Morgunblaðið - 30.11.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995 19
Danska stjórnin knýr fram fjárlög
Nær að sundra
hægri öflunum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANSKA stjórnin sló tvær flug-
ur í einu höggi í gær, þegar hún
náði samkomulagi við íhaldsflokk-
inn um fjárlögin, og sundraði um
leið íhaldsflokknum og Vinstri
(Venstre). Spurningin er nú hvort
þetta hefur áhrif á samstarfið á
hægri vængnum.
Uffe Ellemann-Jensen, formaður
Vinstri, var gallsúr eftir að sam-
komulag hinna flokkanna lá fyrir,
en sagði að ergelsið myndi fljótt
gufa upp, um leið og hann lýsti
einlægri aðdáun á pólitískum hæfí-
leikum Mogens Lykketoft fjármála-
ráðherra. Hans Engell, formaður
íhaldsflokksins, segir samstöðu um
hertar reglur um atvinnuleysisbæt-
ur fyrir öllu, jafnframt því sem
miklum niðurskurði til varnarmála
hafi verið afstýrt.
Deilt um atvinnuleysisbætur
Helsta deiluatriði fjárlaga-
gerðarinnar hefur verið atvinnu-
leysisbætur til ungs fólks undir 25
ára aldri. Þegar í sumar var ljóst
að danska alþýðusambandið væri
fúst til að fallast á hertar reglur
um greiðslur til ungs fólks til að
koma í veg fyrir að fólk dagaði
uppi á bótum. Þegar stjórnin kynnti
hugmyndir sínar um atvinnuleysis-
bætur í haust fengu þær dræmar
undirtektir frá íhaldsflokknum og
Vinstri. Hins vegar létu áhrifamik-
il öfl í atvinnulífinu í ljós ánægju
með hugmyndir stjórnarinnar.
í viðræðunum undanfarna sólar-
hringa kom í ljós að íhaldsflokkur-
inn vildi mikið vinna til að semja,
þar sem atvinnulífið væri sátt við
stefnuna í fjárlagagerðinni. Stjórn-
in kom einnig til móts við flokkinn
með því að leggja af stóreigna-
skatt og bæta kjör húseigenda.
Vinstri stóð hins vegar fast á
sínu. Leitt er að því líkum að flokk-
urinn hafí haft áhuga á að hindra
íjárlagagerð, svo ekki væri annað
en að efna til kosninga, en flokkur-
inn stendur mjög vel í skoðana-
könnunum með um þriðjung kjós-
enda að baki.
Bæði Ellemann-Jensen og Hans
Engell, formaður íhaldsflokksins,
undirstrikuðu hins vegar í gær að
flokkar þeirra væru eðlilegir sam-
starfsflokkar, þrátt fyrir uppákom-
una nú. Til þess er tekið í dönskum
fjölmiðlum að samband flokksform-
annanna sé ekki sérlega innilegt
og hafi aldrei verið. Hinn glaðlegi
og góðlegi Engell er maður mála-
miðlana, meðan Ellemann-Jensen
er óbanginn við að storka og egna
á mjög ódanskan hátt, kannski af
því að i æðum hans rennur spænskt
blóð.
Reuter
Egypska sljórnarflokknum spáð stórsigri í kosningum
Ásakanir nni víð-
tæk kosningasvik
Kaíró. Reuter.
NÝTT þing var kjörið í Egyptalandi
í gær og hreyfingar íslamskra
stjórnarandstæðinga sökuðu lög-
regluna, starfsmenn á kjörstöðum
og stjórnarflokkinn um „svívirðileg
kosningasvik" víða um landið.
Stjórnarandstæðingarnir sögðu
að lögreglan hefði handtekið hund-
ruð íslamskra heittrúarmanna, sem
tóku þátt í kosningabaráttunni, full-
trúar stjórnarandstöðunnar hefðu
ekki fengið aðgang að nokkrum
kjörstöðum og dæmi væru um að
kjörkassar hefðu ekki verið tómir
þegar kosningarnar hófust.
Vatn á myllu
öfgamanna?
Fréttaritari Reuters kvaðst hafa
séð 16 ára unglinga, tveimur árum
undir kosningaaldri, ganga út úr
kjörklefum í heimabæ Atefs Sedkis
forsætisráðherra.
Talsmaður Verkamannaflokks-
ins, sem höfðar einkum til íslam-
skra heittrúarmanna, sagði augljóst
að yfirvöld hefðu gert allt sem þau
gætu til að koma í veg fyrir að ísl-
amskir frambjóðendur færu með
sigur af hólmi í kosningunum. Hann
kvaðst óttast að þetta yrði til þess
að ungir Egyptar snerust á sveif
með herskáum hreyfingum sem
sniðgengu kosningarnar og vilja
stofna íslamskt ríki með vopnaðri
uppreisn.
Fregnir hermdu að ofbeldisseggir
á vegum stjórnarflokksins, Lýðræð-
isflokks Egyptalands, hefðu ráðist
á leiðtoga Múslimska bræðralags-
ins, Mamoun el-Hodeidi, á kjörstað
í Kaíró. Hodeidi, sem er 86 ára
fyrrverandi dómari, væri nú rúm-
fastur á kosningaskrifstofu flokks-
ins.
3.980 frambjóðendur börðust um
444 þingsæti í 222 kjördæmum.
Flestir þeirra buðu sig ekki fram í
nafni flokka en hundruð frambjóð-
endanna eru í flokkujn sem snið-
gengu síðustu þingkosningar árið
1990.
Stjórnarflokknum
spáð 80%
Lýðræðisflokkurinn var með
mikinn meirihluta á gamla þinginu
og búist er við að hann fái um 80%
þingsætanna í kosningunum. Hosni
Mubarak forseti sagði að ekki yrði
stokkað upp í stjórninni eftir kosn-
ingarnar.
Lýðræðisflokknum stafaði mest
hætta af íslömsku frambjóðendun-
um, sem eru flestir í Verkamanna-
flokknum og Múslimska bræðralag-
inu en buðu sig fram sem óháðir.
Yfirvöld hafa bannað Múslimska
bræðralagið, sem er fjölmennasti
flokkur íslamskra bókstafstrúar-
manna og vill stofna íslamskt ríki
með friðsamlegum hætti.
Sjötug
ballerína
RÚSSNESKA ballettdansmærin
Maya Plisetskaja hélt upp á sjö-
tugsafmæli sitt í vikunni með því
að dansa á sýningu Bolshoj-ball-
etflokksins á Svanavatninu sem
haldin var henni til heiðurs. Pli-
setskaja hefur stundað listdans í
hálfa öld og sýningargestir
sögðu að helmingi yngri dans-
mær hefði verið fullsæmd af
frammistöðu hennar á sýning-
unni. Á myndinni hneigir hún sig
fyrir áhorfendum, sem klöppuðu
henni ákaft lof í lófa að sýning-
unni lokinni.
----» ♦■♦--
Castro heim-
sækir Kína
Peking. Reuter.
FIDEL Castro, forseti Kúbu, hóf
sína fyrstu opinberu heimsókn í
Kína í gær. Sendiherra Kúbu í Pek-
ing sagði, að Castro vildi læra af
markaðsumbótunum í Kína. Castro
ræddi ekki við fréttamenn og fyrstu
ummerkin um „hina sósíölsku efna-
hagsbyltingu" sá hann út um
gluggann á þýskri glæsikerru.
Bresk fjárlög valda vonbrigðum
London. Reuter.
BRESKIR íhaldsmenn urðu fyrir nokkrum von-
brigðum með fjárlagafrumvarpið, sem lagt var
fram á þingi í fyrradag, og telja, að það breyti
litlu um stöðu flokksins hjá kjósendum. Segja
þeir, að betur verði að gera á næsta ári eigi
Ihaldsflokkurinn að geta gert sér vonir um að
sigra í næstu kosningum.
íhaldsmenn vonuðu, að með fjárlagafrumvarp-
inu tækist þeim að vinna aftur á sitt band
óánægða kjósendur, til dæmis með skattalækk-
unum, en frumvarpið einkennist fyrst og fremst
af mikilli varkárni. Á fjármálamarkaði hefur því
verið tekið heldur fálega vegna fyrirætlana um
auknar, opinberar lántökur á næsta ári og ónógs
niðurskurðar og skattgreiðendum finnst skatta-
lækkunin of lítil.
í fjárlagaræðu sinni boðaði Kenneth Clarke
fjármálaráðherra verulega aukin útgjöld til heil-
brigðis-, mennta- og lögreglumála en á móti koma
auknar álögur á tóbak og bensín. Þá verður skor-
ið niður á ýmsum öðrum sviðum félagsmála og
í rekstrarkostnaði ríkisins.
Auðveldar vaxtalækkun
Skattalækkunin er rúmlega 19.000 ísl. kr. á
ári fyrir bresku meðalfjölskylduna en hagfræðing-
ar segja, að þessi hóflega lækkun auðveldi hins
vegar Clarke að lækka vexti og ná þannig þeim
3% hagvexti, sem spáð er í fjárlagafrumvarpinu.
John Redwood, sem tókst á við John Major
forsætisráðherra í leiðtogakjöri innan íhalds-
flokksins í júlí sl., sagði, að líta yrði á fjárlaga-
frumvarpið sem fyrstu útborgun, sú næsta yrði
að koma að ári.
Tony Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins,
kvaðst ekki mundu vinna gegn þeim skattalækk-
unum, sem boðaðar væru í frumvarpinu. Þær
kæmu sér vel fyrir venjulegar írjölskyldur, sem
borguðu nú 7% hærri skatt en 1992. Hann bætti
því hins vegar við, að hefði frumvarpið átt að
laga stöðu íhaldsflokksins, þá myndi það mistak-
ast.
Reuter
Lúkashenko á kjörstað
Kosið í
Hvíta-
Rússlandi
ÞINGKOSNINGAR fóru fram
í Hvíta-Rússlandi í gær og
ftjálslyndir stjórnarandstæð-
ingar sögðust vona að kjörið
yrði þing sem gæti staðið uppi
í hárinu á Alexander Lúkas-
henko forseta. Kosið var í 141
kjördæmi, en þar þurfti að
endurtaka kosningar sem fóru
fram í maí og voru úrskurðað-
ar ógildar vegna lítillar kjör-
sóknar. Um helmingur þing-
sætanna hafði verið auður.
Lúkashenko mætti á kjör-
stað í Minsk en sagði blaða-
mönnum að hann hefði gert
atkvæðið ógilt. Stjóm hans
hefur tekist að vinna bug á
óðaverðbólgu en hún hefur lít-
ið gert til að koma á fíjálsum
markaðsbúskap og lífskjörin í
Hvíta-Rússlandi eru enn verri
en í Rússlandi.
Nasisti fær
fangelsisdóm
AU STURRÍ KISM AÐURINN
Edwin Neuwirth fékk í gær
eins árs skilorðsbundinn fang-
elsisdóm fyrir að afneita því
að útrýmingarherferð nasista
gegn gyðingum hefði átt sér
stað. Dómurinn var kveðinn
upp vegna ummæla Neuwirths
á blaðamannafundi þegar
hann tók á móti rússneska
þjóðemissinnanum Vladímir
Zhírínovskíj árið 1993. Að-
spurður um gasklefa nasista
sagði hann þá: „Ég veit ekkert
um þá. Fram hafa farið rann-
sóknir sem sýna að gasklef-
arnir vom ekki til.“
Berlusconi
mætir ekki
SILVIO Berlusconi, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíu,
kvaðst í gær ekki ætla að
mæta á fund sem saksóknarar
í Mílanó höfðu boðað hann á
í dag til að yfirheyra hann um
meint brot fyrirtækja hans á
lögum um Qármögnun fiokka.
Berlusconi áréttaði þá afstöðu
sína að ásakanir saksóknar-
anna væru liður f pólitískri
ófrægingarherferð gegn sér.
Pólland í
OECD?
GRZEGORZ Kolodko, Qár-
málaráðherra Póllands, spáði
því í gær að landið fengi aðild
að Efnahags- og framfara-
stofnuninni (OECD) um mitt
næsta ár. Hann sagði mikil-
vægt að þetta gengi eftir þar
sem annars væri borin von að
Pólveijar gætu gengið í Evr-
ópusambandið fyrir aldamót.