Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991 Hæstiréttur: Fyrrum lögreglu- maður dæmdur í skil- orðsbundið varðhald HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fyrrum lögreglumann í þriggja mánaða skilorðsbundið varðhald fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi með því að hafa farið offari við handtöku ungs manns aðfaranótt 27. desem- ber 1990. í Sakadómi Reykjavíkur hafði maðurinn einnig verið dæmdur í þriggja mánaða varðhald, en þá óskilorðsbundið. Ungi maðurinn hafði ekki sinnt fyrirmælum lögreglumanna sem kvaddir höfðu verið að húsi við Berg- þórugötu þar sem samkvæmi stóð yfir. Sannað þótti að lögreglumaður- inn sem ákærður var hefði tekið unga manninn tökum og dregið hann rænulausan eða rænulítinn í átt að lögreglubíl en sleppt svo takinu þann- ig að andlit mannsins skall í götuna. Við þetta brotnuðu 7 tennur í mann- inum, auk þess sem hann hlaut ýmiss konar bólgur, mar og skrámur í and- liti. Umframorka Blöndu: Sala þýddi allt að 1.450 millj- óna kr. tekjur EF LANDSVIRKJUN gæti selt þær 610 gigawattsstundir, sem eru umframorkugeta Blöndu- virkjunar í fyrstu, á núgildandi meðalverði til almenningsraf- veitna, mundi það skila stofnun- inni um 1.450 milljón króna tekj- um, að sögn Halldórs Jónatans- sonar forstjóra Landsvirkjunar. Núgildandi meðalverð til al- menningsrafveitna er 2,38 krónur á kílówattsstund en sé miðað við meðalverð til stóriðju, sem er 1,52 krónur á kílówattsstund, fengjust 927 milljónir króna fyrir 610 gíga- wattsstundir, að sögn Halldórs Jónatanssonar. í dómi Hæstaréttar segir að fall- ast beri á það með héraðsdómara að sannað sé að maðurinn hafi í starfi sínu sem lögregiumaður í Reykjavík í umrætt sinn beitt unga manninn harðræði sem leiddi til meiðsla hans. Aðfarir hans hafi verið miklu harkalegri en aðstæður gáfu tilefni til. Með hliðsjón af því að lögreglu- manninum hafði verið vikið frá störf- um vegna þessa atviks og vegna þess að hann hafði ekki áður sætt kæru eða refsingu, þótti rétt að refs- ingin yrði skilorðsbundin en í Saka- dómi Reykjavíkur höfðu efni ekki þótt standa til þess. Auk refsingar- innar var maðurinn dæmdur til greiðslu 120 þúsund króna saksókn- ar- og málsvarnarlauna. Hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Bjarni K. Bjarnason, Gunnar M. Guðmundsson, Haraldur Henrysson og Pétur Kr. Hafstein kváðu upp dóminn. Víkur fyrir göngustíg Morgunblaðið/KGA Borgarráð hefur samþykkt að kaupa til niðurrifs húseignina Vallarstræti 4 oger kaupverðið 5 milljón- ir króna. Að sögn Hjörleifs Kvaran, framkvæmda- stjóra lögfræði- og stjórnsýsludeildar borgarinnar, er fyrirhugað að leggja göngustíg milli Vallarstræt- is og Fógetagarðs og því verður húsið að víkja. Það dEendur við Hótel Vík og er 100 fermetrar að grunn- fleti, kjallari tvær hæðir og ris. Birgðasöfnun hjá SH og SÍS í Bandaríkjunum: Nýir útflytjendur bjóða allt að 20% lægra verð BORIÐ hefur á undirboðum á íslenskum freðfiski á Bandaríkja- markaði eftir að útflutningur var gefinn frjáls fyrir fimm árum. Þetta kemur fram í grein Þóris Gröndal „Fiskmarkaðurinn í Ameríku í hættu” í blaðinu í dag. Þar segir að frést hafi af nýjum útflytjendum sem bjóði allt að 20% lægra verð en Coldwater Seafo- od Corporation og Iceland Seafood Corporation, dótturfyrirtæki SH og SÍS. Dagskrá út- varpsstöðva Vegna mistaka er dagskrá- útvarpsstöðvanna sem birtist í sérblaði Morgunblaðsins, A dagskrá, í gær, vikugömul. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum og vísar á daglega birtingu á blaðsíðu 6. í greininni segir að á sama tíma og íslensku físksölufyrirtækin eigi í vök að veijast vegna minnkandi neyslu á fullunnum afurðum hafi nýir útflytjendur frá íslandi flutt æ meira af fiskflökum, humri og fleiri sjávarafurðum til Bandaríkj- anna. Fiskurinn hafi verið seldur á lægra verði en sömu afurðir framleiddar og fluttar vestur af SH og SÍS. Verðmunurinn hafi orðið allt að 20% og oftast sé mið- Þórhallur Vilmundarson prófessor: Margt líkt með Bárði Snæ- fellsás og* Mikjáli erkiengli „Hér kviknaði að likindum hugmyndin um Bárð Snæfellsás,” seg- ir Þórhailur Vilmundarson, prófessor, þar sem hann stendur í búðatóftunum í Dritvík með Snæfellsjökul í baksýn. ÞORHALLUR Vilmundarson, prófessor, ritar grein um upp- runa Bárðar Snæfellsáss í Lesj bók Morgunblaðsins í dag. I greininni segir m.a. svo: „Trú og áheit á Bárð lifðu lengi fram eftir öldum. Þannig hétu þóf- arar á Bárð við vinnu sína með sérstökum formála: Bárður minn á Jökli, / leggstu á þófíð mitt. / Ég skal gefa þér lóna / og íleppana í skóna o.s.frv. Þetta minnir á hið innilega persónulega samband manna við dýrlinga í kaþólskum sið og vekur þá spurningu, hvort kristinna áhrifa hafi gætt á hug- myndir rnanna um Bárð þegar að fornu. í hugann kemur þá Mikjáll erkiengill, höfuðvemdarengill kristinna manna, sem einmitt er tengdur fjöllum og hellum. Talið hefur verið víst, að með englinum, sem talaði við Móse á Sínaífjalli, sé átt við Mikjál erkiengil.” Enn fremur segir: „Sem sjá má, er sumt líkt með frásögnunum af Bárði og Mikjáli, og er varla fjarri lagi að ætla, að hugmyndirnar um „heitguðinn” og „bjargvættina” í helli á Snæfellsjökli hafi dregið dám af trúnni á verndarengilinn við hellismunna á Garganofjalli, sbr. önnur áhrif kristni og. BiMki- íræða á heiðna trú og þjóðtrú, svo sem áhrif Krists á Baldur og fyrr- nefnd áhrif kerúba á oddvita land- vættanna.” Sjá nántir grein í miöopmi ; 11 Lesbójam||-| | j ||| |t||| j f 11| I j að við að fiskurinn sé staðgreiddur eða bankaábyrgð opnuð. Þó sé það ekki einhlítt því innfiytjendur í Bandaríkjunum bjóði fiskinn í smáslöttum og gefi þá gjaldfrest. Nýju útflytjendurnir bjóði aðeins auðseljanlegustu tegundirnar. Þetta hafi leitt til þess að erfitt reynist að selja Icelandic- og Sam- band of Iceland-merkin á hærra verði og birgðir hafi safnast upp. Nýir útflytjendur á Bandaríkja- markað kaupi fiskinn oft hjá frystihúsum, sem jafnan pakka fyrir Sölumiðstöðina og íslenskar sjávarafurðir. í Bandaríkjunum sé fiskurinn seldur m.a. undir merkj- unum Polar Frost, Iceland Seas, Iceland Star, Bliki, Iceland Har- vest, Seagulls, Hekla, Marbakki, Stefnir, Origin Iceland, Triton og Iceland Prima. Oft sé pökkun ábótavant og útflutningurinn fari einnig varhluta af gæðaeftirliti stóru sölusamtakanna. Þá sé orðið meira um það en áður að amerísk- ir kaupendur, meðal annars Red Lobster Inns, hafi komið til íslands og keypt framhjá Coldwater og Iceland Seafood. Sjá grein Þóris, „Fiskmarkað- urinn í Ameríku í hættu”, á bls. 12. EFTA hætt- ir viðskiptum við Júgóslavíu EFTA-ráðið hefur að tillögu Svía samþykkt að stöðva viðskipti við Júgóslavíu. Áður hafði Evrópu- bandalagið samþykkt viðskipta- bann á Júgóslavíu. EFTA-ráðið ákvað jafnframt að hætta viðræðum um fríverslunar- samkomulag við Júgóslavíu og aflýst var greiðslum úr 100 milljóna dala þróunarsjóði til handa Júgóslavíu. Fyrstu átta mánuði þessa árs fluttu íslendingar út vörur til Júgó- slavíu að verðmæti 28,8 milljónir kr. en innflutningur nam 72,7 milljónum króna. Útflutningurinn til Júgóslavíu er einkum skreið og lopi. Uppsagnir og aðhald boðað hjá Hagvirki STJÓRN Hagvirkis gerði sljórnendum innan fyrirtækisins, verkstjór- um, flokksstjórum, tæknimönnum og skrifstofuliði, grein fyrir því á fundi í gær að harður vetur væri framundan hjá fyrirtækinu og fyrirsjáanlegt aðhald í útgjöldum og starfsmannahaldi. undirbúningur fyrir Fljótsdalsvirkj- un myndi frestast vegna þess að ekki hefði verið samið um byggingu álvers. Jóhann játti því að til greina kæmi að segja upp allmörgum starfsmönnum, en Hagvirki er nú með 230 manns í vinnu. „Það er ekki búið að skilgreina það ennþá, en við sögðum fólki að við myndum herða að okkur,” sagði hann.~ Sjá frétt á miðopnu. „Við gerðum mönnum grein fyrir því að við yrðum að herða sultar- ólina á öllum sviðum, bæði í al- mennum útgjöldum og starfs- mannahaldi,” sagði Jóhann Berg- þórsson, forstjóri Hagvirkis, í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði að Hagvirki hefði meðal annars misst vænan bita er Morgunblaðið hefði samið við Istak um byggingu nýs húss, en Hagvirki bauð lægra í iií m ntlíi i*,,..:.. „a |l r í ,\i € I ( 4 I I f I 1 I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.