Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991 þotur og sleðar fyrir káta krakka KRINGLU Borgorkringlunni, simi 679955. Markaðstorg opn- að í Undralandi OPNAÐ verður Markaðstorgið Undraland nú um helgina, 16. nóvem- ber, á Grensásvegi 14 í 1.200 fm húsnæði. Markaðstorgið í Undra- landi verður opið allar helgar, þ.e. laugardaga kl. 11 árdegis til 6 síðdegis og sunnudaga frá kl. 12 á hádegi til 6 síðdegis. í Undra- landi verða á boðstólum nýjar og notaðar vörur frá ýmsum aðilum, fyrirtækjum, húsmæðrum, félagasamtökum o.s.frv. Markaðurinn er í upphituðu og teppalögðu húsnæði, vel upplýstu, og hefur verið kappkostað að hafa staðinn notalegan og heimilislegan þannig að fólki líði vel meðan það gerir tækifæriskaup. Um helgina verður tii dæmis hægt að fá kartöflur á 50 kr. kíló- ið, hákarl frá Bjarnarhöfn, föt, leik- föng, allt til jólanna og svo mætti lengi telja. Skemmtiatriði verða um hveija helgi. Nú um helgina skemmtir eld- gleypirinn og töframaðurinn Pétur pókus. Atriðin byija kl. 2 báða dag- ana. Allskonar leiktæki verða fyrir börnin meðan foreldrarnir skoða sig um. Einnig verður starfrækt kaffi- stofa á staðnum þar sem hægt verð- ur að fá eitthvað fyrir alla, kaffi, kakó, rjómapönnukökur og svo framvegis. Söluaðilar eru nú 80 og komust færri að en vildu. Sigríður Ævars- dóttir og Kristjana Albertsdóttir standa að rekstrinum. (Frcttatilkynning) Vitna leitað Rannsóknadeild lögreglunnar á Selfossi lýsir eftir vitnum að því er sparkað var í vinstri framhurð hvítrar Toyota-fólksbifreiðar, sem stóð við Aratungu aðfaranótt laug- ardagsins 3. nóvember. Skráningarnúmer bifreiðarinnar er IA-700. Talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni og nemur tjón eigandans tugum þúsunda. fíimhjólp Skagamenn Samhjálparsamkoma verður í Akraneskirkju í dag kl. 16.00. Fjölbreytt dagskrá með Samhjálparkórnum og vitnisburðum Samhjálparvina. Gunnbjörg Oladóttir leiðir fjöldasöng. Ræðumaður verður Óli Ágústsson. Allir hjartanlega velkomnir. ■ ÞRJÚ KVÖLDNÁMSKEIÐ verða haldin á næstunni í fundar- herbergi Rósakrossreglunnar, Bolholti 4, 4. hæð. 17. nóvember verður kynning á heilunaraðferð- um, hvernig þær virka og hvaða aga og þjálfun þarf til að stunda þær. 21. nóvember verða kynntar aðferðir til að verja áruna og koma í veg fyrir að þeir sem í kringum okkur eru ræni okkur orku. _29. nóvember verða stjörnu- kort Islands tekin fyrir. Fyrirles- ari á öllum námskeiðunum verður Marilyn Allen. Þau verða flutt á ensku en túlkuð yfir á íslensku. Námskeiðin hefjast kl. 19.30 og er gjald 1.500 kr. fyrir hvert nám- skeið. OPID LAUGARDAGA KL. 10-16 SUNNUDAGA KL. 13-16 * Urval af rúskinnsjökkum, mokka- ög leðurfatnaði Laugavegi 66, sími 20301. þinn happanúmer? Símanúmer þitt er númer happdrættismiðans Nú byggjum v/ð nýja sundlaug fyrír börnin oklcar. STYRKTARFÉLAG LAMAÐRAOG FATLAÐRA Háaleitisbraut 11 — 13 Reykjavík Auður og Kristinn í Bústaðakirkju Tónlist Ragnar Björnsson Þótt Auður Hafsteinsdóttir sé ung að árum á hún þó nokkuð litríkan feril að baki á tónlei- kapalli, hefur fengið tónlistar- verðlaun svo og viðurkenningar ýmiss konar. Auður og Kristinn Órn Kristinsson réðust heldur ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í efnisvali tónleikanna í Bústaðakirkju sl. miðvikudags- kvöld. C. Franck-sónatan hefði maður haldið að væri ekki það auðveldasta til að byija tónleika með, hvorki fyrir fiðluleikarann né píanóleikarann. Ekki var þó að heyra að það bitnaði á verkefn- inu því músíserað var frá fyrstu nótu til hinnar síðustu af öryggi í tækni og „intonation”, svo óvenjulegt var. E.t.v. er aðeins langþroskuðum listamönnum mögulegt að koma til skila þeirri ólgandi ró, sem undir býr í sónötu Francks. Hér verður að passa að túlkunin flæði ekki yfir bakkana, en það er jú alltaf höfuðverkur skapmikilla flytjenda að geta haldið aftur af sér án þess að missa nokkurn tíma tökin á inni- haldinu. Hafi Auður verið á mörk- um þessa viðkvæmu landamæra, skóp hún sér þó 5 mínum huga, strax með þessu fyrsta verki, sess sem einn okkar besti fiðluleikari. Kannske ætti ég frekar að segja ein okkar bestu fiðluleikara, því hvar eru karlmennirnir í fiðluleik- arastétt? Það hlýtur að vera orðið alvöru-umhugsunarefni hvað því veldur að íslenskir karlmenn sjást æ sjaldnar á þessum vígstöðvum. í kjölfar Franck-sónötunnar fylgdi Sonatensatz eftir J. Brahms, sem einnig gerir miklar kröfur til beggja hljóðfæraleikaranna. Það verður að segjast að Kristinn Örn Kristinsson er orðinn afbragðs kammermúskíer, mjög öruggur og fín-músíkalskur og hvorki Franck né Brahms stóðu í honum og er þá mikið sagt. Eftir hlé kom svo ein af 150 fiðlusónötum þess fræga fiðluleikara og brautryðj- Auður Hafsteins- Kristinn Örn Krist- dóttir fiðluleikari. insson píanóleikari. anda í fiðlutækni, Giuseppi Tartini. Húmoreska Þórarins Jónssonar fylgdi og skilaði Auður öllum tvígripum Húmoreskunnar af óvenju miklu öryggi. Húmore- skan var mjög „expressivo” spiluð og undirritaður velti fyrir sér hvort hún mætti ekki vera aðeins hægari og að Húmoreskan sé höfð meira í huga. Sömuleiðis fannst mér að Intermezzo Atla Heimis hefði mátt vera einfaldara í flutningi, ekki að ofhlaða það. Tónleikunum lauk með c-moll só- nötu Griegs, síðustu þriggja són- ata hans fyrir fiðlu og píanó. Són- atan er skrifuð á því tímabili Gri- egs þegar hann efaðist mjög um gildi þjóðlegrar tónlistar og hall- aðist frekar að alþjóðlegu tónlist- armáli. Hugsanlega hafa þau Auður og Kristinn haft þetta í huga við flutning sónötunnar. En hér lauk glæsilegum tónleikum tveggja ungra listamanna. Háskólatónleikar í Norræna húsinu Miðvikudaginn 13. nóvember frumfluttu fjórir ungir hljóðfæra- leikarar Kvartett í d-moll op. 40 nr. 2 eftir Franz Danzi, f. 1763, í Þýskalandi. Danzi þessi var fyrst og fremst þekktur fyrir kammer- músík sína á sviði blásturshljóð- færa og þótti þar nokkur braut- ryðjandi. Hann starfaði einnig sem hljómsveitarstjóri og var einn þeirra fyrstu sem stjórnaði óperu- flutningi frá hljómsveitarstjórap- últi en ekki frá hljómborðshljóð- færi. Tæplega getur Kvartett op. 40 talist sériega mérkileg tónsmíð nema að því leyti til að hann reyn- ir töluvert á hljóðfæraleikarana og er það út af fyrir sig næg ástæða til þess að glíma við hann. Flytjendurnir að þessu sinni voru Bijánn Ingason á fagott, Bryndís Björgvinsdóttir á selló, Júlíana Kjartansdóttir á fiðlu og Sesselja Halldórsdóttir á víólu. Þau, fjór- menningarnir, léku kvartettinn af öryggi, tónhreint og sýndu tölu- verða tækni. Sérstök ástæða er þó til að nefna fagottleikarann. Tónskáldið hefur auðheyrilega haft hugann mikið við blásturs- hljóðfærið, þegar hann skrifaði kvartettinn, því engu líkara er að verkið sé eins konar konsert fyrir fagott og strokhljóðfæri og tölu- vert reynir á tækniöryggi hljóð- færaleikarans í gegnum alla fjóra þætti kvartettsins. Þetta hlutverk leysti ungur fagottleikari,_ nýráð- inn að Sinfóníuhljómsveit Islands, Bijánn Ingason, af hendi með ágætum, öryggi í tækni og músík- alskt. Spurning er hvort leika hefði átt báða milliþætti kvart- ettsins örlítið hægar, tempóin runnu dálítið saman í eitt. Um þetta má þó lengi deila og erfitt getur orðið, jafnvel afburða hljóð- færaleikurum, að bjarga sumum tónsmíðum. En þökk fyrir ánægjulega hádegisstund. Kaup á miða í símahappdrættinu styðja framkvæmdir félagsins í þágu fatlaðra 6ornoB Samhjálp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.