Morgunblaðið - 31.01.1999, Side 58
58 SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
-■*U
SAMISKI leikstjórinn Paul-Anders Slmma.
%
%
Kímnin er mannleg
I DAG, á lokadegi Samavikunn-
ar í Norræna húsinu, verður í
boði kvikmyndasýning, fyrst
fyrir börn og síðan fyrir full-
orðna. Börnin
fá að sjá tvær
Samavika
Norræna
hússins
stuttmyndir kl.
14, annars veg-
ar eiknimynd-
ina En tid pá
hösten sem er samískt ævintýri
og ástarsaga um dreng sem
verður ástfanginn af dóttur sól-
arinnar og hins vegar Samiska
Barn sýnir samisk börn og um-
hverfí þeirra, þar sem fylgst er
með tveimur stúlkum súta
hreindýraskinn.
Sýning á tveimur myndum
eftir einn fremsta kvikmynda-
leikstjóra Sama, Paul-Anders
Simma, hefst kl. 15. Hann vakti
fyrst á sér athygli með stutt-
myndinni Let’s Dance frá árinu
1992, sem hefur hlotið fjölda
verðlauna og viðurkenninga á
stuttmyndahátíðum víða um
Evrópu, og verður sýnd á eftir
kvikmyndinni Sagojogan Mini-
ERIK Kiviniemi sem ráðherr-
ann í „Sagojogan Ministeri".
steri frá árinu 1996. Sú mynd
gerist í Lapplandi, og er á fínn-
landssænsku, sænsku og norsku.
Hún er byggð á sannsögulegum
atburðum og segir frá manni
sem notfærir sér óvenjulegar
aðstæður sínar til að vinna
trausts lítils bæjarfélags, og
koma við sögu ýmsir sammann-
legir þættir eins og kímni,
græðgi, heiðarleiki og ást.
J-
X.
Tímaritið Húsfreyjan
efnir til sauma- oq
prjónakeppni í samvinnu
við Iðnaðarráðuneytið
Utanáskriftin er:
Tímaritið Húsfreyjan,
Hallveigarstöðum,
Túngötu 14,
101 Reykjavík.
þeir keppendur sem komast áfram taka
'pátt í lokakeppni sem fer fram í Súlna-
sal Hótels Sögu sunnuíiaginn 21. mars.
Keppnin er ætluð áhugafólki um
prjóna- og saumaskap. Keppt
verður í fjórum flokkum:
1. fl. Keppendur sauma
flík á sjálfa sig.
2. fl. Keppendur sauma
flík á börn.
3. fl. Keppendur prjóna
flík á sjálfa sig.
4. fl. Keppendur prjóna
flík á börn.
bátttakendur senda inn 2 m)jnd\r af
sér og/eða börnunum í flíkunum ásamt
upplýsingum um nafn, heimili og síma.
Skilafrestur er til 10. mars.
Ferðavinningar frá Flugféiagi Islands eru
í boði fyrir þá sem skara fram úr í hverjum
iyrir sig og sá keppandi sem fær flest atkvasði
gesta í sal í lokakeppninni hreppir ferðavinning til
útlanda.
Frekari upplýsingar gefur Margrét í
síma 090 1371
frá og með nk. þriðjudegi.
Rokk er tónlist,
ekki lífsstill
Er Sigurjón Skæringsson rokk-
ari eða ekki? Hann er í Mæðu-
söngvasveit Reykjavíkur sem er
bæði kassagítardúett og full-
skipuð rokksveit þegar þannig
ber við. Annars sagði hann Hildi
Loftsdóttur að búið væri að
koma óorði á rokkara.
SIGURJÓN hefur verið ár-
um saman í rokkinu og rak
m.a. rokkstaðinn Rósen-
berg til nokkurra ára.
„Rósenberg var bam síns tíma og
þeir tímar eru liðnir,“ segir hann.
„Þetta er svo undarlegt þetta þjóð-
félag sem við lifum í. Þú getur
fengið fólk til að koma inn á stað
þar sem á að spila létta popptón-
list. A réttu augnabliki er hins veg-
ar hægt að dúndra á það hvaða
Metallica-lagi sem er, og það verð-
ur allt vitlaust. Þetta sama fólk
dregur þú hins vegar ekki með
villtum hestum til að hlusta á aug-
lýsta rokkhljómsveit.“
Úr þungarokkinu
„Upphaflega er Mæðusöngva-
sveit Reykjavíkur stofnuð sem
kassagítartríó. Allir þrír vorum við
úr tveimur harðrokksveitum sem
báðar lögðu niður störf um svipað
leyti. Við Hlöðver Ellertsson og
Jón Óskar Gíslason vildum gera
eitthvað allt annað. Við höfðum
spilað áleitið, hávaðasamt þung-
arokk í mörg ár, en áttum rætur i
einhverju öðru og útkoman varð
þetta tríó. Hugmyndina að nafninu
átti reyndar Flosi Ólafsson leikari.
A árshátíð fyrir mörgum árum
kynnti Flosi Ólafsson Tregasveit-
ina til sögu undir þessu nafni sem
ég greip á lofti og notaði síðan á
eigið band.
Af því tríói erum við Jón Óskar
bara tveir eftir og rekum sveitina
bæði sem ljúfa kassagítarsveit og
hins vegar sem fullskipaða rokk-
hljómsveit, undir sama nafni. Gam-
all spilafélagi minn og fóstbróðir,
Sigurður Reynisson trommari, er
þriðji meðlimurinn, svo spilar
Brynjar H. Brynjólfsson á bassa
með okkur. Raunverulega fínnst
okkur skemmtilegast að spila rokk
og ról en með áralanga reynslu á
bakinu höfum við spilað nánast
hvað sem er, og vekjum yfírleitt
óskipta athygli fólks þegar við
mbl.is
_ALL.Ty\f= e/TTH\SA£3 /JYTT
bregðum okkur
í hallærislegt
kántrýstuð. Það
er enn ein hliðin
á sveitinni.“
- Hvað með
frumsamið efni?
„Já, við eigum
fullt af fium-
sömdu efni, en
höfum ekkert
verið að veifa
því hingað til.
Það er svo
óskaplega leið-
inlegt að spila
sín eigin lög
bara til að spila þau, ef enginn hef-
ur svo áhuga á að heyra þau. Það
mun samt koma að því, því maður
er í tónlist til að skapa, en ekki
bara til að vera gangandi karaoke-
maskína."
Plata er
alvarlegt mál
- Eruð þið búnir að vera lengi í
þessu bandi?
„Já, sveitin er stofnuð árið 1994
og verður því fimm ára á þessu
ári. Kannski að afmælinu verði
fagnað með plötuútgáfu, þótt eng-
in ákvörðun hafi verið tekin um
það. En mér finnst skemmtilegra
að vera lumma á annan hátt. Það
er mjög alvarlegt mál að gefa út
plötu. I gegnum tíðina höfum við
samið fjöldann allan af einföldum
lögum; þriggja til fjögurra hljóma
rokklögum með íslenskum text-
um. Svo eigum við í hinni skúff-
unni fullt af metnaðarfullri tón-
list, sem við yrðum sakaðir um að
reyna að sækja á erlendan mark-
að, ef við létum nokkurn mann
heyra hana.“
- Er það stór glæpur?
„Nei, nei, kannski það bíði bara
betri tíma. Við erum búnir að spila
svo lengi og sjá svo marga leggja
af stað með stóra drauma og verða
svo fyrir sárum vonbrigðum, að
maður forðast að gera sig að fífli
með einverjum yfírlýsingum í tón-
list almennt. Næstum því hver ein-
asta hljómsveit sem hefur samið
sín eigin lög, hefur verið að reyna
að endursemja Stairway to Hea-
ven, en það er bara ekki hægt. Það
var gert einu sinni.“
Blúsinn er
mamma rokksins
- Eg hélt að nafnið gæfi til
kynna að þið væruð blúshljómsveit.
„Já, í eðli sínu eru öll lög blúslög.
Einhver frægur rokkari sagði:
„Blúsinn varð ófrískur og af-
sprengið var nefnt rokk.“ Rokkið á
allt rætur sínar í blúsnum.“
- Pannig að þið eruð alvöru
rokkarar?
„Nei, við erum bara hljómsveit.
Ekki endilega rokkhljómsveit. Það
er búið að koma óorði á orðið
„rokkari“, það er búið að eyði-
leggja það. Fólk sér fyrir sér rokk-
ara sem útúrdópaðan, leðurklædd-
an, altattóveraðan, andþjóðfélags-
lega sinnaðan fávita. Eg vil halda
því fram að við séum ekki þannig,
og þar af leiðandi er ekki hægt að
kalla okkur rokkara. En við spilum
rokk. Fyrir mér er rokk ekki villt-
ur lífsstíll. Rokk er tónlist.“
- Og hvar eruð þið aðallega að
spila?
„Við erum að spila út um allt
land. I gær vorum við í Borgamesi,
um næstu helgi á Akureyri, svo
Vestmannaeyjum, Grindavík
o.s.frv. I Reykjavík höfum við spil-
að á Amsterdam og munum spila
þar aftur.“
- Og lofið þá væntanlega góðu
stuði hvar sem þið verðið?
„Já, við vitum hvað við eigum að
gera til að koma fólki í stuð og höf-
um mjög gaman af því.“
Asgarður - Glæsibæ
Eldri borgarar athugió!
Caprí-tríó leikur öll
sunnudagskvöld frá kl. 20.00-23.30
......... . IrFÉLAG
Allir velkommr
_ EIDRI
*l BORGARA
Útsala
Opið sunnudag 1 3-1 7
NIKE BÚÐIN
Laugavegi 6