Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991 Fiskmarkaðurinn í Ameríku í hættu eftirÞóri S. Gröndal I þessari grein verður notað tak- ið „marketing”. í stað hins ljóta orðs „markaðssetning” er lagt til að „marketing” verði kallað mörk- un, kvenkynsorð, sem er til í málinu en mjög lítið notað nema í hugtak- inu mörkun sauðfjár og í samsetn- ingunni takmörkun. Fyrir sögnina „to market” verður notað orðið að merka. Þetta orð er ekki til í málinu samkvæmt íslenskri orðabók Menn- ingarsjóðs. Fáir leikmenn hafa gert sér grein fyrir hinum gífurlegu breytingum, sem orðið hafa á sölu og mörkun á íslenskum fiski hér vestra á und- anförnum árum. Þar til fyrir um fimm árum, þegar íslensk stjórn- völd gáfu frjálsan útflutning á frystum fiski hingað, sáu tveir stór- ir aðilar um þessa verslun. Þetta voru samtök frystihúsanna sjálfra, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Samband íslenskra samvinnufé- laga. Um tíma fengu tveir smærri aðilar að flytja út takmarkaðan fjölda vörutegunda, en þeir entust ekki mjög lengi. í rúmlega 40 ár hafa dótturfyrir- tæki þessara samtaka, Coldwater Seafood Corporation og Iceland Seafood Corporation, selt afurðir frystihúsanna í gegnum veigamikið mörkunarkerfi, sem byggt hefír verið upp á þessum tíma. Þeim tókst, með ötulli útbreiðslu- og aug- lýsingastarfsemi að koma íslensk- um fiski í sér flokk, sem neytendur greiddu hærra verð fyrir en annan freðfisk. Bæði fyrirtækin settu upp kerfi af umboðsmönnum (brokers) í öllum ríkjum landsins, en seldu einnig beint til stærstu veitingahús- akeðjanna. Keppinautar, eins og t.d. Kanadamenn, renndu oftöfund- araugum til Islendinganna, sem hafði tekist að sameina hin fjölda- mörgu frystihús landsins í tvenn sölusamtök og samræma gæði og pökkun undir tveimur vörumerkj- um, sem þekkt eru á bandarískum fiskmarkaði, Icelandic og Samband of Iceland. Bandaríski markaðurinn fyrir frystan físk var í marga áratugi sá mikilvægasti fyrir íslenskan sjávar- útveg. Hér fékkst hæsta verðið og hér voru mestu möguleikarnir. ís- lensku fískstöðvarnar hér voru brautryðjendur í að finna upp, hanna og merka nýjar afurðir til að framleiða úr íslenskum físk- blokkum í nýtískulegum verksmiðj- um sínum. Markaðshlutdeild þeirra fyrir unnar fískafurðir var milli 20 og 40 af hundraði. Þær kepptu og gera enn grimmilega í sölu og mörkun á þessum afurðum. En þar sem verðlagningin á fiskflökum, sem fullpökkuð eru á íslandi, var sú sama, kom aldrei til undirboða eða verðstríðs. En nú hafa tímarnir og aðstæð- urnar breyst. Aukið mikilvægi markaðs fyrir ófrystan fisk í Evrópu og ný tækni til að flytja hann, hafa orðið til að minnka mikilvægi Bandaríkjamarkaðarins. Á sama tíma ákváðu íslensk stjórnvöld að gefa mörgum, litlum útflytjendum leyfi til þess að flytja út og merka freðfisk til Bandaríkjanna. Um svip- að leyti varð svo fax-byltingin, sem snarbreytti þráðlausum samgöngu- háttum og aðferðum við sölu og mörkun á flestum vörum. Á sama tíma sem íslensku fisk- sölufyrirtækin í Ameríku eiga í vök að veijast vegna minnkandi neyslu á fullunnu afurðunum þeirra, hafa hinir nýju útflytjendur á íslandi flutt hingað meira og meira af físk- flökum, humri og fleiri afurðum. Fiskur þessi hefir verið seldur á lægra verði en sömu afurðir, fram- leiddar og flúttar vestur af Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og íslensk- um sjávarafurðum (SÍS). Fréttir um hið lægra verð nýju útflytjendanna fljúga sem fískisög- ur um landið með aðstoð faxins. Verðmunurinn getur verið allt að 20% og er þá oftast miðað við að fískurinn sé staðgreiddur eða opnuð bankaábyrgð. Samt er það ekki ein- OPIÐ í DAG, LAUGARDAG, FRÁ KL. 12.00-16.00, SUIMNUDAG FRÁ KL. 12.00-15.00. Fossvogur Ertu í blóma lífsins? Um sextugt? Viltu fara að taka lífinu með ró? í Fossvogsdal á sólríkum stað rís glæsilegt hús „Sólvogur” Nú eru hafnar framkvæmdir að glæsilegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Foss- vogi. Um er að ræða stórar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir, sem afhendast fullbúnar að utan sem innan, án gólfefna. Suðvestursvalir. Glæsilegt útsýni. Verð frá kr. 8.000.000,-. Á 1. hæð í húsinu verður íbúð fyrir húsvörð, salur þar sem verður ýmis þjónusta gufubað, sturtur, búningsklefar, heitir pottar o.fl. Pa verður sameiginleg setustofa á 5. hæð og samkomu- og spilasallur á 8. hæð. ‘Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. Komum heim með teikn- ingar ef óskað er. Heitt kaffi á könnunni. Gerið svo vel að Ifta inn. ÓÐAL fasteignasala, Skeifunni 11A, ® 679999 Lögmaður: Sigurður Sigurjónsson hrl. hlítt, því síðan bjóða hérlendir inn- flytjendur fískinn í smáslöttum og er þá gefinn gjaldfrestur. Coldwater of Iceland Seafood eru auðvitað með fastakostnað og þurfa að greiða umboðslaun, enda verða fyr- irtækin að selja allar afurðir félags- manna sinna, en nýju aðilarnir fleyta ijómann ofan af og bjóða einungis auðseldustu tegundirnar. Hefir þetta orðið til þess, að erfitt reynist að selja Icelandic- og Sam- band of Iceland-merkin á hærra verðinu og birgðir hafa verið að safnast, upp. Nýju útflytjendurnir fá oft fisk- inn hjá frystihúsum, sem að öllu jöfnu pakka fyrir Sölumiðstöðina og Islenskar sjávarafurðir. Selja þeir hann hér undir ýmsum merkj- um og eru hér nokkur dæmi: Polar Frost, Iceland Seas, Iceland Star, Bliki, Iceland Harvest, Seagulls, Hekla, Marbakki, Stefnir, Origin Iceland, Triton og Iceland Prima. Oft er pökkun ábótavant því fáir af þessum útflytjendum hafa efni á að láta prenta sómasamlegar um- búðir. Þessi útflutningur fer einnig varhluta af gæðaeftirliti stóru sölu- samtakanna. Hinir nýbökuðu viðskiptajöfrar hafa sumir hveijir lent í klónum á óprúttnum, amerískum innflutn- ingsfyrirtækjum, sem hafa platað þá og svikið. Heyrst hefir um nokk- ur dæmi, þar sem oi'ðið hafa fjártöp. Þetta er ekki óeðlilegt, því sumir nýgræðinganna eru reynslulausir og vita ekki, hvernig kaupin gerast á eyrinni. Þar sem sölusamtökin SH og ÍS hafa misst þau tök, sem þau áður höfðu á frystihúsunum, er orðið meira um það, að amerísk- ir kaupendur, m.a. Red Lobster Inns, hafí farið í yfírreið um landið og heimsótt frystihús að vild. Hafa þau jafnvel keypt framhjá Coldwat- er og Iceland Seafood, sem séð hafa þeim fyrir gæðafiski í áratugi. Sumii' munu eflaust segja að breyttir tímar kalli á nýja skipan fisksölumála í Ameríku. Ónnur og voldugri skipulög í heiminum, svo sem kommúnisminn og samvinnu- hreyfingin, hafi horfið fyrir ættern- isstapa. Að mínu áliti er það ekki gáfulegt að grafa undan stoðum Coldwater og Iceland Seafood Corp- orations. Þessar fiskstöðvar, sem Þórir S. Gröndal „Fréttir um hið lægra verð nýju útflytjend- anna fljúga sem fiski- sögur um landið með aðstoð faxsins. Verð- munurinn getur verið allt að 20% og er þá oftast miðað við að fisk- urinn sé staðgreiddur eða opnuð banka- ábyrgð. Samt er það ekki einhlítt, því síðan bjóða hérlendir inn- flytjendur fiskinn í smáslöttum og er þá gefinn gjaldfrestur.” eru stærstu fyrirtæki erlendis í eigu íslendinga, hafa unnið landinu vel í fjóra áratugi. Enginn íslenskur aðili er tilbúinn að hlaupa í skarðið ef þau hverfa_ af sjónarsviðinu. Efnahagsáföll íslendinga að und- anförnu eru orðin nógu möi'g og alvarleg. Við þurfum ekki að bæta þessu við. Höfundur er ræðismaður Islands í Suður-Flórída. Skot í höfuðið eftir ÓlafE. Jóhannsson Áratugum saman hefur Morgun- blaðið staðið fremst íslenskra dag- blaða, bæði hvað varðar áreiðan- leika, stærð og útbreiðslu. Enda starfa á blaðinu ýmsir af bestu blað- amönnum landsins sem eru jafnan stétt sinni og blaðinu til sóma. Auðvitað verður starfsmönnum blaðsins stundum á, þó sjaldan sem betur fer, enda eru slík mistök jafn- an leiðrétt. Einn er þó sá starfsmaður sem oftar verður á í messunni en öðrum. Það er sá sem kallar sig „fjölmiðla- rýni” blaðsins, en hann hefur skrif- að einhverskonar „fjölmiðlagagn- rýni” sem birst hefur á blaðsíðu 6, um nokkurra ára skeið. Oft hefur mér þótt skilningur hans furðulegur og skrif hans stappa geggjun næst á köflum. Ekki síst þegar kjaramál opinberra starfsmanna og þá einkum kenn- ara, fléttast með undarlegum hætti saman við „fjölmiðlarýni” hans. Reyndar sætir það undrun að Morgunblaðið skuli líða það að tveir leiðarar birtist í blaðinu á tíðum, annars á hinum hefðbundna stað á miðopnu blaðsins — hinn á blaðsíðu 6. Undirritaður hefur ekki, fyrr en nij, nennt að amast við speki „fjölm- iðlarýnis”, enda að sönnu ekki áhættulaust að andmæla skoðunum sumra, því þeir geta tryllst, eins og dr. Gunnlaugur Þórðarson benti réttilega á í grein sem birtist í blað- inu fyrir nokkru, reyndar af öðru tilefni. I Morgunblaðinu 12. nóvember síðastliðinn skrifaði „ijölmiðlarýnir- inn” um siðferðisbresti og taldi þar vinnubrögð undirritaðs til skamm- ar. Tilefnið var frétt sem birtist á Stöð 2 sunnudaginn 10. nóvember þar sem sagt var frá grunsemdum um fjárdrátt starfsmanns Skeljungs á Neskaupstað. Hinn skarpi „rýnir” segir að í fréttinni hafi verið fullyrt að um- ræddur starfsmaður hafí dregið sér fé og þar farið með hreinar getgát- ur. Hvorug staðhæfing „rýnisins” er rétt. í fréttinni var aldrei fullyrt að fjárdráttur hafi sannast, heldur aðeins sagt að samkvæmt heimild- um fréttastofunnar væru grun- semdii' uppi um fjárdrátt. Reyndar kom síðar í ljós að grunur stjórn- enda Skeljungs, um að maðurinn hefði dregið sér fé, átti við rök að styðjast. Því miður kemur það allt of oft fyrir að dómar „íjölmiðlarýn- is” Morgunblaðsins eru rangir, þó hátt sé reitt til höggs á stundum. Ennfremur virðist þekking hans á almennum vinnureglum blaða- og fréttamanna vera í skötulíki. Það er illt til þess að vita að jafn ágætur og virðulegur fjölmiðill og Morgunblaðið skuli ekki hafa hæf- ari gagnrýnanda en þennan innan sinna vébanda, því sannarlega er ljósvakamiðlum og raunar fjölmiðl- um öllum, full þörf á aðhaldi og ábendingum. Skot „fjölmiðlarýnis” Morgunblaðsins á starfsmenn út- varps- og sjónvarpsstöðva virðast oft hitta hann sjálfan fyrir, ekki síður en þá sem þeim er beint að. Mér sýnist hann hafa nú hitt sig 'í höfuðið. Höfundur er fréttamaður á Stöð 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.