Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ * * •** t Ástkær faðir, sonur, bróðir og frændi, ALBERT ÓSKARSSON rafeindavirki, Hraunbæ 70, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili slnu þriðjudaginn 5. ágúst síðastliðinn. Elfsabet Stefanía Albertsdóttir, Óskar G. Sampsted, Gunnhildur A. Óskarsdóttir, Bryndís Óskarsdóttir, Sigurbjörg Albertsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGDÍS INGIMARSDÓTTIR, Þinghólsbraut 26, Kópavogi, lést á hjartadeild Landspítalans miðvikudaginn 6. ágúst 1997. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna hinnar látnu, Valgeir Friðþjófsson og systkini. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ESTER SVAN JÓNSDÓTTIR, Álfhólsvegi 125, Kópavogi, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnu- daginn 3. ágúst, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Sigurfinnur Ólafsson, Gunnar Sigurfinnson, Una Sveinsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. + Bróðir okkar, SIGURÐUR HANNESSON frá Bjargi, Djúpárhreppi, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, þriðjudaginn 5. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ólafur Hannesson, Ingólfur Hannesson. + Móðir mín, tengdamóðir, sambýliskona og amma, FRIÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Ásgarði 26, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 8. ágúst kl. 13.30. Sigríður Hermannsdóttir, Ómar Jóhannsson, Árni Sigurjónsson og barnabörn. + Móðir mfn, systir, amma og langamma, SIGNÝ GÍSLADÓTTIR frá Þórisdal í Lóni, Víkurbraut 26, Höfn, Hornafirði, sem lést á Skjólgarði fimmtudaginn 31. júlí sl., verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugar- daginn 9. ágúst kl. 14.00. Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurlaug Gísladóttir, Guðmundur Knútsson, Signý Knútsdóttir, Hannes Ingi Jónsson, Kristín Knútsdóttir, Guðmundur Atlason og barnabarnabörn. SOFFÍA VIGFÚSDÓTTIR + Soffía Vigfús- dóttir fæddist á Sauðárkróki 8. júní 1923. Hún andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans 27. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sesselía Stefáns- dóttir Hansen, fædd í Kollugerði í Eyja- firði af Krossaætt. Faðir hennar var Vigfús Magnússon frá Sauðárkróki. Systkini hennar af Hansen-ættinni voru Guðrún, Ingi Arnvid, Borghild Jóhanna, Hans Stefán og Hans von Ahnen, sem öll eru látin. Systir hennar, Marta, er ein eft- ir á lifi og býr í Noregi. Soffía var ógift og barnlaus. Utför Soffíu fer fram frá Fíladelfíu- kirkju í dag, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku Didda mín. Þú varst bænheyrð og fékkst að fara. Bæði sái og iíkami fengu að reyna mikið, sérstaklega síðustu fimm vikurnar sem þú dvaldir á sjúkrahúsinu. Þegar ég fór með þér upp á sjúkrahús datt mér ekki annað í hug en að það væri hægt að lækna þig og þú kæmir heim fljótlega. En þú leist yfir íbúðina og sagðir við mig: „Hvenær ætli ég fái að koma hingað aftur.“ Það fékkst þú ekki og það var gott að þú fékkst að fara en mikið var samt sárt að horfa á þig kveðja. Við erum búnar að eiga margar ánægjustundirnar. Þegar ég var lítil varst þú alltaf tilbúin að segja mér sögur, föndra með mér og ég mátti fara í hárgreiðsluleik við þig og greiða og setja rúllur í þig. Ömmu fannst oft nóg um, en þú bara brost- ir. Árin sem þið amma bjugguð sam- an urðuð þið mjög samrýndar en lengst af bjóst þú ein og kvartaðir ekki. Þú dvaldir oft „í þínu her- bergi“ hjá foreldrum mínum og þér fannst það yndislegt. Þá var aftur farið í hárgreiðsluleikinn nema hvað þá var hárið klippt og sett í það permanett. Þú varst alltaf sótt þegar átti að föndra. Síðustu jól ætluðum við að föndra með börnunum mínum en það endaði með því að við vorum tvær eftir og höfðum mjög gaman af. Þá var skorið út laufabrauð, bak- að til jólanna o.s.frv. Alltaf varst þú tilbúin að koma og alltaf hafðir þú góða skapið með. Aldrei brýndir þú raustina við börnin mín þrjú þótt þau væru fyrirferðarmikil, heldur varst þú ávallt þolinmóð og góð og sagðir þeim sögur til að hafa ofan af fyrir þeim eins og mér þegar ég var lítil. Svo voru það líka sorgarstundirn- ar, sérstaklega meðan þú varst á sjúkrahúsinu, þú varst oft alveg búin að vera og fórst að gráta og sagðir að þú yrðir að fá að gráta svolítið og losa um. Þannig sátum við oft hlið við hlið og þú hallaðir þér að mér og sagðir að þetta hefði þér ekki dotið í hug að ég, litla stúlk- an hennar Borghildar, ætti eftir að reynast þér svona vel. Þessar fimm vikur fór ég daglega til þín og ég fann að þér fannst það gott og þú treystir því að ég kæmi. Þarna kem- ur hjálparkokkurinn minn, sagðir þú og það var byijað á því að bursta tennurnar, skipta um stellingu, bera krem á þig og nudda fæturna og þú sagðist ekkert skilja í því að ég nennti að heimsækja svona gamla kerlingu sem ég þyrfti að hafa svona mikið fyrir. Þá sagði ég að það væri af því að mér þætti svo vænt um hana og þú sagðist vita það. „Drottinn launi þér fyrir,“ sagðir þú oft. Þú varst svo heppin að eiga marga góða vini sem þótti vænt um þig og sér- staklega nefni ég vin- konur þínar, Marianne, Lydíu og Ástu, sem gerðu allt fyrir þig, því þannig varst þú, mann lang- aði að gera alit fyrir þig og ég vildi hafa gert miklu meira fyrir þig. Tengdamóður minni þakka ég fyrir að útbúa kodda sem þú notað- ir og bjargaði miklu. Ég vil þakka foreldrum mínum fyrir að passa börnin mín og manninum mínum fyrir þolinmæðina svo ég gæti farið og verið hjá þér og hjálpað þér eins vel og ég gat. Didda mín, ég þakka þér fyrir allar stundirnar okkar sam- an, þú gafst svo mikið af þér. Ég veit að þú ert á góðum stað núna og líður miklu betur. Guð geymi þig. Þín Guðrún María (Gullý). Elsku Didda mín, ekki datt okkur í hug þegar Gullý fór með þig á Landspítalann 16. júní, lamaða í fótum, að þú kæmir ekki heim til þín aftur. Þetta var hræðilega erfið- ur tími fyrir þig vegna allra þeirra rannsókna sem þú þurftir að fara í. í ljós kom að þú varst komin með krabbamein og ekkert virtist fram- undan nema geisla- og lyíjameðferð- ir. Þær reyndust þér mjög erfiðar en vonin og bjartsýnin gáfu þér mikinn kjark og dugnað. Þú stóðst þig vel í þessar fimm vikur sem þú varst á Landspítalanum, enda dá- samaðir þú lækna og hjúkrunarlið fyrir góða umönnun. Það var trúin á Drottin Guð, sem hjálpaði þér gegnum þessa erfið- leika. Einn af uppáhalds sálmunum þínum var Davíðssálmur nr. 23: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast." Það var þitt lán þegar þú gekkst í söfnuð hvítasunnumanna í Fíladelf- íu því þá eignaðist þú marga yndis- lega vini sem gerðu svo margt fyrir þig og vil ég sérstaklega þakka Marianne og Daniel Glad, Rut og Sam Glad og Ástu og Lydíu. En vinirnir voru miklu fleiri og eiga allt mitt þakklæti skilið því allir reynd- ust þeir henni Diddu minni vel þau ár sem hún bjó í Reykjavík. Didda var ákaflega félagslynd og átti auðvelt með að umgangast fólk. Öll börn höfðu gaman af að hlusta á sögurnar hennar og kenndi hún þeim nokkrum á gítar. Einnig var hún mikil handavinnukona og saum- aði, heklaði og prjónaði fallega dúka sem hún gaf með ánægju og kær- leik. Þegar ég skrifa þessar línur um þig koma upp í huga minn ljúfar minningar að norðan frá því þegar við vorum litlar á Bergsstöðum í Glerárþorpi (sem nú er Akureyri) og unglingar á Akureyri og er ég sérlega þakklát fyrir þessar kæru minningar sem ég á um þig. Ég man hversu ánægjulegt þér þótti að fara TOMJii) mn íid uí um TOMJUA UÖTÍL ÍOK MiIdllJUIIfT • (ííf Upplýsingar í s: 551 1247 [f. 11 Erfidiykkjurw H H H H H H H H H H ÖL Sími 562 0200 H H H H H H H H H £ með mér til Akureyrar í seinni tíð að heimsækja ættingja og vini og þar á meðal var Helga vinkona sem var þér svo kær en nú verða þær ekki fleiri ferðirnar hjá þér norður. Ættingjar og vinir kveðja þig með miklum söknuði. Elsku Didda mín, nú kveðjum við þig í hinsta sinn, hjartans þakkir fyrir allt á liðnum árum. Blessuð sé minningin þín. Þín frænka, Borghild Inger. Elsku Didda mín, þú fórst frá okkur þegar ég átti þess sfst von en hér gefst mér þó tækifæri til þess að kveðja þig. Þú hafðir mikil áhrif á bernsku mína enda eru þær margar ánægjustundirnar sem við áttum saman. Þú hafðir alltaf tíma til þess að stytta lítilli frænku þinni stundirnar, kenndir henni sálma og sagðir henni sögur. Þær voru marg- ar hamingjustundirnar og gleymi ég aldrei hvað við hlógum mikið _af sög- unni um Stein Boilason. Ég var heppin að hafa þig og ömmu Guð- rúnu til þess að passa mig þegar mamma vann langar vaktir. Þín verður sárt saknað af fjölskyldunni og það verða hálf tómleg hátíðar- höldin því þú varst alltaf potturinn og pannan í undirbúningnum. Við vorum góðar í skreytingunum fyrir jólin enda þótti nú mörgum ofgert. Þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og fjölskylduna mína. Þín litla frænka, Helen María. Tímarnir í orðum spekinganna eru margir. Til að fæðast, til að tala, til að þegja, gráta og huggast láta. Hýbýlin hjá Drottni eru einnig mörg. Til að andvarpa, til að hvíla, til að gróa og til að þrauka. Fáir finna veginn þangað þótt margir séu kall- aðir. Þegar Jesús Kristur frelsar, þá tekur hann undir byrðar þess sem þær ber og léttir þeim burðinn. Með hlýjum anda og nýjum rökum. Sá er hlaut þau himinsins atlot varð aldrei samur upp frá því. Hann varð einstakur af þeirri undursamlegu reynslu. Soffía Vigfúsdóttir var ein af þeim sálum sem Guð bar fyrir bijósti. Hann leiddi hana inn í hýbýli sín þegar hún enn var ung. Og Guð uppörvaði hana þar og hughreysti og gerði henni kleift að sættast við tilveru sem ekki var svo auðveld. Og þrátt fyrir hömlur og fjötra, vitn- aði hún, snert af elsku Krists, um reynslu sína af kynnum þeim. Matt- hías Joehumsson óf þessa hugsun í orð af sínum alkunna hagleik: „Guðs-manns líf er sjaldan happ né hrós, heldur tár og blóðug þymirós." Soffía, oftast kölluð Didda, var einn af þeim nýju vinum sem við hjónin eignuðumst þegar Kristur tók okkur að sér. Menn geta valið sér vini. Hún hjálpaði til í sunnudaga- skóla, þangað sem börnin okkar sóttu og leiðbeindi þeim við gítarnám og föndur og uppfræddi um fyrstu skrefin á vegi trúarinnar. Þau skref að taka tillit til annarra og bera umhyggju fyrir þeim. Hún gerðist líka ævifélagi í litlum hópi trúsystra sem hittust reglulega í áratugi til skiptis í heimilum sínum. Var okkar heimili eitt þeirra. Þar ræktuðu þær vináttu sem auðgaði líf þeirra allra, lækkaði hólana og fyllti dalina. Vináttu sem vaxin var af trú á frelsarann Jesúm frá Nasaret. En vinátta er lífsnauðsyn. „Þér eruð vinir rnínir," sagði Jesús við lærisveina sína. Án vináttu og elsku er lífið eyðimörk. Þar á gróður sér enga lífsvon. Vinátta Soffíu og meistarans frá Nasaret var í æðra veldi. Hann bar með henni byrðar sem oft voru þung- ar. Nú er þessum byrðum af henni létt. Guð á himnum hefur valið henni enn ný hýbýli. í þetta sinn til að gróa og til að hvílast, fijáls úr fjötr- um jarðar. Andi hennar horfinn til hans, sem gaf hann. Við kveðjum Soffíu Vigfúsdóttur með söknuði og biðjum góðan Guð að blessa minningu hennar. Óll Ágústsson, Asta Jónsdóttlr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.