Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991 17 Kom þú ávallt ef þú getur, okkar inn í bæ. Eins og fram kemur í vísunni var mér boðin elska og vinátta sem ég hef oft þurft á að halda. Ég naut þess ríkulega að eiga skjól í Framtíð hjá afa og ömmu. Þar var mér alltaf tekið opnum örmum, Framtíðin var alltaf öruggt at- hvarf. Ég fékk hvatningu og hrós ef vel gekk og huggun og vernd ef á móti blés. Stundum kannaði ég hvað var í matinn hjá ömmu og afa og ef mér leist vel á, þá fékk ég vandræðalaust að borða hjá þeim. Alltaf dáðist ég að því hvern- ig afi gat borðað án þess að nota gaffal, hnífurinn dugði. Það'var gott að eiga heima svona nálægt ömmu og afa, ég gat hlaup- ið til þeirra berfætt ef mikið iá við. Þau þurftu nefnilega svo oft að bjarga mér,_ því hjartað var ekki alltaf stórt. I Framtíð lærði ég ótal margt. Ég lærði svo margt fallegt af afa og ömmu, mér finnst þau alltaf hafa verið að gera og segja eitthvað gott. Afi spilaði fyrir mig á munn- hörpu, kvað fyrir mig, kenndi mér vísur og hlustaði alltaf á það sem ég hafði að segja. Afi og amma kendu mér bænir og mikilvægi þess að eiga trú á Guð og lífið sjálft. Ef ég gat ekki sofnað var eina ráðið að fara með bænirnar, þá lagaðist allt og svefninn færðist yfir. Það var alltaf svo mikil ró í Framtíð þrátt fyrir að amma og afi sætu aldrei auðum höndum. Það sem mér finnst hafa einkennt afa og ömmu sem hjón var að þau voru alltaf að gera eitthvað saman. Hann afi var yndislegur, alltaf til í að fara í bíltúr og gera eitt- hvað skemmtilegt. Þolinmæðin ein- kenndi afa, alltaf var hann tilbúinn til þessa að bíða, bíða hér og bíða þar. Alltaf til þjónustu reiðubúinn fyrir okkur sem honum þótti vænt um. Afi var kærleiksríkur og hóg- vær, krafðist lítils af öðrum en gaf þeim mun meira. Það var stórt hjartað í afa mínum, rúmaði mikið. Strákarnir mínir tveir voru mjög lánsamir að fá að upplifa alla gæsk- una sem boðin var í Framtíð. Afi kenndi þeim að tefla og í kjallaran- um fengu þeir að smíða undir hans handleiðslu. Fyrir þetta, ásamt svo mörgu öðru erum við, ég og þeir, full af þakklæti. Elsku afa mínum þakka ég fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Hönd hans var alltaf hlý og mjúk. Hann gat alltaf fengið mig til þess að brosa og sjá ljósið fram hjá myrkrinu. Fyrir allt þetta er hann mín vetrarsól. Elsku amma mín, ég er alveg viss um að þú heldur áfram að lifa lífinu lifandi eins og þú hefur alltaf gert. Mig langar til þess að þér líði vel og sért glöð, ég veit að afi er mér sammála um það. Hann elsk- aðþ lífið. , Ég bið þess að góður Guð veri með ömmmu, pabba, Stínu, Tóm- asi, Hauki og okkur öllum hinum sem elskuðum afa. Maggý Hrönn Hermannsdóttir Okkur langar til að minnast afa okkar, Sigurðar G. Tómassonar með nokkurm orðum. Það er af mörgu að taka þegar á að minnast hans afa, það er okkur ofarlega í huga þær mörgu ferðir sem við fórum til ömmu og afa upp í Fram- tíð eða inn að Fossá. Við áttum oft góðar stundir niðri í kjallara með afa, en þar var margt smíðað, því afi var hinn mesti hand- verksmaður, og var hann óspar á að miðla okkur af þekkingu sinni þegar við stóðum í stórræðum, t.d. skipa- eða sleðasmíðum. Éinnig er okkur minnisstætt hve gott var að leita til afa þegar eitt- hvað bjátaði á, alltaf var afi tilbúinn til að hlusta, og gefa góð ráð. Með þessum orðum viljum við kveðja elsku afa okkar og munum ávallt búa að því að hafa átt hann, og við munum miðla kynnum okkar af honum til þeirra yngri og ófæddu. Elsku amma Guð styrki þig á þessum erfiða tíma og leiði um ókomin ár. Margs er að minnast, margs er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Siggi og Svanur í dag 16. nóvember er til hinstu hvílu borinn, Sigurður G. Tómas- son, Grundarbraut 11 í Ólafsvík. Með örfáum orðum vil ég minnast hans, full þakklætis fyrir allt það er hann gaf mér. Ég var svo lánsöm að forlögin skyldu haga því svo til að ég varð tengdadóttir hans og það sem meira var að búa alla tíð við hliðina á honum, sem leiddi til þess að hvern einasta dag fór ég út í Framtíð að njóta samvista við hann. Trú hans á Guð, göfuglyndið og að krefjast aldrei neins', var fyr- ir mér hans stóri eiginleiki. Að eign- ast svo ljúfan og traustan vin sem Sigurður yar, er eitthvað sem aidrei gleymist og er svo mikils virði, að ekki verður lýst með orðum og mun aldrei gleymast. Hann kenndi mér hvað gott er að eiga trúna á Guð og hversu mikils virði það er að geta fyrirgef- ið. Hann kenndi börnunum mínum og barnabörnum allt hið góða, sem ég veit að verður þeim gott vega- nesti í lífinu. Það er sárt að missa góðan vin, en þegar aldrei hefur borið skugga á samfýlgdina er svo ljúft að eiga allar góðu minningarn- ar, því allt sem gefur okkur gleði, þess söknum við. Svo kveð ég elsku vin minn, fullviss þess að nú líður honum vel hjá Guði, þarf ekki leng- ur hjólastól né staf að styðjast við. Elsku Guðríður mín, megi Guð almáttugur styrkja þig í sorginni, börnin ykkar öll og alla ástvini. Stella ■ 1. RÁÐ ITC heldur fyrsta ráðs- fund vetrarins laugardaginn 16. nóv- ember nk. í Hlégarði, Mosfellsbæ. Fundurinn er í umsjá ITC Korpu, Mosfellsbæ og er umsjónarmaður Sara Elíasdóttir. Stef fundar: „Glaður gæfi ég allt til að losa mig við feimnina”. Félagsmál eru fyrst á dagskrá og síðan verður Kristjana Milla Thorsteinsson með fréttir af alþjóðavettvangi ITC. Dagskrá morgunsins lýkur með hæfnismati á fyrra hluta fundarins og sér Margr- ét Sigurbjörnsdóttir ITC írisi um það. Dagskráin eftir hádegisverðar- hlé hefst á hápunkti forseta deilda 1. ráðs og síðan flytur Guðfinna Eydal sálfræðingur fræðslu um feimnina og félagslega fæmi. Dag- skránni lýkur síðan með þjálfunar- dagskrá sem verður í umsjón ITC Bjarkar, Hörpu og Yrar. Fundin- um verður síðan slitið um kl. 16.30 en þá tekur við fræðsla fyrir embætt- ismenn deildanna. 1. ráð er eitt þriggja ráða ITC á íslandi og eru í því fjórar ITC-deildir: Björk, Harpa og Yr í Reykjavík og Korpa í Mos- fellsbæ. Forseti 1. ráðs þetta starfs- ár er Gígja Sólveig Guðjónsdóttir, ITC Korpu. (Fréttatilkynning) ■ LÍTIL ROKKHÁTÍÐ verður haldin á Gauki á Stöng dagana 17., 18. og 19. nóvember í tilefni af átta ára afmæli staðarins 19. nóvember. Þetta er þriðja árið í röð sem slíkur viðburður á sér stað á Gauki á Stöng. Fjöldi hljómsveita leggur fram krafta sína svo sem: Eyjólfur Krisljánsson, Sú Ellen, Glaumar frá Akureyri, Gal í Leó, Eldfuglinn, Kristján Kristjánsson „Big Band”, Rokkabilly Band Reykjavíkur og ef að líkum lætur Sálin hans Jóns míns ásamt fleiri tónlistarmönnum og skemmtilegu fólki. Hægt er að panta sér borð í matinn þessa daga þar sem í boði verður þriggja rétta afmælismáltíð á tilboðsverði. I Teppalandi færöu teppiö sem þú leitar aö • Yfir 3300 gerðir af teppum sem ýmist eru til á lager eða við sérpöntum. • Mörg teppanna eru hönnuð af frægum listamönnum - sjón er sögu ríkari. Þú sérpantar og í flestum tilfellum er teppið komið á gólfið hjá þér eftir þrjár til fjórar vikur. • Það sagði enginn að það væri auðvelt að velja rétta teppið en það er auðvelt að velja réttu búðina. 0 0 Teppaland landið þar sem leitin endar. Grensásvegi 13, sími 813577

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.