Morgunblaðið - 31.01.1999, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BILLY WILDER
MEISTARI Billy Wilder sýnir John Lund hvernig
hann vill að hann faðmi Marlene Dietrich í mynd-
inni A Foreign Affair.
FRÁ OFANVERÐUM íjórða ára-
tugnum, fram á þann sjöunda, var
Billy Wilder einn vinsælasti og
hæfíleikaríkasti leikstjóri kvik-
myndaheimsins. Einn þeirra sem
gerðu tímabilið að gullöld
Hollywood, og gott ef hann er
ekki sá eini sem enn er á meðal
okkar. Wilder er einn farsælasti
leiksljóri allra tíma, vann til sex
Óskarsverðlauna, sem er altént
nálægt því að vera heimsmet. Þá
framleiddi hann margar mynda
sinna og skrifaði handrit þeirra
veigamestu. Wilder var íjölhæf-
astur kvikmyndagerðarmanna,
verk hans spanna flestar tegundir
mynda, á afrekaskránni má finna
rökkurmyndir, grafalvarleg, há-
dramatísk verk, í bland við flesta
flokka gamanmynda, sem voru
honum hugstæðastar. Skarp-
greindur afkastamaður, húmoristi
af guðs náð, stundum nokkuð
kaldhæðinn, heiðarlegur og hafði
frábært Iag á leikurum, aðstoðar-
fólki og tækninni. Næmt auga fyr-
ir myndmáli, handrit krydduð
meitluðum tilsvörum, glögg-
skyggni á ljósu punktana sem
dekkri hliðina á samfélaginu; AIl-
ir þessir eiginleikar tala til okkar
er við njótum samvista við snill-
inginn í gegnum verkin hans.
Wilder var ekki aðeins traustur
leikstjóri sem sjaldan brást, held-
ur engu síður hugaður listamaður
sem fjallaði um ýmsa mannlífs-
bresti, eins og áfengissýki, fram-
hjáhald og vændi, þætti sem á
hafði nánast hvílt bannhelgi í
kvikmyndaiðnaðinum. Þannig
skipaði hann sér á bekk með
gagnrýnum röddum í Hollywood,
en öfugt við þá flesta, nutu mynd-
ir hans flestar, óhemju vinsælda.
Samuel (síðar Billy) Wilder, er
fæddur í Austurríki 1906, er því
farinn að klífa 10. áratuginn.
Wilder er gyðingur, einn fjöl-
margra sem áttu fótum ijör að
launa undan blóðhundum Hitlers.
Var kominn til Hollywood 1934,
með stuttri viðkomu í París. I
gamla heiminum hafði Wilder
unnið sem blaðamaður og síðar
handritshöfundur. Þegar vestur
kom stóð hugur hans allur til
kvikmynda. Þrátt fyrir tungu-
málaerfiðleika komst Wilder að
hjá Paramount, þar sem voru fyr-
ir nokkrir frábærir listamenn
með svipaðan bakgrunn, þ.á.m.
Lubitsch, sem reyndist honum
traustur bakhjarl.
Ferli hans í Bandaríkjunum má
skipta í tvennt. Árin sem hand-
ritshöfundur og síðar leikstjóri
hjá Paramount og síðara tímabil-
ið, sem hófst snemma á sjötta ára-
tugnum, í smavinnu við United
Artists, Mirischbræðuma og
handritshöfundinn I.A.L Di-
amond. Hjá Paramount starfaði
Wilder upphaflega sem handrits-
höfúndur og hlaut fyrstu
Óskarsverðlaunatilnefninguna af
mörgum, fyrir gamanmyndina
Midnight. Það var ‘38. Ári síðar
var hann tilnefndur aftur, nú fyr-
ir Garbomyndina Ninothchka,
sem Lubitch stýrði fyrir MGM.
Tvær tilnefningar fylgdu í kjöl-
farið árið 1941, önnur fyrir Hold
Lykillinn undir mottunni -
(„The Apartment“, (‘60))
irkirk
Ungur starfsmaður (Jack Lemm-
on), lánar forstjóranum (Fred McM-
urray), íbúðina sína svo hann geti
gamnað sér með einkaritaranum
(Shirley McLaine), sem smúm saman
heillar blókina uppúr skónum. Unaðs-
leg mynd í alla staði, gædd hinum
bestu „sjaplínsku" eiginleikum;
mannleg, hlý, bráðfyndin og lýkur á
farsælan hátt. Listilega gerð í alla
staði, handritið ósvikin perla, sérstak-
lega í kaldhæðnislegri lýsingu á
stéttasamfélaginu og afvegaleiddu
siðferði, jafnframt bráðfyndið og
skiptir um gír gjörsamlega áreynslu-
laust. Lemmon og McLaine óaðfinn-
anleg og myndin hlaut verðskuldað
Óskarinn sem besta mynd ársins, fyr-
ir leikstjóm og handrit. Ómissandi.
Back the Dawn,
þar sem Charles
Boyer leikur
mann sem reynir
að fá bandarísk-
an ríkisborgara-
rétt og giftist
hrekklausri
kcnnslukonu (Oli-
via DeHavilland),
í þeim tilgangi.
Nú var Wilder
orðinn virtur sem
höfundur, en var
ekki alltaf
ánægður með þá
meðhöndlun sem
handrit hans
fengu. Fylgdi því
í fótspor starfs-
bræðra á borð við
Preston Sturges
og John Huston
og leikstýrði
fyrstu myndinni,
The Major and
the Minor, ‘42.
Wilder fann á sér
að Paramount vonaði að hann
félli á prófinu og snéri sér aftur
alfarið að handritaskriftum, þeim
varð ekki að ósk sinni; myndin sló
óvænt í gegn.
Hinn metnaðarfulli Wilder vildi
stefna hærra, því bauð hann
reyfarahöfundinum snjalla, Ra-
ymond Chandler, til samstarfs við
kvikmyndagerð bókar James M
Cains, Double Indemnity, irkkk.
Ur varð ein fyrsta og besta rökk-
urmynd (film noir), kvikmynda-
sögunnar. Aukinheldur fékk hann
Fred MacMurray, ímynd hins
alameríska, góða drengs, til að
fara með aðalhlutverk skálksins
(á móti Barböru Stanwyck). Leik-
aravalið reyndist óaðfínnanlegt
og setti í leiðinni efasemdarstimp-
il á ameríska drauminn.
Ég gæti tekið fyrir hátt í tug
fjögurra-stjörnu mynda eftir
Wilder, en formið býður uppá
þijár. Ég mun því gefa þeim
myndum sem ég hef séð, einkunn
í textanum. Þeirra á meðal er hið
átakanlega drama, Lost Weekend,
(‘44), kkkk, fyrsta myndin sem
tók af röggsemd og skilningi á
áfengisvandanum. Aftur réð hann
leikara þvert á ímyndina, að
þessu sinni Ray Milland, kunnan
úr hefjuhlutverkum. Myndin varð
enn áhrifaríkari fyrir bragðið,
færði leikaranum sín einu
Óskarsverðlaun og sjálfur stóð
Wilder uppi með tvenn; fyrir leik-
stjórn og bestu mynd ársins. Hins-
vegar líkaði ekki ráðamönnum
Paramount grámuskulegur raun-
veruleikablær myndarinnar, sem
stakk í stúf við glansímynd fyrir-
tækisins. Þeir vissu lengi vel ekki
hvað þeir ættu að gera við horn-
rekuna, geymdu hana uppí hillu
uns þeir neyddust til að setja
hana á markað með stórkostleg-
um árangri (ofan á verðlaunin
varð hún mest sótta mynd Wilders
á fimmta áratugnum). Sunset
Boulevard, (‘50), var miskunnar-
laus ádeila á hræsnina í kvik-
myndaborginni og síðasta verk
Wilders í löngu og gifturíku sam-
starfi við framleiðandann Charles
Sígild myndbönd
Sunset Boulevard (‘50)
A A Á A
KKKK
Enn ein klassíkin, að margra dómi
ein besta mynd kvikmyndasögunnar.
Kaldhæðin, melódi-amatísk údeila á
ofgnótt kvikmyndaborgarinnar með
William Holden í hlutverld drykk-
fellds handritshöfundar sem roskin,
fallin kvikmyndastjama (Gloria
Swanson), hefur tekið uppá arma
sína. Hlífðarlaus skoðun á dekkri
hliðum kvikmyndaborgarinnar, þeim
sem verða undir. Jafnframt litið til
baka á Hollywood þöglu myndanna
með tilvísanir í myndir Swanson og
þátttöku manna á borð við Buster
Keaton, Cecil B, DeMille og ekki síst
Eries Von Stroheim í hlutverki einka-
þjóns gömlu stjömunnar. Ómissandi.
Brackett. Næst á dagskrá var ein
kaldhæðnasta mynd Wilders, A
Ace in the Hole, (‘51), þar seni
íjallað var um óprúttnar aðferðir
fjölmiðla við að halda athygli við-
skiptavinanna. Hún gekk ekki
sem skyldi og við tóku nokkur
sviplítil ár. Þá kom snilldarverkið
Stalag 17, (‘53), raunsæ stríðs-
mynd úr fangabúðum nasista, sem
færði Wilder tilnefningu og Willi-
am Holden Óskarsverðlaunin
fyrir leik í aðalhlutverki. Með
kassastykkinu Sabrinu, (‘54),
með Bogart og Audrey Hepburn,
(berið hana saman við hörmung-
ina með Juliu Ormond), lauk 18
ára starfsferli hjá Paramount.
Fyrst lá leiðin til 20th Century
Fox, þar sem til varð ein besta
og vinsælasta mynd Marilyn
Monroe, The Seven Year Itch,
(‘55), kkk.
Nú töku við góðir tímar hjá
Mirischbræðrum, gullöldin hélt
áfram. A Love in the Afternoon,
(‘57), var fyrsta myndin fyrir UA,
og á löngu og rómuðu samstarfi
við I.A.L. Diamond. Rómantísk
gamanmynd með Hepburn og
Cary Cooper, sem hann tileinkaði
vini sínum og velgjörðarmanni,
Ernst Lubitsch. Þá var röðin kom-
in að sjálfri Some Like It Hot,
(‘58), annað meistaraverk, The
Apartment, (‘60), fylgdi í kjölfar-
ið.
Eitt af afrekum Wilders var að
leiða saman hesta þeirra Lemm-
ons og Walters Matthaus. Það
gerðist fyrst í The Fortune
Cookie, (‘66), kkk, aftur í The
Front Page, (‘74), kkk, og að
lokum í Buddy, Buddy, (‘81),
kkk, sem var síðasta mynd Wild-
ers, sem þá var kominn undir átt-
rætt. Áður hafði hann m.a lokið
við One, Two, Three, (‘61),
kkk'k, meinfyndinn kaldastríðs-
farsa með James Cagney; Irma La
Douce, (‘63), kkk, einn stærsta
smellinn af mörgum í sögu Tóna-
bíós. Fedora var síðan frumsýnd
1978, og reyndist síðasta stórvirki
snillingsins skemmtilega.
Some like it hot (‘59)
kkkk
Eitt af meistaraverkum gaman-
myndanna gerist á bannárunum
vestra. Tveir atvinnulausir tónlist-
armenn (Tony Curtis og Jack
Lemmon) verða óvart vitni að morði
og fá mafíuna á hælana. Dulbúast
sem meðlimir í kvennahljómsveit
þar sem Marilyn Monroe er aðal-
söngkonan. Ekki eitt dautt augna-
blik. Wilder og Diamond dæla frá
sér hverri drepfyndinni uppákom-
unni á fætur annarri sem þremenn-
ingamir túlka ógleymanlega. Og
morðhundarnir jafnan vokandi í
seilingarfæri. Joe E. Brown er
einnig óborganlegur sem náungi
sem verður ástfanginn af Lemmon -
á kvenklæðunum. Omissandi.
Sæbjörn Valdimarsson
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999 55
Súlnasalur
Frumsýning laugardaginn 20. feb.
Sýningar síðan alla laugardaga til vors.
Ladl og sjtlkialamir gera spaugsama
útlekt á helrigðisástandi þjóðarinnar með
áherslu á fslensku erfðasyndina.
Er heilsuleysi
Islendinga hin nýja
auðlind?
— Gamanmál, bæði
sungin og leikin, og
hárbeitt grfn f bland!!
Saxi yfirlæknir, Doklor Klári,
Heilbrigðisgeiri,
Fröken Fingurbjörg og margir
fleiri kanna heilsufar gesta og
leita að mislagða
gagnagrunninum.
Meðal sjúklinga á geðgöðudeildinni:
Þórhallur Sigurðsson
Helga Braga Jónsdóttir
Steinn Ármann Magnússon
Haraldur Sigurðsson
og fleirisjaldgæftilfelli
Howser við hljöðfærin og Sárabandið
Btíningar og andlitsgeiri: Gréta Boða
Sviðsetning: Bjöm G. Björnsson
Framreiddur verður spítalamatur
að hætti htíssins:
Matseðill
Basilkryddaður lax með rcekjum
og lárperumauki
Pg
Grísa- og lambasteikur
framreiddar með sólþurrkuðum
tómötum og myrkilssvepparjóma
eða
Grœnmetisréttur
og
Súkkulaðipíramídi með
núgatfyllingu
Hljömsveilin Saga Klass
leikurfyrir dansi
Söngvarar: SigrUn Eva
Ármannsdóltir og Reynir
Gtiðmitndsson
Þriggja rétta kvöldverður,
skemmtidagskrá og dansleikur kr. 5.500.-
Sérstakur afsláttur fyrir hópa, 30 gesti eða fleiri. Sértilboð á gislingu.
SJÓÍíRA
Stilnasa
Sannkölluð heilsubót f skammdeginu.
Tryggið ykkur lyfseðil f tfma.
Upplýsingar og bókanir í söludeild s: 525-9933
Hildur Sif Arnardötlir Frá kl. 13.00-17.00 virka daga.
Radisson SAS
SagaHotel
Reykjavík
OTTÓ - GRAFÍSK HÖNNUN