Skólablaðið - 01.05.1914, Side 1
SKÓLABLAÐIÐ
ÁTTUNDI ÁRGANGUR
1914. j Reykjavík, I. maí. J 5. tbl.
Enn um Mentaskólann.
Nokkur atriði í grein Stefáns Stefánssonar, skólastjóra, í síð-
asta tblóSkólablaðsins langar mig að drepa á.
Ásteitingaratriðið, kunnáttu og námfimi gagnfræðinga frá
Akureyri, hirði eg ekki að gera að frekara umræðuefni í blaða-
greinum en nauðsyn krefur, tel betra að gera grein fyrir ummæl-
um mínum um það á annan veg. Þó skal þess getið, að fjarri
er það mér að telja nemendum Mentaskólans í engu ábóta-
vant, ef Akureyringar væru þar ekki. Aðalefni greinar minn-
ar var tillaga um aukabekk milli deilda skólans, er allir
nemendur skyldu vera í, áður en þeir kæmu í lærdómsdeildina,
jafnt nemendur Mentaskólans sem aðrir. Þeim er þar gert jafn
hátt undir höfði og hinum og getur það varla talist vottur um
trú á óskeikulleik þeirra.
Eftir tillögu minni ætti aukabekkurinn að gera að minsta
kosti þrent í senn: 1. gera gagnfræðadeildina óháðari lærdóms-
deildinni, því að haga mætti fyrri deildinni mun alþýðlegar, ef
ekki þyrfti hún beinlínis að sníða fyrirkomulag sitt effir lærdóms-
deildinni; 2. myndi hann minnka aðsókn að lærdómsdeildinni,
3. myndi hann tryggja lærdómsdeildinni jafnari nemenviur. —
Mér hefði þótt vænt um, að skólatjórinn á Akureyri, jafn kunnur
skólamaður, hefði látið í Ijósi álit sitt um þetta mál; en h'tið er
um þau efni í greininni. Hann talar um að banna mætti utan-
skólanemendum að taka gagnfræðapróf. Ekki finst mér það ráð
drengilegt gagnvart þeim, sem basla áfram í fátækt og hafa ekki
efni á margra ára skólavist. Líku máli gegnir um að herða á