Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 16. NÓVEMBER 1991 Vegagerð ríkisins: Arnarnesvegur opnaður fyrir umferð um helgina ARNARNESVEGUR, milli Hafnarfjarðarvegar og Reykja- nesbrautar, verður opnaður um Meiddist á augaí vinnuslysi ÓTTAST er að tæplega sextugur maður hafi misst sjón á auga í vinnuslysi í vinnslusal Miðness í Sandgerði í gær. Verið var að lyfta fiskikari með lyftara. Kústur á skafti klemmdist milli lyftarapallsins og borðs, brotn- aði undan spennunni og skaust brot í auga mannsins. helgina. Vegurinn liggur á mörkum Kópavogs og Garða- bæjar og tengist Hafnarfjarðar- vegi með umferðarmannvirkj- unum á Arnarneshæð en Reykjanesbraut með venjuleg- um stefnugreindum gatnamót- um. Hann er 1,1 km að lengd með 7,5 metra breiðu malbiks- lagi. Kostnaður við fram- kvæmdina er um 80 milljónir króna og á fullnaðarfrágangi að ljúka næsta sumar. Arnarnesvegur liggur um Nón- hæð og tengjast þar tvær nýjar götur inn á veginn á hringtorgi. í frétt frá Vegagerð ríkisins segir að síðar, þegar Reykjanesbraut verður orðin 4ra akreina, er áætl- að að tengja vegina með umferðar- mannvirkjum, svipuðum þeim sem eru á Amameshæð. Um Reykja- nesbraut við vegamótin fara um 15.000 bílar á dag, en um Hafnar- fjarðarveg fara um 30.000 bílar á dag. Er gert ráð fyrir að umferð um nýja veginn verði til að byija með um 5.000 bílar á dag, svipað og nú er á Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur. Fram kemur að Bæjarbraut úr Garðabæ hafi hingað til verið eini vegurinn á mörkum Kópavogs og Garðabæjar og því hefur ekki þurft að skeyta um forgang annarrar umferðar. Hún hefur engin verið en framvegis mun umferð af Bæj- arbraut þurfa að víkja með bið- skyldu, fyrir umferð á Arnarnes- vegi. Em vegfarendur sérstaklega varaðir við þegar farið er um þessi gatnamót og beðnir um að muna vel eftir því að umferð er komin á Amarnesveg. VEÐUR ÍDAGkl. 12.00 Heimild: Veöurslofa íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR íDAG, 16. NÓVEMBER YFIRLIT: Um 300 km suður af Dyrhólaey er 1000 mb kröpp smá- lægð, sem þokast suðaustur, en yfir Grænlandi er 1035 mb há- þrýstisvæði. SPÁ Fremur hæg norðan- og norðaustanátt, úrkomulaust um sunn- anvert landið en él í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Austanátt með smá snjókomu sunnan- og suðaustanlands, en hægviðri og úrkomulaust í öðrum landshlut- um. Frost 6-8 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Breytileg átt, kaldi eða stinningskaldi, skýjað en úrkomulítið. Helst má búast við éljum suðvestanlands. Frost 4-6 stig. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 890600. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +7 snjókoma Reykjavík +5 alskýjað Bergen 0 iéttskýjað Hefsinkl 5 rigning Kaupmannahöfn 3 þokumóða Narssarssuaq +9 skýjað Nuuk vantar Osló 2 skýjað Stokkhólmur —'' 1 þokumóða Þórshöfn 0 alskýjað Algarve vantar Amsterdam 6 léttskýjaö Barcelona 13 þrumuveður Berlín 6 hálfskýjað Chicago 13 þokumóða Feneyjar 8 rigning Frankfurt 6 léttskýjað Glasgow 0 skýjað Hamborg S þokumóða London 7 skýjað Los Angeles - 17 heiðskírt Lúxemborg 4 iéttskýjað Madríd 16 léttskýjað Malaga 19 skýjað Mallorca 18 skýjað Montreal 5 rigningogsúld NewYork 12 skýjað Orlando 28 léttskýjað París 6 léttskýjað Madeira vantar Róm 16 alskýjað Vln 7 skýjað Washington 20 léttskýjað Winnipeg 0 alskýjað Þriggja ára áætlun Siglufjarðarbæjar: 60 milljónum varið til byggingar leikskóla Siglufirði. BÆJARSTJÓRN Siglufjarðar hefur samþykkt þriggja ára fram- kvæmda- og fjárhagsáætlun fyrir árin 1992-94. Helsta framkvæmd bæjarins á þessu tímabili verður bygging leikskóla. Samkvæmt áætlun- inni verða hreinar skuldir bæjarsjóðs og fyrirtækja hans um 75 milljón- ir um næstu áramót og hafa þá iækkað um 575 milljónir kr. á árinu því skuldirnar voru 650 milljónir í ársbyijun. Meðalárstekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar um 180 milljónir kr. á ári á þessu tímabili en rekstrarkostnað- ur 120 milljónir. Rekstrarafgangur hafnarsjóðs er áætlaður 3 milljónir á ári og afborganir lána og vaxta 16 milljónir. Samkvæmt þessu hefur bæjarsjóður til ráðstöfunar til fram- kvæmda og fjárfestinga um 47 millj- ónir kr. eða alls rúmlega 140 milljón- ir á næstu þremur árum. Á sama tímabili eiga skuldir að lækka um rúmlega 30 milljónir kr. að raunvirði. Samkvæmt framkvæmdaáætlun- inni verður varið 30 milljónum til áframhalds framkvæmda við dvalar- heimili aldraðra 30; gangstéttafram- kvæmda 20 milljónir; hafnarfram- kvæmda 15 milljónir; viðhalds á eignum bæjarins 14 milljónir og holræsaviðgerða 12 milljónir. Að auki verður unnið að ýmsum minni verkefnum og áætlaðar fjárfestingar í minni tækjum og búnaði eru 10-15 milljónir á þessu þriggja ára tímabili. M.J. Karólína Lárusdóttir verðlaunuð í Bretlandi KARÓLÍNA Lárusdóttir hlaut í gær „John Brandler Watercolor Prize”, eða John Brandler-verðlaunin fyrir vatnslitamyndir. Verðlaunin fékk hún fyrir mynd sem er á sýningu hjá „New English Art Club”. Klúbbur- inn er styrktur af myndlistar- og uppboðsfyrirtækinu Christies og er sýningin í Mall Galleries í London. Á sýningunni eru 450 verk, mörg hver eftir fremstu lista- menn Breta, en aðeins sex þeirra hlutu verðlaun. í samtali við Morgunblaðið sagðist Karólína að vonum vera mjög ánægð, því verðlaunin opni henni ýmis tækifæri. „Þetta var líka svo óvænt,” sagði Karólína. „Þetta er árleg sýning og það eru fyrst og fremst meðlim- ir„New Englis Art Club”, sem taka þátt í henni. Ég er ekki meðlimur, en í vor fékk ég bréf frá þeim, þar sem mér var boðið að senda inn myndir til dómnefndar, sem velur verk þeirra einstaklinga sem ekki eru meðlimir. Það eru mjög virtir listamenn sem taka þátt í sýningunni svo mér fannst þetta freistandi og sendi inn fímni myndir, grafíkverk, olíu- og vatns- litamyndir. Þær eru allar á sýning- unni og mér finnst mjög vænt um að fá einmitt þessi verðlaun, því hér í Bretlandi er mjög sterk hefð fyrir vatnslitamyndum.” Snjómokstur á fjalivegum; Tvíbent að hafa fleiri en einn að störfum - segir aðstoðarvegamálasljóri ÞAÐ ER tvíbent að hafa fleiri en einn mann við snjómokstur á fjallveg- um þar sem svo háttar til að snjóflóð geta fallið, að mati Helga Hall- grímssonar, aðstoðarvegamálastjóra. Hann sagði að einkum væri litið til fjarskipta sem öryggistækis í þessu sambandi. í frétt Morgunblaðs- ins í gær kom fram að maðuriiin, sem lést á Breiðadalsheiði þegar snjóflóð féll á snjómoksturtæki sem hann stjórnaði, var þar einn að störfum. „Við höfum meira stílað upp á það að fylgst væri með mönnum með fjarskiptatækjum. Það er ljóst að það þarna eru miklu fleiri hættustaðir og kannski enn hættulegri, þ.e. Ós- hlíðin. Þar er umferð miklu meiri og menn eru á ferðinni kannski daga og nætur. Niðurstaðan hefur orðið sú að því fleiri sem væru á ferðinni þeim mun meiri væri hættan. Þess í _ber að efla fjarskiptin,_en ég_ veit ekki hvernig fjarskiptum var háttað í þessu tilfelli,” sagði Helgi. Hann sagði að það væri alltaf reynt að meta það hvort snjóflóða- hætta væri fyrir hendi áður en haf- ist væri handa við að opna vegi. Þrátt fyrir aðvaranir um hættu sé alltaf töluvert um það að vegfarend- ur haldi áfram ferð sinni, það hafi reynslan sýnt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.