Vísir - 14.08.1964, Side 1
34. árg. — Föstudagur 14. ágúst 1964. — 184. tbl.
MAÐURINN SEM FÓRST
Flugmaðurinn, sem fórst, Elm
er Róbert Daníels, var fæddur
20. júlí 1943 í Reykjavik. For-
eldrar hans voru Steinþóra
Steinþórsd. og Elmer Robert.
Móðir hans er nú búsett í
Minneapolis. Elmer heitinn bjó
hjá ömmu sinni, konu Halldórs
Sigurðssonar, fisksala, að Meiá
vegi 21.
Hann lærði flug hjá Flugskól
anum Flugsýn. Hann hóf að
læra í fyrravor, fékk flugnema
skírteini 31. mai ’63, en einka-
flugmannsskírteini sitt (nr. 671)
hlotnaðist honum 11. júnf 1964,
hafði hann flogið 90 tíma, þeg
ar hann tók einkaflugmanns-
Framhaid á bls. 5.
Þannig lá vélin á syllu sunnan I Litla Meitli. Eins og myndin ber með sér hefur framendi vélarinnar
og hægri hlið lent á fjallinu. 1
Ungur muður fórst í flugslysi í þokunni í gær
flugvél af gerðinni Cessna 140.
Vélina leigði hann hjá Flugsýn.
Elmer var veðurtepptur i Eyjum
vegna þoku þangað til í gær.
Lagt var upp klukkan 14.55
frá Eyjum. Áætlað að lenda i
Reykjavík 15.45. Flugþol vélar-
innar 3 tímar.
Síðan heyrðist í vélinn'i •
flugradíói kl. 15.20 og einnig
heyrðist í henni yfir Eyrar-
bakka. Þegar vélin kom ekki
fram á tilsettum tíma var strax
lýst yfir neyðarástandi í flug-
turninum. Þegar var haft sam-
band við fiugradíóið á Hellu,
en Elmer hafði haft orð á því,
að hann hygðist lenda þar ef
ófært yrði til Reykjavíkur.
Sverrir Jónsson, flugstjóri hjá
Flugsýn, fiaug austur og hugðist
reyna að hafa samband við
Elmer, en varð að lenda fl
Sandskeiðinu, vegna mikillar
þoku á heiðinni. Flugbjörgunar-
sveitin var kölluð út klukkan
16,45, síðan Hjálparsvéit skáta
í Hafnarfirði. Arnór Hjálmars-
son, yfirflugumferðarstjöri
stjórnaði leitinni úr flugturn-
inum í Reykjavík. Fljótlega
eftir að far'ið var að óttast um
vélina var haft samband við
Gufunesradíó og það beðið um
að kalla út tilkynningu til allra
talstöðvarbíla. Strax eftir að
tilkynning’in um vélina hafði
verið send út kallaði Halldor
Dagbjartsson, bílstjóri hjá
Vegagerðinni upp Gufunesradíó
og sagðist ásamt fjórum starfs-
bræðrum hafa veitt þessari
flugvél athygl'i. Halldór skýrði
m. a. svo frá: Klukkuna vantaði
5 mínútur í fjögur og vorum
við að drekka kaffi saman. Við
sátum á mosaþembu, rétt við
Þrengslaveginn, þegar við veitt-
um flugvélinni athygl'i. Hún
flaug mjög lágt og sáum við
greinilega einn mann £ henní.
Véiin flaug yfir veginn og sfð-
an virtist okkur hún snúa við
Skömmu síðar heyrðist Gunn-
Framhald á bls. 5.
Myndina tók B. G. ljósmyndari Vfsis af flaki flugvélarinnar, skömmu eftir að leitarflokkurinn fann það. Eins og myndin ber með
Myndin er af leitarflokknum sem fann flak vélarinnar, en f hon-
um voru skátar úr Harfnarfirði og menn úr Flugbjörgunarsveitinni
Elmer Róbert Daníels, 21 árs
gamall maður, beið bana er
flugvél hans rakst á Litia
Meitil í Þrengslum, sfðdegis
f gær. Elmer var á leið frá
Vestmannaeyjum v í tveggja
manna flugvél, frá Flugsýn, á-
leiðis til Reykjavikur, þegar
flugvélin týndist í Þrengslun-
um. Vfðtæk leit var skipulögð
og tóku um 300 menn þátt f
henni. Þyrilvængja var staðsett
uppi f Þrengslum í nótt og í
henni læknir, þá var annar
læknir með leitarflokkum uppi
í Skálafelli. Lögreglan lokaði
Þrengslaveginum f gærkvöldi.
Leitarmenn voru f stöðugu sam
bandi við flugumferðarstjómina
f Reykjavfk, en þaðan var leit-
inni stjómað. Þoka tafði leitar-
starfið mikið og fannst vélin
ekki fyrr en klukkan -5,30 i
morgun, sunnan f Litla Meitli,
gereyðilögð og brannin og
var þá Elmer látinn.
Það var sl. miðvikudag sem
Elmer Róbert Daníels lagði upp
af Reykjavíkurflugvelli t’ii Vest-
mannaeyja f tveggja manna
\