Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 31 Minning Elín B. Jensen Fædd 13. desember 1901 Dáin 10. september 1993 Sem kona hún lifði í trú og tryggð; það tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfir myrkrið kalda. Sem móðir hún býr í bamsins mynd; það ber hennar ættam'.erki. Svo streyma skal áfram lífsins lind þó lokið sé hennar verki. Og víkja skal hel við garðsins grind, því guð vor, hann er sá sterki. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Elsku amma. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar við allt í einu stönd- um frammi fyrir þeirri staðreynd að þú ert ekki lengur hjá okkur og svo ótalmargt sem okkur langar að segja við þig. Hugurinn reikar fram og aftur í tímann, til ykkar afa, á Leifs- götuna, svo ótalmargs er að minn- ast, en minningarnar geymum við með okkur og þökkum þér allar þær yndislegu góðu stundir sem við átt- um saman. Við söknum þín sárt. Amma mín, þú varst yndisleg kona og þó að kraftur færi þverr- andi tapaðir þú aldrei reisn þinni og þannig munum við ávallt minnast þín. Megi góður Guð geyma þig og varðveita. Steinunn Margrét, Þórunn, Elín, Bryndís, Lára og Óskar Már. Mér er í fersku minni þegar ég hitti tengdamóður mína, Elínu B. Jensen, í fyrsta sinn fyrir um það bil 43 árum. Ég kom með syni hennar, Elm- ari, tilvonandi eiginmanni mínum, á heimili þeirra á Leifsgötu 3, en þau höfðu þá flust frá Eskifirði nokkrum árum áður þar sem tengdafaðir minn, Markús E. Jensen, var kaup- maður um árabil. Mér var þá vel tekið af þeim heiðurshjónum eins og ávallt síðar. Ég man hvað mér þótti Elín falleg og glæsileg kona enda alltaf vel til höfð og smekklega klædd. Elín var lánsöm í einkalífi sínu. Hún átti góð börn og sérstaklega góðan og umhyggjusaman mann, sem dáði hana og bar hana á hönd- um sér. Hún missti mikið þegar hann dó enda var hjónaband þeirra alla tíð mjög farsælt. Ég minnist margra góðra stunda þegar Elín dvaldi með okkur fjöl- skyldunni. Ég minnist sérstaklega er hún dvaldi stundum með okkur hjónum og börnum okkar í sumar- bústað á Laugarvatni. Þá var farið í gönguferðir og sund daglega, en Elín var góð sundkona. Sérstaklega eru mér þó minnisstæðar þær stund- ir er við áttum saman tvær og spjöll- uðum yfir kaffibolla, þegar hún hóf að segja mér frá árunum á Eski- firði. Hún minnist oft sumarferða fjölskyldunnar upp á Hérað, í Egils- staða- eða Hallormsstaðarskóg, þar sem dvalist var í tjaldi um lengri eða skemmri tíma. Til Eskifjarðar kom hún fyrst nýgift með manni sínum árið 1924. Þar fæddust börnin þeirra fjögur og þar átti hún sín bestu og ljúfustu ár. Elín minntist oft tengdamóður sinnar, Þórunnar Markúsdóttur, sem bjó á heimili þeirra hjóna um 16 ára skeið eða þar til hún lést árið 1941. Henni þótti ákaflega vænt um Þór- unni og mat hana mikils. Hún minnt- ist hennar með mikilli hlýju og sagði mér að hún hefði kennt henni margt og mikið, en sjálf missti Elín móður sína þegar hún var tveggja ára göm- ul. Elín ferðaðist talsvert erlendis á sínum efri árum. Fyrst dvaldist hún hjá æskuvinkonu sinni í Kaup- mannahöfn, en seinna bjó hún um lengri eða skemmri tíma hjá dóttur- dætrum sínum, sem bjuggu þá er- lendis, bæði í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi. Hafði hún mikla ánægju af að dvelja hjá þeim og sagði mér oft hvað þær og fjölskyldur þeirra hefði verið henni góðar. “ Elín var ákaflega umstalsgóð í garð annarra. Hún hallmælti aldrei neinum, heldur tók málstað þeirra sem henni fannst á hallað. Síðustu árin var hún farin að heilsu iíkamlega en var andlega frísk. Hún fylgdist vel með allri fjöl- skyldunni fram á síðasta dag. Alltaf spurði hún um litlu langömmubörn- in, sem voru orðin nokkuð mörg. Hún var farin að þrá hvíldina og fékk hægt andlát. Að lokum vil ég biðja góðan guð að biessa hana og vernda. Ég kveð mína góðu tengdamóður með ást og virðingu. Þökk fyrir allt. Svanhildur Gestsdóttir. I dag verður til moldar borin elskuleg tengdamóðir mín, Elín B. Jensen, sem lést á Elli- og hjúkrun- arheimilinu Grund hinn 10. þ.m. Elín fæddist hinn 13. desember 1901 í Nýjabæ við Kiapparstíg hér í borg og voru foreldrar hennar þau Björn Jónsson bakarameistari, sem fæddur var 29. mars 1881, dáinn 2. ágúst 1972, og kona hans Sigríð- ur Jónsdóttir, fædd 11. nóvember 1875, dáin 16. október 1903. Björn, faðir Elínar, hafði verið tekinn í fóstur af þeim hjónum Gunn- ari Hafliðasyni og Karitas Tómas- dóttur sem bjuggu í Nýjabæ við Klapparstíg, en þau hjón voru barn- laus. Ólst Elín þar upp ásamt albróð- ur sínum Karli, sem fæddur var 2. október 1899, dáinn 29. janúar 1952. Karl var um margra ára skeið bakarameistari í Vestmannaeyjum, kvæntur Guðrúnu Scheving. Einnig ólst þar upp Anna María Gísladóttir, fædd 18. mars 1893, dáin 10. apríl 1981, gift Guðmundi Guðjónssyni, kaupmanni á Skólavörðustíg, sem látinn er fyrir allmörgum árum. Elín naut ekki lengi fóstru sinnar, hún deyr þegar Elín er 14 ára. Á þeim tíma hafði Björn faðir Elínar byggt húsið Frakkastíg 14 og flutt- ist hann þangað ásamt móður sinni, Elínu Björnsdóttur, og fóstru sinni, Karitas, og börnum sínum. Miklir kærleikar voru með þeim öllum og var Anna María ávallt fóstursystur sinni ákaflega hlý og góð, enda er mér kunnugt um hvað Elín dáði Önnu, svo og allt hennar fólk, sem ávallt sýndi henni mikla ræktarsemi. Charles A. Kitz- miller — Minning, Kær mágur okkar, Charles A. Kitzmiller, lést 10. september síðast- liðinn á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum. Okkur langar til þess að minnast hans með nokkrum orðum og þeirra góðu kynna sem minningarnar geyma. Charlie var lífsglaður mað- ur, opinn og hlýr og alltaf hress í viðmóti. Hann var mjög barngóður og börn hændust að honum. Við urðum þeirrar gleði aðnjótandi að heimsækja þau hjón, Charlie og Helgu systur okkar, í Bandaríkjun- um. Gestrisnin á fallegu heimili þeirra var eins og best verður á kosið. Mágur okkar naut þess að láta gestum þeirra hjóna líða vel og þar var í engu sparað. Þá var tónlist- in ekki langt undan, til þess að gleðja gestina. Charlie var tónelskur maður, og lék snilldarvel á trompet. Á afmæl- isdögum okkar hér heima á íslandi hringdi Charlie til okkar og lék sím- leiðis á hljóðfæri sitt, í tilefni dags- ins, við mikla hrifningu áheyrenda. Svona var hann, vildi með öllu móti gleðja aðra. Charlie og Helga systir okkar áttu saman góð og hamingjurík ár. Þau ferðuðust mikið og nutu þess að skoða saman fegurð íslands og ann- arra landa. Þegar við nú á kveðjustund lítum yfir samleið þeirra finnst okkur að árin með þessum góða dreng hafi verið þau bestu í lífi systur okkar og fyrir það erum við hjartanlega þakklátar. Sómamaður hefur kvatt þessa jarðvist. Við brottför hans er höggvið stórt skarð í vina- og fjöl- skylduhópinn, sem ekki verður fyllt. En minningar sem hann lætur eftir eru bæði bjartar og hugljúfar, þær eru perlur í sjóði, sem ekki fyrnist. Algóður Guð gefi systur okkar styrk við þennan mikla missi og huggun í sorginni. Við kveðjum kæran mág og vin með virðingu og djúpri þökk fyrir ógleymanleg kynni. Hann hvíli í friði. Blessuð sé minning hans. Svanhildur, Agnes, Guðrún, Kolbrún og fjölskyldur. t Ástkær faðir minn, SIGURÐUR HINRIKSSON, andaðist í sjúkrahúsinu í Neskaupstað 20. september. Fyrir hönd aðstandenda, Hinrik Sigurðsson. t Ástkær eiginkona mín, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Þórsgötu 9, Reykjavík, andaðist á heimili okkar aðfaranótt sunnudagsins 19. september. Útförin verður auglýst síðar. Þeim, sem vilja minnast hennar er vin- samlega bent á Kristniboðssambandið. Hermann Þorsteinsson. Elín átti fimm hálfsystkini, sem Björn eignaðist með seinni konu sinni, Jónu Elíasdóttur, en þau eru Jóhanna, Haukur, Ragna, Sigríður og Birgir, sem öll eru á lífi. Þegar Elín er átján ára gömul fer hún til Kaupmannahafnar ásamt vinkonu sinni og starfar þar í tvö ár, en snýr þá aftur heim. Um það leyti sem Elín kemur frá Kaup- mannahöfn byrjar hún að vinna á ljósmyndastofu Jóns Dahlmann, enda stóð hugur hennar til þess að læra þá iðn, en svo varð þó ekki. Elín var mjög áhugasöm við ljós- myndun og báru myndir hennar þess glöggt vitni að hún kunni sitt fag. Á þessum árum kynnist Elín mannsefni sínu, Markúsi E. Jensen, fæddur 14. desember 1897, syni Wilhelms P. Jensen, kaupmanns á Eskifirði, og konu hans, Þórunnar Markúsdóttur. Þau gengu í hjóna- band 27. maí 1924 og flytjast þá til Eskiíjarðar. Markús hafði lokið prófi frá Verslunarskóla íslands og starf- aði fyrst í stað hjá föður sínum sem var kaupmaður á Eskifirði en þó lengst sem kaupfélagsstjóri og kaup- maður þar. Markús og Elín flytjast til Reykjavíkur 1947 þar sem hann stundaði eigin verslunarrekstur til dauðadags 14. desember 1956. Þau hjón eignuðust fjögur börn, Atla Orn, húsasmíðameistara, kvæntur Guðfinnu Árnadóttur, Kar- itas Sigríði, gift undirrituðum, Þór- arin Elmar, forstjóra, kvæntur Svan- hildi Gestsdóttur og Markús Einar, kaupmann, unnusta hans Magdalena Kjartansdóttir. Allt fram til síðasta dags bar hún hag sinnar stóru fjöl- skyldu mjög fyrir bijósti og gladdist yfir velgengni hennar. Elín var ákaflega fríð kona og bar sig vel, enda lagði hún mikla rækt við íþróttir á sínum yngri árum. Hún var mikið á skautum og skíðum auk þess að vera góð sundkona enda leið vart sá dagur, árin hennar á Eskifirði, að hún stundaði ekki sund og var þá ekki um annað að ræða en sjóinn, enda ekki sundlaug á staðnum. Elín og Markús voru ákaflega glæsileg hjón. Þau báru mikla virð- ingu hvort fyrir öðru. Bæði báru þau höfðinglegt yfirbragð og prúða framkomu hvar sem þau fóru. Talar sá sem þessar línur ritar af eigin reynslu, því að þannig var framkoma þeirra mótuð af tryggð og kærleika við mig og börnin okkar Kaju, svo að ekki varð á betra kosið. Elín kvaddi þennan heim að morgni hins 10. þ.m., örugglega hvíldinni fegin, enda þótt hún héldi fullri vöku sinni fram til síðasta dags. Hún var sameiningartákn fjöl- skyldunnar og hennar mesta ánægja var að hafa börnin sín og barnabörn í návist sinni og fylgjast með fram- gangi þeirra. Síðustu 11 árin dvaldi hún á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund og leið þar vel, og vil ég fyrir hönd fjölskyld- unnar færa starfsfólkinu þar okkar bestu þakkir fyrir góða umönnun og aðhlynningu. Stofusystrum henn- ar á Grund óskum við Guðs blessun- ar. Blessuð sé minning tengdamóður minnar. Tómas P. Óskarsson. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, SIGURÐUR VIGGÓ BERNÓDUSSON, Völusteinsstræti 2, Bolungarvik, lést í Landspítalanum 20. september sl. Jarðsett verður laugardaginn 25. sept- ember kl. 14.00 frá Hólskirkju, Bolungarvík. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Björgunarsveitina Erni, Bolungarvík. Halldóra Kristjánsdóttir, Guðrún Jóna Sigurðardóttir, Jens Þór Sigurðarson, Dómhildur Klemenzdóttir, Bernódus Halldórsson. t Ástkær sonur okkar, bróðir og unnusti, ÁRNI TRAUSTASON, sem lést af slysförum, föstudaginn 17. september, verður jarðsettur frá Útskálakirkju, föstudaginn 24. septem- ber kl. 14.00. Trausti Þórðarson, Eydís Guðbjarnadóttir, Þórður Traustason, Guðbjarni Traustason, Rakel Þorsteinsdóttir. + Sonur minn, eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og stjúpfaðir, VALBERG HANNESSON, fyrrverandi skólastjóri í Fljótum, sem lést í Landspítalanum 17. september síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 24. september kl. 14.00. Jarðsett verður á Barði í Fljótum sama dag. Sigrfður Jónsdóttir, Áshildur Magnúsdóttir Ofjörð, Rögnvaldur Valbergsson, Hrönn Gunnarsdóttir, Aðalbjörg Valbergsdóttir, Örn Þorkelsson, Valdis Valbergsdóttir, Jóhannes Snorrason, Hannes Valbergsson, Anna Silfa Þorsteinsdóttir, Snæbjörn Freyr Valbergsson, Þórdís Ragnheiður Öfjörð, Bergur Ketilsson, Gunnur Gunnarsdóttir og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför KR. GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR. Arndís Bjarnadóttir, Guðmundur Guðmundsson, Dóra Reyndal, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Christer Bennewitz, Ólafur Guðmundsson, Rósa Guðsteinsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Sigríður Hermannsdóttir, Hólmgeir Guðmundsson, Sigrún Leifsdóttir. )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.