Morgunblaðið - 19.07.1998, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.07.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ1998 27 „Rekstrarleg markmið fyrir- tækisins gera ráð fyrir aukn- ingu á sviði iðnaðar, þannig að sjávarútvegurinn verði með um 40% veltunnar, verslun, landbúnaður og þjónusta með um 40% og iðnaður og há- tækni með um 20%. Þetta teljum við nauðsynlegt til að byggja upp rekstrarlega traust og fjölbreytt fyrirtæki.“ að stækkun fjárbúa og aukinni arð- semi í greininni, á svipaðan hátt og gerst hefur í mjólkurframleiðsl- unni. Mjólkurframleiðslan hefur auk- ist um 20% á síðustu þremur árum og nemur nú 9,3 milljónum lítra. Tókst að auka kvóta héraðsins með átaki þar sem kaupfélagið beitti sér í kaupum á framleiðslurétti og dreifði síðan út til kúabænda. Við það hefur meðalframleiðsluréttur skagfirsku kúabúanna aukist úr 65-70 þúsund lítrum í nærri 100 þúsund lítra. Segir Þórólfur að þetta hafi tekist að gera án teljandi fjárfestinga, fyrir utan kaupin á kvótanum sjálfum. Kaupfélagið keypti grasköggla- verksmiðjuna i Vallhólmi fyrir nokkrum árum. A síðasta ári var þar bætt við fóðurblöndun. Eru nú framleiddar fóðurblöndur fyrir kýr og önnur húsdýr og er markaðs- svæðið Skagafjörður og aðliggj- andi héruð. Þórólfur segir að starf- semi Fóðursmiðjunnar í Vallhólmi hafi farið mjög vel af stað. Bendir hann á þá miklu möguleika sem fel- ast í staðsetningu verksmiðjunnar. Hún eigi 350 hektara ræktaðs lands og nú sé ræktað kom fyrir verksmiðjuna á um 70 hekturum. „Við teljum að notkun á innlendu hráefni geti skapað þessari verk- smiðju sérstöðu,“ segir kaupfélags- stjórinn. A Sauðárkróki er kaupfélagið með fóðurstöð fyrir loðdýrarækt. Sú starfsemi hefur farið vaxandi í takt við loðdýraræktina enda er Skagafjörður helsta loðdýrarækt- arhérað landsins. Þórólfur segir að árangur Skagfirðinga og góð af- koma í loðdýraræktinni sé ekki síst því að þakka hvað fóðrið hafi reynst gott. Loðdýrabændur í Eyjafirði og Austur-Húnavatns- sýslu hafa einnig keypt fóður frá Sauðárkróki og nú er fyrirhugað að dreifa því til bænda í Þingeyjar- sýslu þannig að framundan er veruleg aukning á framleiðslu fóð- urstöðvarinnar. Beinn innflutningur Kaupfélagið rekur stórmarkað sem nefnist Skagfirðingabúð í stóru og glæsilegu vöruhúsi á Sauðárkróki, útibú og ferðamanna- verslun í Varmahlíð, á Hofsósi og í Ketilási í Fljótum og bygginga- vöraverslun á Sauðárkróki. Á sínum tíma annaðist SÍS inn- flutning fyrir KS eins og önnur kaupfélög en fyrir nokkram áram hóf kaupfélagið samstarf við inn- kaupa- og dreifingarmiðstöð danskra kaupmanna. Hefur félagið síðan staðið að innflutningi þaðan, bæði fyrir eigin matvöruverslanir og kaupmenn og kaupfélög í öðrum héraðum, meðal annars á höfuð- borgarsvæðinu. Þessi þáttur hefur farið vaxandi. Innflutningurinn byggist á því að unnt er að fá í ein- um gámi fjölbreytt úrval vara og flytja beint á viðkomandi stað þannig að munurinn á innkaupum stórmarkaða og minni verslana hefur minnkað. Starfsemi þessi fer nú fram á nýstofnaðri viðskipta- stofu KS sem hefur það hlutverk að sjá um innflutning og viðskipta- samninga fyrir kaupfélagið og fyr- irtæki þess. „Þetta hefur bætt samkeppnis- stöðu okkar og möguleika á að geta boðið viðskiptavinum samkeppnis- hæft verð,“ segir Þórólfur kaupfé- lagsstjóri. Kaupfélagið er nokkuð einrátt á matvöramarkaðnum í Skagafirði, þótt tvær minni versl- anir séu á Sauðárkróki. Þórólfur neitar því þó að fyrirtækið hafi ein- okunaraðstöðu á þessum markaði. „Við eram þannig í sveit settir að við eram í samkeppni við verslanir á höfuðborgarsvæðinu og Akur- eyri. Fólk er mikið á ferðinni og á kost á að gera sín innkaup á þess- um stöðum og við verðum því að bjóða samkeppnisfært vöraverð og þjónustu. Við teljum okkur hafa náð góðum árangri og hefur beinn innflutningur á matvöram verið mikilvægasti þátturinn í því.“ Þjónusta á almennum markaði Til viðbótar þeirri starfsemi sem þegar hefur verið nefnd rekur Kaupfélag Skagfirðinga nokkur þjónustu- og framleiðslufyrirtæki. Þórólfur segir að þótt þjónustufyr- irtækin vinni mikið fyrir kaupfé- lagið og fyrirtæki þess, allt frá helmingi og niður í fjórðung af veltu sinni, sæki þau öll verkefni á almennan markað og séu rekin á markaðslegum forsendum. Nefna má í þessu sambandi RKS-Raf- tækni/tölvutækni, Vélaverkstæði KS, Bifreiðaverkstæði KS og Skipaafgreiðslu KS. Á árinu 1996 sameinuðust Flutn- ingadeild KS og Vöruflutningar Magnúsar Svavarssonar í Vöra- miðlun ehf. Fyrirtækið annast dag- lega flutninga til og frá Reykjavík, auk annarra flutninga, svo sem bensín- og olíudreifingu fyrir Olíu- dreifingu ehf. Otalið er þá hátæknifyrirtækið Element-Skynjaratækni ehf. sem stofnað var út úr RKS-Raftækni um hönnun á skynjuram. KS á lið- lega helming hlutafjár í félaginu. Aðilar að undirbúningi virkjunar - Hver er framtíðarsýn kaupfé- lagsstjórans? „Veruleg aukning hefur orðið á sjávarútvegssviðinu og þar verður nú til helmingur veltu fyrirtækisins á móti landbúnaði, verslun og þjón- ustu. Rekstrarleg markmið fyrir- tækisins gera ráð fyrir aukningu á sviði iðnaðar, þannig að sjávarút- vegurinn verði með um 40% veltunnar, verslun, landbúnaður og þjónusta með um 40% og iðnaður og hátækni með um 20%. Þetta teijum við nauðsynlegt til að byggja upp rekstrarlega traust og fjölbreytt fyrirtæki." - Hvaða leiðir sérð þú til þess? „Kaupfélag Skagfirðinga er þátt- takandi í undirbúningi Villinganes- virkjunar með bæjarfélaginu og Raftnagnsveitum ríkisins. Margt er að breytast í orkugeiranum og það er spennandi að vinnu að und- irbúningi fyrsta hlutafélagsins í mörg ár, sem stofnað hefur verið til að vinna að virkjun. Við teljum að með þátttöku í virkjanaframkvæmdum getum við í framtíðinni orðið aðilar að fyrir- tæki sem nýtir orkuna til iðnaðar- framleiðslu,“ segir Þórólfur Gísla- son. Alla MÁNUDAGA í ALLT SUAAAR 1 vika á Les Dunes Suits Afsláttur kr. 5000ver®s*<;r° pr. mann - Aðeins 2 íbúðir í boði Öll verð eru staðar.verð m/flugvallarsköttum Innifalið: Flug, gisting flutningur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. 24. og 31 ágúst 2 vikur Gisting á Gemelos II íEÍWmé JjínLÆKKARyerðið umkr. 4,0001 Hafið samband við okkur - pantið tímanlega 552 3200 2 fullorðnir og 2 börn í íbúð kr. cfraA/seM i sima FERÐASKRIFSTOFA REYKJA VÍK UR Aðaístræti 9 - sími 552-3200 MJÚKUR SÓLI FÓTLAGA 80TN SEM VERNDAR BAKIÐ LEÐURINNLEGG 0G YFIRLAG Helstu útsölustaðir: Intersport - Sportkringlan - Lyfja Lágmúla - Lyfja Setbergi - K.Á. Selfossi - K.Á. Hellu K.Á. Hvolsvelli - Apótek Vestmannaeyja - Siglufjarðarapótek - Fríhöfnin Keflavík 2^1:nunnöH

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.