhöft, Robert S. Scobie, Gayle Scoble, Rlchard S. Scoble, Marion Scobie, William J. Scobie, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlót og út- för bróður okkar, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR, Kópsvatni, Hrunamannahreppi. Bjarni Jónsson, Magnús Jónsson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BÓTHILDUR JÓNSDÓTTIR, H verfisgötu 104a, Reykjavfk, er lést 31. janúar verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þann 8. febrúar kl. 15.00. Guðrún Winslow, Lára Gasch, Gíslína Sumarliðadóttir, Gunnar Sumarliðason, Sigrfður Sumarliðadóttir, Hildur Valelka, Unnur Sumarliðadóttir, Ingibjörg von Hoffer, Gfsli Sumarliðason, Ásgeir Sumarliðason, Birgir Sumarliðason, barnabörn Paul Gasch, Guðbjartur Jónsson, Brynhildur Jónsdóttir, Guðbjörn Eirfksson, Chester Valeika, Hreinn Sigurðsson, Robert von Hoffer, Guðrún M. Jónasdóttlr, Valgerður Guðmundsdóttir, Anna M. Ámundadóttlr, og barnabarnabörn. t Við þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vináttu í veik- indum og við andlát móðursystur okkar og systur, GUÐNÝJAR GUÐNADÓTTUR, Byggðarenda 16. Sérstaklega viljum við þakka öllu starfsfólki hjartadeildar Landspít- alans fyrir umhyggju og góða umönnun. Hanna Helgadóttir, Guðný Helgadóttir, Kristinn Guðnason. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlót og útför eiginmanns míns og föður okkar, AÐALBJÖRNS ARNGÍMSSONAR fyrrverandi flugvallarstjóra frá Þórshöfn. Gyða Þórðardóttir, Arnar Aðalbjörnsson, Jón Aðalbjörnsson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför, ÖGMUNDAR SIGURÐAR ELIMUNDARSONAR, Stigahlfð 24. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Vífilsstaöaspftala. Karlotta Frlðriksdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þakka innilega auðsýnda samúð og hlýhug við frófall og jarðarför eiginmanns mins, SVEINS ÓLAFSSONAR, Faxabraut BB, Keflavfk. Sérstakar þakkir til slökkviliðsins ó Keflavíkurflugvelli og lækna og hjúkrunarfólks sjúkrahúss Keflavíkur. Svanhvft Tryggvadóttir. t Inniiegar þakkir færum við öllum þeim sem auösýndu okkur hlut- tekningu og vinsemd við andlát og útför, SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Bólstaðarhlfð 41, Reykjavfk. Sölvi Jónasson, Svanhildur Tessnow, Haukur Sölvason, Krlstfn Arnadóttir og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- konu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, DAGBJARTAR SIGRÍÐAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Vitastfg 8, Hafnarflrði. Jón Steingrfmsson, Bryndfs Jónsdóttir, Guðný Jónsdóttir, Bjarni Jónasson, Arnleif Jónsdóttir, Guðrfður Jónsdóttir og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns og stjúpa okkar, ÞORLÁKS GUÐMUNDSSONAR frá Hveragerðl, Vogatungu 87, Kópavogi. Lfney Kristinsdóttlr, Auður Antonsdóttlr, Sigurlfna Antonsdóttir, Þorkell Mánl Antonsson, Kristinn Antonsson, Sigrfður Antonsdóttir, Tómas Antonsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.