Morgunblaðið - 31.01.1999, Page 10

Morgunblaðið - 31.01.1999, Page 10
10 SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjármálatengsl ASÍ og atvinnurekenda áhrifamikil Niðurstöður rannsóknar sem Herdís Dröfn Baldvinsdóttir gerði á tengslaneti milli ASI og atvinnurekenda sýna að það er mikið að vöxtum og veldur ákveðinni þver- —---------------------7-7------------------- sögn í starfsemi ASI. I samtali við Guð- rúnu Guðlaugsdóttur sagði Herdís að margt benti til að fjármálatengsl þessara aðila, einkum í lífeyrissjóðakerfínu, hefðu vaxandi áhrif á afkomu fyrirtækja og al- mennra launþega í landinu. TENGSLANET fjárhags- legra afla á íslandi (Networks of Financial Power in Iceland) er fyrir- sögn doktorsritgerðar sem Herdís Dröfn Bald- vinsdóttir hefur nýlega varið við háskólann í Lancaster í Bretlandi. Undirfyrirsögn er í lauslegri þýð- ingu á íslensku Þversögn verklýðs- hreyfingarinnar eða The Labour Movement Paradox. í samtali við blaðamann Morgunblaðsins sagði Herdís að hún hefði byrjað að vinna að þessu verkefni árið 1990 með styrk frá British Council. „En það reyndist mun umfangsmeira en ég hélt fyrst þegar farið var að vinna við það,“ sagði hún. í ritgerð þess- ari, á röskum þrjú hundruð síðum, er skoðuð samvinna atvinnurek- enda á Islandi við verkalýðshreyf- inguna - ASÍ - í fjármálageiranum, einkum í lífeyrissjóðakerfinu. „Eftir nám mitt við í sálaríræði við Háskóla íslands fór ég yfir í mastersnám í vinnumarkaðsfræð- um og stjómun við háskólann í Lancaster. í upphafi doktorsverk- efnis míns byrjaði ég með eina rannsóknarspurningu,“ segir Her- dís. „Þessi spurning var grundvöll- uð á kynnum mínum af Alþýðusam- bandi íslands, en fyrir einstök félög innan sambandsins vann ég tvö stór rannsóknarverkefni í félagi við Hansínu B. Einarsdóttur. I þessu starfi okkar öðlaðist ég þá sýn á ASI að þar færu sterk samtök en sem eigi að síður skiluðu ekki miklu til sinna félagsmanna og það þótt mér rannsóknarvert. Fyrsta spurn- ingin var því: „Hver er skýringin á því að ASÍ er sterkt samband fé- lagslega og fjárhagslega en það skilar sér ekki til félagsmanna þess?“ Það sem ekki síst vakti mig til umhugsunar um þetta mál var að 1989 var Islandsbanki stofnaður með fulltingi ASÍ - þann veginn að Aiþýðubankinn rann saman við hinn nýja banka og lífeyriskerfi fé- laga í ASÍ er stór bakhjari íslands- banka. Þetta leiddi mig út í ná- kvæmari sldlgreiningu á rannsókn- arspurningunni og varð hún á þessa leið: „Getur útskýringin fyrir þessari þversögn (Paradox) í starfi ASÍ legið í tengslum á milli at- vinnurekanda og stjómenda félaga í ASÍ, sérstaklega í gegnum sam- vinnu þeirra í stjómun íslands- banka og almennu lífeyrissjóðanna. Þessi nánar útfærða rannsóknar- spuming leiddi svo til að ég setti UPP þrjú rannsóknarmarkmið: í fyrsta lagi að meta hvort samvinn- an milli leiðtoga ASÍ og atvinnurek- enda hafi haft áhrif á a) miðstýr- ingu fjármagns, b) láglaunastefnu og atvinnuleysi (sem ríkti um þær mundir). í öðru lagi að skoða þá þverstæðu sem þessi samvinna sýn- ist vera fyrir ASÍ og í þriðja lagi að gefa innsýn inn í núverandi valda- kerfi með því að greina uppbygg- ingu fjárhagslegs valds á íslandi. En fékk Herdís upplýsingar sem leiddu til þess að hún gæti svarað þessum spumingum þannig að full- nægjandi væri? „Það var mjög erfitt og tók langan tíma. Ég tók viðtöl við formenn lífeyrissjóða, al- marga formenn félaga innan ASÍ, þáverandi forseta sambandsins og formann Vinnuveitendasambands íslands. Miklar upplýsingar fékk ég úr Morgunblaðinu. Tengdamóð- ir mín sendi mér blaðið í sex ár og ég klippti samviskusamlega út allar greinar sem snera t.d. að lífeyris- sjóðsmálum, hlutabréfamarkaði, kjarasamningum, íslandsbanka og bankakerfinu yfirleitt. Skýrsla Samkeppnisstofnunar um stjómun og eignatengsl í íslensku atvinnulífi var einnig mildlvæg heimild. Svo og bók Örnólfs Árnasonar Kolkrabb- Stjórnunartengsl á milli valdakjarna og aimennu lífeyrissjóðanna í stjóm 5 fyrirtækja í stjóm 4 fyrirtækja í stjórn 3 fyrirtækja í stjóm 2 fyrirtækja ÍSLANDSBANK! HF. Einar Sveinsson Guðmundur H. Garðarsson ■ Sveinn Valfells Örn Friðriksson Ásmundur Stefánsson ---- Magnús Geirsson--------- Brynjólfur Bjamason Indriði Pálsson — SJÓVÁ-ALMENNAR HF. - Benedikt Sveinsson Hjalti Geir Kristjánsson Garðar Halldórsson Kristinn Björnsson Kristján Loftsson------ Einar Sveinsson ÓlafurB. Thors FLUGLEIÐIR HF. Hörður Sigurgeirsson Aml Vilhjálmsson Benedikt Sveinsson GrétarB. Kristjánsson Indriði Pálsson J.ón Ingyarsson Ólafur 0. Johnson Halldór Þ. Halldórsson Þorgeir Eyjólfsson EIMSKIPAFÉLAG ÍSL. HF. Indriði Pálsson Garðar Halldórsson Baldur Guðlaugsson Benedikt Sveinsson Gunnar Ragnars Hjaiti Geir Kristjánsson Jón tngvarsson Kristinn Björnsson Hörður Sigurgestsson Þórður Magnússon —— EIMSKIP SKELJUNGUR HF. Indriði Pálsson Bjöm Haiigrímsson Hörður Sigurgestsson Sigurður Einarsson Kristinn Björnsson Haraldur Sturlaugsson Jónatan Einarsson SÖLUM. HRAOFRYSTIH - Jón Ingvarsson Brynjólfur Bjarnason Gunnar Ragnars Haraldur Sturlaugsson JónPall Hálldörsson Rakel Olsen Sigurður Einarsson Finnbogi Jónsson Friðrik Pálsson Ólafur B. Ótafsson GRANDI HF. Árni Vilhjálmsson Ágúst Einarsson Benedikt Sveinsson Grétar B. Kristjánsson Gunnar Svavarsson Jón Ingvarsson Brynjólfur Bjarnason TRYGGINGARMIÐST. HF, Gisli Ólafsson Guðfinnur Einarsson Haraldur Sturlaugsson Jón Ingvarsson Sigurður Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.