Fréttablaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 24
FRÉTTABLAÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SECJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á 'ITÍSÍi’-ÍS Fyrstur með fréttirnar
ns Laserjet 2200
hp Laserjet 1200
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Neglum
sólina fasta
Bakarí eru ómótstæðileg í alla
staði og stundum missi ég ráð
og rænu, kaupi frá mér allt vit,
svona horn og hinsegin beyglur, bök-
ur og sætar kökur, held svo heim
klyfjuð og býð upp á kræsingarnar.
Fyrir kemur að ég kaupi of mikið
svo vínarbrauðið grænkar og sand-
kakan ummyndast í steingerving,
hafnar svo í ruslinu og ég heiti því
að hemja mig í bakaríum, temja mér
hófsemi og stilla mig þegar lífsins
lystisemdir eru annars vegar.
Frómur háskólaspekingur fer mik-
inn þessi dægur og blæs til sig-
urs. Hin íslenska þjóð á ekki sætta
sig við að vera bara fimmta ríkasta
þjóð í heimi. Nú stefnum við á fyrsta
sætið. Á þessu heimsmeistaramóti
eru fjórar evrópuþjóðir ásamt hinu
villta draumalandi vestursins. Ósköp
þótti mér notalegt að fregna að við
hömpum fimmta sætinu í heimsbik-
arnum í ríkidæmi og gott til þess að
vita að hæfileikaríkir hugsjónamenn
undirbúa nú leiftursókn til sigurs í
úrslitakeppninni. En hvernig er það
á þessu bikarmóti - keppa menn í b
og c riðli og falla úr keppni á endan-
um vegna slælegrar frammistöðu?
Hvað verður um fátæku vesaling-
ana? Þar sem ég sat í mínu úthverfi
og horfði á myglaða vínarbrauðið í
ruslinu varð mér hugsað til Bláa
Hnattarins.
Hinn stórkostlegi Gleðiglaumur
Geimmundsson er þar í aðal-
hlutverki. Hann býður hamingju-
sömum íbúum á Bláa hnettinum að
gera þá enn hamingjusamari. Há-
skólamaðurinn frómi minnir svolítið
á hann. Gleðiglaumur neglir sólina
fasta svo íbúar geti ekki bara flogið
á daginn heldur líka á nóttunni.
Kannski að íslenska þjóðin hafi eign-
ast sinn eiginn Gleðiglaum sem kem-
ur okkur í fyrsta sæti.í heimsmeist-
aramótinu í auðæfum og neglir sól-
ina fasta yfir íslandi.
Fimmta sæti er ekki nóg. Ekki nóg
að svífa um í paradís dagana
langa. Nei, neglum hana fasta, fljúg-
um líka á nóttunni og sendum bara
mat og teppi yfir hafið til fátækling-
ana í myrkrinu eins og gert var á
Bláa hnettinum. Og horfum svo á
myglað vínarbrauðið í ruslinu! ■
í hvert sinn sem Safnkortið er notað til kaupa á eldsneyti lætur
Olíufélagið hf. ESSO ákveðna fjárhæð af hendi rakna til
forvarnarverkefna. Safnkortshafar fá sama afslátt og fyrr.
Leggðu átaki gegn fíkniefnum lið - notaðu Safnkortið alltaf
þegar þú setur á tankinn!
Þú getur sótt um Safnkort á næstu ESSO-stöð
eða á heimasíðu okkar www.esso.is.
www.bubbi.esso.is
Olfufélagiðhf
www.esso.is
EINSTÖK ÍTÖLSK PERLA I ANDA LA VlTA E BELLA OG IL PöSTINO
MALÉKíA
... Frá óskarsverðlaunaleikstjóra Cinema Paradiso
SÝND í REGNBOGANUM
GAlileö
DCGUonniMM
FILIPPO
BERID