Morgunblaðið - 12.11.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995 13
I----7=:a Jan.'94
Varnarliðsmenn 2.864
Skyldulið þeirra 2.844
SAMTALS: 5.708
30/9 ‘95 FÆKKUN
2.120 744 -26%
2.244_____600 -21%
4.364 1344 23,5%
íslenskir:____________Jan.'94 30/10 '95 FÆKKUN
Starfsm. varnarliðsins 972 945 27 3%
Starfsmenn verktaka_______681_______691*_________________
SAMTALS: 1.653 (1.636) .Jan.c
þessum tíma, eða um liðlega 23%.
Íslenskum starfsmönnum Varn-
arliðsins hefur lítið fækkað á þessu
tímabili. Að meðtöldum starfs-
mönnum Ratsjárstofnunar voru
945 starfandi í lok október á móti
972 í ársbyijun 1994. Á þessum
tíma hefur því fækkað um 27 eða
3%.
Ekki liggja fyrir nýjar tölur um
heildarfjölda starfsmanna hjá
verktökum sem vinna fyrir varnar-
liðið. Þeir voru 681 í janúar 1994
og fjölgaði reyndar á því ári þann-
ig að þeir voru orðnir 691 í janúar
síðastliðnum. Starfsmannafjöldinn
er breytilegur eftir árstíma.
Samkvæmt upplýsingum Stef-
áns Friðfinnssonar, forstjóra ís-
lenskra aðalverktaka, eru nú um
350 starfsmenn hjá fyrirtækinu
en þeir voru 318 í ársbyijun 1994.
Stefán segir að starfsmönnum sé
heldur að fækka um þessar mund-
ir og áætlar að starfsmannafjöldi
sé svipaður og fyrir tæpum tveim-
ur árum, að teknu tilliti til árs-
tíma. Framtíðin er að venju óviss
í þessum rekstri og Stefán bendir
á að þó áhugi sé á töluverðum
framkvæmdum á næsta ári sé
ekki búið að ganga frá fjárveiting-
um og tímasetja framkvæmdir.
Jón Halldór Jónsson, forstjóri
Keflavíkurverktaka, segir að
starfsmenn séu um 150 eins og
verið hafi á sama árstíma síðastlið-
in tvö ár. Reyndar hafi ársstörfum
fjölgað um fimm í byijun þessa
mánaðar þegar fyrirtækið tuk að
sér rekstur hótelbókunarkerfis
varnarliðsmanna eftir útboð. Auk
þessarra verktaka eru hópar starf-
andi hjá ræstingarverktökum og
fleiri verktökum.
Ef miðað er við að starfsmenn
verktakanna séu jafn margir og í
byijun þessa árs eru íslenskir
starfsmenn Varnarliðsins og verk-
taka alls 1.636 en þeir voru 1.653
í byijun árs 1994. Samkvæmt
þeim forsendum hefur orðið óveru-
leg fækkun íslenskra starfsmanna
á Keflavíkurflugvelli.
Eins og gert var ráð fyrir
Grétar Már Sigurðsson telur að
öll fyrirhuguð fækkun varnarliðs-
manna sé nú komin fram. Eins
og fram hefur koipið hefur þeim
fækkað um 744 en íslensk stjórn-
völd áætluðu að breytingar á varn-
arviðbúnaði sem samkomulag varð
um í árs’byijun 1994 hefði í för
með sér að hermönnum myndi
fækka um 380. Grétar Már vill
ekki fjölyrða um þetta mat íslend-
inga á sínum tíma. Bendir hann á
að ekki sé kveðið á um fjölda her-
manna í umræddu samkomulagi
og fullyrðir að ekki hafi orðið
meiri fækkun en upphaflega stóð
til.
Loks nefnir hann að einhver
breyting hafí orðið á verkaskipt-
ingu milli varnarliðsmanna og ís-
lenskra starfsmanna, meðal ann-
ars í kjölfar útboða á þjónustu.
Það hafí leitt til þess að íslenskum
starfsmönnum hafi fækkað minna
en varnarliðsmönnum.
Kostnaður við fækkun
Embættismenn utanríkisráðu-
neytisins segjast ekki hafa upplýs-
ingar um kostnað við rekstur
Varnarliðsins eða hvað hann hafí
minnkað við umræddar breyting-
ar. Grétar Már segist vera að
reyna að fá um þetta upplýsingar
en segist ekki geta opinberað þær
þótt það tækist.
Ljóst er að fækkun í Varnarlið-
inu hefur töluverðan kostnað í för
með sér i upphafi og að sparnaður-
inn kemur seinna fram. Þannig
má benda á kostnað við pökkun
og flutning á búslóðum varnarliðs-
manna.
20% aukning hjá Sölu
varnarliðseigna
Af þessu leiðir að mikil aukning
hefur orðið á umsvifum Sölu varn-
arliðseigna, eða tæplega 20% mið-
að við sama tíma á síðasta ári.
Salan fyrstu níu mánuði ársins
nemur 170 milljónum kr. Sala bif-
reiða er uppistaðan í veltunni.
Samkvæmt upplýsingum Alfreðs
Þorsteinssonar forstjóra er áætlað
að seldir verði 390 bílar og tæki
á þessu ári. Eru það 10% fleiri
bílar en á árinu 1994 og 17% fleiri
en 1993. Söluaukningin er meiri
veg:na þess að dýrari bílar hafa
verið til sölumeðferðar á þessu ári
í kjölfar fækkunar í flughernum.
LISTIR
Morgunblaðið/Silli
LEIKSTJÓRI, ljósameistari, höfundur og leikarar hylltir að sýningu lokinni.
Gaura-
gangur á
Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Húsavíkur frum-
sýndi fyrir skömmu sjónleikinn
Gauragang eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson, sem viðstaddur var frum-
sýninguna. Leikstjóri er Sigrún
Valbergsdóttir og er þetta fjórða
verkið, sem hún setur upp eftir
Ólaf Hauk.
Tónlistin er eftir Ný dönsk og
sljórnar henni Valmar Valjaots.
Lýsingu stjórnar David Walters,
sem jafnframt gerir leikmyndina
ásamt Sigrúnu.
Aðalhlutverkið, Ormur, er
burðarás sýningarinnar en hann
leikur Friðfinnur Hermannsson.
Það má segja að leikritið standi
eða falli með Ormi, þó hin 25 önn-
ur hlutverkin verði einnig að vera
vel gerð, til að skapa heilsteypta
sýningu, og það eru þau.
Mjög er vandað til þessarar
sýningar og hljómsveitinni er hag-
aniega fyrir komið á sviðinu og
er mikilsvert að vera með „lif-
andi“ músík. Hljómsveitina skipa
Valmar Valjaots, Sigurður Illuga-
son, Hallgrímur Sigurðsson og
Stefán Helgason.
Að sýningu Iokinni voru leikar-
ar, leikstjóri, ljósameistari og höf-
undur ákaft hylltir með lófataki
og blómum.
Gauragangur hefur áður verið
sýndur í Þjóðleikhúsinu og gekk
þar í tvö ár og sáu það þá 40
þúsund manns, á öllum aldri, þó
álitið hafi verið að það höfðaði
frekari til hinna yngri. Búast má
því við að aðsókn hér verði mikil,
þegar Norðlendingum gefst kost-
ur að sjá verkið flutt af þeirri
snilld sem þessi sýning ber vott
um.
Formaður leikfélagsins er nú
Regína Sigurðardóttir.
Morgunblaðið/Silli
NATALIA Chow sópransöngkona og Helgi Pétursson orgelleikari
Tónlistardögum Dómkirkjunnar að ljúka
Orgel- og söng-
tónleikar í dag
TÓNLISTARDÖGUM Dómkirkjunn-
ar á þessu hausti lýkur með orgel-
og söngtónleikum í kirkjunni í dag
kl. 15. Þar syngur sópransöngkonan
Natalia Chow og á orgelið leikur
Helgi Pétursson.
Natalia syngur verk eftir Bach,
Handel, Bizet, Kaldalóns og fleiri og
Helgi flytur orgelverk eftir J.S. Bach
og Buxtehude.
Natalia hefur lokið MA námi frá
University of Reading, starfað sem
söng- og píanókennari við tónlistar-
skólana á Húsavík og Laugum og
organisti við Húsavíkurkirkju ásamt
Helga. Helgi lauk 8. stigi í orgelleik
og lokaprófí frá tónfræðideild Tón-
listarskólans í Reykjavík og MA prófi
í örtölvutækni í tónleikakennslu frá
háskólanum í Reading í Englandi.
Hann kennir nú á píanó, orgel og
tónfræði við Tónlistarskóla Húsavik-
ur og er organisti við Húsavíkur-
kirkju.
Nýjar bækur
• ÚT ER komin þriðja og síðasta
bókin um Línu Langsokk í þýðingu
Sigrúnar Árnadóttur.
Lína Langsokkur í Suðurhöfum
segir frá ferðalagi Línu ásamt
Tomma og Önnu til Suðurhafseyja.
„Línu munar ekki um að stjórna
skipinu Æðikollu yfir ólgandi brim-
öldu og ægilegar grynningar, að yf-
irbuga hákarl eða leika á tvo harð-
svíraða bófa. En þótt gaman sé að
leika sér í sólinni er best af öllu að
koma aftur heim og renna sér á skíð-
um ofan af þakinu á Sjónarhóli,"
segir í fréttatilkynningu.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 112 bls. prentuð í Svíþjóð
og kostar 1.389 kr. Ingrid Vang-
Nyman myndskreytti.
(^rty í /ondon
3ANGUR JÓLANNA MEÐ SLÍKUM GLEÐI- Æ GLÆSIBRAG. TEKIST HEFUR A\
HVERGI í HEIMI ER INNGANGUR JÖLANNA MEÐ SLlKUM GLEÐI- ÖÖ GLÆSIBRAG. TEKIST HEFUR AÐ
FÁEIN VIÐBÓTARSÆTI í HINA RÓMUÐU JÓLAFÖSTUFERÐ 10. - 14. DESEMBER.
DVÖL Á HÁKLASSAHÓTELI í HJARTA BORGARINNAR, RÉTT VIÐ OXFORD STREET.
ÁÆTLUNARFLUG MEÐ FLUGLEIÐUM. FARARSTJÓRN INGÓLFUR GUÐBRANDSSON.
Á DAGSKRÁ STENDUR M.A. ÞETTA TIL BOÐA:
1) Kynnisferð um fagurskreytta heimsborgina í fyigd Ingólfs, sem gjörþekkir London og sögu hennar.
2) Glæsilegar óperusýningar í COVENT GARDEN og ÞJÓÐARÓPERUNNI, eða vinsælustu söngleikirnir.
3) Stórtónleikar í BARBICAN og ROYAL FESTIVAL HALL með heimsfrægum listamönnum.
4) Ljúffengir kvöldverðir á völdum veitingastöðum,
m.a. enskur jólakvöldverður. ferðaskrifstofan
5) Mesta vöruúrval Evrópu á hagstæðu verði við allra hæfi.
GRÍPIÐ ÞETTA EINSTÆÐA TÆKIFÆRI í
ÖÐRUVÍSI BORGARFERÐ.
TILBOÐSVERÐIÐ GILDIR AÐEINS TIL 15- NOV.
FERÐASKRIFSTOFAN
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, sími 562-0400, fax 562-6564