Morgunblaðið - 30.11.1995, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995 51
MINNINGAR
FRÉTTIR
Jólahald að gömlum
sið á Arbæjarsafni
Ég vil þakka þér fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig. Ég mun aldrei
gleyma þér.
Margt er það, margt er það,
sem mmningarnar vekur
en þær eru það eina
sem enginn frá mér tekur
(Davíð Stefánsson.)
Þín tengdadóttir,
Sveinbjörg.
Þegar ég var lítil sagði afi alltaf:
„Má ég eiga löppina?" Þá sagði ég:
„Þú mátt bara eiga eina. Ég á hina.“
Oft sagði hann líka: „Hver er mesta
títlan i bænum?“ Þá svaraði ég: „Ég
er mesta títlan í bænum.“
Ef afi og amma voru í heimsókn
þegar ég kom inn á kvöldin, ísköld
á höndunum, þá hitaði hann mér
með stóru höndunum sínum.
Afi var alltaf svo góður við okk-
ur systkinin. Við eigum eftir að
sakna þess á kvöldin, þá hringdi
hann svo oft í okkur til þess að
vita hvað við værum að gera og
hvort við hefðum það ekki gott.
Ég vil þakka þér fyrir allt, elsku
afi minn.
Berta Björk.
Mig langar að minnast elskulegs
mágs míns, Engilberts Eggertsson-
ar, nokkrum orðum nú þegar hann
er allur. Hann fæddist 14. nóvem-
ber 1928 á Kolviðarhóli í Ölfusi sem
þá var fjölsóttur áningarstaður
þeirra sem fóru austur yfir Hellis-
heiði. Móðuramma hans Valgerður
Þórðardóttir átti þá staðinn ásamt
manni sínum Sigurði Daníelssyni.
Foreldrar Engilberts, Guðríður
Gunnlaugsdóttir og Eggert Engil-
bertsson þjuggu þá á Kolviðarhóli
og þar til þau fluttu til Hveragerðis
1937. Eftir stríðslokin lá leið Engil-
berts til Reykjavíkur að læra járn-
smíði og síðan í vélstjóranám. Hann
lærði í Stálsmiðjunni og vann þar
lengst af, eða þar til hann fór að
vinna hjá Björgun hf. Hann var
verkstjóri í Björgun þar til hann
varð að hætta sökum hjartasjúk-
dóms fyrir fáum árum. Fyrir tæpum
tveimur árum veiktist hann svo af
blóðsjúkdómi sem dró hann til
dauða. Engilbert átti fjögur börn.
Hafdísi og Kristján Eggert frá fyrra
hjónabandi, og Björk og Örn með
eftirlifandi konu sinni Þórunni Böð-
varsdóttur. Þau giftust 22. október
1960. Barnabörnin eru orðinn átta
og eitt barnabarnabarn.
Lengi vel mátti sjá rústir af litlum
kofa undir Hamrinum í Hvera-
gerði. Þar áttu tveir piltar lítið kan-
ínubú sem mér fannst mikið ævin-
týri að skoða, þá varla meira en
fimm ára stelpuhnáta. Og mikil var
sorgin þegar minkurinn drap allar
kanínurnar. Annar piltanna var
Svanur bróðir minn en hinn var
Elli á Sunnuhvoli, eins og hann var
kallaður þá. Hann átti síðar eftir
að verða mágur minn og vinur. Ég
kynntist honum ekki svo mjög náið
fyrr en þeir bræður Jón og Engil-
bert fóru að gera upp sitt gamla
heimili, Sunnuhvolinn í Hveragerði,
eftir lát foreldra sinna 1981. Má
segja að hverja helgi í heilt ár fóru
þeir austur í Hveragerði til að vinna
í húsinu. Þeir rifu allt innan úr
húsinu og gerðu það upp. Alltaf
mátti bæta og gera meira. Þá sá
ég hvað Elli var duglegur og vinnu-
samur. Ég man ekki eftir að hann
færi austur án þess að vera eitt-
hvað að ditta að og laga. Það lék
líka allt í höndunum á honum. Oft
undraðist ég hvað hann var lag-
hentur eins stórhentur og hann
var. Hann kallaði þær fæðingar-
hendur og hló eins og honum var
einum lagið. Glettni og hnittnum
tilsvörum átti hann alltaf nóg af.
Það var alltaf fjör og kátína í kring-
um Engilbert. liann var ómissandi
með nikkuna sína á ijölskylduhátíð-
unum okkar á Sunnuhvoli, þegar
bræðurnir, makar og niðjar komu
saman einu sinni á sumri. Hann lét
sig ekki vanta í sumar sem leið þó
fársjúkur væri. Nú er skarð fyrir
skildi er stolt ættarinnar, eins og
við kölluðum hann, og sannarlega
var hann það, er fallið frá. Ég minn-
ist veiðitúranna okkar skemmtilegu
upp í Stóru-Laxá með Ella í farar-
broddi. Elli var okkar sérfræðingur
í Stóru-Laxá. Hann virtist geta
veitt hvar sem var í gljúfrunum,
ekki endilega á hefðbundnum veiði-
stöðum. Það er yndislegt að eiga
þessar minningar nú, því margar
voru sögurnar, ævintýrin og hlátur-
stundirnar.
Elsku Tóta mín. Þetta eru búnir
að vera erfiðir mánuðir hjá þér og
þínum. Við Jón sendum þér og börn-
um innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Engilberts Egg-
ertsonar.
Inga Dóra Jóhannesdóttir.
Fréttin um andlát Engilberts
Eggertssonar kom mér ekki á óvart.
Ég hef alltaf haldið sambandi við
Ella, eftir að vegir skildu í Stál-
smiðjunni. Og þegar ég sá hann
síðast brá mér illilega. Þessi lífs-
glaði og þróttmikli myndarmaður
hafði orðið að gefa eftir fyrir óvinin-
um mikla, hvítblæði.
Þegar ég kom suður hingað og
hóf vinnu í Stálsmiðjunni hf. var
Engilbert nýlega orðinn yfirverk-
stjóri, hafði þá lokið námi í Vélskól-
anum. Hann byijaði að vinna i
Gufunesi við uppsetningu á vélbún-
aði í Áburðarverksmiðjunni sem var
verið að reisa þar. Engilbert lærði
í Stálsmiðjunni og þar vantaði nú
yfirverkstjóra. Jón Sigurðsson var
þar verkstjóri og seinna kom Sigur-
jón Jónsson. Þessir ágætu menn eru
nú allir komnir til feðranna, á æðra '
stig, sem við allir förum á.
Við áttum margar ánægjustundir
og stundum erfiðar saman í smiðj-
unni. Verkefnin voru mörg og
breytileg og andinn var mjög góður
bæði í vinnu og leik þrátt fyrir oft
erfiðar aðstæður. Þessir dagar
koma ekki aftur, en í minningunni
skipa þeir veglegan sess. Þegar vin-
ir og félagar á þessum aldri verða
fyrir svona árásum, eins og Engil-
bert, fyrir nokkrum árum æða-
þrengsli og hjartaskurður, svo núna
hvítblæði, sem sló hann niður, dett-
ur manni í hug: Hver er meiningin,
hver stjórnar? En aðrir halda fullri
heilsu fram yfir áttrætt og vinna
hvern dag, eins og einn kunningi
minn, sem var að deyja og dó við
vinnuborðið. Lífsgátan er erfið og
verður aldrei leyst.
Þegar ég kom inn í þetta Stál-
smiðjugengi 1958 var það að mínu
mati allfjölskrúðugt lið, kannski
ekki mjög fínlegt, en umfram allt
öflugt og tókst á við verkefnin með
þá hugsun í fyrirrúmi, að ef verkið
er unnið í Stálsmiðjunni er það
fyrsti flokkur.
Þig, Elli Sæm. (smiðjumállýska),
tel ég alltaf til þessa hóps, þó að
þú yfirgæfir okkur of snemma, og
nú er ekki eftir af þessum hópi hér
í smiðju nema rúmlega í bridslið,
en það er gott lið. Sárast er þó
fyrir eftirlifandi konu og börn að
sjá eftir svo góðum dreng og tek
ég þátt í sorg þeirra.
Ég þekki ekki mikið til ættar
þinnar, en ömmu þína, frú Valgerði
Þórðardóttur, gestgjafa á Kolviðar-
hóli, þekki ég aðeins af afspurn og
hef lesið bókina Saga Kolviðarhóls.
Hún var gift Sigurði Davíðssyni
gestgjafa. Þau eignuðust aldrei
börn saman. Þessi ágætu hjón sátu
staðinn í tæp 40 ár og gerðu hann
að glæsilegasta greiðastað landsins
á árunum fyrir bílaöldina, þegar
ekki voru vegir og íslenski hesturinn
bar og dró menn og varning um
sveitir lands og fjallvegi.
„Nú er hún Snorrabúð stekkur."
Það á við um Kolviðarhól, í dag,
en það er ekki sök þeirra hjóna
Valgerðar og Sigurðar, þeirra ævi-
starf var stórkostlegt og eftirminni-
legt þeim sem áhuga hafa. Þau
reistu skála yfir þvera þjóðbraut
og veittu þar hveijum vegfaranda
aðhlynningu og beina.
Sagt var um þessa ágætu konu:
„Hún bognaði ekki, en brotnaði í
bylnum stóra seinast.“ Geri ég þessi
orð að mínum til þín, Engilbert. Þú
skilur líka eftir spor, kannski ekki
eins stór, en minningin um góðan
dreng lifir lengi.
Jóhann Indriðason.
ÁRLEG og hefðbundin jólasýning
á Árbæjarsafni verður opnuð
sunnudaginn 3. desember. Opnun-
artími er frá kl. 13 til 17. Margt
er um að vera og ber fyrst að nefna
hina hátíðlegu aðventumessu í
gömlu kirkjunni kl. 14, sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson messar.
Um kl. 15 verður kveikt á jólatré
á Torginu og Guðrún Jónsdóttir,
formaður menningarmálanefndar,
býður gesti velkomna við það táeki-
færi. Kór Ártúnsskóla syngur jóla-
lög og dansað verður í kringum
jólatréð við harmoníkuleik. Grýla
og Leppalúði verða á svæðinu og
láta ljós sitt skína.
Samhliða þessu er verið að sinna
ýmiss konar jólaundirbúningi. í
Árbænum gamla er laufabrauða-
skurður og bakstur og gestum boð-
Laufa-
brauðsgerð í
Gjábakka
ÞAÐ ER að verða fastur liður í
starfi eldri borgara í Kópavogi að
koma saman ásamt fjölskyldum
sínum einn dag á ári í byijun að-
ventu til þess að skera og steikja
laufabrauðskökur.
Laugardaginn 2. desember
verður laufabrauðsdagur í Gjá-
bakka, félags- og tómstundamið-
stöð eldri borgara i Fannborg 8.
í fyrra var reynt að skapa aðventu-
stemmningu í Gjábakka á laufa-
brauðsdeginum sem mæltist vel
fyrir. Kór aldraðra í Gerðubergi
heimsótti þá Gjábakka auk þess
sem kór aldraðra í Kópavogi söng.
Nú hefur verið ákveðið að laufa-
brauðsgerð eldri borgara fari fram
við tónaflóð líkt og í fyrra. Þeir
kórar sem syngja í Gjábakka laug-
ardaginn 2. desember verða Sam-
kór Kópavogs, Kór Eimskipafé-
lagsins og Kór Kársnesskóla. Hús-
ið verður opnað og laufabrauðs-
gerðin hefst kl. 13 en kórarnir
byija að syngja kl. 14. Allir eru
velkomnir svo lengi sem húsrúm
og aðstæður leyfa. Vöfflukaffi
verður selt í Gjábakka.
SKÍFAN hf. og íslandsdeild Am-
nesty International hafa tekið
höndum saman um að vekja at-
hygli á stjórnmálaástandinu í
Burma (sem nú nefnist Myanmar)
og örlögum frelsishetjunnar Aung
San Suu Kyi sem fyrir nokkrum
árum hlaut friðarverðlaun Nóbels
fyrir friðsama andstöðu sina gegn
ógnarstjórn hersins í landinu. Til-
efnið er frumsýning nýjustu kvik-
myndar leikstjórans John Boorman
sem nefnist „Beyond Rangoon“ í
Regnboganum í dag, fimmtudag-
inn 30. nóvember.
Enda þótt kvikmyndin „Beyond
Rangoon" sé fyrst og fremst vönd-
uð og vel heppnuð spennumynd er
bagrunnur hennar að mörgu leyti
eftirtektaverður. Myndin gerist á
árinu 1988 þegar Burma rambaði
á barmi borgarastyrjaldar og lýð-
ræðissinnar gerðu sig líklega til
að rísa upp gegn langvarandi undi-
'rokun herstjórnar landsins. I farar-
broddi lýðræðisaflanna var bar-
áttukonan Aung San Suu Kyi sem
enn getur ekki um fijálst höfuð
strokið enda þótt henni hafi verið
sleppt úr áralöngu stofufangelsi í
júlí sl. í orðsendingu sem barst frá
henni 14. júlí sagði m.a.: „Mér
hefur verið sleppt úr haldi, það er
ið að bragða á. Á baðstofuloftinu
er jólatréð lyngi vafið og heimilis-
fólk situr við tóvinnu og skógerð.
Einnig verða tólgarkerti steypt.
Í Hábæ er hangikjöt soðið á kola-
eldavélinni og gestum boðið að
bragða ásamt flatkökum og rúg-
brauði.
í Suðurgötu 7 má sjá hvernig
Reykjavíkurfjölskylda af betri ætt-
um hafði það um jólin í aldarbyijun.
Krambúðin selur dýrindis jóla-
varning og Félagsmiðstöð eldri
borgara í Gerðubergi verður með
jólabasar.
í Dillonhúsi er svo hægt að hlýja
sér og hvíla lúin bein yfir súkkulaði-
bolla og ljúffengum veitingum.
Loks verða sleðaferðir um svæðið
sunnudaginn 10. og 17. desember
þ.e. ef sleðafæri verður en verið er
Upplestur í
Stúdentakjall-
aranum
FÉLÖG íslensku- og bókmennta-
fræðinema í Háskóla Islands standa
fyrir upplestri í Stúdentakjallaran-
um klukkan 21:30 í kvöld. Þau sem
koma fram og lesa upp úr verkum
sínum eru Nína Björk Árnadóttir,
Friðrik Erlingsson, Ágúst Borgþór
Sverrisson, Haraldur Jónsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir og Börkur
Gunnarsson. Aðgangur er ókeypis.
Ráðstefna um
Höfðabakkabrú
Verkefnastjórnunarfélag íslands
mun halda ráðstefnu um stjóniun
framkvæmda við byggingu mis-
lægra gatnamóta Vesturlandsvegar
og Höfðabakka. Ráðstefnan verður
haldin í húsnæði Verkfræðingafé-
lags íslands fimmtudaginn 30. nóv-
ember og stendur frá kl. 15.30 til
19. Allir velkomnir á ráðstefnuna
en ráðstefnugjald er 1.000 kr.
Verkefnastjórnunarfélag íslands
er félag áhugamanna um verkefna-
stjórnun (Project Management) og
er aðili að hinum alþjóðlegu samtök-
um verkefnastjórnunarfélaga IPMA
allt og sumt. Ekkert annað hefur
breyst. ... Andrúmsloftið í Burma
er þrungið ógn. Allir hræðast ná-
ungann og óttast uppljóstrara."
Níu-sýning Regnbogans á föstu-
dagskvöld verður tileinkað sam-
viskufanganum Ma Thida. Gefst
að smíða hestasleða að gamalli fyr-
irmynd og er ætlunin að prófa grip-
inn ef snjóar.
Aðgangseyrir er 300 kr. fyrir
fullorðna, ókeypis fyrir börn og eldri
borgara.
og alþjóðlegum samtökum um
kostnaðarfræði ICEC. Félagið vill
stuðla að því að aðferðarfræði verk-
efnastjórnunar verði beitt við verk-
efni á sem flestum sviðum þjóðlífs-
ins.
Verkefni er skilgreint sem hver
sú framkvæmd sem hefur upphaf
og endi og gildi þá einu hversu stór
hún er. Um getur verið að ræða
leit að týndri ijúpnaskyttur, bygg-
ingu raforkuvers eða endurnýjun
aðalvélar í frystitogara svo eitthvað
sé nefnt. Félagið er öllum opið.
■ KVENFÉLAGASAMBAND ís-
lands heldur sitt árlega jólakaffi
föstudaginn 1. desember kl. 16 í
sal Hallveigarstaða. Eins og undan-
farin ár er boðið fyrrverandi og
núverandi stjórnarkonum, starfs-
fólki og þeim aðilum sem Kvenfé-
lagasambandið hefur unnið með á
árinu. Forseti KÍ mun gefa yfirlit
yfir starfsemina á árinu og það
helsta sem framundan er.
■ GLERBLÁSTURSVERK-
STÆÐIÐ í Bergvík, Kjalarnesi,
heldur jólasölu á útlitsgölluðu gleri
(II sortering) helgina 2. og 3. des-
ember. Á boðstólum verða kaffi og
piparkökur og e.t.v. gefst færi á
að sjá glerblástur/mótun. Verk-
stæðið hefur verið stækkað þannig
að rýmra er um gesti en áður. Gall-
eríið er opið. Opið verður laugardag
kl. 10-17 og sunnudag 10-15.
gestum kostur á að undirrita
áskorun til stjórnherra í Myanmar
um að hún verði látin laus og að
mannréttindi verði virt í landinu.
Þá mun hluti aðgangseyris á sýn-
inguna renna til starfsemi íslands-
deildar AI.
Fyrirlestur um
kirkjuleg örnefni
NÚ nálgast óðum þúsund ára
afmæli kristnitöku á íslandi,
einhverra mestu umskipta sem
orðið hafa í íslenskri þjóðarsögu.
Rómversk-kaþólskur siður ríkti
hér á landi í hálfa sjöttu öld, en
á afmælisárinu 2000 mun lút-
herskur siður hafa staðið í hálfa
fimmtu öld.
Á þessum tímamótum beinist
hugur manna að menningararfi
kristninnar. Einn þáttur hans
er kirkjuleg örnefni en þau eru
sjálfsögðu flest frá kaþólskri tíð.
Úm þau mun Þórhallur Vil-
mundarson, prófessor, forstöðu-
maður Örnefnastofnunar Þjóð-
minjaafns, fjalla í tveimur fyrir-
lestrum í Háskólabíói: á Báru-
messu mánudaginn 4. desember
og á Nikulásmessu miðvikudag-
inn 6. desember kl. 17.15 (í sal
2).
Sýndir verða margir upp-
drættir ásamt myndum til skýr-
ingar. Efni fyrirlestranna ætti
ekki aðeins að höfða til þeirra
sem áhuga hafa á íslenskri
kirkjusögu heldur einnig menn-
ingarsögu almennt, byggða-
sögu, fornminjum, bókmennt-
um, náttúru landsins, ferðalög-
um og útivist. Öllum er heimill
aðgangur.
Mannréttindi í Burma og frumsýning
kvikmyndarinnar „Beyond Rangoon“