Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991 15 Ebony-hátíð _________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Tónleikar Sinfóníuhljómsveit- ar íslands sl. fimmtudag voru stórkostleg skemmtun, þar sem fram komu frábærir bandarískir listamenn og fluttu þætti úr óper- um eftir Gershwin, Dorothy Rudd Moore og Scott Joplin. Kór íslensku óperunnar tók þátt í þessum fagnaði, sem tónleika- gestir kunnu svo sannarlega að meta. Á fyrri hluta tónleikanna voru flutt nokkur atriði úr Porgy and Bess eftir Gershwin. Eftir hlé sungu þrír af einsöngvurunum tvö sönglög með píanóundirleik, sem ekki voru tilgreint í efnis- skrá. Þar eftir var flutt atriði úr óperunni Frederick Douglass, eftir D.R. Moore og lauk tónleik- unum með fjórum atriðum úr Treemonisha, eftir Joplin. Bandarísku söngvararnir voru LaRose Saxon, Vanessa Ayers, Mary W. Smith, William Mars- hall, Jeffray Hairston og Cedric Cannon, allt frábærir listamenn. Minnisstæðustu atriðin eru söng- ur Mary W. Smith í laginu My man is gone now og Long Pull, sérkennilegt lag er Cedric Cann- on söng án undirleiks. Þá voru eftirtalin atriði frábærlega út- færð, Promised land, er LaRose Saxon söng, I got plenty of nutt- in hjá William Marshall og þau bæði í Bess you is my woman now. Fjárhættuspilarinn var vel leikinn og sunginn af Jeffray Hairston, í lögunum It aint nec- essarily so og There’s a boat dat’s leavin. Leikrænn léttleiki einkenndi flutning Porgy and Bess og var Strawberry Chant mjög skemmtilega útfært af Vanessa Ayres. Atriðið úr óperunni Frederick Douglass, eftir D.R. Moore, var stórkostlega áhrifamikið og væri mikils virði að fá að heyra þetta verk í heild. Tónlistin er í stfl bandaríska afturhvarfsins varð- andi tónskipan og mjög áheyri- leg. Það er þó ekki síður efnið og snilldarleg og trúverðug út- færsla listamannanna, sem gerði þetta tiltekna atriði svo áhrifam- ikið, en efni óperunnar er sótt í frelsisbaráttu bandarískra blökkumanna. í efnisskrá stend- ur að Dorothy Rudd Moore hafi „útskrifast frá tónsmíðadeild Howard-háskólans árið 1963” og að hún sé „meðlimur í samtökum amerískra kventónskálda og ein af stofnendum samtaka svartra tónskálda”. Þá er þess getið að „tónsmíðar hennar hafi aðallega verið leiknar í Bandaríkjunum” og þar má því bæta við, að fróð- legt væri að huga að verkum hennar, t.d. hvort ekki sé hægt að nálgast hljóðritanir af þeim. Lokaatriði tónleikanna voru fjögur atriði úr óperunni Treem- onisha, eftir Joplin. Þar fóru list- amennimir á kostum, t.d. í Swing dat lady. Ekki spillti söngur kórs- ins, sem stóð sig frábærlega vel. Sérstaklega er rétt að geta söngs kórsins í Porgy and Bess, t.d. í þriðja atriðinu, sem ekki var til- greint í efnisskrá, né heldur það, að Alda Ingibergsdóttir og Loftur Erlingsson syngju einsöng, sem þau gerðu mjög vel, en þar eru á ferðinni efnilegir söngvarar. Þá áttu karlamir skemmtilega senu í óperu Joplins, nefnilega „rakarastofulagið” Rest awhile. Tónleikunum lauk með Slow drag, sem allir sungu og náðist þar að magna upp mikla stemmn- ingu. í heild vom þetta miklir stemmningstónleikar, bornir upp af leikgleði og listfengi, sem stjórnandinn Daniel Swift dreif áfram með lifandi og markvissri stjóm og hljómsveitin svaraði með óvenju glaðvæmm leik. P.s. Rétt er að kvarta ögn yfir ónákvæmri efnisskrá og er engu líkara en að þeir sem um hana sáu, hafí ekki haft nema takmarkaða vitneskju um hvað til stóð að gera á þessum tónleik- um. Það er nauðsynlegt ef breyt- ingar em gerðar á efnisskrá að tilgreina þær og það er að nokkra gert með illa gerðum fylgisnepli. Þær upplýsingar sem þar hefðu auk þess átt að koma fram, vom: 1) nöfn íslensku einsöngvaranna, 2) nafn píanóleikarans, sem lék undir negralögunum, 3) heiti lag- anna, og 4) hver æfði kórinn, en það mun Robin Stableton hafa gert með miklum sóma. Mitsubishi L300 Mini Bus - '87 Mitsubishi Lancer langbakur - '87 Subaru Legacy - '90 Mitsubishi Pajero stuttur - '86 . ALDRIF A ISLENSKUM VEQUM UM HELGINA OPIÐ: LAUGARD. KL. 10-17 OG SUNNUD. KL 13-17 Fullur salur a£ notuðum aldrifsbílum á úrvalsk j örum Komið og lítið á verðið! MflTAMD DÍ!\D LAUGAVEGI 174 - SÍMI 695660 Range Rover Vougue -'87 Mitsubishi Space Wagon - '88 Toyota Hilux - '89 Mitsubishi Pajero langur - '90

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.