Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NOVEMBER 1991 33 Björg K. Erlends- dóttir — Minning Fædd 4. júlí 1899 Dáin 4. nóvember 1991 Langþráð ósk mömmu hefur nú ræst, guð er búir.n að taka hana til sín. Bogga, eins og hún var oftast kölluð, var fædd á Blöndu- ósi 4. júlí 1899, dóttir Guðrúnar Helgadóttur og Erlendar Bjorns- sonar. Á Blönduósi ólst hún upp hjá foreldrum sínum ásamt tveim- ur systkinum. Bróðir hennar lést ungur að árum, en systir hennar, Erlendína lést árið 1989. Vorið sem hún fermdist var hún send í vist til vandalausra. Eins og þá var algengt varð fólk að fara að vinna fyrir sér svo fljótt sem það gat. Ári seinna missti hún móður sína og verður eftir það að sjá um sig að öllu leyti sjálf, en pabbi hennar hefur yngri systur hennar hjá sér. Mamma er vinnukona á ýmsum sveitabæjum og alls staðar er henni hælt fyrir trúmennsku við hús- bændur sína. Þegar hún er tvítug fær hún illt í bakið og að læknis- ráði fer hún til Akureyrar sér til lækninga. En til þess þurfti mamma peninga sem hún átti ekki til, svo hún verður að taka lán, sem hún er svo næstu árin á eftir að greiða. Þá voru laun vinnufólks aðallega fæði og nauðsynleg föt, en lítið gi-eitt í peningum. Mamma lét alla þá peninga sem hún fékk, til að greiða skuldina, því ekki mátti hún til þess hugsa að þiggja af sveit eins og þá var sagt. Þann 15. apríl 1928 giftist hún Sigurfinni Jakobssyni og bjuggu þau fyrst á Kornsá í Vatnsdal. Vorið 1933 fluttu þau að Hurðar- baki á Ásum, fyrst sem leigjendur, en seinna sem eigendur jarðarinnar og voru þau alltaf kennd við þann bæ. Eignuðust þau 5 börn, þau eru: Siguriaug f. 1929, Óskar f. 1931, Björn f. 1933 d. 1987, Jakob f. 1935 d. 1966 ogGuðrún f. 1937. Barnabömin urðu 11, en eitt þeirra er nú látið og barnabarnabörnin eru orðin 14. Mamma var ein af þessum kon- Minning: Guðmundur Grímsson Það var með einstakri hógværð og látleysi sem Guðmundur mætti mér þegar leiðir okkar lágu fyrst saman haustið 1987. Ég naut þess ósjaldan að fá að tylla mér við hlið- ina á honum, draga að mér reykinn úr vindlinum hans og finna hvernig þreyta og erill dagsins leið úr mér. Það var öryggi og einstök hlýja sem fylgdi návist hans og ég var ekki einn um að finna það, ég sá líka hvernig aðrir gátu notið þess. Mér fannst stundum eins og GuðmUndi væri fremur ætlað að fylgjast með okkur í erli dagsins en að taka sjálfur þátt í honum, þó var hann ætíð virkur í lífi og starfi allt til þess að veikindin drógu úr honum máttinn. Hann vann lengst af hjá ÁTVR og naut þess einnig að ferðast um og gerði mik- ið af því. Hann átti það oft til að fara fyrirvaralítið í Þórsmörk eins og til þess að njóta þar mannlífsins umvafinn hinni fegurstu náttúru. Hann fór í langar gönguferðir um bæinn og þegar fæturnir fóru að gefa sig sat hann löngum stundum við alfaraleið og horfði á fólk koma og fara eins og hann ætti að gæta þess. Guðmundur skildi ekki eftir sig veraldlega minnisvarða heldur minningar um einstakan mann sem eru mér afskaplega dýrmætar. Það er fyrir þessar minningar, sem ég vil þakka Guðmundi nú, þegar ég þarf að kveðja. Ingólfur Hrafnkell Ingólfsson um sem unnu störf sín í kyrrþey, alltaf svo glöð og jákvæð á hveiju sem gekk. Og ekki veiti af, þar sem húsakostur var þröngur og fjölskyldan stór, og oft úr litlu að moða. Enda bjargaði það miklu að mamma var einstaklega dugleg í matargerð og gérði oft mikið úr litlu. Eftir að við systkinin vorum vaxinn úr grasi og sum farin að heiman, fór mamma að taka börn til sumardvalar og komu nokkur þeirra mörg sumur, enda var mamma þeim eins og sínum börn- um kærleiksrík. Sum þessara barna sem nú eru fullorðið fólk hafa haldið sambandi við hana og gladdi það mömmu alltaf þegar eitthvert þeirra kom í heimsókn og þá kannski með maka sína og börn. Foreldrar okkar flytja til Reykjavíkur 1965 og búa þar í rúm 20 ár. Pabbi lést 1987, hafði þá verið tvö ár á Héraðshælinu á Blönduósi. Mamma var áfram í íbúðinni sinni, þar til fyrir tveimur árum að hún verður að fara á dval- arheimili og þá er hún svo lánsöm að komast á Blesastöðum á Skeið- um. Þar fékk hún þá bestu umönn- un sem hægt er að veita, og viljum við systkinin þakka henni Ingi- björgu Jóhannsdóttur, þeirri ein- stöku konu fyrir alla hennar hlýju og nærgætni við gömlu konuna, einnig þakkir til alls starfsfólks á Blesastöðum fyrir að annast mömmu. Við viljum ljúka þessum orðum með bæn sem mamma hafði alltaf yfir á kvöldin áður en hún fór að sofa. Kristur minn ég kalia á þig komdu að rúmi mínu gjörðu svo vel og geymdu mig guð í skauti þínu. Systkinin frá Hurðarbaki, Guðrún, Oskar og Sigurlaug. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfúndar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. t Móðir okkar, er látin. HRAFIMHILDUR EINARSDÓTTIR, Hallkelsstaðahlíð, Hnappadal, Börn hinnar látnu. t Móðir mín og amma, ÁSTA JÓHANNESDÓTTIR, Hjarðarhaga 64, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum föstudaginn 1. nóvember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Johannes Briem, BjÖrn Briem. t Maðurinn minn, SÆMUNDUR JÓN KRISTJÁNSSON vélsmíðameistari, andaðist í Landspítalanum 13. nóvember. Aðalheiður Kolbeins. t ÞORKELLSKÚLASON húsamíðameistari, Hátúni 27, lést fimmtudaginn 14. nóvember sl. Bergþóra Gísladóttir, Skúli Þorkelsson, Guðrún Þorkelsdóttir, Elin Þorkelsdóttir. t Elskuleg móðir mín, ÁSA SIGURÐARDÓTTIR, Öldrunarstofnun Flateyrar, lést í Sjúkrahúsi ísafjarðar 15. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnlaugur P. Kristjánsson, Flateyri. t Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur og börnum okkar samúð og hlýhug vegna fráfalls GUÐMUNDAR GRÍMSSONAR. Bjarni Grímsson, Hanna María Gunnarsdóttir. t Við þökkum öllum, sem heiðruðu minningu móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, VALBORGARBENTSDÓTTUR. Silja Sjöfn Eiríksdóttir, 'Edda Völva Eiríksdóttir, Friðrik Theodórsson, Vésteinn Rúni Eiríksson, Harpa Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför FRIÐRIKKU KRISTÍNAR BENÓNÝSDÓTTUR, Hvassaleiti 24. Jón Ágústsson, Kristján Ágústsson, Hjördís Jónsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Torfhildur Samúelsdóttir og barnabörn. t Ég þakka alla vináttu og samúð vegna andláts eiginmanns míns, ÞÓRS P. ÞORMAR, Grýtubakka 6, og þeim, er heiðruðu minningu hans. Guð blessi ykkur öll. Gróa Ingimundardóttir. t Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNHILDAR SNÆDAL JÓSEFSDÓTTUR. Guðrún Karlsdóttir, Ástriður Karlsdóttir, Rögnvaldur Þorleifsson, Guðmundur Stefán Karlsson, Oddbjörg Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Snædal Ólafsdóttir, Ásgeir Torfason, Hanna Ólafsdóttir Forrest, Þröstur Ólafsson, Þórunn Klemenzdóttir, Guðmundur Páll Olafsson, Ingunn Jakobsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför GUÐNÝJAR ÞORKELSDÓTTUR, áður Blönduhlíð 3. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á öldrunardeild B-6, Borg- arspítala, fyrir einstaklega góða umönnun síðustu ár hennar. Guð blessi ykkur öll. Hallveig Halldórsdóttir, Guðjón Valgeirsson, Sigurþór Þorgrímsson, Guðlaug Ólafsdóttir, Guðríður Axelsdóttir, Friðrik Kárason og börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.