Morgunblaðið - 30.11.1995, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995
MINNIIUGAR
UNLIMITED
Við eigum afmæli
GUÐNÝ
FÉIÐRIKSDÓTTIR
Afmælistilboð:
Köflóttar skyrtur
3 litasamsetningar:
1 stk. 2.490.-
2 stk. 2.500.-
Mount kuldaúipur
4.990,-
Cimber
ullarpeysa
Áður 3.590.-
Afmælisverð 2.690.
Opið sunnudag
Kringlan s. 581 1944
Laugavegur 81 s. 5521844
>4- Guðný Frið-
* riksdóttir var
fædd 10. ágúst
1908 að Stóra-Osi í
Miðfirði. Hún lést
26. nóvember síð-
astliðinn á
Hvammstanga.
Guðný var dóttir
hjónanna Ingl-
bjargar Þorvalds-
dóttur Bjarnarson-
ar, prests á Melstað
í Miðfirði, og Frið-
riks Arnbjarnar-
sonar, Bjarnasonar
bónda á Stóra-Ósi.
Guðný giftist árið 1930 Páli
Karlssyni, bónda á Ytra-Bjargi
í Miðfirði, en hann lést árið
1980. Páll Karlsson var sonur
Ingibjargar Jóhannesdóttur á
Auðunnarstöðum og Karls As-
geirs Sigurgeirssopar á Bjargi.
Börn þeirra: Asdís, versl-
unarmaður, sem lést 1990, gift
Sigurði Tryggvasyni, stöðvar-
stjóra á Hvammstanga, en
hann lést 1987; Ingibjörg, tón-
listarkennari, gift Sigurði Ei-
ríkssyni, _ vélvirkja á Hvamms-
tanga; Álfhildur, verkakona,
gift Eggerti Ó.
Levy, skrifstofu-
manni á Hvamms-
tanga; Þorvaldur,
bóndi á Ytra-
Bjargi, sambýlis-
kona Gerður Geirs-
dóttir; Ólöf, tónlist-
arkennari, var gift
Birni Einarssyni,
bónda á Bessastöð-
um, en hann lést
1992; Friðrik, for-
stjóri í Reykjavík,
kvæntur Ólöfu Pét-
ursdóttur, dóm-
stjóra í Hafnar-
firði, og Eggert, bóndi á
Bjargshóli, kvæntur Sigrúnu
Einarsdóttur, kennara á Laug-
arbakka.
Guðný og Páll hófu búskap
á Bjargi og fluttu síðan árið
1938 á nýbýlið Ytra-Bjarg og
bjuggu þar allt til ársins 1975
að þau fluttu búferlum að
Bjargshóli, þar sem Eggert
sonur þeirra býr. Þar bjó
Guðný allt til dauðadags.
Útförin fer fram frá Mel-
staðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 14.
HÚN elsku amma er dáin. Eftir
stutta sjúkrahúslegu sofnaði hún
svefninum langa. Okkur finnast 87
ár langur tími en þegar við hugsum
um ömmu finnst okkur það alltof
stuttur tími. Það er skrítið að hugsa
til þess að amma verði ekki á neðri
hæðinni á Bjargshóli framar.
Amma var stórmerkileg og góð
kona. Þrátt fyrir háan aldur var
hún aldrei hressari en einmitt þegar
nóg var um að vera. Hún naut sín
best með fullt hús af fólki, allir
voru velkomnir og aldrei kom sú
stund að hún hefði ekki tíma til að
taka á móti gestum. Gestrisnari
manneskja fyrirfinnst varla. Það er
varla ofsögum sagt að nánast hver
einasti maður sem kom heim í hlað-
ið á Ytra-Bjargi og síðar Bjargs-
hóli hafi verið drifinn inn í kaffi
og heitar bollur. Ef gestirnir voru
afkomendur hennar er kannski rétt-
ara að segja mjólk og heitar bollur.
Mörg okkar barnabarnanna voru
líka í sveit hjá ömmu og afa á Ytra-
Bjargi. Þar var oft glatt á hjalla
því fjölskyldan var stór og gesta-
gangur mikill. Þó amma væri vinnu-
söm með afbrigðum og félli sjaldan
verk úr hendi, hafði hún nógan tíma
til að sinna okkur smáfólkinu. Hún
gerði hins vegar þær kröfur til okk-
ar að við hlýddum henni skilyrðis-
laust, en tókst að gera það þannig,
að við tókum ekkert eftir því. Mað-
ur gegndi bara ömmu. Hún hældi
sér hins vegar aldrei af því að vera
þolinmóð. Henni féll betur að láta
verkin tala og þegar ákvörðun hafði
verið tekin var eins gott að koma
henni í framkvæmd, ef amma átti
að vera ánægð. Hún gerði þó lang-
mestar kröfur til sjálfrar sín og
sjaldan tókst nokkrum að komast
á fætur á undan henni. Oft var hún
jafnframt síðust í rúmið á kvöldin,
en hún „fleygði sér“ af og til um
miðjan daginn til þess að safna
orku.
Frændræknin og umhyggja
hennar fyrir vinum og vandamönn-
um var líka mikil. Ófáar ferðirnar
fór hún t.d. á Elliheimilið á
Hvammstanga til að heimsækja vini
sína „gamla fólkið“ en flest af því
fólki var nokkru yngra en hún. Það
var líka merkilegt að fylgjast með
henni þegar hún fór til Reykjavíkur
að „vísitera". Fullfrískt fólk á besta
aldri var dauðuppgefið að fylgja
henni eftir, því hún stoppaði ekki
lengi á hveijum stað, marga þurfti
að hitta. Tíu staðir á þremur tímum
er ekki fjarri lagi!! Við bílstjórarnir,
afkomendur og Jón frændi, vorum
líka hæstánægð með þessar heim-
sóknir því þær urðu til þess að við
hittum ættingja okkar sunnan
heiða.
Líf og yndi ömmu og afa var
söngur og tónlist. í áratugi fóru
söngæfingar einatt fram á heimili
þeirra en þau voru bæði virkir þátt-
takendur í sönglífi sveitarinnar. Þau
létu sig heldur sjaldnast vanta á
söngskemmtanir, tónleika eða aðra
mannfagnaði sem í boði voru.
Amma hélt því áfram allt til hinstu
stundar.
Afborgunarverð kr. 66.500 - Vlsa og Euro raðgrelðslur
fWidrgmMíifoifo
- kjarni málsins!
Tveggja pressu
kæliskápur meö
stóru frystlhólfi
aö neöan.
Kælir: 270 I
Frystir: 110 I
Hæö: 170 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 57 cm
Einnig:
eldunartæki
þvottavélar og
uppþvottavélar
á einstöku veröi
FAGOR C31R
Staögreltt kr.
■■■■
- áeW* #
J
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI: 562 40 11
Við komum öll til með að sakna
elsku ömmu og þökkum fyrir hversu
lengi við höfðum hana með okkur.
Það voru forréttindi að eiga hana
að. Þó hún sé farin mun hún lifa
með okkur í minningunni og yngstu
afkomendurnir munu kynnast henni
í gegnum okkur hin, því ömmu er
ekki hægt að gleyma.
Ég kveð hana fyrir hönd okkar
ömmu- og langömmubarna.
Guðný Sigurðardóttir.
í dag er til moldar borin Guðný
Friðriksdóttir frá Ytra-Bjargi í Mið-
firði. Á kveðjustundu vil ég minn-
ast hennar í fáeinum orðum og
þakka henni allt það góða sem hún
hefur kennt mér á samleið okkar.
Ég á því láni að fagna að hafa
eignast stórbrotna konu sem
tengdamóður. Ég hef oft hugsað
til þess hvert hlutskipti hennar hefði
orðið, ef hún væri ung kona í dag,
enda möguleikar kvenna til mennta
allt aðrir en þegar hún ólst upp.
Tengdamóðir mín var slíkum gáfum
gædd að ég hef hvorki fyrr né síð-
ar kynnst konu sem er jafn fljúg-
andi greind og tengdamóðir mín
var. Það var mjög einkennandi í
fari hennar hversu hvik og létt hún
var. Hraði var að hennar skapi.
Hún þoldi hvorki hik né hangs.
Ekkert verk var látið bíða til morg-
uns sem hægt var að vinna í dag.
Nútíma þjóðfélag með öllum sínum
hraða átti því vel við hana alveg
til hins síðasta.
Guðný var höfðingi, slík var
framkoma hennar og viðmót allt.
Það var reisn yfir henni þannig að
eftir henni var tekið á mannamót-
um. Hún var kjarkmikil og skapföst
og ekki voru þeir öfundsverðir er
gerðu á hlut þeirra, er henni voru
kærir. En jafnframt var hún hinn
mesti æringi. Við hlógum oft saman
að mörgum uppátækjum, sem hún
rifjaði upp frá yngri árum, t.d. frá
leikæfingum, útreiðartúrum, hey-
skap og jafnvel þegar hún var enn
stelpa í föðurgarði á Stóra-Ósi og
var veiða fisk úti á Miðfirði.
Tengdamóðir mín ólst upp í stórri
fjölskyldu og á gestkvæmu heimili,
dóttir hjónanna Friðriks Arnbjarn-
arsonar og Ingibjargar Þorvalds-
dóttur á Stóra-Ósi í Miðfirði. Sjálf
eignaðist hún sjö börn og var heim-
ili tengdaforeldra minna jafnframt
mjög gestkvæmt. Oft voru þau beð-
in fyrir börn til skemmri eða lengri
dvalar. Því fylgdi vitanlega aukið
vinnuálag, en Guðný var hamhleypa
til verka og allt virtist þetta reyn-
ast henni svo létt. Hún hafði ung
farið suður til Reykjavíkur og lært
sauma. Náði hún mjög góðu valdi
á þeirri iðju og saumaði lengi öll
föt á barnaskarann og á eiginmann
sinn. Ef til vill hefur í þá daga
þótt sjálfsagt að húsmæður sinntu
þessu hlutverki og ekki þótt í frá-
sögur færandi, en athyglisvert var,
hversu fljót og vandvirk hún var.
Karlmannaföt voru eins og klæð-
skerasaumuð.
Á heimili tengdaforeldra minna
kynntist ég af eigin raun íslenskri
bændamenningu. Þau lásu bæði
mikið. íslendingasögurnar gjör-
þekktu þau og voru víðlesin í skáld-
skap, jafnt bundnu sem óbundnu
máli. Guðný átti alveg sérstaklega
létt með að læra og muna kveðskap
og flutti hann jafnframt vel. Stund-
um tók hún sig til og fór með þulur
og kvæði sem hún hafði lært, en
okkur entist aldrei tími til að hlusta
á allt það sem hún kunni, þótt við
gæfum okkur stundum rúman tíma
á vetrarkvöldum. Hún virtist alls
ekki gleyma því sem hún hafði ein-
hvern tíma heyrt.
Eitt var það öðru fremur sem var
einkennandi fyrir heimili tengdafor-
eldra minna. Það var tónlistin.
Tengdafaðir minn var organisti
safnaðarins um áratuga skeið.
Bæði sungu þau og hafði Guðný
bjartan sópran. Mér er mjög minnis-
stætt þegar ég kom fyrst í heim-
sókn til tengdaforeldra minna með
foreldrum mfnum. Fjölskyldan öll á
Ytra-Bjargi og Bjargi kom saman
um kvöldið í stofunni á Ytra-
Bjargi. Gera átti sér glaðan dag og
taka lagið. Tengdafaðir minn settist