Morgunblaðið - 30.11.1995, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Athugasemdir
bárust frá
ellefu aðilum
ATHUGASEMDIR bárust frá 11
aðilum vegna tillögu að deiliskipu-
lagi vöruhafnarinnar á Akureyri og
voru þær kynntar á fundi hafnar-
stjórnar í gær. í deiliskipulagstillög-
unni var m.a. gerð grein fyrir fyrir-
hugaðri landnotkun á svæðinu og
skiptingu þess í vöruhafnarsvæði,
svæði fyrir matvælaiðnað, iðnaðar-
svæði og svæði fyrir almenna at-
vinnustarfsemi. Einnig var sett
fram tillaga að ákvæðum um þá
starfsemi sem þarf að víkja af svæð-
inu.
Að sögn Guðmundar Sigur-
bjömssonar hafnarstjóra voru flest-
ar athugasemdir gerðar við þijú
atriði í tillögunni. I fyrsta lagi um
hugmyndir um breikkun Gránufé-
lagsgötu, sem þýða að 2 hús verða
að víkja, í öðru lagi að loka að-
keyrslu frá Hjalteyrargötu inn á
svæði fyrirtækja milli Strandgötu
'ÞREKSTIGAR
TILATVINNUNOTA
Líkamsræktarstöðvar
Iþróttahús
Iþróttafélög
Skip
Hótelogfl.
GlómusM. 462 3225
og Silfurtanga og í þriðja lagi við
tillögur um flutning Fóðurvöru- og
Olíusöludeildar KEA í Krossanes
innan næstu 10-12 ára.
Þegar ákveðið að rífa þrjú hús
„Ég mun fara betur í gegnum
athugasemdirnar með skipulags-
stjóra en það er ýmislegt sem þarf
að skoða. Þessar tillögur snerta
fyrirtæki manna og það er því ekk-
ert óeðlilegt að þeir geri sínar at-
hugasemdir," segir Guðmundur.
Verði af breikkun Gránufélags-
götu þarf að ijarlægja húsin númer
46 og 48 við þá götu. Einnig er í
tillögunni gert ráð fyrir að rífa hús
við Kaldbaksgötu 5.
Þegar hefur verið ákveðið, vegna
athafnasvæða skipafélaganna, að
rífa í vetur húsin við Strandgötu
61, þar sem Vélsmiðjan Atli var til
húsa, Strandgötu 57 og 55B og
austurhluta Toppstöðvar Rafveitu
Akureyrar.
Guðmundur sagði að málið ætti
eftir að fara fyrir hafnarstjórn,
skipulagsnefnd og bæjarstjóm áður
en eitthvað verður ákveðið. „Það
tekur töluverðan tíma að fara yfir
rökin fyrir athugasemdunum sem
hafa borist og eins þarf að skoða
hvort einhveijir aðrir kostir em í
stöðinni og þá hvort þeir em álitleg-
ir,“ sagði Guðmundur.
.
Morgunblaðið/Kristján
Jólin
undirbúin
í Holtakoti
J ÓL ASTEMMNIN GIN var ríkj-
andi á leikskólanum Holtakoti á
dögunum þegar foreldrar heim-
sóttu börn sín og útbjuggu fal-
lega hluti til að prýða heimilin
fyrir jólin. Meðal þess sem þau
gerðu voru jólasveinar, englar,
sljörnur og kertastjakar. Iris
Harpa Hilmarsdóttir bar sig
fagmannlega að við að fletja út
trölladeigið og fylgdist móðir
hennar, Hanna Sigmundsdóttir,
stolt með. A hinni myndinni eru
feðgarnir Gísli Björgvin og Gísli
Olafsson og hjónin Björgólfur
Jóhannsson og Málfríður Páls-
dóttir með dætrum sínum,
Steinunni Helgu og Sólveigu
Kristínu.
y
; w :
Svalbakur
með aflaverð-
mæti upp
á 54 millj.
SVALBAKUR EA, togari Útgerð-
arfélags Akureyringa hf. kom til
hafnar á Akureyri á þriðjudag með
450 tonn af frystum karfa og grá-
lúðu eftir tæplega mánartúr. Afla-
verðmætið er rúmar 54 milljónir
króna.
Aflinn er sendur áfram á Jap-
ansmarkað og það var því mikið
líf á Togarabryggjunni þegar verið
var að landa úr togaranum og setja
í gáma. Svalbakur fer á rækjuveið-
ar í næsta túr og er reiknað með
að skipið haldi til veiða í kvöld.
Kaldbakur EA, ísfisktogari ÚA
kom til hafnar í vikunni með um
120 tonn af blönduðum afla.
Bókmennta-
kvöld
BÓKVAL og Café Karólína
efna til bókmenntakvölds í
Deiglunni í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 30. nóvember,
kl. 20.30.
Rithöfundarnir Steinunn
Sigurðardóttir, Stefán Sig-
urkarlsson og Jón Hjaltason
lesa úr nýútkomnum bókum
sínum. Einnig lesa Steinunn,
Jón Laxdal og Þráinn Karls-
son úr bókum Gyrðis Elías-
sonar, Nínu Bjarkar Árna-
dóttur og Sigurðar Pálssonar
og Þórs Jónssonar. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heim-
ill.
Jólagallerí
JÓLAGALLERÍ myndlista-
nema í Myndlistaskólanum á
Akureyri verður opið frá kl.
14.00 til 17.00 alla laugardaga
og sunnudaga í desember.
Einnig verður það opið
fimmtudag og föstudag, 21.
og 22. desember. Til sölu verða
frumlegar, handunnar jóla-
gjafir.