Morgunblaðið - 12.11.1995, Side 6
6 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Leikarinn Paul Eddinffton látinn
Neitaði að
láta bugast
Leikarinn vinsæli Paul Eddington, sem
varð heimsfrægur fyrír leik sinn í sjón-
varpsþáttunum „Já, ráðherra“ lést um síð-
ustu helgi eftir langvarandi og erfíð veik-
indi. Eddington var ekki einungis frábær
leikari heldur lét hann sig þjóðfélagsmál
af ýmsum toga varða og naut aðdáunar
fyrir æðruleysi sitt og sálarstyrk.
LEIKARINN Paul Edd-
ington, sem fór með hlut-
verk ráðherra og síðar
forsætisráðherra í sjón-
varpsþáttunum vinsælu, Já, ráð-
herra! og Já, forsætisráðherra!,
barðist við alvarlegan og fágætan
húðsjúkdóm, meira en helming
ævi sinnar.
Banamein hans var fágætur
húðkrabbi, mycosis fungoides.
Sjúkdómsins varð hann var árið
1958 og lýsti hann sér í upphafi
sem verkir í vinstri mjöðm. Þeir
voru greindir sem liðagigt þrem-
ur árum síðar. Árið 1964 var
vaxandi rauður blettur kominn
fram á mjöðminni en sérfræðing-
um tókst ekki fyrr en 21 ári síð-
ar, eða 1985, að greina kaunið,
sem reyndist vera ólæknandi af-
brigði húðkrabba. Olli það því að
hann var alsettur dökkum útbrot-
um og sárum um líkamann síð-
ustu árin. Sjúkrameðferð hafði
gert hann svo til óþekkjanlegan.
Til viðbótar var hann sykursjúkl-
ingur.
Eddington lét hins vegar
krankleika ekki aftra sér frá því
að starfa í leikhúsi eða sjónvarpi
og hefur verið borið lof á hann
fyrir þrautseigju og þolgæði.
Hann vann hug og hjörtu
bresku þjóðarinnar og reyndar
fleiri fyrir rullu stjórnmálamanns-
ins Jims Hackers í framangreind-
um sjónvarpsþáttum. Nutu þeir
feykilegra vinsælda og þóttu
raunverulegir. „Við hjónin megum
vart stíga fæti á erlenda jörð, þá
er reynt að fara með okkur beint
til stjórnarleiðtogans," sagði hann
eitt sinn. Alvarlegri hlið vinsæld-
anna var sú, að eitt sinn sýndu
hryðjuverkamenn honum banatil-
ræði en sprengjan, sem honum
var ætluð, sprakk ekki.
Af kvekurum kominn
Paul Clark-Eddington fæddist
18. júní 1927 í London. Afi hans,
vatnslitamálarinn William Clark,
tók upp ættarnafn móður sinnar,
Eddington, til þess að vera ekki
ruglað saman við annan lista-
mann.
Bæði Clarks- og Eddingtoh-
ættimar komu úr röðum kvekara
á 17. öld. Móðir Pauls var hins
vegar af írsku bergi brotin og
ólst hanri því upp í kaþólskum
sið. Faðir hans var ijárhættuspil-
ari og lét almennt reka á reiðan-
um við að framfleyta fjölskyldu
sinni, sem leiddi til þess að Paul
gekk í samtals 16 skóla. Foreldr-
ar hans skildu þegar hann var á
Það breyttist þó er hann fékk
hlutverk í sjónvarpsþáttunum
Sældarlíf. Eftir það fékk hann
mörg bitastæðari hlutverk í leik-
húsum Lundúna. Árið 1981 gekk
hann til liðs við breska þjóðleik-
húsið og fyrsta rullan á sviði þess
var Georg í leikritinu Hver hræð-
ist Virginíu Woolf? „Hann er stór-
kostlegur leikari," lýsti Laurence
Olivier lávarður yfir. Hins vegar
var Eddington ekki yfir sig hrifinn
í þjóðleikhúsinu. Um dvöl sína þar
sagði hann eitt sinn að hún hefði
verið „andstyggileg fram í fingur-
góma.“
Gott skopskyn
Paul Eddington þótti hafa ein-
staklega gott skopskyn og sá allt-
af eitthvað spaugilegt við lífið
og tilveruna, jafnvel í sorglegustu
atburðum. Hann var einstakur
fagmaður, einlægur kvekari og
tók þátt í baráttu áhugamanna
um kjarnorkuafvopnun, tók m.a.
eitt sinn þátt í mótmælasetu
slíkra á Trafalgar-torgi. Sömu-
leiðis beitti hann sér opinberlega
gegn reykingum. Þá sat hann í
opinberum nefndum, m.a. um
jafnréttismál og umbætur í fang-
elsis- og refsimálum. Hann var
sæmdur CBE-orðunni 1987.
Árið 1952 kvæntist Eddington
eftirlifandi konu sinni, Patricia
Scott, en þeim varð þriggja sona
og einnar dóttur auðið. Kynntust
þau í leikhúsi í Sheffield.
PAUL Eddington í hlutverki hins tækifærissinnaða ráðherra
Jim Hacker í þáttunum „Já, ráðherra!".
táningsaldri. Móðir hans sneri
baki við kaþólskri trú og sendi
soninn í heimavistarskóla kvek-
ara árið 1937, þegar hann var
10 ára gamall.
Að skólagöngu lokinni fékk
Eddington starf sem glugga-
skreytingamaður í stórverslun í
Birmingham. Hann ákvað hins
vegar að reyna fyrir sér í leiklist-
innni þegar hann heyrði að
stúlka, sem hann hafði leikið á
móti í skóla, hefði innritast í leik-
listarskóla fyrir verðandi at-
vinnuleikara.
Eddington knúði dyra hjá
Crescent-leikhúsinu í Birming-
ham og bar upp erindið: „Mig
langar að verða leikari," sagði
hann einfaldlega. Frumraun hans
á leiksviðinu var að leika lög-
reglumann í leikritinu „Fullt hús“
eftir Ivor Novello.
Gekk honum vel á sviði og
starfaði við leikhús í Birming-
ham, Sheffield, Bristol og
Ipswich næstu árin. Hins vegar
hafði hann fyrir fjölskyldu að sjá
og þess vegna féll hann fyrir
freistandi tilboði um starf að við-
skiptum. Af því varð þó aldrei
því eiginkonan setti honum stól-
inn fyrir dyrnar. „Yfirgefi þú
leikhúsið," varaði hún hann við
„þá er ég farin frá þér.“
Eintóm gamanhlutverk
Fjárhagslega var fjölskyldunni
borgið er Paul Eddington fékk
hlutverk í sjónvarpsþáttunum um
Hróa hött og árið 1961 fékk hann
fyrsta hlutverkið í Vesturbæjar-
leikhúsum Lundúna; lék rabbína
í Tíunda manninum eftir Paddy
Chayefsky. Allt til 1970 jék hann
ekkert annað en gamanhlutverk
í leikhúsinu eða óþokka og drullu-
sokka í sjónvarpi.
Að þrotum kominn
Veikindi Eddingtons ágerðust
en hann hélt samt áfram að
starfa í leikhúsinu æðrulaus. Oft
með helstu leikstjórum hvers
tíma og skærustu stjörnum. Hef-
ur ha-n sjaldan hlotið jafn góða
dóma og fyrir mótleik sinn gegn
Harold Pinter 1993 í Einskis-
manns landi. Síðasta hlutverk
hans á sviði í Vesturbæjarleik-
húsi var í nýrri leikgjörð Heima
eftir David Storey. Þá var Edd-
ington orðinn fársjúkur, afsk-
ræmdur í andliti, augun sokkin.
Leikur hans hafði engu að síður
djúp áhrif á þá er á horfðu.
Leikurinn reyndi mikið á Edd-
ington. Var hann að þrotum kom-
inn eftir hverja sýningu og þurfti
að halda kyrru fyrir á daginn til
að safna kröftum fyrir næstu
sýningu. En andinn bugaðist
aldrei. „Ég iðrast einskis," ritaði
hann í endurminningar. „Ég hef
átt yndislegar stundir um dagana
og, ólíkt mörgum sem átt hafa
glaðan dag, hef ég uppskorið
ríkulega í staðinn."
Reuter
Kannski ónýtt en
ömgglega dýrt
Rússland
Deilt um kosn-
ingalögin
Moskvu. Reuter.
Semur Clin-
ton við Fid-
elCastro?
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefur boðist til að beita
neitunarvaldi gegn frumvarpi á
Bandaríkjaþingi um hertar refs-
iaðgerðir gegn Kúbu verði póli-
tískir fangar í landinu látnir laus-
ir. Sagt er, að Fidel Castro, for-
seti Kúbu, hafi fallist á það.
Dagblaðið The Washington
Times sagði frá þessu á föstudag
og hafði eftir heimildum, að um
þetta hefði samist í Bandaríkja-
ferð Castros í síðasta mánuði.
Castro mun hafa verið sagt,
að Clinton væri ekki fráhverfur
hertum refsiaðgerðum en gæti
líka haldið því fram, að þær spilltu
fyrir ef farið væri að láta pólitíska
fanga lausa.
Hópar, sem berjast fyrir mann-
réttindum á Kúbu, telja, að þar
séu 1.000 til 1.500 pólitískir fang-
ar, sem dæmdir hafi verið fyrir
aðild að ólöglegum samtökum,
fyrir að ófrægja Castro og að
hafa reynt að leita hælis í erlend-
um sendiráðum í landinu.
BELGÍSKI veitingamaðurinn
Sonny Breine fann fjórar flöskur
af Bordeaux-víninu Mouton
Rothschild frá árinu 1893 er ver-
ið var að gera upp kjallara veit-
ingastaðar hans, ’t Ghewat í
Wervick í norðurhluta Belgiu.
Fundust flöskurnar í leynihólfi í
kjallaranum. Breine segir 90%
líkur á að vínið sé varla drykkjar-
hæft lengur en það skipti litlu
máli. Flöskur af þessu tagi séu
keyptar af söfnurum til að geyma
en ekki til að neyta. Hann hyggst
-selja þrjár flöskur á uppboði en
halda einni sjálfur. Nýlega seld-
ust flöskur af Mouton Rotschild
1946 á tæpar 250 þúsund krónur
stykkið á uppboði í Belgíu. „Mín-
ar verða dýrari,“ segir Breine.
VÍKTOR Tsjemomyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, sagði á föstu-
dag, að þingkosningarnar yrðu að
fara fram á tilsettum tíma, 17.
desember, hvað sem liði ágreiningi
um kosningalögin.
Tsjernomyrdín sagði í viðtali við
fréttastofuna Itar-Tass, að kosn-
ingamar yrðu að fara fram á aug-
lýstum tíma en hæstiréttur Rúss-
lands hefur beðið stjórnlagadóm-
stólinn að kveða upp úrskurð um
kosningalögin.
Sumir þingmenn efast um lög-
mæti þeirrar greinar laganna, sem
segir, að flokkur verði að fá minnst
5% atkvæða til að fá mann kjör-
inn. Segja þeir, að afleiðingin geti
orðið sú, að þingið endurspegli
ekki þjóðarviljann þar sem aðeins
fáir flokkar af þeim 42, sem bjóða
fram, muni fá menn kjöma og
alls ekki víst, að þeir verði fulltrú-
ar meirihluta kjósenda.
Kosningum frestað?
Fréttaskýrendur segja, að
hugsanlega verði þessi ágreining-
ur notaður til að fresta kosning-
unum en kommúnistar, sem er
spáð miklu fylgi, segjast munu
beijast gegn því. Nokkrir kunnir
kaupsýslumenn, sem styðja flokk
Tsjernomyrdíns og telja hann
tryggingu fyrir stöðugleika í
Rússlandi, sögðu í vikunni sem
leið, að þeir myndu styðja hvaða
aðgerðir sem væri til að koma í
veg fyrir valdatöku kommúnista.
Ekki hefur enn verið ákveðið hve-
nær stjórnlagadómstóllinn tekur
málið fyrir.
Tsjernomyrdín og Pavel
Gratsjov, varnarmálaráðherra
Rússlands, sögðu á föstudag, að
Borís Jeltsín forseti væri á góðum
batavegi og starfsdagur hans á
sjúkrahúsinu lengdist stöðugt.
I