Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 HVAR ERU ÞAU OG Á siglinganám- skeiði í Hollandi Fríða Torfadóttir, fædd 1979, nem- andi í Austurbæjarskólanum í Reykjavík var í fimm daga á sigl- inganámskeiði í Hollandi í sumar. Á nám- skeiðinu, sem var haldið rétt fyrir utan Amsterdam lærði hún meðal annars að sigla seglskútum. Hveijir voru á þessu námskeiði? Þetta voru hollenskir krakkar á aldrinum þrettán til sextán ára. Ég var eini útlending- urinn, það vakti rosalega athygli að ég væri frá íslandi. Okkur gekk ágætlega að skilja hvort annað og ég eignaðist eina vin- konu sem ég skrifast á við. Hvemig datt þér í hug að fara á siglinga- námskeið í Hollandi? Ég fékk þetta í fermingargjöf. Ég var í Siglingaklúbbnum í Nauthólsvík þegar ég var svona 9 og 10 ára, en ég hef ekkert stundað þetta síðan. Fyrst langaði mig ekkert að fara af því ég þekkti auðvitað engan. En svo var þetta alveg rosalega gaman. Við bjuggum öll á staðnum og dagurinn leið þannig að við vöknuðum á morgnana klukkan svona níu og borðuðum. Síðan fórum við út og sigldum allan dag- inn. Ef það var gott veður stoppuðum við á einhverri eyjunni fyrir utan og fórum í leiki eða lágum í sólbaði og syntum í sjónum. Langar þig á annað svona námskeið? Ég held að ég fari ekki á fleiri siglinga- námskeið, en mig langar aftur til Hollands. BJÖRGVINGUÐNASON, 13ÁRA. Vantar félagsmiö- stöð í Keflavík Félagsstarf fyrir unglinga í Kefla- vík er ekki mjög mikið. Það eina sem er í boði fyrir 13 ára krakka er Holtaskóli og stundum Þotan, það er skemmtistaður fyrir unglinga hérna í Keflavík. Venjulega er Þotan fyrir eldra fólk en stundum er hald- in skemmtun fyrir yngri hópinn. Svo eru auðvitað íþróttir. Það er mikið af krökkum sem eru í körfu- bolta, bæði strákar og stelpur en við æfum ekki saman. Ég æfi körfubolta og finnst það mjög gam- an. Keflvík- ingar eru Is- landsmeis- tarar svo áhuginn er mjög mikill. Mér finnst samt að það mætti vera meira hérna fyrir unglinga. Fleiri skemmtistaðir og félagsmiðstöðvar með klúbbastarfi og diskótekum og svoleiðis skemmtunum. Það sem mér finnst að ætti að gera héma í Keflavík strax er að lækka aldursmarkið inn á Z svo við þessi yngri getum farið þangað að skemmta okkur. • ' • MARÍA BALDURSDÓTTIR • SÖNGKONA Ósköp ágæt í alla staði Eg ólst upp í Keflavík og það var ágætt. Ég var ekki vandræðaungl- ingur,'það er alveg á hreinu. Ég var voða mikið inn í mig að vissu leiti; var svpna feimin lítil stelpa og hafði mig ósköp lítið í frammi. Eg var ekki nálægt því eins opin þá og ég er núna. Ég held að ég hafi verið ósköp ágæt í alla staði, ég var voða venjuleg, tók þátt í skólastarfi og skátunum. Svona fyrir utan það var ekki mikið í gangi hérna í bæn- um. Maður fór í bíó og svo á rúntinn auðvit- að. En ég naut unglingsáranna ekki lengi því ég eignaðist mitt fyrsta barn þegar ég var 17 ára gömul. Ég var semsagt barn að eign- ast bam. Ég fór ekki að búa þá strax heldur bjó með barnið hjá foreldrum mínum þar til ég var 21 árs. Ég fékk mikla hjálp frá foreldr- um mínum og hefði ekki getað verið að syngja um kvöld og nætur ef þeirra hefði ekki notið við. Neyðarlegt atvik Þetta neyðarlega atvik tengist auðvitað söngnum og því hvað ég var feimin og inn í mig. Eg var að fara að syngja á skemmtun og var búin að æfa mig lon og don á laginu “Ég er komin heim íheiðardal- inn“ og kunni það afturábak og áfram. Svo þegar ég stend á sviðinu þá man ég ekki eitt einasta orð og varð að kalla á vinkonu mína til að hjálpa mér. Mér leið ömurlega og ég man þá tilfinningu enn þann dag í dag. Byrjað að syngja Ég fór að syngja fyr- ir alvöru þegar ég var 15 ára gömul. Ég hafði verið í skólahljómsveit fram að þeim tíma en þarna byijaði ég í alvöru hljómsveit. Fyrsta hljóm- sveitin var Hljómsveit Guðmundar Ing- ólfssonar, við spiluðum bæði hérna í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli. Ég var svo ung þá að ég þurfti að fá leyfi bæði frá foreldrum og yfirvöldum til að spila svona fram á nótt. Það fylgdu fleiri hljómsveitir í kjölfarið; ég var í Skuggum, Heiðursmönnum og Geim- steini. Ég tók mér alltaf hlé á milli svo það er ekki hægt að tala um samfelldan söngfer- il. Ég gaf út plötu árið 1974 og hef svo sungið inn á plötur með Áhöfn- inni áHalastjörnunni. Það síðasta sem ég gaf út var geisladiskur með 20 lög- um sem öll hafa komið út áður svo það má sjálfsagt kalla þetta safndisk. Ég er ekki hætt að syngja en ég er í pásu í augnablikinu og er að gæla við að fara í nám í söng, jafn- vel kórasöng. Ég hugsa að ég syngi ekki í bráð nema þá kannski með leikfélaginu hérna, en það er þó óvíst. Að lokum Ég myndi vilja sjá og finna að kærleikurinn yrði efstur hjá fólki. Mér fyndist mjög gott að hann yrði númer eitt, tvö og þrjú allsstaðar. TJt RNUR O TÖR ISKi SAMVISKUSPURNINGIN Var gaman að byrja aftur í skólanum? Ásdís 14ára: Alveg ágætt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.