Morgunblaðið - 30.11.1995, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Nú Ásmund
arsalur
ER ÞÁ enn eitt víg-
ið fallið? Hefur Arki-
tektafélagið selt sam-
visku sína fyrir silfur
borgarinnar? Ásmund-
arsal, sem var sýning-
arsalur og íbúðarhús-
næði eins virtasta
listamanns borgarinn-
ar, einn af hápunktum
byggingarlistar í
Reykjavík, verður
væntanlega breytt í
barnaheimili, já í
„bamaheimili". Nei.
Árkitektafélagið var
svo sem ekki að taka
faglega afstöðu með
eða móti því að breyta
húsinu í barnaheimili, heldur að-
eins að selja húsið hæstbjóðanda.
Sú ákvörðun var þó mjög umdeild
innan félagsins, en var keyrð í
gegn á aðalfundi.
Bætist nú á listann yfir þau
byggingarlistaverk, sem tapað
hafa sál sinni og andliti á undan-
förnum árum. Af mörgum dæmum
Hróbjartur
Hróbjartsson
BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur
Eitt krem
fullnægir
öllum þörfum
húðarinnar
varðandi raka,
næringu og
vernd.
Húðin verður
Kaupauki fylgir meðan
birgðír endast.
Bankastræti 3,
s. 551 3635
£4 Póstkröfusendum
Öryggismiðstöð
íslands
nægir að nefna inn-
réttingu Nýja Bíós,
Austurbæjarbíó,
gömlu apótekin og
innréttingu Þjóðleik-
hússins. Allt útlit er
fyrir að Gamli garður
og Félagsheimili stúd-
enta fari sömu leið.
Er ekki Landsbóka-
safnið líka í stórri
hættu vegna ágirndar
opinberra aðila á því?
Það skal viður-
kennt, að ekki verður
í öllum tilvikum komið
í veg fyrir að hús skipti
um hlutverk. Þjóðfé-
lagsbreytingar geta
verið með þeim hætti. En því er
ekki svo varið^ í þessu falli. Full
þörf er fyrir Ásmundarsal í sínu
upprunalega hlutverki.
Barnaheimili
Barnaheimili í Ásmundarsal.
Hvernig dettur mönnum annað
eins í hug? Varla er hægt að hugsa
sér fjarstæðukénndari starfsemi
en bamaheimili í þessu húsi. Húsið
tveggja til þriggja hæða, gluggar
svo hátt á veggjum að lítil börn
sjá ekki út, stigar brattir og vara-
samir, lítil herbergi, og fleira
mætti telja. Og svo er það kostnað-
urinn. Húsið er keypt fyrir nærri
20 milljónir króna, en síðan er
ætlunin að bæta öðru eins við til
breytinga og aðlögunar. Um 40
milljóna króna barnaheimili fyrir
40 börn!
Reykjavíkurborg hefur nú ný-
verið í þriðja sinn leitað eftir hug-
myndum um uppdrætti að gerð
dagvistarheimilis fyrir börn. Enda
er full þörf fyrir sérstaka húsagerð
undir slíka starfsemi. Húsið er alls
ekki nógu gott fyrir barnaheimili,
og það er allt of gott sem myndlist-
arhús, til þess a.ð það megi glatast
því hlutverki. Ég fullyrði, að hægt
væri að byggja mun hentugra hús
undir sömu starfsemi fyrir talsvert
minni fjárhæð en hér er rætt um.
Á þá afsökun, að ekki finnist lóð-
ir, er ekki hægt að fallast.
Menningarborg Evrópu
En lítum á málið frá annarri
hlið. Reykjavík verður ein af menn-
ingarborgum Evrópu um aldamót-
in. Ekki er það leiðinlegt.
En Ásmundarsalur snertir
menningargildi borgarinnar. Þar
sem borgir eru nú einu sinni sam-
safn húsa og manna, byggist orðst-
ír þeirra og aðdráttarafl ekki hvað
síst á fegurð húsanna, gatna og
torga. Með öðrum orðum: Verð-
gildi borgar er að verulegu leyti
falið í byggingarlist hennar.
Hvernig má það vera, að við viljum
eiga menningarborg, en metum
ekki byggingarlist og höfum enga
menningarstefnu gagnvart bygg-
ASMUNDARSALUR.
Varðveitum byggingar-
listaverk okkar, segir
Hróbjartur Hró-
bjartsson, sem hér
skrifar um menningar-
pólitík í Reykjavík.
ingarlist: Nú kunna menn að segja
að hér sé um ýkjur að ræða. Við
metum víst byggingarlist. Auðvit-
að er sitt hvað vel gert, og Reykja-
víkurborg vandar sínar húsbygg-
ingar. En það eru undantekningar.
Til viðbótar ofangreindum dæmum
til staðfestingar menningarleysinu,
eða eigum við að kalla það kæru-
leysi, vil ég leyfa mér að nefna
eftirfarandi:
1. Heimilaðar eru nýbyggihgar í
miðborginni, sögulega hluta
borgarinnar, sem stinga sér út
úr og upp úr húsaröðum og spilla
þannig samræmi og heildar-
mynd.
2. Borgarhverfi, sem hafa sterkan
heildarsvip og samstætt efnisval
eins og Hlíðar og Melar, eru
smám saman að þekjast máln-
ingu í ýmsum litum, óátalið af
byggingarnefnd. Hversu óheppi-
leg slík þróun er fyrir útlit borg-
arinnar, má sjá við Austurvöll,
þar sem eitt hús gegnt Alþingi
hefur nýverið verið málað í mjög
áberandi lit.
Listamennirnir og borgin
En málið hefur fleiri hliðar.
Listamenn eru gjarnan og eiga að
vera stolt borgar okkar og bæja.
Ásmundur og Kjarval, sem gáfu
Ory^jíiskerii heiniilisins.
Tenging viö Öryggisrniðsttl© Islancls
nlhm sóhuln inginn allt árið.
t Jtkallsþjónusta sór|yjíÍHaöra
()ryggisvaröa.
láillkonnö (iryggiskerfi.
Viö lánum þér
orvugiskcrfi og
|)ii greiöir aöcins:
fiöa þii kaupir
Öryggiskcrfi og
crciöir aöcins:
tr 533-2400
ö /00 kr. a inánuöi. 2502 kr. a inánuöi.
Reykjavíkurborg stórar gjafir, eru
orðnir hluti af borginni, eins konar
sögulegir borgarlistamenn. Gerður
er bæjarlistamaður Kópavogs.
Sveinn og Eiríkur eru bæjarlista-
menn Hafnarfjarðar, og svo mætti
áfram telja.
En hvað gerir borgin okkar í
dag? Er svona erfitt að átta sig á
kalli tímans? Erró gaf okkur ómet-
anleg listaverk. Verður þeirri gjöf
mætt með sóma?
Leifur Breiðfjörð er einn ástsæl-
asti og mikilvirkasti myndlistar-
maður okkar í dag. Hann, Reykvík-
ingur í húð og hár, hefur auðgað
mannlífið og styrkt okkur sem
menningarþjóð með stórkostlegum
verkum sínum. Hann hafði ásamt
konu sinni, Sigríði Jóhannsdóttur
veflistakonu, uppi áform um að
koma sér fyrir í menningarsetrinu
Ásmundarsal, í fullu samræmi við
upprunalegt hlutverk hússins, þar
sem þau gætu búið og haldið áfram
að auka hróður borgarinnar. Þá
stekkur Reykjavíkurborg til, sveit-
arfélagið okkar, og yfirbýður hann,
til að geta breytt húsinu í barna-
heimili.
Hvað er að gerast? Hverskonar
menningarpólitík er þetta? Borgin
okkar, sem ætti að styðja og
styrkja listamennina, snýr öllu við.
Leifur og Sigríður eru að leita að
lóð eða athvarfi í öðru sveitarfé-
lagi. Þetta er ekki hægt.
Menningarstefna
Nú verður að snúa til baka, og
taka upp menningarstefnu. Gerum
Reykjavík að raunverulegri menn-
ingarborg. Styðjum listamennina í
borginni. Varðveitum þau bygg-
ingarlistaverk, sem við eigum.
Stuðlum að bættri hönnun og kom-
um í veg fyrir menningarfúsk í
nýbyggingum, bæði í nýjum hverf-
um og gömlum. Byggjum barna-
heimilishús fyrir börnin. Listamað-
urinn verði beðinn afsökunar og
boðinn Ásmundarsalur á sann-
gjörnu verði.
Höfundur er arkitekt.
Medisaná&^
B
uxur sem veita nudd og
vinna á appelsínuhúð og
_____staðbundinni fitu.
Kynning föstudaginn
1. desember
frá kl. 14.00-1 8.
Grafaruogsapótek
Huerafi