Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 27 GRASLAUKUR Allium schoenoprasum Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir Þáttur nr. 279 Graslaukur tilheyrir liljuættinni ásamt fjölda lauktegunda sem hafðir eru til matar eða notaðir til að krydda mat og bragðbæta hann. Graslaukurinn er ættaður frá Mið- Evrópu og vex einnig hátt til fjalla í Asíu. Islenski villilaukurinn er náinn ættingi graslauksins. Villi- laukurinn hefur fundist á nokkrum stöðum hér á landi og er undir náttúrvemd. Frá ómunatíð hefur hann vaxið á Borg í Borgarfírði. Þangað hefur hann að líkindum komið með farandbiskupum, sem þar héldu til fyrir kristnitöku og mun hafa verið notaður í matar- gerð og til lækninga. Af öðrum stöðum þar sem villilaukur hefur fundist má nefna Bessastaði hér syðra og Hörgárdal á Norður- landi. Einstaka áhugamenn hafa ræktað villilauk í görðum sínum. Graslaukur er fremur lágvax- inn, 15-20 sm á hæð og myndar allþéttar þúfur. Blöðin eru pípu- laga og hol að innan og með mildu laukbragði. Ef þau eru klippt af til matar eru þau fljót að vaxa aftur, en ef plantan er ekki klippt ber hún fjólulit kúlulaga blóm og er þá hin skrautlegasta. Hér á landi þrífst graslaukur vel. Honum er fjölgað annaðhvort með fræsáningu eða rótarskipt- ingu. Þá er rótin skorin í sundur í nokkra búta og hver þeirra gróð- ursettur með hæfilegu millibili. Æskilegt er að láta graslauk ekki vaxa lengur en 5-7 ár á sama stað. Þá þarf að taka hann upp, skipta rótinni og gróðursetja plönt- urnar á annan stað í garðinum. Graslaukur þar ekki mikinn áburð, best er að gefa honum smá skammt um það leyti og fyrsti nýgræðingurinn er að koma upp Blómstrandi graslaukur. úr moldinni og til bóta er að vökva með uppleystum grænmetisáburði nokkrum sinnum yfir vaxtartím- ann. í september er sjálfsagt að taka graslauk úr garðinum, skipta rót- inni og setja í blómapotta og þeir geymdir á góðum stað þar sem ekki frýs. Pottarnir eru svo fluttir um miðjan vetur á hlýjan og bjart- an stað og vökvað öðru hveiju. Fer laukurinn þá fljótlega að taka við sér og spretta og getur þá komist í gagnið meðan enn er frost og snjór úti. Það sem notað er til matar af graslauknum eru blöðin eins og fyrr segir og hafa þau þægilegt laukbragð.' Þau má nota söxuð ofan á brauð, í súpur, salöt og fleiri rétti. í nýlegri efnagreiningu á gras- lauk sem vaxið hefur í sumar hér á landi reyndust næringarefna- flokkarnir vera: Vatn 86,00%, kol- vetni 7,80%, tréni 2,00%, fita 0,60%, eggjahvíta 3,80%, steinefni 1,80%. í 100 g af graslauksblöðum reyndust vera 55 hitaeiningar. A-, B- og C-vítamín- reyndust vera í þeim, en magnið var ekki athugað. Einar I. Siggeirsson Fræðslu- kvöld um Jesúmyndir í samtímanum í VETUR mun Reykjavíkurpróf- astsdæmi eystra hefja skipulega fræðslustarfsemi fyrir fullorðna í söfnuðum prófastsdæmisins. ( Fræðslan verður í formi fyrir- lestra og efni þeirra verður „Hver er Jesú frá Nasaret?" j Helstu hugmyndir manna í nú- tímanum um Jesú. ( Fyrirlestrarnir verða á fimmtu- dagskvöldum og verða tveir fyrstu í Kópavogskirkju 23. september um efnið: Hugmyndir gyðinga um Jesú og 30. september um efnið: Hugmyndir mannúðarstefnu um Jesú. Þriðji fyrirlesturinn verður 14. október í safnaðarheimili Digra- nessafnaðar, Bjamhólastíg 26, og fjallar hann um Jesúmynd marx- ista. Fjórði fýrirlesturinn 21. októ- ber og sá fimmti 28. október verða haldnir í Hjallakirkju um efnið: Jesúmynd kirkjunnar. Fyrirlesari verður dr. Siguijón Arni Eyjólfsson héraðsprestur og s hefjast allir fyrirlestramir kl. 20.30. i -----------•-------- , Kynningar- fundur hjá Nýrri dögun KYNNINGARFUNDUR verður haldinn fimmtudaginn 23. sept- ember hjá Nýrri dögum, sam- tökum um sorg og sorgarvið- brögð í Reykjavík í Safnaðar- heimili Grensáskirkju. Kynnt verður vetrarstarf sam- takanna, fræðslustarf, nærhóp- vinna og símaþjónusta. Fundurinn | hefst kl. 20.30 og er öllum opinn. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn 7. október. Samkvæmt | hefð samtakanna er fyrsti fýrir- lestur vetrarstarfsins Sorg og sorgarviðbrögð. Fyrirlesari er | Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur Ríkisspítala. Fyrirlesturinn verður í Safnaðarheimili Grensáskirkju og hefst kl. 20. Sama kvöld verða skráðir þátttakendur í fyrsta nær- _ hópinn. Hver þekkir konumar? Árið 1944 er eftirminnilegt í íslandssögunni, sjálft lýðveldisár- ið. í júní það ár var haldinn lands- fundur Kvenréttindafélags ís- lands (KRFÍ) og innri gerð félags- ins endurskipulögð á þann veg að nú eiga þeir stjómmálaflokkar er kjörna fulltrúa hafa inni á Alþingi fulltrúa í stjóm félagsins og það því með sanni þverpólitískt. Mikil stemmning ríkti meðal fundarfulltrúanna og ekki spillti góðviðrið á Bessastöðum þegar hópurinn fór þangað í móttöku hjá nýkjörnum forseta íslands Sveini Bjömssyni og frú Georgíu eiginkonu hans. Hér má sjá hóp- inn á hlaðinu á forsetasetrinu en hver þekkir nöfnin? Nokkur eru þekkt en áhugavert væri að vita fleiri. Gera má Björgu Einarsdótt- ur á skrifstofu KRFI viðvart i síma 18156. 1. Ekki þekkt. 2. Ekki þekkt. 3. Ekki þekkt. 4. Theodóra Guðlaugsdóttir. 5. Sigríður Björnsdóttir á Hesti. 6. Helga Þorgilsdóttir. 7. Ekki þekkt. 8. Ekki þekkt. 9. Ekki þekkt. 10. Sigrún P. Blöndal. 11. Þuríður Friðriksdóttir. 12. Ekki þekkt. 13. Herdís Jakobsdóttir. 14. Sigríður Eiríksdóttir. 15. Ekki þekkt. 16. Ekki þekkt. 17. Ekki þekkt. 18. Ekki þekkt. 19. Elísa- bet Eiríksdóttir. 20. Ragnheið- ur Möller. 21. Dýrleif Árnadótt- ir. 22. Jakobína Mathiesen. 23. María Maack. 24. Katrín Páls- dóttir. 25. Ekki þekkt. 26. Ekki þekkt. 27. Ingibjörg Benedikts- dóttir. 28. Aðalbjörg Sigurðar- dóttir. 29. Ekki þekkt. 30. Ekki þekkt. 31. Ingibjörg Hjartar- dóttir. 32. Theresía Guðmunds- son. 33. Ekki þekkt. 34. Ekki þekkt. 35. Guðrún Jónasson. 36. Ekki þekkt. 37. Ekki þekkt. 38. Charlotta Albertsdóttir. 39. Ekki þekkt. 40. Ekki þekkt. 41. Ekki þekkt. 42. Ásdís Stein- þórsdóttir. 43. Þóra Vigfúsdótt- ir. 44. Ekki þekkt. 45. Ekki þekkt. 46. Ekki þekkt. 47. Guð- rún Pétrsdóttir. 48. Georgía Björnsson. 49. Laufey Valdi- marsdóttir. 50. Sigríður Sig- urðardóttir. 51. Ekki þekkt. 52. Ekki þekkt. 53. Ekki þekkt. 54. Steinunn Bjartmarsdóttir. 55. Sveinn Björnsson forseti. 56. Ekki þekkt. 57. Bryndís Þórar- insdóttir. 58. Svafa Þórleifs- dóttir. 59. Sigríður J. Magnús- son. 60. Ekki þekkt. 61. Borg- hildur Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.