Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Tvíburi ogFiskur Tvíburi og Fiskur eru ólík merki. Sjálfstjáning þeirra er ólík og sömuleiðis grunnvið- horf og farvegur lífsorku þeirra. Samband þeirra ein- kennist því af togstreitu eða þörf fyrir málamiðlun. Eirðar- leysi, hreyfanleiki og flöl- breytni er einkennandi, svo og margs konar áherslu- og stefnuskipti. Bæði merkin eru breytileg og sækja stöðugt í nýja þekkingu. Tvíburinn Tvíburinn þarf að fást við fé- lagslega og hugmyndalega iifandi málefni til að viðhalda lífsorku sinni. Hann þarf að taka virkan þátt í félagsstörf- um eða vinna þar sem margt fólk er í nánasta umhverfí. Tvíburinn hefur ríka þörf fyr- ir að tjá sig og ræða málin. Fiskurinn Fiskurinn er tilfinningaríkur og þvf viðkvæmur og næmur. Hann á til að vera sveiflu- kenndur og óútreiknanlegur, en er einnig flölhæfur og oft listrænn. Fiskurinn er skiln- ingsríkur, umburðarlyndur og hjálpsamur. Hann þarf marg- breytileika í lífsmynstur sitt. Vegna næmleika síns þarf hann að velja og hafna úr umhverfisáhrifum. Hann þarf því á reglulegri einveru að halda eða þarf að skipta ann- að slagið um umhverfi. Rökoginnsœi Mögulegar skuggahliðar eru fólgnar í ólíku grunneðli merkjanna. Tvíburinn metur lífíð fyrst og fremst út frá rökhyggju og vitsmunum, en Fiskurinn styðst við innsæi og tilfinningalegt mát sem oft er erfitt að útskýra með orð- um. Hugsun og tilfinningar Þegar Tvíburinn vill síðan ræða um reynslu sína er hætt við að fátt verði um orðræðu. Því er hætt við að þessi merki eigi erfitt með að skilja hvort annað. Jafnvel þó þau séu að tala um sama málið er hætta á misskilningi fyrir hendi og gagnkvæmum ásökunum. Tvfburanum getur átt til að finnast Fiskurinn tilfinninga- samur en honum getur aftur fundist Tvfburinn kaldur og tilfinningalaus. Óstööugleiki Þar sem Tvíburi og Fiskur eru bæði breytileg merki getur samband þeirra skort stöðug- leika. Þeim getur hætt til að fara úr einu í annað, án þess að hafa skýr markmið. Ef erfiðleikar steðja að er hætt við að hlaupið sé í burtu, án þess að útkljá málið. Einvera og félagslyndi Aðra mögulega skuggahlið má rekja til þarfar Tvíburans fyrir fjölbreytilegan félags- skap og þörf Fisksins fyrir einveru og það að vilja velja og hafna hvað varðar um- gengnisfólk. Menningarlíf Eins og önnur merki sem eru í spennuafstöðu þurfa Tvíburi og Fiskur að gera sérstakt átak til að vel gangi. Hinn margumrædda málamiðlun þarf að koma til sögunnar og eins þurfa þau að skilja og virða hið ólíka eðli hvors ann- ars. Líkast til geta þau ekki sfst sameinasc um menningar- og félagsmál. Fiskur hefur oft áhuga á listum, menningu og andlegum málum og Tvíbur- inn á fólki. Bæði Tvíburi og Fiskur eru forvitin merki, hafa áhuga á þekkingu og margvíslegum fróðleik. Ef þau rækta þennan þátt saman ætti þeim að famast vel. r*. a nni id GARPUR GRETTIR DDCMn a ot a nn dRcNDA öTAKK UÓSKA FERDINAND SMAFOLK MY BROTMER WA5 GONE BACK MOME BECAU5E ME SAlP I shoulpn't have been LI5TENIN6TOA CACTU5 Bróðir minn er farinn heim vegna þess að hann sagði að ég hefði ekki átt að hlusta á kaktus. UJMO EL5E CAN I U5TEKIT0?U)M0 EL5E CAN I TALK TO ? röj © 1988 United Featuro Syndicate, Inc. Hvern annan get ég hlust- að á? Hvem annan get ég talað við? BRIDS ( Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Bridsbókmenntimar eru full- ar af dæmum um sérkennilegar stöður, þar sem hægt er að láta slagi vamarinnar gufa upp eins og dögg fyrir geislum sólar. Sumar eru svo sjaldgæfar að menn mega teljast heppnir er þeir fá eitt tækifæri á spilaferlin- um til að standast prófið. Það kom því þægilega á óvart í rúb- ertubrids fyrir skömmu þegar spiladisimar röðuðu upp eftir- farandi bókmenntaslemmu: Suður gefur, NS á hættu. Norður ♦ ÁK1076 VKD92 ♦ K43 *6 Austur II J 86543 ♦ G875 ♦ 83 Suður ♦ 9 VÁG107 ♦ Á92 ♦ ÁD1054 Vestur Norður Austur Suður 1 lauf 1 spaði Dobl Pass 2 hjörtu Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 7 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: spaðadrottning. . Fjögur grönd var „fimm-ása- Blackwood" og suður sýni engan eða þijá ása með svarinu 5 lauf. Þar sem möguleikamir á því að fríspila hliðarlitina vom ekki miklir ákvað suður að fara út í víxltromp. Var reyndar nokkuð þakklátur fyrir að fá ekki tromp út! Fyrsta skrefið var að taka ÁK í spaða og henda tígli. Síðan kom laufás og lauf stungið með tvistinum. Þegar ÁK í tígli héldu var bjöminn unninn, því afgang- urinn kom sjálfkrafa með því að trompa á víxl lauf og spaða. Fimm slagir til hliðar og átta á tromp. Og austur mátti þola þá niðurlægingu að undirtrompa fímm sinnum. Vestur ♦ DG854 ▼ - ♦ D106 ♦ KG972 MaMib í Kaupmannahöfn FÆST I BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.