Morgunblaðið - 31.01.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999 11
inn og bókin Innri hringurínn eftir
Fannar og Ivar Jónssyni. Einnig
fékk ég líka miklar upplýsingar úr
tímaritunum Frjáls verslun, ís-
lenskt atvinnulíf og fleira af því
tagi. Skýrslur forseta ASÍ voru líka
mjög mikilvægar fyrir mig og loks
sendi ASÍ mér alltaf tímarit sitt
Vinnuna og gerir enn í dag.
Og að hverju komst Herdís eftir
öllum þessum leiðum? „Fyrst skal
þess getið að ég notaði við úr-
vinnslu upplýsinganna kenningar
sem ég þróaði svo áfram og hafa
ekki verið notaðar áður við slíkt
verkefni. Þetta kerfl kallast
Networks Approach. Nánar til tek-
ið er þarna skoðað tengslanet -
hvemig einn maður tengist öðrum í
gegnum stjórnir ýmissa félaga, líf-
eyrissjóða, nefndarstörf og margt
fleira, inn í þetta koma breytur eins
og tækni, peningar o.s.frv. Það sem
ég þurfti að gera var að taka fyrir
alla stjómarmeðlimi einstakra fé-
laga innan ASI og tengsl þeirra inn
í önnur fjárhagsleg valdakerfí, svo
sem lífeyrissjóði, banka og fleira.
Sama gegndi um þá atvinnurekend-
ur sem sátu í stjómum lífeyrissjóða
og banka, þeirra tengsl rakti ég inn
í hin ýmsu fyrirtæki. Þetta var mik-
il og seinleg vinna, ég þurfti að vera
viss um að ég væri að fjalla um
rétta einstaklinga - ekki mgla sam-
an nöfnum sem stundum var góður
möguleiki á. Þetta var því ná-
kvæmnisvinna. Þess ber að geta að
ég einbeitti mér að tímanum eftir
1960 en hef auðvitað sögulega sýn
til fyrri tíma. Einnig er vert að geta
þess að ég skoðaði eingöngu bein
tengsl - það er ef sami aðili á sæti í
stjóm fleiri en eins fyrirtækis eða
sjóðs.
En hverjar voru niðurstöðumar?
„Síðan 1960 hefur samvinna milli
leiðtoga ASI og atvinnurekenda
farið stöðugt vaxandi. Þetta endur-
speglast meðal annars í samvinnu
þeirra í hinum margvíslegustu
nefndum. Þess má geta að nefndir
á Islandi eru óvenjulega margar -
að ég ekki vilji segja óeðlilega
margar - miðað það sem gerist í ná-
grannalöndum okkar. Það er líka
greinilega mjög óvenjulegt að
verkalýðsfélög og atvinnurekendur
reki í raun saman banka - mér er
minnisstætt að þegar atvinnurek-
endur og verkalýðsforingjar skrif-
uðu undir samningana um Islands-
banka þá gerðu þeir það undir slag-
orðinu: Við eigum samleið. Þetta
hef ég ekki rekist á áður í athugun-
um mínum á vinnumarkaði og efn-
hagstengslum hjá öðrum þjóðum.
Hins vegar fann ég ýmis fordæmi
Stjórnunartengsl fyrirtækja
fyrir því að þeir sitji
saman í stjóm líf-
eyrissjóða.
Lífeyrissj óðimir
stækka
- meira vald
Eg komst einnig
að þeirri niðurstöðu
að stöðugt er að
verða meiri sam-
þjöppun í almenna
lífeyrissjóðakerfinu,
sjóðimir em að
verða færri og
stærri. Menn sjá
þetta fyrst og
fremst sem hagræð-
ingu og vissulega er
það svo en á hinn
bóginn verður þetta
til þess að æ meira
fjármálalegt vald
færist á færri hend-
ur. Eg sá að í
stjómum almennu
lífeyrissjóðanna
sitja menn sem
einnig sitja í stjóm-
um stærstu fyrir-
tækja landsins. Vert
er að hafa í huga að
Morgunblaðið/Kristinn
HERDÍS Dröfn Baldvinsdóttir. Rannsóknir
hennar á tengslaneti milli verkalýðsfélaga og at-
vinnurekenda á íslandi hafa vakið athygli þar
sem þær hafa verið kynntar á ráðstefnum í Bret-
landi og hefur hún fengið tilboð um að gera
svipaðar rannsóknir á Bretlandi og f Japan.
eignir lífeyrissjóða hafa vaxið gífur-
lega á þessum áratug, en ég skoð-
aði þessi mál alveg fram til ársins
1998.
Lífeyrissjóðirnir 'era að verða
stærstu íjárfestar á hlutabréfa-
markaði Islands en skýrar reglur
frá opinberam aðilum um hvemig
þeir eigi að fjárfesta era ekki fyrir
hendi. Þeir sem eiga sæti í stjórn
sjóðanna hafa því mjög frjálsar
hendur hvað fjárfestingar snertir.
Sömu mennimir eiga oft sæti í
stjórn sjóðanna, í stjórn hlutabréfa-
fyrirtækja og í stjórnum atvinnu-
fyrirtækja. Mér sýnist því að þama
geti verið um margvísleg bein
tengsl að ræða sem jafnvel geti ráð-
ið úrslitum um afkomu ýmissa fyr-
iriækja, einkum smærri fyrirtækja.
Eg sá að innan fyrirtækja á hluta-
bréfamai'kaði er einnig að aukast
miðstýring eignarhalds og stjóm-
unar, sem leiðir til þess að meira
vald færist á færri hendm’. Ég
skoðaði bæði bein eignatengsl á
milli hlutabréfafyrirtækjanna,
eignatengsl á milli hluthafanna í
þeim og loks stjórnunartengsl.
Arðsemissjónarmið ýta
undir láglaunastefnu?
Mér sýnist að þessi þróun tengist
láglaunastefnunni margumtöluðu.
Til þess að fá sem mestan arð af
fyrirtækjum sem lífeyrissjóðir hafa
fjárfest í þá er algeng leið að halda
kaupgjaldi niðri. Eignarhald hinna
almennu lífeyrissjóða í fyrirtækjum
gæti því leitt óbeint til þess að ASÍ
sé tilleiðanlegra til þess að halda
launum niðri til þess að sjóðir geti
vaxið þeim mun meira. Þetta er hin
eiginlega þversögn. Félögin eru
stofnuð til þess að vinna að sem
bestum hag félagsmanna en eiga
vegna fjármálatengsla við atvinnu-
rekendur erfitt um vik. Vissulega
bætir góður lífeyrissjóður hag
þeirra félagsmanna sem lifa það að
njóta hans, en stundum heyrist
manni að hag þeirra lægst launuðu
sé svo illa komið að tvísýnt virðist
jafnvel um líf þein-a - að minnsta
kosti ef miðað er við þær kröfur
sem Islendingar gera til lífskjara
almennt. An gamans finnst vafa-
laust mörgum félagsmönnum í ASI
það álitamál hvort góðan lífeyris-
sjóð eigi að kaupa því verði sem
láglaunastefnan er fyrir marga.
Það getui' líka hugsanlega verið
álitamál hvort það sé rétt stefna hjá
hinum almennu lífeyrissjóðum að
fjárfesta mest í stóram „öraggum"
fyrirtækjum, eins og stefnan hefur
verið í stað þess að styðja við bakið
við smærri fyrirtækjum og þannig
auka nýsköpun - síðamefnda stefn-
an kynni að vera að minnsta kosti
allt eins álitleg fyrir hinna almenna
félagsmann í ASI.
Valdakjarninn og tengsl hans
Hvað snertir uppbyggingu fjár-
hagslegs valdakerfis á íslandi þá
er niðurstaða mín sú að valda-
kjaminn liggi í stóra fyrirtækjun-
um og fjárhagsstofnunum. Einkum
era það átta fyrirtæki sem mynda
þennan kjarna, þau era samkvæmt
mínum rannsóknum Eimskip,
Flugleiðir, íslandsbanki, Grandi,
Sjóvá-Almennar, Tryggingamið-
stöðin, Skeljungur og Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. Þessi átta fyrir-
tæki eiga bein tengsl inn í níutíu og
þrjú fyrirtæki. Fjöratíu og tvö af
þessum níutíu og þrem fyrirtækum
era meðal þehTa tvöhundrað
stærstu á landinu. Stærð fyrirtæk-
is segir þó ekki alla sögu, ekki síð-
ur er nauðsynlegt að skoða mikil-
vægi þess fyrir byggðina þar sem
það er staðsett, ekki síst er þetta
nauðsynlegt hér á landi þar sem
sjávarútvegur er mikilvægasta út-
flutningsgreinin. Oft era sjávarút-
vegsfyrirtækin langstærstu at-
vinnurekendur byggðarlags. Fyrir-
tækin átta eiga bein tengsl, hvað
snertir eignarhald og stjómun, inn
í tíu af stærstu fyrirtækjum lands-
byggðarinnar, níu þeirra era sjáv-
arútvegsfyrirtæki. Þetta kemur
heim og saman við þá staðreynd að
valdakjaminn í fyrirtækjunum átta
hefur verið að auka fjárfestingar
sínar í fiskiðnaði jafnt og þétt á
undanfómum áram. Þetta er
einnig tengt þeirri staðreynd að
stærstu sjávarútvegsfyrirtækin
eru að eignast æ stærri hluta af
kvótanum. Mér finnst og athyglis-
vert að á síðustu áram hefur æ
stærri hluti hagnaðar þessara átta
fyrirtækja stafað frá fjárfestingum
þeirra í öðrum fyrirtækjum frekar
en frá eigin starfsemi.
Almenn niðurstaða mín er sú að
fjármálaleg og raunveralega póli-
tísk völd hafi færst í ríkari mæli í
hendur ASÍ og VSÍ og sameigin-
lega hafa þessi samtök verið ríkj-
andi í hagstjóm Islands síðast lið-
inn áratug á meðan áhrif stjóm-
málaflokkanna hafa minnkað að
sama skapi. Aðalleiðtogar ASÍ hafa
myndað náin fjárhagsleg tengsl við
fulltrúa atvinnurekanda innan
stjóma almenna lífeyrissjóðskerfis-
ins og ýmissa einkafyrirtækja. Sú
þversögn virðist hafa myndast að
ASI sé orðið mun sterkara félag
fyrir atvinnurekendur en fyrir fé-
lagsmenn sína.
HÆTTIR
Iþróttagallar, barna+fullorð. . . . Verð áður J&&30 Verð nú 1.990
Nike-skór.........................Verð áður 10^900 Verð nú 3.990
Úlpur.............................Verð áður jSr990 Verð nú 1.990
íþróttaskór.................... Verð áður ^4r990 Verð nú 990
og margt fleira - ótrúlega ódýrt
ALLT
Á AÐ SELJAST
SPORTHUS
Laugavegi 44