Morgunblaðið - 12.11.1995, Side 12
12 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SEX F-15C Eagle-orrustuflugvélar hafa yfirleitt verið á Keflavíkurflugvelli það sem af er þessu
ári,- helmingi færri en á árinu 1993.
HERÆFINGIN Norður-Víkingur er haldinn annað hvert ár, í
samræmi við samkomulag íslendinga og Bandaríkjanna.
NÚ eru 2.120 hermenn í
Varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli, 744
færri en þar voru í jan-
úar 1994 þegar íslend-
ingar og Bandaríkja-
menn náðu samkomu-
lagi um breytta fram-
kvæmd varnarsamnings rikjanna
frá 1951. Minni fækkun hefur orð-
ið í skylduliði varnarliðsmanna en
þó eru 600 færri makar og börn
en fyrir tæpum tveimur árum.
Alls eru 4.364 Bandaríkjamenn á
Keflavíkui’flugvelli og hefur þeim
fækkað um 1.344. íslenskum
starfsmönnum varnarliðsins og
verktaka hefur ekki fækkað að
sama skapi. Þeir hafa verið um
1.650 undanfarin ár en eru líklega
lítið eitt færri nú.
Hugmyndir um mikinn
niðurskurð
Á árunum 1992 og 1993 fóru
fram viðræður milli íslendinga og
Bandaríkjamanna um það hvaða
varnarstyrkur í Keflavík teldist
hæfilegur til vamar íslandi, eftir
lok kalda stríðsins. Á ákveðnu stigi
viðræðnanna komu Bandaríkja-
menn með tillögur um að draga
verulega úr varnarviðbúnaði í
Keflavík, meðal annars að hætta
að hafa hér orrustuþotur og sinna
loftvörnum landsins frá Bandaríkj-
unum. Það hefði þýtt að þyrlu-
björgunarsveitin hefði einnig verið
flutt [ burtu og ýmis önnur þjón-
usta. íslensk stjórnvöld töldu mik-
ilvægt að hafa áfram viðunandi
loftvarnir og í þeim tilgangi væri
nauðsynlegt að hafa orrustuþotur
staðsettar hér.
Ríkisstjórnir landanna komust
að samkomulagi sem gengið var
frá í sameiginlegri bókun um
framkvæmd varnarsamnings ríkj-
anna frá 1951, sem Willian J.
Perry, þáverandi varavarnarmála-
ráðherra og núverandi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, og
Jón Baldvin Hannibalsson, þáver-
andi utanríkisráðherra, undirrit-
uðu 4. janúar 1994. Þar er kveðið
á um fækkun orrustuflugvéla á
Keflavíkurflugvelli og að fyrirhug-
að væri leggja niður tvær smærri
deildir flotans. Á blaðamannafundi
sem-haldinn var til að kynna sam-
komulagið kom fram hjá utanríkis-
ráðherra að samtals myndi her-
mönnum á Keflavíkurflugvelli
fækka um 380 til ársins 1997.
Að meðaltali sex
orrustuflugvélar
Á árinu 1993 voru tólf F-15
orrustuflugvélar á Keflavíkurflug-
velli. í bókuninni segir að fækka
eigi orrustuflugvélum, en viðhalda
að minnsta kosti fjórum í því skyni
að tryggja áfram virkar loftvarnir
á íslandi. Samkvæmt upplýsingum
Grétars Más Sigurðssonar, skrif-
stofustjóra varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, er ijöldi
F-15 vélanna breytilegur en oftast
hafa verið sex orrustuflugvélar í
Keflavík á þessu ári og aldrei
færri en fjórar í einu.
Skipulagi og aðstöðu til að
halda úti orrustuflugvélum hefur
verið viðhaldið, í samræmi við
bókunina. Þannig hefur eldsneyt-
isflugvél verið hér eins og áður
og fjórar björgunarþyriur með til-
heyrandi liði.
Flotaflugstöðin hefur verið
starfrækt og íslenska ratsjárkerf-
ið, í samræmi við samkomulagið
frá ársbyijun 1994. Grétar Már
segir þó að starfseminni sé haidið
úti með færri Orion-kafbátaleitar-
flugvélum. Nú fer eftirlitið fram
með fjórum bandarískum vélum
og einni hollenskri í stað 5-6
bandarískra og einnar hollenskrar
áður. Grétar Már segir að eftirlitið
sé svipað og áður en áhafnimar
séu látnar vinna meira til að halda
uppi sömu starfsemi með færri
vélum.
Bandarískum her-
mönnum í Vamarlið-
inu á Keflavíkurflug--
velli hefur fækkað um
fjórðung á tæpum
tveimur árum, mun
meira en reiknað var
með. íslenskum starfs-
mönnum Vamarliðsins
hefur hins vegar ekki
fækkað að sama skapi.
Helgi Bjarnason
skrífar um fram-
kvæmd bókunar ís-
lendinga og Banda-
ríkjamanna um vam-
arviðbúnað á Keflavík-
urflugvelli sem nú er
verið að endurskoða.
Ákveðið var að heræfingarnar
Norður-Víkingur færu fram á ís-
landi annað hvert ár og var slík
æfíng haldin hér í sumar.
í bókuninni kemur fram að tvær
smærri deildir flotastöðvarinnar
hætti starfsemi, samkvæmt
ákvörðun beggja ríkisstjórna. í
fréttum Morgunblaðsins kom fram
að hér væri átt við sérstaka hlust-
unarstöð (SOSUS) þar sem 140
hermenn störfuðu og fjarskipta-
og miðunarstöð í Rockville þar sem
90 menn störfuðu. Hlustunarstöð-
in átti samkvæmt þessum heimild-
um að hætta í áföngum til ársins
1997 en hin stöðin átti að hætta
strax. Grétar Már og Helgi Ág-
ústsson, ráðuneytisstjóri utanrík-
isráðuneytisins, segjast ekki geta
rætt um stöðu þessarra mála. Þeir
vekja athygli á því að í bókuninni
séu þessar tilteknu stöðvar ekki
nefndar sérstaklega. Þeir stað-
festa þó að báðar stöðvarnar séu
enn í rekstri og framtíðin verði
að leiða það í Ijós hvort svo verði
áfram eða ekki.
Unnið að sparnaði
„Báðir aðilar samþykkja að gera
það sem í þeirra valdi stendur til
að draga úr kostnaði við rekstur
Keflavíkurstöðvarinnar,“ segir í
bókuninni frá 4. janúar 1994.
Grétar Már og Helgi segja að
unnið hafi verið þessum þætti
málsins og sé vinnan langt komin.
Vilja þeir ekki ræða einstaka
þætti. Fram hefur komið í Morg-
unblaðinu að unnið hefur verið að
útboði á vörukaupum og þjónustu.
Grétar nefnir hótelbókunarkerfi á
varnarsvæðinu, fólksflutninga og
útgáfu tímarits varnarliðsmanna,
White Falcon, sem dæmi um slík
útboð. Hann segir að búið sé að
bjóða út ákveðna þætti í starfsem-
inni á íslenskum markaði og fleiri
möguleikar séu opnir. Tilgangur-
inn sé að spara í rekstri varnarliðs-
ins og laga hann að íslenskum
reglum um útboð. Ekki liggja fyr-
ir tölur um hvað útboð hafa spar-
að varnarliðinu mikla fjármuni.
Fram hefur komið í fréttum að
einni flugbraut hafi verið lokað í
sparnaðarskyni og segja Helgi og
Grétar að það hafi komist að fullu
til framkvæmda á síðasta ári.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði í viðtali við Morg-
unblaðið í sumar að hann hefði
spurt aðila á Keflavíkurflugvelli
hvort ekki væri ódýrara fyrir þá
að geta reiknað með því að geta
nýtt Egilsstaðaflugvöll sem vara-
flugvöll fyrir kafbátaleitarvélar í
stað flugvalla á Skotlandi. Sagðist
hann reikna með að Bandaríkja-
menn vildu nýta sér það til þess
að draga úr kostnaði. Helgi Ág-
ústsson segir að þetta hafi verið
boðið fram og sé enn til skoðunar.
Segir Helgi að íslensk stjórnvöld
séu opin fyrir ýmsum sparnaðar-
leiðum. Verið sé að skiptast á
skoðunum við Bandaríkjamenn og
ekki eðlilegt að ræða einstaka
þætti á þessu stigi.
Aukin þátttaka íslendinga
í þyrlubjörgun
í bókun bandaríska varavarnar-
mála.ráðherrans og íslenska utan-
ríkisráðherrans frá því í ársbyijun
1994 segir að fyrir lok þessa árs
muni ríkin tvö takast á hendur
viðræður til að kanna möguleika
á að íslendingar axli aukna ábyrgð
á sviði þyrlubjörgunarstarfa. Emb-
ættismenn utanríkisráðuneytisins
veijast frétta af framkvæmd þessa
ákvæðis. Segja einungis að enn
sé áhugi fyrir þessu og verið sé
að vinna að málinu í utanríkisráðu-
neytinu.
í lokagrein bókunarinnar segir
að ríkin muni efna að nýju til sam-
ráðs í því skyni að endurskoða
ákvæði samkomulagsins og kom-
ast að sameiginlegri niðurstöðu
fyrir lok þessa árs. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra sagði
að loknum fundi með Warren Chri-
stopher, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, í síðustu viku að hann
byggist við að Bandaríkjamenn
myndu áfram hafa sama varnar-
viðbúnað á Keflavíkurflugvelli og
þeir hafa haft síðastliðin tvö ár.
Fram kom hjá ráðherranum að
hann vonaðist til að viðræðum um
framhaldið lyki fyrir árslok.
744 færri hermenn
Umræddar breytingar á varnar-
viðbúnaði á Keflavíkurflugvelli
hafa leitt til verulegrar fækkunar
hermanna í Varnarliðinu, og mun
meiri fækkunar en íslenski utan-
ríkisráðherrann taldi þegar sam-
komulagið var kynnt. í lok septem-
ber síðastliðins voru 2.120 her-
menn í liðinu á móti 2.864 í jan-
úar 1994. Hefur því fækkað um
744 varnarliðsmenn eða um 26%.
Heldur minni fækkun hefur orð-
ið í skylduliði varnarliðsmanna.
Nú eru 2.244 makar og börn í
varnarstöðinni á móti 2.844 fyrir
tæpum tveimur árum. Fækkað
hefur um 600 eða 21%. Sýnir þetta
að hlutfallslega færri einhleyping-
ar eru nú í varnarliðinu enda hef-
ur í mörg ár verið unnið að því
að auka hlutfall fjölskyldumanna.
Nú búa 4.364 varnarliðsmenn
og fólk þeim tengt á Keflavíkur-
flugvelli á móti 5.708 í janúar
1994. Hefur Bandaríkjamönnum á
Vellinum því fækkað um 1.344 á