Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 214. tbl. 81.árg. MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Borís Jeltsín leysir upp þingið og boðar nýjar kosningar í Rússlandi í desember Herinn heitir hlutleysi en Clinton styður Jeltsín Mnskvir Rpntpr Dailv Tplppranh. Moskvu. Reuter. Daily Telegraph. RÚSSNESKI herinn lýsti í gær yfir hlutleysi í deilu Borís Jeltsíns Rússlandsforseta og forsætisnefndar fulltrúaþingsins eftir að Jeltsín leysti þingið upp með forsetatilskipun og boðaði til nýrra þingkosn- inga í Rússlandi 11. og 12. desember nk. Sagði hann að kosið yrði til nýs þings sem starfa myndi í tveimur deildum, bæði fulltrúaþingið og Æðsta ráðið myndu hætta að starfa. Var litið á þetta sem mestu áhættu sem Jeltsín hefur tekið á ferli sinum sem forseti. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýsti í gærkvöldi yfir fullum stuðningi við aðgerðir Jeltsíns. Jeltsín sagði í sjónvarpsávarpi að ákvörðun hans væri eina færa leiðin til að veija frelsið og lýðræðið í Rúss- landi og hvatti almenning og leiðtoga á Vesturlöndum til að styðja sig. Pavel Gratsjev varnarmálaráðherra lýsti andstöðu við ákvörðun Jeltsíns er forsetinn skýrði honum frá henni skömmu fyrir sjónvarpsávarpið í gær. Alexandqr Rútskoj varaforseti Jeltsíns sagði að sérsveitir innanrík- isráðuneytisins væru í viðbragðs- stöðu og reiðubúnar að halda til Moskvu en bandaríska varnarmála- ráðuneytið sagði að engir óvenjulegir liðsflutningar hefðu átt sér stað í Moskvu. Rúslan Khasbúlatov forseti rússn- eska fulltrúaþingsins kvaddi Æðsta ráðið, sem starfar allt árið, til fundar í Hvíta húsinu seint í gærkvöldi og hann hefur kallað fulltrúaþingið saman í dag, miðvikudag. Svipti Æðsta ráðið Jeltsín völdum í fram- haldi af ákvörðun hans og lýsti Rútskoj varaforseta arftaka hans. Sór Rútskoj embættiseið forseta í Hvíta húsinu í gærkvöldi en sam- kvæmt fréttum rússneska sjónvarps- ins dvaldist Jeltsín í sumarhúsi for- setaembættisins skammt fyrir utan Moskvu. Rútskoj sagði að Jeltsín hefði framið „blákalt valdarán." „Ekki er hægt að útiloka vopnuð átök í landinu en við verðum þegar í stað að koma í veg fyrir að út brjót- ist borgarastyijöld," sagði hann. Khasbúlatov hvatti liðsmenn hers og lögreglu og starfsmenn rússneska öryggisráðuneytisins til óhlýðni við Jeltsín og skoraði á almenning að „veija“ Hvíta húsið þar sem þing- menn hafa aðsetur en þaðan stjórn- aði Jeltsín baráttunni gegn harðlínu- öflum í valdaráninu í ágústmánuði 1991. Ákallaði hann verkalýðssam- tökin og bað þau að knýja Jeltsín til ,uppgjafar með allsheijarverkföllum. Ennfremur hvatti hann þingmenn um heim allan til að lýsa andstöðu við tilskipun forsetans. Stjórnin stendur með Jeltsín Viktor Tsjernomyrdin forsætisráð- herra Rússlands sagði í gærkvöldi að ríkisstjómin styddi ákvörðun Jeltsíns og hið sama væri að segja um stjómvöld í hinum ýmsu lýðveld- um og sjálfsstjórnarsvæðum Rúss- lands. Að sögn Lárusar Jóhannesson- ar, fréttaritara Morgunblaðsins í Moskvu, er stuðningsyfirlýsing for- sætisráðherrans mikilvæg. Hann kemur úr röðum svonefndra orku- fursta, var áður yfírmaður gasfram- leiðslunnar og þykir hafa traust sam- band við miðjuöfl á þingi. Að sögn Lárusar hefur Alexander Rútskoj, sem er stríðshetja úr hildar- leiknum í Afganistan, mjög reynt að biðla til hermanna á undanförnum vikum eftir að Jeltsín gerði hann vaidalausan. Hefur hann komið fram með stríðshetjum úr síðari heims- styijöldinni og með mæðrum her- manna auk þess sem hann hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir sinnuleysi um hag þeirra hersveita sem snúið hafa heim frá fyrrum yfirráðasvæð- um sovéskra kommúnista. Rútskoj lýsti yfir því á fundi með harðlínu- mönnum á þingi um síðustu helgi að hann vildi að Sovétríkin yrðu end- urreist og vísaði til fomra slagorða kommúnista: „Allt vald til ráðanna." Klukkan eitt í nótt að Moskvutíma voru um 4.000 manns við Hvíta hús- ið þar sem þingmenn hafa skrifstof- ur. Voru andstæðingar forsetans fleiri en stuðningsmenn og sagði fréttamaður rússneska sjónvarpsins að vandséð væri hveijir ættu að verða við ákalli Khasbúlatovs um að veija Hvíta húsið. Allt var með kyrrum kjörum á Rauða torginu í miðborg Moskvu. John Major forsætisráðherra Bret- lands lýsti afdráttarlausum stuðningi við aðgerðir Jeltsíns og sagði það í samræmi við ótvíræðan stuðning Breta við Iýðræðis- og efnahagsum- bætur í Rússlandi. Sömuleiðis lýsti franska stjórnin stuðningi við Jeltsín. Talsmaður Helmuts Kohls kansl- ara Þýskalands lét hins veg í ljós áhyggjur vegna atburðanna í Moskvu og sagði of snemmt að segja hvaða stefnu þeir tækju. Carl Bildt forsæt- isráðherra Svíþjóðar sagði ákvörðun Jeltsíns „sorglega en nauðsynlega". Ukraínumenn urðu fyrstir þjóða í Samveldi sjálfstæðra ríkja til þess að lýsa stuðningi við ákvörðun Jelts- íns. Gorbatsjov gagnrýninn Míkhaíl Gorbatsjov fyrrum sovét- leiðtogi sagði að Jeltsín hefði ekkert til að styðjast við er hann leysti upp þingið. „Þetta er heimskuleg og ólýð- ræðisleg ákvörðun og hún leggst illa í mig,“ sagði hann í Modena á Italíu þar sem hann er í fyrirlestraferð. Óróleiki á mörkuðum Vegna fréttanna frá Rússlandi hækkaði heimsmarkaðsverð á olíu um 75 sent fatið og kostaði það 16,98 dollara við lok viðskipta. Únsa af gulli hækkaði um 9,50 dollara í 365 dollara. Sömuleiðis féll Dow Jo- nes verðbréfavísitala Kauphallarinn- ar í New York strax um 50,02 stig eða í 3.525,78 stig. Sjá „Borís Jeltsín leysir upp þingið og . . .“ á bls. 20. Reuter Biður vini Rússa um aðstoð BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti flytur 15 mínútna ávarp sitt til þjóðarinnar í gær. Hann bað vini Rússa á Vesturlöndum að styðja sig, sagði að þeir sem reyndu með einhverjum hætti að koma í veg fyrir kosningarnar í desember yrðu látnir svara til saka frammi fyrir dómstólum. Uppreisnarlið Abkhaza skýtur niður flugvél yfir Sukhumi Friðarsendinefnd frá Georgíu meðal farþega? Moskvu, Tbilisi. Reuter, The Daily Telegraph. FLUGVÉL með 27 manns innanborðs var skotin niður yfir Sukh- umi, höfuðstað georgíska sjálfstjórnarhéraðsins Abkhazíu, í gær. Flestir farþeganna voru blaðamenn en talið er að einnig hafi verið um borð fulltrúar Georgíu í friðarviðræðum við aðskilnaðarsinna Abkhaza sem farið hafa fram í rússnesku borginni Sotsí en þaðan lagði vélin upp. Heimildarmenn sögðu að liðsmenn Abkhaza sem sitja um Sukhumi hafi skotið vélina niður með flugskeyti. „Þetta er villimennska, meira get ég ekki sagt um þetta,“ sagði Edú- ard Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, sem dvelst í Sukhumi. Óttast var að allir um borð í vélinni, sem var af Tupolev-gerð, hefðu farist en flakið féll í Svartahaf í grennd við Sukhumi. Harðar fallbyssuárásir voru gerðar á borgina á ný í gær eftir nokkurt hlé en talsmenn upp- reisnarmanna hafa hvatt hermenn stjórnvalda í Tbilisi til að gefast upp og hverfa á brott. Eldblossar og ferilkúlur lýstu upp næturhimininn yfir Sukhumi að- faranótt þriðjudags, skelfingu lostið fólk leitaði skjóls í kjöllurum. Marg- ir reyndu að kom- ast undan með flugvélum. Troðið er í vélamar eins mörgum og hægt er. Nokkrir stuðn- ingsmenn Zviads Gamsakhurdia, fyrrverandi for- seta, eru komnir til Sukhumi til að beijast við hlið þjóðbræðra sinna gegn uppreisnar- mönnum. Sjónvarp Samveldisríkjanna hafði eftir heimildarmönnum meðal Georgíumanna að um 250 uppreisn- Shevardnadze armenn og 50 stjórnarhermenn hefðu fallið í átökunum síðustu daga. Uppreisnarmenn rufu sl. fimmtudag fyrirvaralaust umsamið vopnahlé og voru Georgíumenn þá byijaðir að flytja lið sitt á brott. Hlutverk Rússa Leifar sovéthersins gamla eru enn í Abkhazíu og sums staðar í Georgíu og hafa í sumum tilvikum gegnt hlutverki friðargæsluliðs í deilum Georgíumanna við ýmis þjóðarbrot. Sterk öfl í rússneska hernum eru hins vegar talin styðja uppreisnarmenn Abkhaza með vopnum. Margir Georgíumenn ótt- ast að Rússar vilji endurreisa heimsveldið sem Georgía heyrði undir í meira en öld og hyggist beita undirróðri og hervaldi til þess dugi ekki önnur ráð. Sjá frétt á bls. 20-21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.