Morgunblaðið - 20.07.1991, Síða 26
MfflGjjNgL^ÐlÐj :LAff fiftSP AffUB'
26
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn ætti að snúa sér að
því að ljúka verkefni heima
fyrir og bjóða til sín gestum.
Það væri rangt af honum að
ýta um of á eftir hlutunum í
'vinnunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí) irft
Tilfmningar nautsins í ástar-
sambandi þess eru heitar. Ein-
hver í fjölskyldunni er með
önugasta móti núna. Ráðlegg-
ingar sem það fær í viðskiptum
vísa hvor í sína áttina.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú ríður á að tvíburinn sé trúr
í starfi. Vinur hans spanar
hann upp í að eyða of miklu.
Hann ætti að forðast hvers
kyns deilur í kvöld. Sölumanns-
hæfileikar hans blómstra núna.
Krabbi
►l(21. júní - 22. júll) HÍÍ8
Krabbinn er með allan hugann
við hugðarefni sitt.Nú fer í
hönd rómantískt tímabil í lífi
hans.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið ætti að forðast kæru-
* leysi varðandi mataræði sitt og
heilsufar. Leitist það við að
knýja fram málalok sem eru
því einu að skapi gæti það vald-
ið spennu gagnvart nánum
ættingja eða vini.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Meyjunni standa allar dyr opn-
ar í dag og hún er velkominn
gestur hvar sem hún lætur sjá
sig. Hún ætti að varast að eyða
of miklum peningum. Eitthvað
kann að fara í taugamar á
- henni í kvöld.
T
(23. sept. - 22. október)
Vogin tekur þátt í fundahaldi
í dag. Hún veit nákvæmlega
hvernig hún á að tala fyrir
þeim málstað sem hún styður.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sporðdrekinn hefur mikinn
áhuga á menningarmálum eins
og stendur. Hann lætur skrá
sig á námskeið sem hann hefur
lengi langað til að sækja.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Bogmanninum hættir til að sóa
tímanum í lítilvæga hluti núna.
Hann ætti að forðast að láta
ráðríka persónu ráská'með sig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitinni hættir til að eyði-
leggja góðan dag með því að
karpa við sína nánustu um
peninga. Hann ætti að vekja
athygli þeirra á því hversu
vænt honum þykir um þá.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) Ö&
Vatnsberinn getur eytt allri
spennu á vinnustað sínum með
persónutöfrunum einum sam-
an. Hann ætti að varast fljót-
færnislegar yfirlýsingar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’HSL
Fiskurinn hefur mikla ánægju
af iðkun áhugamála sinna
núna. Hann er heill í ástarsam-
bandi sínu, en ætti ævinlega
að muna hversu mikilvæg tján-
ing snertingin er.
Stjörnusþána á að lesa sem
dægradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
eVÐU/M ALGBNGU/if
FANGHUGMVNDUM UAf
7
\ffZOSkTA .. Ef> HÚÐ AHN I
\£Cf/MX£MN0, FOGL I
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
L OFT/UE.L /N0/N A SKÆ/F-
STOFON/Z/ M/NN/ B/LAF/. þAÐ
.Æe 'AK£/E>ANL£G'A
i/osnGA ffm
BFÉS V/E&þÖ.M'/ND/ ÉG
-1 F/NNA AiBJZ. HATT E/N -
V Ht/EBS S TAE/AE> -
FERDINAND
©Fl»
SMAFOLK
DON T LOOK, MANA6ER, BOT
WE'RE TRVIN6 THE OL'
HIPPEN BALL" PLAV...
THAT5 GREAT.. U)HERE
PIP VOU HIPE IT?
Ekki horfa framkvæmdastjóri,
en við erum að reyna gamla
„falinn bolti“ leikinn ...
Það er frábært... Hvar földuð
þið hami?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Svíinn P.O. (Peo) Sundelin er
þekktur fyrir að fara sér hægt
við spilaborðið. Sænski fyrirlið-
inn í Killamay, Svante Ryman,
segir að þetta orðspor sem af
Peo fari sé ekki með öllu sann-
gjarnt. „Eftir að hafa hugsað
tímunum saman á hann það til
að spila út í slaginn, óvænt og
skyndilega. Þess vegna köllum
við hann P.O. Suddenly." Dálka-
höfundur horfði einn hálfleik á
þá Sundelin og og Gullberg spila
við ísraela á töflu. Sundelin var
lengi að fara niður á 4 hjörtum
í þessu spili:
Austur gefur: allir á hættu.
Vestur Norður ♦ Á10986 ♦ 954 ♦ 86 ♦ ÁKG Austur
♦ 5 ♦ DG42
VK87 VÁG
♦ G754 ♦ KD1032
♦ D8632 Suður ♦ 105
♦ K73
♦ D10632 ♦ Á9 ♦ 974
Vestur Norður Austur Suður
Altshuler Gullberg Kaufman Sundelin
- - 1 tígull 1 hjarta
3 tíglar 4 hjörtu Allir pass
Útspil: spaðafimma.
Fyrsti slagurinn gekk nokkuð
hratt fyrir sig; tía, gosi og kóng-
ur. Síðan lauf á ás (tían frá
austri) og hjarta. Austur stakk
upp ás og spilaði spaðafjarkan-
um til baka, sem vestur tromp-
aði. Nú verður vestur að skipta
yfir í tígul til að fella samning-
inn. En spaðafjarkinn var loðið
spil. Vestur sá hvorki tvistinn
né sjöuna, svo hann gat ekki
verið viss um að makker væri
að biðja um tígul. Og spilaði
laufi.
„Nú er spilið unnið,“ sögðu
hinir alvitru í sýningarsalnum.
Bara að svína gosanum og spila
trompi. En Sundelin fór vel yfir
stöðuna og það er skemmst frá
því að segja að eftir 10 mínútna
umhugsun stakk hann skyndi-
lega kóngnum upp. Einn niður.
Spilið féll hins vegar, því hinu
megin keyptu Bjerregaard og
Morath samninginn í 3 tíglum í
AV, slétt unnum. _
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á National Open helgarmótinu
í Chicago í vor kom þessi staða
upp í skák Bandaríkjamannanna
Alexander Ivanov (2.525), sem
hafði hvítt og átti leik, og John
Fedorowicz (2.555). Skákin var
tefld í síðustu umferð og Fed-
orowicz var efstur og var eini
keppandinn sem hafði unnið allar
skákir sínar. En hér var hann
ótrúlega léttvægur fundinn:
n X
■A n A A
?s ''m/n A
26. Hxh7! - Kxh7, 27. Dh4+ -
Kg8, 28. Hd3 og svartur gafst
upp, þvi hann á enga vörn gegn
hótuninni 2S. Hh3 og eftirfarandi
máti á h8. Jafnir og efstir á mót-
inu urðu Bandaríkjamennirnir
Walter Browne, Alexander
Ivanov, Alex Jermolinsky, Dmitry
Gurevich, sem allir eru stórmeist-
arar, og alþjóðlegi meistarinn
Alex Fishbein. Þeir hlutu 5'/2 v.
Undirritaður tapaði úrslitaskák
fyrir Jermolinsky i síðustu um-
ferðinni og hlaut 4 'h v. Benedikt
Jónasson átti góða möguleika á
verðlaunum i flokki þeirra sem
hafa minna en 2.400 stig, en tap-
aði einnig í síðustu umferð og
hlaut 4 v. Þátttakendur á mótinu,
sem tók þrjá daga, voru alls 640.