Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 9 FRÉTTIR Rússar hyggja á olíu- og gasvinnslu í Barentshafi Lýsa jafnframt áhyggjum af Smuguveiðum Islendinga RÚSSAR hafa uppi áætlanir um að hefja gas- og olíuvinnslu í Barents- hafí þar sem fundist hafa auðugar lindir á hafsbotni. Anatolí Malínín, fyrsti aðstoðarhéraðsstjóri í Mur- mansk, segir að ákveðið hafí verið að hefjast handa árið 2000. Margt er þó óljóst enn um þessar áætlanir. Pavel A. Sasjínov, forseti dúmunnar í Múrmansk, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekkert hefði enn verið ákveðið þar sem enn ætti eftir að rannsaka áhrif slíkrar vinnslu á lífríki sjávar. Þá lýsti Sasjínov yfír miklum áhyggjum af veiðum íslend- inga í Smugunni og hvatti eindregið til þess að reynt yrði að ná sarnkomu- lagi Rússa, Norðmanna og íslend- inga um veiðamar. Sturla Böðvarsson alþingismaður á sæti í Nærsvæðanefnd Norður- landaráðs, sem var á ferð í Mur- mansk í síðustu viku. Spurði Sturla Sasjínov um veiðar íslendinga í Bar- entshafí og segir það hafa komið sér nokkuð á óvart hversu miklar áhyggjur Sasjínov virt- ist hafa af þessum veið- um og hversu harður hann var í afstöðu sinni til þess að eitthvað yrði að gert. „Hann kvaðst vona að heimsókn eins og sú sem ég var í myndi opna augu okkar fyrir því hvers vegna þeir hefðu áhyggjur af þessum veiðum,“ segir Sturla. Gullnáma ef af verður Þar sem Rússar hafa ekki þá tækniþekk- ingu, sem þarf til olíu- og gasvinnslunnar við þær aðstæð- ur, sem eru fyrir hendi í Barents- hafi, verður gengið til samstarfs við útlend fyrirtæki en þau verða að tryggja að Rússar fái helming ágóð- ans af olíuvinnslunni. Sasjínov sagði að hins vegar væri ekki fullrannsak- að hvaða áhrif olíu- og gasvinnsla hefði á fiski- stofna í Barentshafi. Það yrði að gera áður en hafist yrði handa enda ættu íbúar Múr- mansk gífurlegra hags- muna að gæta í veiðum og vinnslu. „Við munum kanna hvort öruggara og hag- kvæmara sé að flyija olíu- og gas með tank- skipum eða dæla elds- neytinu eftir leiðslum neðansjávar. Þá þarf ennfremur að kanna hvaða áhrif’ hávaðinn af slíkri vinnslu hefur á fískistofna. En olíu- og gasauðlind- irnar í Barentshafí eru gullnáma sem myndi breyta mjög miklu fyrir Rússa, ekki aðeins í Múrmansk held- ur í öllu landinu. Sjáðu bara Norð- menn, við myndum geta lifað flott eins og þeir.“ Pavel A. Sasjínov Aðalfundur samtaka ungra íhaldsmanna á Norðurlöndum íslendingur varaforseti Á SÍÐASTA aðalfundi Samtaka ungra íhaldsmanna á Norðurlöndum (NUU) var Siguijón Pálsson kjörinn varafor- seti samtakanna. Auk venjulegra að- alfundastarfa voru umhverfismál til umræðu. Sigurjón, sem stundar framhalds- nám í byggingaverkfræði í Svíþjóð, segir að auk aðalfunda hittist fram- kvæmdastjórnin oftast þrisvar á ári. Eitt aðalverkefni stjórnarinnar er að auka tengslin við Eystrasaltsríkin sem nú eiga aukaaðild. Hann segir fulltrúa NUU hafa far- ið í kynnisferðir til Eystrasaltsland- anna og reyna eigi að auka þessi sam- skipti frekar. Siguijón segir að sem varaforseti NUU gefist honum einnig tækifæri til að sitja ýmsa fundi og ráðstefnur í öðrum Evrópulöndum og að búseta hans í Svíþjóð þessi árin auðveldi honum að fylgjast vel með starfi ungra íhaldsmanna þar í landi. SIGURJÓN Pálsson, varaforseti Samtaka ungra íhaldsmanna á Norðurlöndum, lengst til vinstri og Finnarnir Kalle Euro forseti og Jukka Tahvanainen framkvæmdastjóri. Fæturnir eru grunnur að vellíðan okkar! arav Fítness Loftbólstraður sóli frá tábergi að hæl Táj>rip sem örvar blóðrásina heilsuskór stuðla að heilbrigðu og óþreyttu baki Laut fyrir hæl sem veitir stuðning Stamur innsóli Microcellu sóli, sem dregur úr þreytu og virkar dempandi. Ilstuðningur sem hvílir Ekta korkblanda (einangrar) STEINAR WÁAGE SKÓVERSLUN nnMiis MFnira s, krinri iinni 5% staögreiðsluafsláttur • Póstsendum samdœgurs! Steinar Waage, Domus medica, sími 551 8519 • Steinar Waage, Kringlunni, sími 568 9212 Lokun Mosavegar við Skólaveg Breyting á akstri SVR í viku VEGNA gatnaframkvæmda verður gatnamótum Mosavegar og Skólavegar í Grafarvogs- hverfi lokað frá og með fimmtu- deginum 7. ágúst. Ráðgert er að lokunin standi í vikutíma. Lokunin hefur áhrif á aksturs- leiðir vagna á leiðum 14 og 115. Leið 14 mun aka Mosaveg til hægri - Víkurveg - Borgarveg - Gullengi að Skólaengi og til baka - Langarima. Leið 115 mun aka Gullengi að Skólavegi og til baka - Borgarveg - Víkur- veg. Vagnar munu stansa á öllum viðkomustöðum sem eru á nýrri akstursleið. Breytingin er tímabundin og munu vagnar aka hefðbundna leið um leið og Mosavegur verð- ur opnaður fyrir umferð á ný. EDENBORG Kjörgarði, Laugavegi Dömur - Ný sending af blússum, peysum og vestum. Herrar - Terelinebuxurnar komnar aftur. Stelpur - Spice Cirls bolir, pils og buxur. Strákar - Iþróttabúningarnir komnir. Gólfmottur í úrvali frá kr. 1.700. Chippendale mahogny húsgögn 4i m 43tofnnö 19T4 munit Chippendale mahogny húsgögn Nýkomnar vörur Antik munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977 ÚTSALA HEFST Á MORGUN B O G N E R sérverslun v/Óðinstorg, sími 552 5177 TILBOÐSDAOAR 5.-9. ágúst afsláttur af öllum vörufh LEÐURIÐJAN ehf. Laugavegur 15, sími 561 3060 odtson c
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.