Morgunblaðið - 12.11.1995, Page 48
48 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
i
IÞROTTIR
ÞOLFIMI
Keppa um
þátttökurétt á
heimsmeist-
aramóti
ÞOLFIMIMÓT sem ræður úrslitum um hvaða íslensku kepp-
erídur komast á heimsmeistaramót Alþjóðafimieikasam-
bandsins 17. desember verður haldið sunnudaginn 26. nóvem-
ber í Laugardalshöll. Mótið átti að vera í dag, sunnudag, en
hefur verið seinkað um tvær vikur. Allt besta þolfimfólk lands-
ins mætir til keppni og verður keppt í fjórum f lokkum, sam-
kvæmt nýjum alþjóðareglum Fimleikasambandsins.
Heimsmeistaramót Alþjóða
fimleikasambandsins verður í
París og stendur í tvo daga. Ann-
an daginn er keppt um hveijir
komast í úrslit. Þrjátíu þjóðir hafa
tilkynnt þátttöku, en Alþjóðafim-
leikasambandið er að halda heims-
meistaramót í þolfími í fyrsta
skipti. Meðal keppenda í for-
keppninni hérlendis verða þrír ís-
landsmeistarar; Magnús Sche-
ving, sem einnig er Evrópumeist-
ari, Anna Sigurðardóttir sem
keppa mun með Gunnari Má
Sigfússyni í flokki para og Irma
Gunnarsdóttir. Sú síðastnefnda
keppti á heimsmeistaramóti IAF
í Japan í vor og hefur æft grimmt
upp á síðkastið. „Ég er búin að
æfa mjög markvisst undanfama
mánuði og legga mikla áherslu á
Jack
Charlton
leggur
þjálfara-
stöðuna
undir
ÍRLAND sækir Portúgal
heim eftir viku og er sæti
í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins í knattspyrnu í
veði, en Jack Charlton, sem
hefur verið landsliðsþjálf-
ari íra síðan 1986, ætlar að
hætta komist liðið ekki
áfram. írar eru með eins
stigs forystu á Austurrík-
ismenn sera eru I þriðja
sæti í sjötta riðli en Norður-
írar taka á móti Austurrík-
ismönnum í Belfast á mið-
vikudag. Roy Keane getur
ekki leikið með írum vegna
meiðsla og óvíst er með
fyrirliðann Andy Townsend
og Steve Staunton hjá As-
ton Villa en Charlton bætti
í gær Chris Morris, varnar-
manni Middlesbrough,
Mike Milligan, miðjumanni
Norwich, og Mark
Kennedy, miðherja hjá Li-
verpool, í hópinn. Morris
lék síðast með landsliðinu í
febrúar 1993, Milligan hef-
ur einu sinni komið inn á í
landsleik sem varamaður
og Kennedy er nýliði.
að ná árangri, og að komast á
heimsmeistaramótið. Keppend-
urnir í kvennaflokki eru allir mjög
góðir, þannig að þetta verður hörð
keppni," sagði Irma í samtali við
Morgunblaðið.
Hún er þolfímikennari í Djass-
ballettskóla Báru og kennir þar
þijá tíma á dag auk þess að æfa
í tæpa tvo tíma á dag sem kepp-
andi. „Ég er tveggja barna móðir,
þannig að það er nóg að gera
þessa dagana og mikið á sig lagt.
Ætli ég sé ekki að sprikla fjóra
klukkutíma á dag í heildina. Ég
held að æfíngar mínar verði mjög
frumlegar og sömuleiðis tónlistin.
Það var góð reynsla að keppa í
Japan í vor og nýtist mér vonandi
eitthvað í næsta móti“, sagði
Irma.
•'«'1........ .
■
6i
Morgdnblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
I toppformi
IRMU Gunnarsdóttur vantar ekkl liðleikann. Hún er meðal
þeirra sem keppa mun um hver kemst á heimsmeistaramót
alþjóðafimlefkasambandsins að tveimur vikum liðnum.
Helgi í
Stjörnuna
HELGI Björgvinsson,
varnarmaður sem lék með
Keflvíkingum í 1. deildinni
sl. sumar, hefur gengið frá
félagskiptum yfir i Stjörn-
una. „Mér list vel á Stjörnu-
liðið enda þekki ég vel flesta
leikmenn liðsins. Það er
hugur í forráðamönnumfé-
lagsins og því sló ég til. Ég
var orðinn þreyttur á akstr-
inum til Keflavíkur og því
ákvað ég að færa mig nær
Reykjavík og stoppustöðin
er Garðabær," sagði Helgi.
Hann hefur áður leikið með
Fram, Víkingi og Keflavík.
Sandelin
nýliði
ársins
JARMO Sandelin frá Svíþjóð
var kjörinn nýliði ársins á
Evrópumótaröðinni í golfi.
Sandeiin, sem er 28 ára,
sigraði í einni keppni og
varð í öðru sæti á tveimur
mótum. Samanlagt varð
hann í 21. sæti og fékk um
173.000 pund í verðlaun. Á
meðal fyrrum nýliða ársins
eru menn eins og Tony
Jacklin (1963), Nick Faldo
(1977), Sandy Lyle (1978) og
Jose Maria Olazabal (1986).
„Þetta hefur verið dásam-
Iegt tímabil,“ sagði Svíinn í
gær. „Það væri mikill heiður
að feta í fótspor þeirra og
vera í Evrópuliðinu í Ryd-
erkeppninni 1997.“
KNATTSPYRNA
Brasilíumaðurinn Juninho
vill spila á Ólympíuleikunum
Hrasilíumaðurinn Juninho sagði í viðtali við arg-
entíska blaðið Clarin að draumur sinn væri
að keppa með Brasilíu á Ólympíuleikunum í Atl-
anta næsta sumar. „Brasilía hefur aldrei orðið
ólympíumeistari í knattspyrnu og því er markmiðið
að ná titlinum í Atlanta,“ sagði hann. „Áhersla
verður lögð á undankeppnina, sem verður í Argent-
ínu, og draumur minn er að vera með á Ólympíu-.
leikunum, því ég vil njóta þeirrar reynslu sem því
fylgir.“
Juninho, sem er 22 ára, gerði sem kunnugt er
samning við Middlesbrough fyrir skömmu og lék
fyrsta leikinn með liðinu um liðna helgi. Hann brást
ekki stuðningsmönnum liðsins og lagði upp mark
í 1:1 jafntefli gegn Leeds en fari sem horfír getur
svo farið að Boro verði án hans í allt að átta leikj-
um á tímabilinu.
Hvergi betra en í Englandi
%
4
Miðjumaðurinn var tekinn af velli þegar 11 mín-
útur voru eftir af leiknum gegn Leeds en var
ánægður með byijunina. „Ég hélt að það yrði erfið-
ara fyrir mig að aðlagast. Miðað við að ég hafði
ekki leikið í mánuð var þetta góð byijun og ég
fann varla fyrir þreytu þegar ég fór út af.“ Hann
hrósaði einnig ensku knattspyrnunni. „Fyrirkomu-
lagið í Englandi er að mínu skapi og ég held að
skipulagið sé hvergi betra í heiminum."
Juninho lék með Brasilíu gegn Argentínu í ágóða-
leik í vikunni og vann Brasilía 1:0 í frekar döprum
leik á River Plate leikvanginum í Buenos Áires.
Juninho, sem leikur í treyju númer 10 eins og
Pele gerði á sínum tíma er hér á fullri ferð í leikn-
um en Argentínumennirnir Leonardo Astrada
(númer 5) og Fernando Caceres geta lítið annað
gert en hlaupið á eftir og fylgst með töktum kapp-
i
i
4
4
4
í
í
4
4
4
4
4
Reuter
ans.