Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 32

Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ ----\ WHITTARD Kringlunni sími 568 1223 Ú T S A L A 07.08-17.08 10-80% AFSLÁTTUR ■50% KAFFI - SUMATRA, M0NS00N MALABAR, TE 125 GR FRÁ 100 KR. RAUTT, SVART, JURTATE SUMARTE 125 GR. 200 KR. ■10% BRAGÐBÆTT KAFFI ■> KÖNNUR 6 STK. 900 KR. PRESSUKÖNNUR -20% EXPRESSO KÖNNUR -20% TEKATLAR -20% GULLINBRÚ hefur verið mikið í fréttum síðustu vikumar. Ástæðan er sú að það er orðið nauðsynlegt að huga að því að breikka brúna og vinna að úrbótum á gat- namótunum norðan Grafarvogs. Reykja- víkurborg hefur boðið fram lán að íjárhæð 45 millj. kr. til þessa verks en í heild sinni kostar það um 170 millj. kr. Á þessu ári og því næsta verða stóðiðju- og virkjunarfram- kvæmdir hér á landi. Það veldur þenslu á verktakamarkaði svo að ríkisstjómin tók þá sjálfsögðu ákvörðun að draga úr opinberum framkvæmdum rétt á meðan, sér- staklega á Suðvestur- landi. Á þessu hafði Rey kj avíkurborg skilning og þess vegna varð það að samkomulagi um síð- ustu áramót að ljúka við framkvæmdirnar við Ártúnsbrekku enda frestaði Reykja- víkurborg öðrum framkvæmdum í stað- inn. Þá lá það fyrir að á þessu ári yrði öðrum vegafram- kvæmdum hér á höf- uðborgarsvæðinu ekki flýtt og hefur málið verið í þeirri stöðu þangað til rétt upp á síðkast- ið að forystumenn borgarinnar hafa tekið það mál upp að byijað verði á framkvæmdum við Gullin- brú. Það er óhjákvæmilegt að minna á að fram- kvæmdirnar við Gullin- brú voru ekki á dag- skrá, segir Halldór Blöndal, milli mín og borgarinnar þegar gengið var frá vega- áætlun í maímánuði. Það er óhjákvæmilegt að minna á að framkvæmdimar við Gullin- brú voru ekki á dagskrá milli mín og borgarinnar þegar gengið var frá vegaáætlun í maímánuði. Eg hef tekið eftir því að Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir alþingis- maður er að reyna að breiða sig yfir Gullinbrúna og hefur m.a. komist svo að orði að ég sé að reyna á „lúalegan hátt“ að koma höggi á Reykjavíkurlistann með því að hraða ekki framkvæmdum við Gullibrú. Ég átta mig ekki al- veg á samhenginu, en ég minni á að framlög til vegaframkvæmda í Reykjavík hafa aldrei verið meiri en eftir að ég varð samgönguráð- herra. Þar er ólíku saman að jafna. í öllum kjördæmum landsins og í mörgum byggðarlögum eru vega- framkvæmdir sem orðnar eru mjög knýjandi. Stundum vegna þess að burður er ekki nógur í vegunum, stundum er slysahætta mikil vegna einbreiðra brúa eða blindhæða. Stundum er tenging milli byggðar- laga ófullnægjandi þannig að ekki getur orðið um eðlileg samskipti að ræða, hvorki á sviði atvinnu- mála né þjónustu. Þannig verður það alltaf. Það er aldrei hægt að fara svo hratt í framkvæmdirnar að ekki bíði aðrar sem næstar eru á dagskrá. Og það mun ávallt verða svo að alltaf verður til einhver Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem reynir að slá sér upp á því. Höfundur er samgönguráðherra. __________AÐSEIMDAR GREINAR Auðvitað er Gullin- brú á dagskrá Halldór Blöndal Fyrsti kossinn Er líf eftir verslunar- mannahelgina? MIKIÐ umrót er í blaðaheiminum og fæstir virðast skilja hvað er að gerast. Formenn A-flokkanna sitja langa fundi með Dagsprenti og samningamir snúast um að leggja niður blöð sem örfáir menn í þjófé- laginu vissu að væru til. Hveijum má ekki standa á sama þótt Vikublaðið komi út með vikuskammti af leiðind- um Þjóðviljans sáluga, eins og orðhagur maður sagði forðum? Alþýðublaðið er gefið út í eitt þúsund eintök- um eða svo og til þess fallið að halda nokkrum krötum við efnið svo þeir haldi áfram að vera hlaðnir ergelsi og firru útí allt og alla og boða trúna á fyrirheitna landið í Evrópu. Helgarpósturinn skal líka hverfa, sem öllum að óvörum var í eign og flokksmálgagns Aiþýðubandalags- ins en þjónaði vel því hlutverki að hræða ríka og fina fólkið. Svo gerist það í fréttatíma sjón- varpsstöðvanna að Margrét Frí- mannsdóttir teygir sig á tá og rekur Sighvati Björgvinssyni rembings- koss yfir því að nú hætti öll þessi blöð að koma út. Þau Iáta drýginda- lega bæði tvö, eins og nýtrúlofað par, tala um að tími flokksblaða sé íiðinn en samt liggur i loftinu að A-flokkarnir séu búnir að semja um að ergelsið úr blöðunum þeirra eigi nú að hellast yfir áskrifendur Dags- Tímans. Skötuhjúin lýsa því yfir í DV að þau séu hamingjusöm með samninginn. Lesendur Dags-Tímans verða að sjá þennan samning - er verið að fjötra Dag-Tímann inní Alþýðuflokkinn nýja? Laugavegi 4, sími 551 4473 Ritstjóri Dags-Tímans skrifar harða grein um frelsi blaðsins og minnir á Pétur, hann afneitar þess- um nýju frelsurum sínum. Haninn gól tvisvar og inn um bréfalúguna berst bréf til mín frá Sighvati og Össuri þar sem þeir þakka mér lestur Al- þýðublaðsins og biðja mig líklega sem laumukrata að „fylgj- ast með Degi-Tíman- um og gera hann þann- ig að öflugum arftaka þeirrar útgáfu sem Al- þýðuflokkurinn hefur staðið að til þessa“. Þeir tala eins og Dag- ur-Tíminn muni hafa hamskipti næstu daga, og verða eitthvað allt annað. Æ, æ, bömin mín bæði ung og smá sagði biskupssonurinn frá Hól- um forðum á höggstokknum - ég spyr: Enginn minnist á okkur fram- sóknarmennina sem höfum haldið Degi og Tímanum úti í áttatíu ár. Engan samning höfum við gert við Eru það ekki svik að gefa A-flokkunum, spyr Guðni Agústsson, forgjöf og forgang að Degi-Tímanum? Dagsprent um að okkar pólitík skuli í stafni vera. Þó rétti flokkurinn nafnaskrá beggja blaðanna til nýrra eigenda og vonaði að Dagur-Tíminn yrði málgagn landsbyggðar og rétt- lætis. Eru það ekki svik að gefa A-flokkunum forgjöf og forgang að Degi-Tímanum? Meira segja er sagt að hið sterka lið A-flokkanna hafí náð því í gegn að Tíminn verði fjar- iægður úr blaðhaus Dags-Tímans. Eg skal að lokum viðurkenna að mér fannst Dagur-Tíminn á góðri leið, en ég vil sem áskrifandi og maður með hjartað á réttum stað vita í hveiju fíngraför og kossaflens A-flokkanna eru fólgin á stefnu og starfshætti blaðsins. Ég er ekki viss um að við framsóknarmenn viljum fá inni í eldhúsi daglegs ergelsis A-flokkanna. Svo höfum við taugar til Dags og Tímans. Þessi blöð eru „blóð af okkar blóði og brot af lands- ins sál“ eins og skáldið sagði. Höfundur er alþingismaður. Verslunarmannahelginni er lok- ið og þá er auðvitað komið haust. Eftir þessa vinsælu helgi virðist sem svo að ferðir Islendinga um landið falli að mestu niður. Landinn hörfar aftur inn á heimilin og vinnustað- ina og lokar á eftir sér. En sumrinu er al- deilis ekki lokið þótt dagurinn sé smám saman að styttast og aðeins sé farið að kólna. Um þetta leyti kyrrast oft veður og heiður himinn ríkir yfir beijaþrungnum lyngbrekkum. Ferðatilboð í ágúst og septem- ber býður Ferðafélag íslands og Útivist landsmönnum upp á margar athyglisverðar ferðir, sumarleyfisferðir sem og helgarferðir og dagsferðir. Hann Tryggvi á Arnarstapa býður enn öruggar ferðir upp á Snæfellsjökul í snjóbíl eða á vélsleðum og þar má renna sér á skíðum niður lengstu skíðabrekku landsins. Pét- ur í Eyjaferðum í Stykkisholmi býður enn upp á ógleymanlega siglingu um Breiðafjarðareyjar. Fagranesið siglir áfram um Horn- strandir og stoppar í hverri vík til að setja fólk á land eða sækja. Hann Páll, hótelstjóri á Hótel Húsavík, býður auðvitað upp á mat og gistingu og hvetur fólk til hvala- skoðunarferða. Enn er landvarsla á mörgum friðuðum landsvæðum, til dæmis í Herðubreiðarlindum og þar má meðal annars fá leiðsögn um ferð á Herðubreið. I boði eru ógleymanlegar ferðir um Breiða- merkurlón og í þjóðgarðinum í Skaftafelli er tjaldsvæðið opið í ágúst og örskammt er í Freysnes þar sem er stórglæsilegt hótel. í Vík í Mýrdal gera menn úr stórs- krýtið skip á hjólum til siglinga í kringum Reynisdranga og víðar. Ókeypis landslag ísland er opið til ferðalaga og útiveru, þetta er fijálst land, eng- inn kvóti takmarkar ferðalög, hvað svo sem síðar verður, aðeins skyn- samlegar umgengnisreglur. Fjöll- in, ströndin og allt þar á milli, taka má á móti þeim sem vilja og geta, - en hvar eru allir ís- lendingarnir til að njóta alls þessa? Er það satt sem sagt er um landann að hann ferðist ekki eftir versl- unarmannahelgina? Raunar er ansi sjald- gæft að heyra mælt á íslensku á fjöllum, oft- ar má heyra þýsku eða frönsku. Ferðahættir ísland- inga eru smám saman að breytast þó svo að flestir ferðist aðeins í júní og júlí. Þeir eiga enn margt óséð, til dæmis hinar dimmu og fögru ágústnætur, froststillur í september og október, upphaf vetrar í nóvember, ókyrrð- ina í desember, snjóþrunginn jan- úar, febrúar og mars til göngu- Er það satt sem sagt er um landann, spyr Sigrirður Sigurðar- son, að hann ferðist ekki eftir verslunar- mannahelgina? skíðaferða, sólríkan apríl og maí þegar vorið kemur aftur. Allar árstíðar geta hentað til ferðalaga, ferðamaðurinn þarf aðeins að þekkja landið sitt og kunna að búa sig eftir veðri. Benda má þeim á sem ekki vita að enn er langt í haustið, sumarið er þrungið lífi, og mannlífíð er fjöl- breytt víðast hvar um landið. Ág- úst er mánuður ferðalaga. Höfundurínn er skrifstofumaður og áhugamaður um ferðamál. Guðni Ágústsson Sigurður Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.