Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 44
Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Helgi Olafs- son varð Is- landsmeist- ari í skák Grundarfirði. HELGI Ólafsson varð í gær ís- landsmeistari í skák árið 1991. Urslitakeppni um íslandsmeist- aratitilinn í skák hefur verið haldin í Grundarfirði undan- farna daga. Lokaskákina tefldi Helgi við Karl Þorsteins og lauk henni með jafntefli eftir 38 leiki. Helgi fékk 2 Vi vinning en Margeir Pétursson varð annar með 2 vinninga. Þriðji -varð Karl Þorsteins með l'/z vinn- ing. Hallgrímur -------------- Aðalfundur HÍK: Vilji kennara til uppsagna kannaður MEÐAL ályktana, sem sam- þykktar voru á aðalfundi Hins íslenska kennarafélags í gær, voru tillögur um kjaramál, þar sem sljórn félagsins er falið að kanna vilja félagsmanna til að segja kerfisbundið upp störfum sínum í skólum landsins. Tillag- an var samþykkt með þorra atkvæða fundarmanna gegn einu. Fundurinn samþykkti ennfrem- ur samhljóða að fela stjórn HÍK og samninganefnd félagsins að krefja ríkið um fullar efndir á samningi félagsins frá árinu 1989. Þá var ályktað að krefja ríkissjóð um ' skaðabætur vegna útlagðs kostnaðar úr félagssjóði HÍK, sem rekja megi til vanefnda og samn- ingsrofa eftir síðustu samnings- gerð. Sjómenn vekja athygli á öryggismálum Morgunblaðið/KGA Nemendur í Stýrimannaskólunum í Reykjavík, Vestmannaeyjum, á I Dalvík og Höfn, ásamt Vélskólanemum í Reykjavík, Vestmannaeyj- um, Keflavík, á ísafirði og Akureyri gengu á fund Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra í gær. Þeir skoruðu á ríkisstjórnina að fram-1 fylgja samþykkt Alþingis um kaup á björgunarþyrlu á þessu ári. Til að vekja frekari athygli á máli sínu báru þeir gúmbjörgunarbát og ráku margir vegfarendur upp stór augu, þegar þeir mættu þess- um vaska hópi. Stofnun félags um kaup á Ríkisskipum undirbúin Starfsmenn fyrirtækisins, stórkaupmenn, kaupfélög og sveitarfélög meðal væntanlegra undirbúningsaðila STOFNUN hlutafélags um kaup á Skipaútgerð ríkisins, öðru nafni Ríkisskipum, er nú í undirbún- ingi. Undirbúningsfundur verður haldinn næstkomandi miðvikudag að frumkvæði starfsmannafélags fyrirtækisins og á þar að kjósa undirbúningsstjórn, sem síðar mun boða til formlegs stofnfund- ar félagsins. Að sögn Hjartar Jólastjörnustríð milli blómabúða: Verðið hefur lækk- að úr 1.300 í 690 kr. BLÓMAVERSLANIR á höfuðborgarsvæðinu eiga nú í verðstríði um jólastjörnur. A nokkrum dögum hefur útsöluverð fyrsta flokks blóma hrapað úr 1.000 til 1.300 kr. í 700 til 800 krónur. Lægsta verð sem vitað var um í gær var 690 krónur og er blómið þá selt nánast álagningarlaust. Þegar jólastjörnur komu á markaðinn fyrir um hálfum mán- uði voru þær á 1.000 til 1.200 krónur í mörgum verslunum og dæmi voru um hærra verð. Blómaval við Sigtún seldi þær hins vegar á 879 kr. stykkið af fyrsta flokks vöru. Bjarni Finns- son kaupmaður í Blómavali segir að verðið hafi verið óraunhæft í upphafi og Blómaval fái eðlilega álagningu með þessu verði. Síð- astliðinn fimmtudag auglýstu íjórar blómaverslanir, Blómahöll- in, tvær verslanir Blómastofunnar og Blómaverkstæði Binna, fyrsta flokks jólastjörnur á 795 krónur, sumar þeirra höfðu verið að selja blómin á tæpar 1.100 krónur. Blómaval svaraði með því að lækka sig í 769 krónur í gær. Bjarni segir að verðsamkeppnin sé af hinu góða. Nú aukist salan og það vegi að hluta upp lækkun álagningar. Smærri blómabúðir hafa veríð að huga að svari við samkeppn- inni og margar þeirra munu bjóða jólastjörnunar á 690 krónur í dag. Jólastjörnur fengust reyndar á þessu verði í Breiðholtsblómum í gær og ef til vill víðar. Kristha Wilde í Hlíðablómum segir að hún muni lækka jólastjörnunar í 690 krónur í dag og segir að það sé svar smærri búðanna við verð- stríði þeirra stærri. Hún segir að samkeppnin hafi gengið fyrir sig á svipaðan hátt og í sumarbló- munum í vor, einn hefði byijað að lækka og þá hefði skriðan far- ið af stað. Kristha segir að með því að selja jólastjörnunar á 690 kr. fáist engin smásöluálagning, þetta sé heildsöluverðið með virð- isaukaskatti. Bjarni í Blómavali segir að jóla- stjörnustríðið geti gefið vísbend- ingu um harðari verðsamkeppni á ýmsum vörum fyrir jólin nú en áður og nefnir jólatrén í því sam- bandi. Emilssonar, aðstoðarforstjóra Ríkisskipa, hefur Halldór Blöndal samgönguráðherra lýst ánægju með þetta frumkvæðKog sagt að allar leiðir séu opnar hvað varðar kaup á fyrirtækinu. „Allir, sem vilja, mega vera með í þessu félagi. Fundurinn er ætlaður til að kanna áhuga manna,” sagði Hjörtur í samtali við Morgunblaðið. Fyrir nokkru lýsti Félag stórkaup- manna yfir áhuga sínum á að kaupa Ríkisskip, og sagðist Hjörtur reikna með að stórkaupmenn myndu taka þátt í stofnun félagsins. Þá sagðist hann búast við að fulltrúar kaupfé- laga úti um land mættu á undirbún- ingsfundinn, en kauþfélögin eiga mikil viðskipti við Skipaútgerð rík- isins. Hjörtur sagði að ýmis sveitarfélög hefðu lýst yfir stuðningi við hug- myndina um hlutafélag. Meðal ann- ars hefði sveitarstjórnin á Stöðvar- firði lýst því yfir að hún myndi verða með í nýju hlutafélagi. „Það hafa komið stuðningsyfirlýsingar víða að,” sagði Hjörtur. Hann sagði að ekki væri gengið út frá því sem vísu að Ríkisskip væru til sölu, en möguleikinn væri fullkomlega raunhæfur. „Tveir menn úr okkar hópi gengu á fund samgönguráðherra og hann lýsti ánægju með þetta og sagði að allir möguleikar væru opnir ennþá,” sagði Hjörtur. Guðmundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, hefur sett fram greinargerð um hvernig hátta megi einkavæðingu fyrirtækisins. Þai’ segir nieðal annars að slæmur kostur sé að fela einum aðila strand- siglingar án útboðs, einnig að bjóða þær út eða að leggja niður Ríkisskip og selja eignir þeirra. Allir þessir kostir myndu leiða til þess að Eim- skipafélagið myndi ná einokunarað- stöðu. Hins vegar hafi sá kostur að stofna hlutafélag um strandferða- þjónustuna ýmislegt jákvætt í för með sér. Ríkissjóður losni undan því á nokkrum árum að þurfa að styrkja fyrirtækið, landsbyggðinni sé tryggð traustari þjónusta en hingað til og þróun í átt til einokunar í flutningum sé stöðvuð. Guðmundur vitnar í greinargerð- inni til dr. Madsens Pirie, brezks sérfræðings um einkavæðingu, sem telur að binda verði með samningi við fyrirtækið, sem er einkavætt, hveijar þjónustuskyldur þess séu, til þess að það geti ekki síðar vikið sér undan fjárhagslega' óhagkvæmri þjónustu og sniðgengið hagsmuna- hópa. „Þetta atriði styður hugmynd- ina um að ríkið geri þjónustusamn- ing við „Skipaútgerðina hf.”, þar sem nákvæmlega er fram tekið hveijar þjónustuskyldur hennar séu,” segir Guðmundur. Hann leggur til að slíkur samning- ur yrði til sjö ára. Á þeim tíma myndi ríkið greiða ákveðna stig- lækkandi upphæð fyrir strandferða- þjónustuna. Ríkið myndi svo líklega hafa rétt til að framlengja samning- inn og greiða verð, sem væri það sama og fyrir sjöunda ár reynslu- tímans. Þetta ákvæði væri til að lægja ótta manna við það, sem við tæki, þegar reynslutímanum lyki. Itíkið gæti hins vegar verið laust allra mála að reynslutímanum lokn- um ef það kysi, enda yrði það til- kynnt hinu nýja fyrirtæki með góð- um fyrirvara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.