Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 5 Framkvæmdum á Arnarhóli er um það bil að ljúka að sögn garðyrkjustjóra Seinkun um sex vikur vegna fom- leifarannsókna FRAMKVÆMDUM á Arnarhóli er um það bil að ljúka en þeim hefur seinkað um rúmlega sex vikur vegna fomleifa- rannsókna. Jóhann Pálsson garðyrkjustjóri Reykjavíkur- borgar segir framkvæmdirnar ganga eins vel og hægt sé miðað við aðstæður, þær séu komnar langleiðina, nema á háhólnum þar sem enn sé unnið að fornleifarannsóknum. Þegar þeim lýkur verður byrjað að grafa fyrir undirstöðum styttunnar af Ingólfi Arnarsyni og verður hún komin á stall áður en vetur gengur í garð. Við framkvæmdirnar átti að lækka hólinn um rúman metra frá því sem áður var en þegar menn komu niður á gamla Arn- arhólsbæinn, sem fór í eyði á öldinni sem leið, varð að breyta örlítið endanlegu útliti hólsins og lækkar hann því minna en til stóð. Að sögn Jóhanns eru forn- leifafræðingar komnir niður á mannvistarleifar frá 17. öld en því verki sem vinna á í þessum áfanga er nú u.þ.b. að ljúka. Auk Arnarhólsbæjarins þurfti við endurbæturnar að taka tillit til Arnarhólstraðanna sem vott- aði fyrir áður en framkvæmdir hófust en eftir að þeim lýkur munu þær sjást enn betur. Á háhólnum koma hins vegar ekki til með að sjást nein merki um fornminjar. Þegar fornleifarannsóknum lýkur verður hægt að byija að grafa fyrir undirstöðum stytt- unnar af Ingólfi Arnarsyni en viðgerð á henni er að ljúka. Stytt- an hefur aldrei farið í viðgerð öll þau 70 ár sem liðin eru frá því hún var sett á stall á Arnar- hóli. Gert var við samsetningar sem voru farnar að gefa sig, styttan var slípuð og endurhúðuð og verður hún komin á sinn stað áðúr en vetur gengur í garð. Nýi stallurinn verður áþekkur þeim gamla en styttan mun standa örlítið lægra vegna þess að hóll- inn Tækkar. Að sögn Jóhanns saknar fólk Ingólfs og hann seg- ir mikið spurt um styttuna. Jóhann segir breytingarnar á hólnum vera til bóta, hann verði ávalari og fallegri, línurnar í hon- um mýkri, og segist hann vona að allir verði ánægðir með út- komuná þegar endurbótunum verður lokið að fullu. Ingólfur á stall fyrir veturinn FORNLEIFARANNSÓKNIR standa enn á háhólnum en þeg- ar þeim lýkur verður byrjað að grafa fyrir undirstöðum styttunnar af Ingólfi Arnar- syni. Nokkrir gróðurreitir verða á Arnarhóli, sérstaklega við uppgönguna náiægt Kola- portinu. Tyrft og hellulagt VINNU á neðri hluta Amarhóls er alveg að ljúka og er nú ver- ið að leggja siðustu hönd á gangstéttir og göngustíga. Yfirdýralæknir og skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu Kanna þarf innflutn- ing Flugleiða á kjöti GUÐMUNDUR Sigþórsson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu, og Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir segjast þurfa að kanna hvort Flugleiðum sé heimilt að flytja inn kjöt til Keflavíkur til nota í millilandaflugi. íslensk skip í millilandasiglingum koma með sinn kost að utan og erlend skip sem koma hér við fá sinn kost sömu leiðis að utan. Þá hafa verslanir innan flugvallarsvæðisins í Kefla- vík heimild til að selja varnarliðsmönnum og fjölskyldum þeirra innflutt kljöt. - Guðmundur sagði, að mögulegt væri að Flugleiðir hefðu heimild til að flytja inn vörur sem ekki eru tollafgreiddar. Sagði hann, að Flugleiðir hefðu yfirleitt verslað .neira og minna með íslenskar vör- ur, þar sem fyrirtækið hafí notið notið útflutningsbóta og niður- greiðslna á það magn sem keypt væri. Slíkar vörur hafi verið greiddar niður í heimsmarkaðsverð Nýtt hús- næði fyrir heilsugæslu en því var hætt frá og með 1. sept- ember 1992. „Héðan hefur síðan verið flutt út umframkjöt frá bændum á heimsmarkaðsverði," sagði Guðmundur „Það er merkilegt ef Flugleiðir hafa ekki leitað eftir samningum við þá um kaup á því kjöti. Ég skil ekki að þeir fái kindakjötið ódýrara annars staðar.“ Guðmundur sagðist ekki vita með vissu hvernig flugvallarsvæðið væri skilgreint. „Ef um innlendan markað er að ræða þá gilda inn- lend lög,“ sagði hann. „Ég veit hins vegar ekki hvernig þessi starf- semi er vaxin og vil því ekki tjá mig um hana.“ Óvíst um lögbrot Nýtt hús- næði fyrir heilsugæslu í Fossvogi BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að beina því til heil- brigðisráðherra, að leitað verði eftir nýju húsnæði fyr- ir Heilsugæslustöðina í Foss- vogi. Er því beint til ráðherra að þegar á þessu ári verði leitað eftir húsnæðinu en á ijárlögum ársins er gert ráð fyrir fjárveit- ingu til þessa verkefnis. Brynjólfur Sandholt yfirdýra- læknir sagðist ekki geta fullyrt um hvort innflutningur Flugleiða á kjöti væri lögbrot. Það hafi ef til vill verið litið öðrum augum ef kjöt- ið væri eingöngu flutt inn til vinnslu innan tollsvæðisins og kæmi ekki til neyslu utan þess. „Það hefur verið leyfður innflutn- ingur á kjöti fyrir erlend skip, sem hingað koma og taka kost,“ sagði hann. „Það sem ég vissi síðast til þá keyptu Flugleiðir mat þegar þeir komu að utan en tóku íslensk- an mat úr eldhúsinu hér þegar þeir fóru héðan. Nú hefur þetta breyst og verður að kanna hvernig í þessu Iiggur.“ Benti hann á að íslensk skip í millilandasiglingum tækju sinn kost með sér að utan. Þá gilda sérstakar reglur gagnvart varnarl- iðinu í Keflavík en það hefur heim- ild til að flytja inn kjöt til neyslu innan vamarsvæðisins. „Það er orðið minna um það en áður þár sem þeir eru farnir að kaupa meira hér innanlands," sagði Brynjólfur. Flutt inn kjöt í áratugi Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða sagði, að félagið hefði í áratugi flutt inn kjöt vegna milli- landaflugsins. „Við erum einnig með íslenskt kjöt,“ sagði hann. „Það er ekki allt innflutt. Við erum með lambakjöt, fisk og osta héð- an.“ Ýmist er erlenda kjötið flutt inn tilbúið eða það er matreitt hér á landi og fer þá beint um borð í vélarnar á ný auk þess sem tölu- vert er um að vélar taki sinn kost erlendis þegar þær eru á heimleið." Harður slagur „Þetta er eins og annað,“ sagði Einar. „Harður slagur og ræðst því af verði og því að við viljum einnig hafa lambakjöt. Flugvéla- matreiðsla er orðin mjög sérhæfð grein. Sumar verksmiðjur fram- leiða eingöngu eftirrétti fyrir flug- vélar, aðrar niðurskorna ávexti. Við reyndum að brjótast inn á þennan markað með íslenskum fyrirtækjum en gáfumst upp. Framleiðslu- og hráefnis kostnaður er of hár hér.á landi.“ BIODROGA NIGHT SENSATION Útsölustaðir: Stella Bankastræti 3, Ingólfsapótek Kringlunni, Gresika Rauðarárstíg, Brá Laugavegi, Snyrtistofa Lilju Akranesi, Kaupf. Eyfirðinga, Vestmannaeyjaapótek.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.