Morgunblaðið - 12.11.1995, Page 24
!
24 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga kvikmyndina Dangerous Minds með
Michelle Pfeiffer í aðalhlutverki. Hún byggir á sannri sögu um kennara sem með óvenju-
legum aðferðum nær miklum árangri með nemendur sem kerfið hefur gefist upp á.
Erfiður bekk-
ur fær góðan
kennara
Vaxin
uppúr
kynbombu-
hlutverkinu
lék í sinni fyrstu kvikmynd árið 1980 og
1982 fékk hún hlutverk Sandýjar í mynd-
inni Grease 2. Arið þar á eftir sló hún í
gegn sem hjákona A1 Pacinos í myndinni
Scarface og þar með var hún orðin
kynbomba á heimsmælikvarða.
En það tímabil í ævi hennar stóð stutt
yfir. Hún sýndi varfærni í hlutverkavali
og smám saman varð kvikmyndaheimin-
um ljóst að Michelle Pfeiffer var alvöru
leikkona en ekki heimsk ljóska.
I dag hefur Michelle Pfeiffer þegar
hlotið þrjár óskarsverðlaunatilnefingar,
fyrir Love Fields, The Fabulous Baker
Boys og Dangerous Liaisons, og margir
hafa orðið til að spá því að Dangerous
Minds muni sjá fyrir þeirri fjórðu.
Michelle fæddist í Santa Ana í Suður-
Kaliforniu og virðist ekki hafa átt ýkja
ánægjulega æsku. Hún er fámál um æsku-
ár sín en hefur sagt að pabbi hennar, sem
gerði við og seldi loftræstikerfi og ís-
skápa, hafi snemma farið að heimta að
stelpan hjálpaði til og verið kröfuharður
húsbóndi.
Afleiðingarnar af því eru þær að Mich-
elle Pfeiffer er haldin fullkomnunarár-
áttu og þar sem fullkomnun er ekki á
mannlegu valdi er hún aldrei ánægð að
verki loknu. „Eg er aldrei sátt við frammi-
stöðu mína í kvikmyndum. Ég er kannski
ánægð með eitt og eitt atriði en aldrei
heiklina," segir hún og hefur látið hafa
eftir sér að áður fyrr hafi hún alltaf alið
með sér ótta eftir hveija mynd að nú
kæmist það upp að eiginlega væri hún
að villa á sér heimildir og væri alls ekki
nógu góð.
A undanförnum árum hefur hamingjap
hins vegar brosað við henni í einkalífinu
í fyrsta skipti. Hún giftist í hitteðfyrra
manni að nafni David Kelley, sem er fram-
leiðandi sjónvarpsþáttanna Chicago
Hope, og segist hafa fundið hamingjuna
í hjónabandinu og því að sinna uppeldi
tveggja ungra barna; ættleiddrar 3 ára
dóttur og 1 árs sonar sem þeim hjónum
fæddist í fyrra.
Helstu kvikmyndir Michelle Pfeiffer
eru: Wolf (1994), Age of Innocence (1993),
Love Fields (1992), Batman Returns
(1992), Frankie and Johnny (1991), Russia
House (1990), The Fabulous Baker Boys
(1989), Dangerous Liaisons (1988), Tequ-
ila Sunrise (1988), Married to the Mob
(1988), The Witches of Eastwick (1987),
Sweet Liberty (1986), Ladyhawke (1985),
Into The Night (1985), Scarface (1993),
Grease 2 (1982), Charlie Chan and the
Curse of the Dragon Queen (1981).
DANGEROUS Minds er
sannsöguleg mynd sem
íjallar um LouAnne
Johnson, fyrrrverandi
liðsforingjaefni í landgönguliði flot-
ans, sem þarf að jafna sig eftir
hörmulegt hjónaband og ákveður
að skipta um umhverfi. Hún gerist
kennari við framhaldsskóla í Palo
Alto í Kalifomíu og þangað komin
uppgötvar hún að henni er ætlað
að taka við bekknum sem allir eru
búnir að gefast upp á.
í bekknum eru krakkar sem ekki
skortir námshæfileika heldur vilj-
ann til að læra, stuðning frá fjöl-
skyldum sínum og trúna á að þeir
geti yfirleitt náð einhveijum ár-
angri í lífinu. Þeir bera ekki virð-
ingu fyrir neinu eða neinum og eru
óhræddir við að sýna það. LouAnne
lætur slag standa, mætir krökkun-
um óhrædd og berst við skólayfir-
völd sem eru jafnvantrúuð á nem-
enduma og nýjungagimi og frum-
leika þessa óreynda kennara.
Dangerous Minds var ein vinsæl-
asta kvikmynd sumarsins vestan-
hafs. Samt er hvorki í henni að
finna alvarlegt ofbeldi né ástaræv-
intýri og ekki fjallar hún um frægð
né frama. Þótt smjörið sé sagt
drjúpa af hveiju strái í landi tæki-
færanna, Kalifomíu, eru kennara-
launin þar álíka lág og á íslandi.
Það er ekki á hveijum degi sem
Hollywood gerir hetju úr mann-
eskju sem lætur sér vel líka 24
þúsund dala árslaun.
Boðskapur myndarinnar er hins
vegar sá að áhugasamur kennari,
sem vinnur af hugsjón og er óragur
við að varpa hefðbundnum gildum
og viðmiðum í skólastarfí fyrir róða,
getur uppskorið ríkulega; orðið
sálnaveiðari og hjálpað þeim böm-
um og unglingum sem mest þurfa
á raunverulegri leiðsögn að halda
að forða sjálfum sér frá fangelsum,
eiturlyfjum, fátækt og göturæsum.
Sá boðskapur virðist víða eiga
hljómgmnn um þessar mundir.
Ekki spillir fyrir að í aðalhlutverki
myndarinn'ar er Michelle Pfeiffer,
óumdeilanlega ein fremsta kvik-
myndaleikkona Bandaríkjanna og
sennilega ein fegursta kona heims.
Eftir þriggja ára starfsreynslu
sem kennari skrifaði LouAnne
Johnson bók þá sem myndin er
gerð eftir. Saga hennar hét My
Posse Don’t Do Homework.
Bókin barst kvikmyndaframleið-
endunum Don Simpson og Jerry
Bruckheimer - mönnunum á bak
við Top Guu, Beverly Hills Cop og
Flashdance og nú síðast Crimson
Tide og Bad Boys. Efni bókarinnar
snerti við þeim enda segir Bruck-
heimer að eins og fjölmörgum öðr-
um Bandaríkjamönnum sé þeim
farið að renna- til rifja ömurlegt
ástand skólakerfísins í landinu.
„Skólana vantar fjárveitingar og
mannafla og vegna þess eigum við
á hættu að missa heila kynslóð í
glötun. Okkur Don langaði til að
reyna að gera kennarana að hetjum
aftur, sýna baráttu þeirra við kerf-
ið, krakkana og umhverfí krakk-
anna - sem oft er það sem helst
dregur þau niður - og sýna það
að kennaramir eru fyrirmyndir,
sem skipta miklu máli,“ segir hann.
Þeir félagar ákváðu að fá
Kanadamanninn John N. Smith til
að leikstýra myndinni. Það var
mynd Smiths, The Boys of St. Vinc-
ent, sem vakti athygli þeirra eins
og margra annarra á þessum
reynda kanadíska leikstjóra, sem
m.a. hefur tekist flestum betur að
breyta manninum af götunni í
frambærilegan kvikmyndaleikara.
Smith hefur mikið unnið með
óreyndum leikurum, sem hann tefl-
ir fram á móti þrautreyndum at-
vinnumönnum. Smith, Simpson og
Bruckheimer ákváðu að fara þá
leiðina við gerð Dangerous Minds
og manna bekkinn hennar LouAnne
Johnson með því að augiýsa eftir
óreyndum en áhugasömum ungl-
ingum um Bandaríkin þver og endi-
MICHELLE Pfeiffer er ein fárra leikkvenna sem
hefur tekist að vaxa upp úr kynbombuhlutverkinu
og náð þvi að öðlast viðurkenningu leikhæfileika
sinna vegna.
Michelle Pfeiffer, sem nú er 38 ára gömul, var
hálfgerður vandræðaunglingur; fór að vísu létt
í gegnum framhaldsskóla en eyddi mestum
tíma sínum niðri á strönd að ná sér I lit og
horfa á strákana á brimbrettunum. Hún fór
að vinna 18 ára gömul á kassa í stórmark-
aði og sótti kvöldnámskeið til að læra að
verða hraðritari í dómsal. Einn góðan veð-
urdag fékk hún það sem kalla má vitrun,
og ákvað að hennar gæti beðið eitthvað ann-
að og meira.
Hún minntist'þess að kennari
hennar í framhaldsskóla hafði
sagt henni að hún hefði leik-
hæfileika og til þess ;ið kom-
ast í kynni við umboðsmann
leikara ákvað hún að taka
þátt í fegurðarsamkeppni
þar sem einn slíkur var
dómnefndarformaður.
Aætlunin gekk upp,
Michelle sigraði í fegurð-
arkeppninni, varð Miss
Orange County, og komst
á samning hjá umboðs-
manninum. Hún flutti til
Los Angeles og fór að fá
smáhlutverk í sjónvarps-
þáttum sem þurftu á létt-
klæddum ljóskum að halda.
Stelpan sótti leiklistarná-
mskeið áf kappi og smám saman
fór fólk að taka eftir henni. Hún
HAL Griffith (George Dzundza) er starfsbróðir LouAnne og
bandamaður í baráttunni.
löng. Úr hópi þúsunda áhugasamra
var bekkurinn valinn og að mestu
leyti skipaður krökkum sem ekki
búa að neinu því sem hægt er að
kalla reynslu í kvikmyndaleik eða
vinnu framan við myndavélar.
Þessum krökkum var hins vegar
ekki ætlað að fara með fastmótuð
hlutverk heldur var hlutverk hvers
og eins þeirra sniðið að miklu leyti
eftir persónuleika leikarans þannig
að í stað þess að reyna að leika
fengju þau að vera sem mest þau
sjálf.
Óskarsverðlaunahafinn Ronald
Bass, sem skrifaði handritið að
Rain Man, var fenginn til að breyta
sögu LouAnne í kvikmyndahandrit.
Lykillinn að því\að framleiðendurn-
ir réðust bjartsýnir í gerð myndar-
innar var hins vegar sá að Michelle
Pfeiffer var óðfús að taka að sér
hlutverk aðalsöguhetjunnar, Lou-
Anne Johnson.
„Mér fannst bókin hennar heill-
andi, ekki aðeins vegna umfjöll-
unarefnisins heldur fannst mér
manneskjan LouAnne áhugaverð,"
segir Michelle. „Það er alltaf sér-
staklega erfítt að leika hlutverk
raunverulegrar persónu. Maður
finnur til ábyrgðar sinnar gagnvart
viðkomandi en í þau fáu skipti sem
við þurftum að taka okkur skálda-
leyfí með eitthvað í sögunni lagði
ég áherslu á að ekki yrði gengið
svo langt að breytingamar yrðu á
kostnað þess sem LouAnne stendur
í raun og veru fyrir. Við LouAnne
vorum í góðu sambandi allan tim-
ann meðan tökur stóðu yfír. Hún
tók öllu vel og leit hlutlægt á mál-
in. Það sem skipti hana mestu
máli var að saga krakkanna fengi
LOUANNE Johnson (Mich-
elle Pfeiffer) í miðjum hópi
nemenda sinna.
að koma sem best fram; hún var
lítið að hugsa um sitt egó.“
Eins og fyrr sagði er Dangerous
Minds einhver vinsælasta kvikmynd
sumarsins vestanhafs og hefur
jafnframt hlotið afar jákvæða dóma
gagnrýnenda, sem bera jafnt lof á
leik Pfeiffer og unglinganna
óreyndu.
Síðastliðnar 11 vikur hefur
myndin verið á listanum yfír 10
mest sóttu kvikmyndir í Bandaríkj-
unum og hefur nú halað inn um
80 mihjónir Bandaríkjadala, sem
er lygileg fjárhæð þegar mynd með
umfjöllunarefni af þessu tagi er
annars vegar.
Samt er það ekki einsdæmi að
myndir um kjarkmikla kennara sem
ná árangri í erfiðum bekk með
óhefðbundnum aðferðum verði vin-
sælar. Þess eru að minnsta kosti
þijú þekkt dæmi. Árið 1955 var
gerð myndin Blackboard Jungle,
þar sem Glenn Ford lék kennara
sem reyndi að hafa áhrif á hóp vill-
inga þar sem Vic Morrow og Sidn-
ey Poitier voru fremstir í flokki.
Sidney Poitier spreytti sig svo á
hlutverki kennarans í frægasta fyr-
irrennara Dangerous Minds, mynd-
inni To Sir With Love, árið 1967.
Tuttugu árum síðar var svo gerð
myndin Stand and Deliver, þar sem
Edward James Olmos reyndi að
vekja áhuga á að takast á við nám-
ið og lífið hjá Lou Diamond Philips
og fleiri hæfileikaríkum villingum.