Morgunblaðið - 12.11.1995, Side 1
128 SIÐURB/C
259. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nígeríustjórn fordæmd um allan heim eftir aftöku Saro-Wiwa
Vísað tímabundið úr
breska samveldinu
Queensland, London. Reuter.
LEIÐTOGAR ríkja breska samveldisins hafa
ákveðið að visa Nígeríu tímabundið úr samveldinu
í kjölfar þess að Ken Saro-Wiwa, forseti Ogoni-
ættbálksins, og átta fylgismenn hans voru teknir
af lífi. Jim Bolger, -forsætisráðherra Nýja-Sjá-
lands, greindi frá þessu á blaðamannafundi í gær
og sagði að brottvísunin yrði endanleg ef lýðræðis-
legir stjórnarhættir yrðu ekki teknir upp í Nígeríu
innan ákveðins tíma. Tímamörkin hafa ekki enn
verið ákveðin.
Mikil reiði
Bolger sagði þróunina í Nígeríu ganga í ber-
högg við grundvallaratriði Harare-sáttmála sam-
veldisins og hefðu því leiðtogarnir, að þjóðarleið-
togum Gambíu og Solomon-eyja undanskildum,
ákveðið að vísa Nígeríu tímabundið úr samveldinu.
Forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sem er í for-
sæti .leiðtogafundarins, sagði aðrar aðgerðir á
borð við olíusölubann ekki hafa verið íhugaðar.
Í yfirlýsingu sinni bjóðast leiðtogamir til að
veita Nígeríu alla þá aðstoð er ríkið kann hugsan-
lega að þurfa við að-koma á lýðræði. Leiðtogarn-
ir voru undir miklum þrýstingi í þessu máli og
höfðu áður sagt að trúverðugleiki samveldisins
væri í veði. Mikilvægt væri að sýna að ríki sam-
veldisins tækju Harare-sáttmálann um lýðræði og
mannréttindi, sem samþykktur var 1991, alvar-
lega.
Fjölmörg ríki hafa fordæmt aftökurnar og ríkir
mikil reiði í garð Nígeríu. Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hefur kallað.heim sendiherra sinn í Lagos
og íhugar að fara fram á refsiaðgerðir af hálfu
Sameinuðu þjóðanna. Bretar, Þjóðvetjar, Austur-
ríkismenn.Frakkar og Suður-Afríkumenn hafa
einnig kallað heim sendiherra sína.
Aðgerðir undirbúnar iyá SÞ
Mike McCurry, talsmaður Bandaríkjaforseta,
sagði að Clinton hefði farið fram á það við Madel-
eine Albright, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ,
að undirbúa þegar í stað viðeigandi aðgerðir. Ólík-
legt er talið að reynt verði að fá samþykkt olíusölu-
bann en mjög líklega verður aðgerðunum beint
gegn olíuiðnaði landsins með öðrum hætti, t.d.
með banni við útflutningi á búnaði til olíuvinnslu
til Nígeríu.
Þá hefur Bandaríkjastjóm stöðvað alla her-
gagnasölu til Nígeríu og framlengt banni við út-
gáfu vegabréfaáritana til handa nígerískum stjóm-
arerindrekum.
Nígeríustjórn hefur brugðist hart við þessari
gagnrýni og sakar önnur ríkl um afskipti af innan-
ríkismálum.
Saro-Wiwa hafði verið helsti baráttumaður þess
að Ogoni-ættbálkurinn fengi sjálfstjórn en einnig
barðist hann fyrir umhverfísvemd og gegn olíu-
vinnslu á heimaslóðum sínum í Ogoni-landi.
Hann var ásamt átta öðrum sakaður um að
hafa á síðasta ári myrt fjóra leiðtoga Ogoni-ætt-
bálksins er voru hliðhollir Nígeríustjóm. Réttar-
höldin hafa verið harðlega gagnrýnt og Nígeríu-
stjóm sökuð um pólitískt sjónarspil.
Hart bar-
ist við
Jaffna
Colombo. Reuter.
HART er barist við borgina Jaffna á
norðurhluta Sri Lanka eftir að stjóm-
arherinn hóf nýja stórsókn. Talsmenn
stjómarhersins segjast hafa fellt 110
tamílska skæruliða og sært 100 í
fyrradag. Þá var greint frá því að
31 stjómarhermaður hefði fallið og
23 særst í bardögum á föstudag.
Átökin áttu sér stað við Urumpiari
og Kopai skammt frá Jaffna en þetta
er á því svæði þar sem samtök Tam-
íla hafa barist fyrir stofnun sjálf-
stjórnarsvæðis.
Tveir tamílskir skæruliðar gerðu á
laugardag sjálfsmorðsárás á höf-
uðstöðvar hersins í höfuðborginni
Colombo, en þær eru staðsettar í
helsta ferðamannahverfi borgarinnar.
Mennimir báru sprengiefni inn-
anklæða og var annar kominn tíu
metra inn í höfuðstöðvarnar er þau
sprungu en hinn var við í 300 metra
fjarlægð.
Alls féllu fimmtán óbreyttir borg-
arar í árásinni og á fimmta tug særð-
ist.
Reuter
HERMAÐUR gengur fram Iijá kjörbúð í Colombo þar sem skæruliði sprengdi öfluga sprengju í
sjálfsmorðsárás í gærmorgun. Önnur sprengja sprakk skammt frá við höfuðstöðvar hersins.
Hægri-
flokkur
aldrei
minni
Ósló. Morgunblaðið.
FRAMFARAFLOKKURINN í Nor-
egi er næststærsti stjómmálaflokkur
landsins samkvæmt skoðanakönnun-
um en Hægriflokkurinn hefur aldrei
haft minna fylgi, aðeins 13,8%. Hef-
ur hann tapað þriðjungi fylgis frá
því í fyrra mánuði.
Það er Framfaraflokkurinn, sem
hefur hagnast mest á fylgishruni
Hægriflokksins, en Verkamanna-
flokkurinn virðist einnig hafa laðað
til sín marga kjósendur hans.
Jan Petersen, leiðtogi Hægri-
flokksins, telur ástæðuna vera
óánægju með stöðuna í Ósló, en þar
hafa borgaraflokkamir ekki getað
komið sér saman um stjóm gegn
Verkamannafiokknum þótt þeir séu
í meirihluta.
Framfaraflokkurinn nýtur nú fylg-
is 14,2% kjósenda en á það er minnt,
að í könnunum komst hann í 23,5%
fyrir kosningarnar 1989 en fékk
miklu minna í kosningunum sjálfum.
♦ ♦ ♦------------
Ottastum
asíufílinn
Genf. Reuter.
ASÍUFÍLLINN er í útiýmingarhættu
vegna aukinna umsvifa mannsins.
Kemur þetta fram í yfirlýsingu frá
Alþjóðanáttúruvemdarsjóðnum,
WWF, en nú eru eftir 35-50.000 dýr
á einangruðum stöðum.
Fyrir árþúsundum var fíllinn út-
breiddur allt frá Sýrlandi til Kína en
nú finnst hann aðeins á einangruðum
stöðum, sem eru þó ekki nema brot
af því landi, sem hann lifði á fyrir
50 árum.
í skýrslu WWF sagði, að asíufíll-
inn, sem kom líklega frá afríku fyrir
55 milljónum ára, hefði að mestu
gleymst, en öll áherslan verið á að
bjarga frænda hans, afríkufílnum,
sem er allmiklu stærri. Hann er raun-
ar einnig í hættu, en samt er stofn
hans tíu sinnum stærri en asíufílsins.
Afríkufíllinn er dreifður um stóra
hluta Suður-Afríku, en asíufíllinn er
í litlum hópum hér og þar og stendur
þess vegna miklu verr að vígi. Um
helmingur stofnsins er á Indlandi, þar
sem veiðiþjófnaður og ásókn eftir fíla-
beini fer vaxandi auk þess sem stjóm-
laust skógarhögg hefur rænt hann
heimkynnum sínum.
UNDIR KRAUMAR
UDURINN
10
■ - ’**■ ■ff...... .. .J.i'
Sagan sem
lá í leyni
GERVILIMIRÁN
LANDAMÆRA
VtDSEOFnAIVINNUIÍF
Á SUNNUDEGI