Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ 4 AÐSENDAR QREINAR Forsetaför með eftirköstum HIN óvenjulega ferð Ólafs Ragn- ars Grímssonar til Bandaríkjanna, hvorki var opinber né óopinber og því síður „incognito", sem merkir „óþekktur maður“ á ferð, - er með eftirköstum. Boðinn til Gimlis - fór til Bandaríkj anna Það er kunnugt að forseta íslands var boðið að vera gestur „íslend- ingadagsins á Gimli“ 4. ágúst þ.á. Hann fór 21. þ.m. til Washington. Frést hefur, að bandarískur þing- maður hafi í samstarfi við forseta- skrifstofuna við Sóleyjargötu og sendiráð Bandaríkjanna hér, fengið forsetann til Washington svo Bandaríkjaforseti og Islandsforseti gætu hist. Ekki er vitað hver átti hugmyndina. Utanríkisráðuneytið kom ekki nærri hinu fyrirhugaða stefnumóti forsetanna, þrátt fyrir ákvæði í 14. gr. auglýsingar um staðfest. forseta íslands á reglug. um Stjómarráðið, nr. 96/1969, bls. 219 í Lagasafninu, þar segir: „Utan- ríkisráðuneytið fer með mál er varða: 1. Skipti forseta Islands og annarra þjóðhöfðingja." Utanríkis- ráðherra hefur kvatt forsetann fyrir sig strax eftir heimkomu hans, frá Kanada, 12. ágúst nk. vegna orða hans á blaðamannafundi í Washing- ton. Trúlega býr fleira undir. Ferðamáti Sveins Björnssonar forseta Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, fór í örfáar utanlands- ferðir á árum mínum í þjónustu hans, m.a. tvisvar til hins fræga baðstaðar „Bognor Regis“ í Sussex á Ermarsundsströnd Englands og í nokkur skipti utan til lækninga. Eins og vera bar, til- kynnti utanríkisráðu- neytið stjórnvöldum í hlutaðeigandi löndum um ferðir forsetans í því skyni að hann fengi, i kyrrþey, sömu móttökur sem væri hann í opinberri heim- sókn, þó hann væri „incognito". „Opinberar heim- sóknir“ eru skipulagð- ar af hlutaðeigandi utanríkisráðuneytum, fyrirfram. Það var lærdómsríkt að vinna hjá Sveini Bjömssyni, forseta. Hann var þá sá eini sem að marki kunni á alþjóða samskipti og mótaði utanríkisþjónustuna. Sveinn Bjöms- „Opinberar heimsóknir“ eru skipulagðar, segir Gunnlaugur Þórðar- son, af hlutaðeigandi utanríkisráðuneytum, fyrirfram. son taldi þénugt fyrir alþjóðasamfé- lagið, að forseti gætti þess að fara með gát í ræðum og að forðast bæri blaðamannafundi. Orð gætu misskilist eða kynnu að skoðast sem stefna ríkisstjórnarinnar á hveijum tíma. í fyrstu ræðu Sveins Björns- Ki-tchen/ÍLid Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir 60 ára frábœr reytisla. ffSn Einar Farestveít &Co. hf. Borgartúni 28 TT S62 2901 o£ 562 2900 sonar, sem forseta ís- lands, lagði hann áherslu á þjónustulund og auðmýkt í starfi. Þau orð hafa að ein- hveiju marki fest mér í huga. Undarlegur blaðamanria- fundur forsetans Ætla mætti að það, sem forseta íslands hafi legið á hjarta, hafi honum þótt æskilegast að tjá blaðamönnum milliliðalaust, hafí orðið til þess að hann kom óvænt fram á blaða- mannafundi í „prívatferðinni" í höf- uðborg Bandaríkjanna. Samt er það svo, að við athugun á því, sem fjölm- iðlar hafa birt úr orðum forsetans, finnst ekkert öðru merkara. Aftur á móti er sumt vanhugsað og skal aðeins bent á örfá dæmi. Það var t. d. „diplómatískt“ fráleitt, að snupra Evrópuþjóðir fyrir að reyna að ná samstarfi um fiskveiðar, sem hafa verið langvinnt vandamál. Verra var, að forsetinn skyldi jafna hinum rótgrónu lýðræðisþjóðum Evrópu við „Sovétógnarstjórnina í Moskvu" forðum. Það var ósmekk- legt, að hampa íslendingum sem mestu lýðræðisþjóð heims. Slík full- yrðing stenst ekki, þegar málið er skoðað ofan í kjölinn. Undarlegt að forsetinn skyldi tala eins og nýgræðingur á stjórnmála- sviðinu, sem ekki ætti að baki ára- bila þingsetu og hafa verið prófess- or í stjómmálafræði við félagsvís- indadeild HÍ um ára skeið. Auðvitað hefði hann t.d. þurft að kryfja til mergjar ríkisstyrk í útgerð. Það var fjarstæða, að forsetinn skyldi segja að íslensk útgerð njóti engra ríkis- styrkja. Hvað kallast ríkisstyrkir? Ríkisstyrkir eru ýmist beinir eða óbeinir. Auðvitað er hinn óréttláti, endurgjaldslausi fámenniskvóti, sem örfáir útgerðaraðilar fengu 1983 og síðar, ekkert annað en gefins ríkisstyrkur. Kvótinn gengur nú á 800.000 kr. þorsktonnið. Verð- mæti kvótans samanlagt er talið vera 16-30 milljarðar króna. Þá er skattafrádráttur sjómanna, á sinn hátt, ríkisstyrkur. Til stóð að afnema hann á síðasta þingi, en varð ekki úr. Hann nemur samtals u. þ.b. 1,5 milljarði. 20% fyrning kvótans, forréttindi kvótahafanna, skerða tekjuskatt í ríkissjóð um fleiri hundruð milljónir, ef ekki milljarða, er og ekkert annað en ríkisstyrkur til útgerðarinnar. Nefna mætti að einhveiju marki virð- isaukaskattinn, sem útgerðin sleppur við og em forréttindi hennar. Þó að sjálfur forsetinn eigi hlut að máli, er ekki hægt annað en mótmæla svona „lógik“, fluttri á erlendri gmnd. Það er gert í virð- ingu fyrir forsetaembættinu. Höfundur er hæstarétturlögmaður. Gunnlaugur Þórðarson Full búð af frábærum vörum á enn betra verði hefst í dag £ SPAR SP0RT Verðln voru lágmarksverð, en á útsölunni lágmarks lágmarksverð! TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI NÓATÚNSHÚSINU N Ó A T U N I • S I M I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.