Skírnir - 01.01.1901, Blaðsíða 43
Búastriðið.
43
það vænlegast til að tryggja frambúðar-frið í landinu. Þetta þykir því
líklegra setn það er alkunnugt, að Játvarði konungi, sem þá var ríkiserf-
ingi, féll mjög þungt að Bretar neyddu Búa nokkru sinni út í stríð þetta.
Átti hann í þvi sammerkt við mðður sína Viktoríu drottningn, að henni
var svo sárnauðugt að leggja út í stríð þottta við Búa, að það er almæli
að harmurinn yfir hörmungnm stríðsinB hafl dregið hana til bana fyrir ör-
lög fram. Lýkur þar fréttasögu vorri frá Búastríðinu í ár.
Stórbretaland. og írland.
Þar gerðust þau stórtíðindi í ársbyrjun að Viktoría drottning andað-
ist 22. Janúar, og hafði þá einn um áttrætt, því að hún var fædd 24.
Mai 1819, og var dðttir Girgis konungs 3. Þá er haun dó 1820, kom til
ríkis Vilhjálmur brððir hans, er dó 20. Júní 1837, og kom Viktoría þá
til ríkis eftir föðurbróður sinn. 1840 giftist hún frænda sínum Alberti
prins af Sachsen-Coburg (f. 1819., d. 1861); var það ið farsælasta hjóna-
band, enda var hún mannkostakona, en hann inn frábærasti maður að
vitsmunum og drengskap. 1876 Iét hún auka tignarnafn sitt og kalla
sig keisarynju yfir lndlandi. Eizta barn hennar var Viktoría, er giftist
Friðriki Prússakonungsssyni, er síðar varð Þjóðverjakeisari og nefndist
Priðrik 3. Þeirra sonur er Vilhjálmur, si er nú er Þjóðverjakeisari.
Næsta barn Viktoríu drottningar var Albert Edward (Játvarður), fæddur
1841; hann tók nú konungdóm eftir móður sína, og nefnist Játvarður 7.
konungur Stórbretalands og írlands og iuna brezku velda fyrir handan
höf, keisari yfir Indlandi. Hann hafði kvongaBt 10. Marz 1863, og geng-
ið að eiga Alexöndru elztu dóttur KristjánB 9. konungs vors.
Búastríðið, sem stóð hátt á þriðja ár, frá Ukt.-byrjun 1899 til Maí-
loka 1902 hefir orðið brezka rikinu býsna dýrt. Það hafði, mánuði áður
en það hætti, kostað Bretaveldi £ 225,000,000, og enginn efi á, að kostnað-
urinn verður £ 250,000,000 um það alt lið er heim fluttog allir útlagar
fluttir heim til Suður-Afríku, þótt ótalið sé alt það tjón, er mannfallið í
stríðinu hefir valdið þeim, og allar þær milíónir, sem það hlýtur að kosta
að ala suður í Afríku ógrynni setuliðs um ófyrirsjáanlegan tíma. Frá því
er þeir Peel og Gladstone hurfu frá verndartollastefnu til vorzlanfrelsis
og fram að árinu 1900, hafði Bretlandi vegnað svo vel að fjárhag, að
stjórnin hafði lækkað rikisskuldirnar nm £ 200,000,000 á svo sem 50 ár-
um; en nú hefir Búastríðið glcypt fimtungi meira, en allan þann hálfrar
aldar sparnað, í einum teig. Til að standast þann kostnað, sem þegar er